Fréttablaðið - 10.10.2008, Síða 42
26 10. október 2008 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
> Jóhann fer aftur til HSV
Blikarnir Jóhann Berg Guðmundsson og Finnur Orri
Margeirsson eru farnir frá Hamborg eftir að hafa verið
hjá HSV í nokkra daga. Finnur Orri mun ekki snúa aftur
en Jóhann Berg mun aftur snúa til félagsins eftir að
hann hefur leikið með U-19 ára landsliði Íslands gegn
Makedóníu. Forráðamenn HSV hafa
mikinn áhuga á Jóhanni og eru meiri
líkur en minni að hann snúi heim á leið
frá Þýskalandi með samningstilboð í
vasanum. Blikar hafa þegar samþykkt
kauptilboð í leikmanninn efnilega.
FÓTBOLTI Mikil umræða um
launamál í knattspyrnuheiminum
á sér stað þessa daga. Lord
Triesman, formaður enska
knattspyrnusambandsins, hefur
mælt með launaþaki á ensku
úrvalsdeildina þar sem félögin
séu flest afar skuldsett.
Triesman telur það algera
nauðsyn að setja á launaþak svo
félög fari ekki í gjaldþrot.
Michel Platini, forseti evrópska
knattspyrnusambandsins, UEFA,
er á sama máli og telur það
nauðsynlegt fyrir íþróttina. Hann
sér þó ekki fyrir sér að það gerist
á næstu misserum.
„Við verðum að fara varlega í
þessi mál og sjá hvað við getum
gert enda yrði það fótboltanum í
hag að koma á launaþaki,“ sagði
Platini. - hbg
Peningamál fótboltans:
Platini vill
sjá launaþak
PLATINI Vill launaþak en segir það ekki
gerast strax. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
V
in
n
in
g
a
r
ve
rð
a
a
fh
e
n
d
ir
h
já
B
T
S
m
á
ra
lin
d
. K
ó
p
av
o
g
i.
M
e
ð
þ
v
í a
ð
t
a
k
a
þ
á
tt
e
rt
u
k
o
m
in
n
í
S
M
S
k
lú
b
b
. 1
4
9
k
r/
sk
e
yt
ið
.
NÝ ÍSLENSK KVIKMYND - FRUMSÝND 9. OKTÓBER
BESTA MYNDIN og Showtime verðlaunin
- New York LGBT Festival
Sérstakt afrek í þágu kvikmynda
- Exit, Novi Sad, Serbía
V
i
in
n
in
g
a
r
n
g
ve
rð
a
a
ERTU Á LEIÐINNI Í BÍÓ?
SENDU SMS BTC BSR Á NÚMERIÐ 1900
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, DVD MYNDIR, TÖLVULEIKIR OG MARGT FLEIRA
HVER VINNUR!9.
BESTA MYNDIN
- Teddy Awards Berline Film Festival
,,Áhrifarík kvikmynd" - LA Times
,,Heillandi og dómlaus frásögn - Hollywood Reporter
Valskonur töpuðu stórt fyrir sænsku meisturunum í Umeå í fyrsta leik
sínum í riðli sínum í 2. umferð Evrópukeppninnar í gær. Umeå
skoraði fyrsta markið eftir 10 mínútna leik og var komið í
3-0 fyrir hálfleik, þökk sé þrennu sænsku landsliðskon-
unnar Hönnu Ljungberg. Margrét Lára Viðarsdóttir náði að
minnka muninn í upphafi seinni hálfleiks en Svíarnir bættu
strax við fjórða markinu og það var síðan hin brasilíska
Marta sem gulltryggði sigurinn.
„Þetta er frábært fótboltalið og geta liðsins er bara
töluvert meiri en okkar. Hjartað sló í 90 mínútur
og leikmenn lögðu sig rosalega mikið fram.
Ég er ánægð með liðið að mörgu leyti. Við
verðum bara að átta okkur á því að það eru
heimsklassaleikmenn í hverri einustu stöðu
og hæfileikarnir eru meiri en hjá okkur,“
sagði Elísabet Gunnarsdóttir, annar þjálfari
Valsliðsins eftir leik. Umeå-liðið hitti á
mjög góðan leik og Valsliðið mátti ekki
við því. „Maður dáðist líka að því hvað
þær lögðu mikið í leikinn. Þjálfari þeirra talaði um það eftir leikinn að
þetta væri einn besti leikur þeirra seinni hluta sumars,“ segir Elísabet.
