Fréttablaðið - 12.10.2008, Page 40
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Svefnpokapláss
kr. 1.500 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is
með ánægju
www.icelandexpress.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Hafðu samband í síma 5 500 600 eða sendu okkur línu á
vidskiptaferdir@icelandexpress.is
• Betra verð
• Aðra leið
• Tíðar flugferðir
• Hægt að fljúga til eins
áfangastaðar og heim
frá öðrum
• Auðvelt að breyta bókunum
• Finnum hótel við hæfi
• Í boði að velja sæti
• Engin sunnudagaregla
• Engin hámarksdvöl
• Aðstoðum við bókanir á
framhaldsflugi erlendra
flugfélaga
Hagstæðir fyrirtækjasamningar í boði. Tilvalið fyrir sveitarfélög,
opinberar stofnanir og fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum.
Eina viðskiptavitið!
– Fyrir þá sem eru á leiðinni út
Í dag er sunnudagurinn
12. október, 285. dagur ársins.
8.10 13.14 18.17
7.59 12.59 17.57
Um daginn var ég skammaður fyrir að skrifa bara um ein-
hver smámál en ekki um stórmál-
in sem eru efst á baugi: „Heimur-
inn er að farast og þú ert að rausa
um tittlingaskít!“ En ég geri þetta
af yfirlögðu ráði. Mér finnast smá-
málin nefnilega undantekningalít-
ið mun áhugaverðari en stórmálin.
Til dæmis hafði ég mjög gaman af
fréttum hér áður fyrr þegar þar
var sagt frá því helsta í heimsmál-
unum, smáu sem stóru. Þá mynd-
uðu smáatburðir nauðsynlegt mót-
vægi við stóratburði. „Hafði“ segi
ég því nú er þessu öðruvísi farið.
Nú eru bara stórmál í boði. Um
daginn var ekki einu sinni pláss
fyrir íþróttafréttir í Sjónvarpinu
fyrir stórfréttum úr heimi bók-
færslu og viðskipta.
ÉG MAN að fyrir nokkrum árum
byrjaði þáttur í sjónvarpi sem hét
Viðskiptafréttir og gekk út á það
að umsjónarmaðurinn, hinn geð-
þekki G. Pétur Matthíasson, ruddi
upp úr sér tölfræði um gengi
hlutabréfa og helstu gjaldmiðla.
Ég man að ég gapti af undrun fyrst
þegar ég sá þetta ævintýralega
leiðinlega sjónvarpsefni. Ekki datt
mér í hug að nokkur maður nennti
að horfa á þetta, þeir sem þyrftu
þessar upplýsingar fengju þær
annars staðar, þeir sem ekki
þyrftu þær skiptu um stöð. Ég
spáði þessum þætti því ekki löng-
um lífdögum. Illu heilli reyndist
ég ósannspár. Þættinum óx fiskur
um hrygg frekar en hitt. Smám
saman yfirtók hann aðalfrétta-
tímann eins og hvimleið og skæð
sýking. Nú er svo komið að allar
fréttir eru viðskiptafréttir, ekki
bara í sjónvarpi heldur líka í dag-
legum samskiptum fólks.
UM DAGINN lagði ég leið mína
á gamla eftirlætispöbbinn minn til
að spjalla við fyllibytturnar um
síðustu atburði. Þetta var daginn
eftir lokaumferð Íslandsmótsins í
knattspyrnu, en um hvað haldið
þið að hafi verið rætt þarna á
barnum þennan sögulega mánu-
dagseftirmiðdag? Dramatíkina í
lokaumferðinni? Seiglu Hafnfirð-
inga og seinheppni Keflvíkinga?
Nei, það var verið að ræða vísi-
tölur og vogunarsjóði, vaxtabætur
og verðtryggingarálag. Ef þetta er
að vera dagdrykkjumaður í dag er
ég feginn að geta notað tímann í
annað.
ÉG TRÚI því hins vegar og treysti
að þegar fram líða stundir muni
sannir fréttafíklar eins og ég
minnast ársins í ár með hryllingi.
Árið 2008 verður annus horribilis í
minningunni, árið þegar G. Pétur
stal fréttunum.
Þegar G. Pétur
stal fréttunum