Fréttablaðið - 12.10.2008, Síða 34
FÓTBOLTI Stefán Gíslason segir
íslenska liðið vera í framför þrátt
fyrir tapið gegn Hollandi í gær.
„Hvað getur maður sagt. Ég get
ekki neitað því að ég sé svekktur.
Við vorum samt að reyna að spila
boltanum eins og fyrir okkur er
lagt og það gekk ágætlega fannst
mér gegn sterkum mótherja. Við
náðum líka að skapa okkur ágætis
marktækifæri og það er bara
spurningin um að ná að klára þau
betur. Maður getur aldrei verið
ánægður með að tapa en við sýnd-
um samt að við getum vel spilað
fínan fótbotla,“ segir Stefán.
Stefán var sérstaklega ósáttur
við seinna markið sem Hollend-
ingar skoruðu.
„Við sofnuðum aðeins á verðin-
um í fyrra markinu sem þeir náðu
að skora og það er eitthvað sem
við eigum alveg að geta komið í
veg fyrir. Seinna markið var samt
enn meira svekkjandi þar sem þar
var bæði um hendi á Hollending-
ana að ræða og rangstöðu. Það er
náttúrulega mjög pirrandi að þeir
hafi komist upp með það,“ segir
Stefán.
Stefán telur Ísland nú þurfa að
bíta í skjaldarrendur og markmið-
ið sé nú alveg klárt fyrir næsta
leik, á miðvikudag þegar Make-
dóníumenn koma í heimsókn á
Laugardalsvöll.
„Við verðum nú að taka þrjú stig
gegn Makedóníu. Það er klárlega
markmiðið og ef við ætlum ein-
hvern tíman að taka þrjú stig í
þessum riðli, þá er það á heima-
velli gegn Makedóníu,“ segir
Stefán.
- óþ
De Kuip, áhorf.: 37.500
Holland Ísland
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 17–10 (6–1)
Varin skot Van der Sar 2 – Gunnleifur 4
Horn 6–3
Aukaspyrnur fengnar 11–12
Rangstöður 1–1
1-0 Joris Mathijsen (15.)
2-0 Klaas-Jan Huntelaar (66.)
2-0
Trefoloni frá Ítalíu (x)
18 12. október 2008 SUNNUDAGUR
sport@frettabladid.is
BYRJUNARLIÐIÐ
Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður 8
Öruggur og sýndi af hverju hann átti skilið að vera valinn í liðið.
Ragnar Sigurðsson, hægri bakvörður 7
Hafði í nógu að snúast en leysti hlutverk sitt prýðilega.
Kristján Örn Sigurðsson, miðvörður 7
Fastur fyrir og stoppaði margar sóknir Hollendinga með góðum tæklingum.
Hermann Hreiðarsson, miðvörður 7
Las leikinn vel og stjórnaði vörninni með sóma.
Indriði Sigurðsson, vinstri bakvörður 7
Náði að halda sinni stöðu vel og var öruggur í sínum aðgerðum.
Birkir Már Sævarsson, hægri vængmaður 7
Baráttuglaður og óþreytandi í hlaupum sínum fram völlinn.
Brynjar Björn Gunnarsson, tengiliður 6
Kom með mikið öryggi inn í leik íslenska liðsins en skortir leikform.
Stefán Gíslason, tengiliður 5
Fínn í fyrri hálfleik en var ekkert í boltanum í þeim seinni.
Eiður Smári Guðjohnsen, sóknartengiliður 5
Náði ekki að setja mark sitt á leikinn og munar um minna.
Emil Hallfreðsson, vinstri vængmaður 6
Átti ágætis spretti inn á milli en vantaði oft herslumuninn upp á hjá honum.
Veigar Páll Gunnarsson, sóknarmaður 6
Duglegur og sýndi ágæt tilþrif, sérstaklega í fyrri hálfleik.
VARAMENN
61. Theódór Elmar Bjarnason fyrir Ragnar Sigurðsson 5
Var lítið í boltanum og komst ekki í takt við leikinn.
73. Aron Einar Gunnarsson fyrir Brynjar Björn Gunnarsson -
87. Arnór Smárason fyrir Veigar Pál Gunnarsson -
FRAMMISTAÐA ÍSLENSKA LIÐSINS
>Meistaraliðin spila fyrir BUGL
Meistarakeppni KKÍ fer
fram í dag en þar munu
mætast Íslandsmeistarar
og Bikarmeistarar karla og
kvenna frá síðasta tímabili.