„Við mættum mjög ákveðnar til leiks í seinni hálfleik og við áttum
miklu betri leik í seinni hálfleiknum. Við minnkuð-
um muninn en við náðum varla að fagna því áður
en þær voru búnar að skora nokkrum sekúndum
síðar,” segir Elísabet. Hún segir tilfinninguna eftir
þennan leik þó vera allt aðra en eftir 0-4 tap fyrir
KR í bikaúrslitaleiknum á dögunum.
„Við töpuðum bikarúrslitaleik eftirminni-
lega fyrir stuttu og þá var maður óánægð-
ur með liðið og framlag til leiksins var
lélegt. Í dag var það ekki svoleiðis,”
segir Elísabet sem segir að ekkert
hafi breyst og leikurinn á móti ítalska
liðinu Bardolino á laugardaginn væri
enn þá úrslitaleikurinn fyrir Valsliðið.
„Það er bara leikurinn,“ segir Elísabet
að lokum.
ELÍSABET GUNNARSDÓTTIR, ÞJÁLFARI VALSLIÐSINS: VALUR TAPAÐI STÓRT Á MÓTI UMEÅ Í GÆR
Með heimsklassaleikmenn í hverri einustu stöðu
HANDBOLTI Það óttuðust margir að
Haukar yrðu kjöldregnir af þýska
liðinu Flensburg í gær en af því
varð ekki. Haukar stóðu ágætlega
uppi í hárinu á þýska risanum en
töpuðu að lokum með fimm marka
mun, 35-29.
Haukar byrjuðu leikinn vel og
um miðbik hálfleiksins náðu þeir
þriggja marka forskoti, 9-12. Þá
tóku leikmenn Flensburg öll völd
á vellinum og skoruðu tíu mörk
gegn tveimur fram að hálfleik og
leiddu þar af leiðandi með fimm
mörkum í hálfleik, 19-14. Haukar
byrjuðu grimmir í síðari hálfleik
og náðu að minnka muninn í þrjú
mörk en nær komust þeir ekki.
Flensburg hélt þeim ávallt í þægi-
legri fjarlægð og landaði að lokum
fimm marka sigri.
„Við spiluðum virkilega góðan
leik. Það er ekkert öðruvísi. Við
komumst í 9-12 og hefðum getað
bætt við en þá tóku dómararnir
völdin og hentu okkur af velli hvað
eftir annað. Það var bara of mikið.
Þetta króatíska dómarapar var
skelfilegt og sérstaklega annar
þeirra sem dæmdi beinlínis á móti
okkur,“ sagði Aron Kristjánsson,
þjálfari Hauka, eftir leikinn.
„Annars er ég mjög ánægður
með strákana. Töpum seinni hálf-
leiknum með einu marki og það
þrátt fyrir þessa dómgæslu. Það
var alger vendipunktur er við
minnkuðum muninn í 29-27 úr
hraðaupphlaupi en það var dæmt
skref á okkur sem var algert bull.
Í kjölfarið er einn af okkar mönn-
um rekinn af velli, þeir ganga á
lagið og klára leikinn,“ sagði Aron
en hans menn létu ekki troðfulla
höll í Flensburg slá sig út af laginu
og Aron segir leikmenn sína geta
borið höfuðið hátt.
„Kári var að spila virkilega vel
allan leikinn. Andri kom upp í
seinni hálfleik. Svo var Arnar Pét-
ursson sterkur en hann kom nán-
ast beint í leikinn frá Íslandi. Byrj-
aði á bekknum en kom svo inn og
stóð sig vel. Það munaði um það
hjá okkur að Gunnari Berg var
tvisvar vikið af velli í fyrri hálf-
leik og ég gat því ekki beitt honum
sem skyldi í vörninni eftir það.
Það vantaði svo talsvert upp á
markvörsluna hjá okkur. Þess
utan er ég stoltur af strákunum
sem sýndu flotta frammistöðu á
virkilega erfiðum útivelli þar sem
var mikið mótlæti í dómgæslu,“
sagði Aron. henry@frettabladid.is
Króatísku dómararnir skelfilegir
Íslandsmeistarar Hauka stóðu sig ágætlega gegn þýska stórliðinu Flensburg í Campushalle í gær. Haukar
töpuðu með sex marka mun, 35-29. Þjálfari Hauka var mjög ósáttur við dómgæsluna í leiknum.
STERKUR Kári Kristjánsson var markahæstur Hauka með sjö mörk og átti stórleik.
