Fréttablaðið - 12.10.2008, Page 28
menning
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ]
Október 2008
Neyðarfundur var boðaður
í menntamálaráðuneytinu á
föstudagsmorgun með helstu
forkólfum
listastofnana
ríkisins. Ljóst
er að veru-
leg umbreyt-
ing verður í
rekstrarum-
hvefi stofn-
ana og þær
verða í skyndingu að minnka
kostnað það sem eftir er
ársins og geta búist við
harkalegum niðurskurði við
afgreiðslu fjárlaga. Spurning
hvort ráðherraliðurinn, sem í
ár var nær níutíu milljónir til
ráðstöfunar fyrir ráðherra, sé
ekki fyrsti liðurinn sem ætti
að skera niður.
Vesturport-leikflokkurinn
var byggður upp með dyggi-
legum stuðningi Björgólfs
Thors Björgólfssonar og
Kristínar Ólafsdóttur með
tilstyrk Landsbanka Íslands.
Með honum
breyttist
nokkuð
aðstaða
frjálsra
leikhópa
með tíðum
boðsferðum
á listahátíðir
erlendis. Núna er sú styrklind
þorrin og því fyrirsjáanlegt að
sýningar á verkum hópsins í
New York og víðar eru fyrir bí.
Lokun á bankalínum og
afgreiðslu fjármagns til
erlendra viðskipta mun hafa
afdrifarík áhrif á íslenskar
bókaútgáfur sem prenta
upplög sín erlendis. Tafir
verða á útgáfum og prentun.
Er því hætta á að margir fari
illa út úr útgáfu á þessu ári,
nema Forlagið sem tók þann
pólinn á síðsumardögum að
prenta allt sitt hér heima í
Oddanum.
AÐ TJALDABAKI
HAUSTÚTSALA
Aðeins í nokkra daga!
OPIÐ
VIRKA DAGA 10 – 18
Laug. 11. okt. 10 – 17
Sunn. 12. okt. 13-17
afsláttur
www.utivistogsport.is
NÝTT KORTATÍMABIL
Reykjavík Faxafen 12 S. 533-1550. Keflavík Hafnargata 25 S. 421-3322
Leyndarmálið felst í lögmáli aðdráttaraflsins.
Allt sem gerist í lífinu löðum við að okkur.
Leyndarmálið er falið innra með hverjum og
einum og möguleikarnir eru endalausir.