Báðir leikirnir fara fram á heimavelli Íslands-
meistaranna eða í Toyotahöllinni í Keflavík.
Keflavík og Grindavík mætast í kvennaflokki
klukkan 16.30 en hjá körlunum
spila Keflavík og Snæfell klukk-
an 19.15. Ágóðinn af leikjum í
Meistarakeppninni hefur frá upphafi
runnið til ákveðins málefnis / samtaka.
Í ár varð BUGL, Barna og Unglingageðdeild
Landspítalans fyrir valinu .
FÓTBOLTI Ísland tapaði 2-0 gegn
stórliði Hollands í gærkvöld en
þetta var annar tapleikur liðsins í
röð í undankeppni HM 2010 og
Ísland situr á botni riðilsins með
eitt stig.
Dagskipunin á de Kuip-leik-
vanginum var að heita einföld hjá
landsliðsþjálfaranum Ólafi
Jóhannessyni; agaður varnarleik-
ur og að íslensku leikmennirnir
sýndu þor og kjark til að halda
boltanum og gripu þau sóknarfæri
sem gæfust.
Íslendingar byrjuðu leikinn
nokkuð vel og þó að Hollendingar
væru mun meira með boltann gáfu
íslensku varnarmennirnir engin
færi á sér og varnarfærslurnar á
öllu liðinu voru til fyrirmyndar.
Andartaks einbeitingarleysi
varð hins vegar til þess að Hol-
lendingar tóku forystu á 14. mín-
útu leiksins. Rafael van der Vaart
átti hornspyrnu sem Íslendingar
bægðu frá en boltinn barst aftur í
lappirnar á van der Vaart úti á
kantinum vinstra megin. Hann
sendi boltann fyrir markið á varn-
armanninn Joris Mathijsen sem
var óvaldaður í teignum og skor-
aði af stuttu færi. Mikil vonbrigði
fyrir Ísland þar sem um var að
ræða fyrsta alvöru marktækifæri
Hollendinga og fyrsta skot þeirra
að marki í leiknum.
Hollendingar héldu áfram að
pressa á Íslendinga og leituðu
mikið að Ryan Babel á vinstri
kantinum en Babel var einmitt
sjálfur nálægt því að bæta við
öðru marki á 26. mínútu en Kristj-
án Örn náði þá að bjarga á mark-
línu.
Íslendingar fengu sín sóknar-
færi þegar líða tók á fyrri hálf-
leikinn þar sem Emil og Veigar
Páll, í tvígang, komust í góð skot-
færi en skot þeirra fóru yfir mark-
ið.
Staðan var enn 1-0 þegar flautað
var til hálfleiks og hollenskir
áhorfendur, sem eru þekktir fyrir
að vera kröfuharðir, farnir að
ókyrrast í stúkunni. En íslensku
leikmennirnir gátu vel við unað
enda vel inni í leiknum.
Hollendingar bættu við öðru
marki á 64. mínútu og aftur var
van der Vaart smiðurinn. En í
þetta skiptið átti hann stungu-
sendingu á framherjann Klaas Jan
Huntelaar sem þrumaði boltanum
neðst í markhornið fjær, óverj-
andi fyrir Gunnleif í markinu. Það
reyndist vera síðasta mark leiks-
ins og því urðu hollenskir áhorf-
endur af markaveislunni sem þeir
áttu eflaust von á fyrir leikinn.
Íslendingar náðu að vinna sig
ágætlega inn í leikinn þegar líða
tók á seinni hálfleik, líkt og þeir
gerðu í lok fyrri hálfleiks, en það
vantaði aðeins upp á að klára sókn-
irnar betur. Góði, gamli herslu-
munurinn. Það hlýtur engu að
síður að vera framfaraskref að
liðið reyndi að spila boltanum eins
og lagt var upp með.
Óvinnandi vígi
Þrjátíu og fimm þúsund aðdáend-
ur hollenska landsliðsins á de
Kuip-leikvanginum í gærkvöld
létu vel í sér heyra en hollenska
liðið hefur ekki tapað leik þar í
átta ár. Enn fremur hefur hol-
lenska liðið nú ekki fengið á sig
mark þar í 486 mínútur þannig að
ekki var öfundsvert fyrir Íslend-
ingana að mæta Hollendingum
undir þessum kringumstæðum, í
nánast óvinnandi vígi.