Andri Stefan kom næstur með sex mörk. MYND/LIVING SPORTS
STEMNING Sigurbergur Sveinsson fagnar
hér marki í Campushalle. MYND/LIVING SPORTS
HANDBOLTI Akureyri vann örugg-
an 30-21 sigur á HK norðan heiða
í gær. „Þetta er frábær vörn fyrir
framan mig og stemningin í hús-
inu var stórkostleg,“ sagði Haf-
þór Einarsson markmaður sem
fór á kostum í gær.
Akureyri hafði undirtökin í
fyrri hálfleik þökk sé frábærri
vörn og góðri markvörslu Haf-
þórs sem varði ellefu skot í fyrri
hálfleik og alls 24 í leiknum.
Heimamenn skoruðu sex mörk
úr hraðaupphlaupum og náðu
mest fimm marka forystu og
höfðu 14-10 yfir í hálfleik.
HK gekk illa að finna svör við
þéttum varnarleik heimamanna
og virtust þunglamalegir í sókn-
inni. Þeir skoruðu aðeins fimm
mörk fyrstu fimmtán mínúturn-
ar og ekki tók betra við í seinni
hálfleik. Þá lokaði Hafþór mark-
inu enn frekar og HK skoraði
aðeins tvö mörk fyrsta korterið.
Liðið var lélegt og skoraði ekki
fyrstu tíu mínúturnar á meðan
Akureyringar spiluðu mjög vel,
náðu mest tíu marka forystu og
unnu sanngjarnan 30-21 sigur.
„Þetta var hneisa,“ sagði HK-
ingurinn Sverre Jakobsson sem
er uppalinn á Akureyri.
„Við komum með hangandi
haus til leiks og höldum að við
séum kóngar eftir að hafa unnið
Hauka. Þetta er bara skandall. Ég
er ekki að segja að það sé ekki
hægt að tapa hér fyrir norðan,
þeir eru með hörku lið, en að tapa
með svona byrjendabolta er
hneisa fyrir félagið og við urðum
okkur til skammar í dag. Ég vil
biðja stjórnina og stuðnings-
mennina afsökunar á þessu,“
sagði Sverre sem sagði nauðsyn-
legt fyrir liðið að vinna næsta
leik.
Hafþór var mun sáttari. „Þetta
var mjög góður leikur að okkar
hálfu. Við spiluðum vel saman
sem heild og þá gengur allt saman
upp. Það er góð stemning í kring-
um liðið og umgjörðin er frábær.
Herbert Guðmundsson með Can´t
walk away hér fyrir leik átti sinn
þátt í að koma okkur í stuð eins
og annað,“ sagði Hafþór glað-
beittur en Herbert hitaði áhorf-
endur upp fyrir leikinn.
„Áhorfendur voru frábærir og
með troðfullt hús þarf að vera
eitthvað að ef þú ætlar þér ekki
eitthvað. Við getum allt sem við
viljum ef við höldum þessu
áfram.“ - hþh
HK-ingar biðjast afsökunar á lélegum leik eftir öruggan sigur Akureyrar í gær:
Við urðum okkur til skammar
HARÐORÐURSverre Jakobsson var ekki
sáttur með leik HK. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Mörk Akureyrar: Oddur Grétarsson 6 (9),
Andri Snær Stefánsson 5/3 (7), Heiðar Þór
Aðalsteinsson 5 (7), Árni Þór Sigtryggsson 5
(15), Hörður Fannar Sigþórsson 4 (7), Jónatan
Magnússon 2 (7/1), Þorvaldur Þorvaldsson 1
(1), Rúnar Sigtryggsson 1 (1), Elfar Halldórsson
1 (2).
Varin skot: Hafþór Einarsson 24/44 55%,
Jesper Sjögren 0/1 0%
Hraðaupphlaup: 9 (Oddur 4, Heiðar 2, Rúnar,
Andri). Fiskuð víti: 4 (Árni 2, Hörður 2)
Utan vallar: 4 mínútur
Mörk HK: Valdimar Þórsson 6/4 (11), Gunnar
Steinn Jónsson 4/1 (10), Einar Ingi Hrafnsson 3
(5), Sverre Jakobsson 2 (2), Magnús Magn
ússon 2 (4), Hlynur Már Magnússon 2 (4),
Ásbjörn Stefánsson 1 (3), Bjarki Már Gunnars
son 1 (4), Hákon Bridde 0 (2), Jón Björgvin
Pétursson 0 (2), Sigurgeir Árni Ægisson 0 (1).
Hraðaupphlaup: 2 (Sverre, Magnús)
Fiskuð víti: 5 (Einar, Valdimar, Jón Björgvin,
Magnús). Utan vallar: 4 mínútur
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 10/30 33%,
Björn Ingi Friðþjófsson 6/16 38%.
AKUREYRI-HK 30-21