Hollendingar voru númeri of stórir
Baráttuglaðir Íslendingar urðu að játa sig sigraða, 2-0, gegn Hollendingum í undankeppni HM 2010 í Rot-
terdam í gærkvöld. Hollendingar sóttu stíft stóran hluta af leiknum en íslenska vörnin hélt ágætlega.
BARÁTTA Indriði Sigurðsson sést hér
glíma við Hollendinginn Dirk Kuyt sem
spilar með Liverpool. NORDICPHOTOS/AFP
EITT - NÚLL Joris Mathijsen kemur hér Hollendingum í 1-0 strax á 14. mínútu leiksins, íslenska liðinu hafði því mistekist að halda
út fyrstu tuttugu mínútur leiksins. Kristján Örn Sigurðsson og Hermann Hreiðarsson geta ekkert gert. NORDICPHOTOS/AFP
HOLLAND-ÍSLAND
ÓMAR ÞORGEIRSSON
skrifar frá Rotterdam
omar@frettabladid.is
Það var fyrirfram vitað að Ísland ætti við ramman reip að
draga gegn stórliði Hollands sem er sem stendur númer
fimm á styrkleikalista alþjóðaknattspyrnusambands-
ins FIFA. Landsliðsþjálfarinn Ólafur Jóhannesson var
vissulega svekktur yfir að tapa leiknum en gat þó tínt til
margt jákvætt í leik íslenska liðsins.
„Það er náttúrulega alltaf svekkjandi að tapa en það
er líka spurning hvernig menn tapa. Það verður að
taka það líka með í reikninginn. Við vorum að spila
við eina af sterkari þjóðum heims og við getum alveg
borið höfuðið hátt eftir leikinn. Það er ekkert gefið að
menn fari á jafn sterkan útivöll og hér í Hollandi og
taki þrjú stig,“ segir Ólafur.
Ólafur var ágætlega ánægður með varnarleik-
inn en telur að íslenska liðið þurfi að
gera betur á sóknarlega sviðinu.
„Mér fannst við ekki byrja leikinn
nógu vel og við vorum að falla
allt of langt til baka og það veit
aldrei á gott, sér í lagi á móti sterku liði eins og því hol-
lenska. Vinnusemin var kannski það sem stóð upp úr og
mér fannst við vera að leggja okkur alla fram. Varnar-
leikurinn var líka nokkuð góður, sér í lagi þegar líða tók
á leikinn, en eins og stundum áður þá náðum við ekki
að leysa hlutina nógu vel þegar við komumst yfir miðju.
Við verðum að vera hvassari í sóknaraðgerðum okkar.
Hollenska liðið er ekkert sérstakt þegar það er ekki með
boltann og við vorum ákveðnir fyrir leikinn að reyna að
nýta okkur það til fulls. Við fengum alveg okkar færi í
leiknum til þess að skora en það gekk ekki upp í þetta
skiptið,“ segir Ólafur.
„Sóknarleikurinn er eitthvað sem við
erum að reyna að vinna að og það
tekur smá tíma. Við höfum verið að
reyna að fá menn til þess að halda
boltanum meira innan liðsins og
það er, að ég tel, allt á réttri
leið.“
LANDSLIÐSÞJÁLFARINN ÓLAFUR JÓHANNESSON: VAR ÁNÆGÐUR MEÐ MARGT Í LEIK ÍSLENSKA LIÐSINS
Við getum alveg borið höfuðið hátt eftir leikinn
Miðjumaðurinn Stefán Gíslason var ósáttur með tapið gegn Hollandi:
Verðum að taka þrjú stig úr
leiknum gegn Makedóníu
FÓTBOLTI Grétar Rafn Steinsson
var að vonum vonsvikinn með að
geta ekki tekið þátt í leiknum
gegn Hollandi í gær.
„Ég var búinn að búa mig andlega
vel undir leikinn og hlakkaði
mikið til að taka þátt í honum en
svona getur stundum gerst. Við
æfum náttúrulega af krafti og ég
fékk þarna tæklingu í fótinn sem
ég stóð í þegar ég var að fara að
skjóta og fékk högg á hnéð. Þetta
var svekkjandi en getur alltaf
gerst,“ segir Grétar.
„Mér fannst liðið komast nokkuð
vel frá leiknum og við erum
áfram í framför. Nú er það bara
Makedónía og ég mun fara með
liðinu til Íslands og vonandi næ
ég að spila þann leik,“ segir
Grétar Rafn. - óþ
Grétar Rafn Steinsson:
Erum áfram í
framför
MEIDDUR Grétar Rafn Steinsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL