Fréttablaðið - 21.10.2008, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 21.10.2008, Blaðsíða 40
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Karenar D. Kjartansdóttur VERÐ 4.675.000,-  Ekki láta peningana gufa upp !! Notaðu þá í eitthvað áþreifanlegt... er glæsilegur sportjeppi sem tekið er eftir. Bíllinn er hannaður til að mæta kröfum evrópskra ökumanna og er útkoman áberandi glæsilegur bíll. Kraftmikil túrbo dísilvél, 5 þrepa sjálfskipting og þú getur valið 5 eða 7 manna bíl. Komdu við hjá okkur, við erum á Tangarhöfðanum - Alltaf heitt á könnunni. Chevrolet gæði frábært verð. Chevrolet Captiva 7 manna sjálfskiptur sportjeppi Hluti af staðalbúnað: Tenging fyrir MP3 spilara Fjöldiskaspilari Áttaviti Í dag er þriðjudagurinn 21. október, 295. dagur ársins. 8.37 13.12 17.46 8.29 12.57 17.24 Ólafur Ragnar sem Íslendingar kynntust fyrst í þáttunum Næturvaktinni er drengur góður. Manni finnst óskiljanlegt að hægt sé að níðast á jafn hrekklausri sál eins og Georg Bjarnfreðarson, Nígeríu- svindlarinn og pervertinn hún Gugga gera. Einhverra hluta vegna skelli- hlæja áhorfendur að óhamingju hans. Ástæðan fyrir því að fólk hlær illgirnislega er heimska Ólafs. Þörf- in fyrir að verða ríkur og einhvers metinn í samfélaginu rekur hann út í hverja óhamingjuna eftir aðra, hann forðast þó sífellt að horfast í augu við niðurlægingu sína og er nægilega einfaldur til að brotna ekki niður. Í einfeldni sinni telur hann sér trú um að hann skipti einhverju máli. SÍÐUSTU vikur hef ég ekki getað horft á hryllinginn sem fram fer í skemmtiþáttunum Dagvaktinni. Örlög Ólafs Ragnars eru nefnilega farin að líkjast of mikið niðurlæg- ingu Íslendinga allra gagnvart heim- inum. Hafi einhver trúað því að Ólafur væri umboðsmaður hljóm- sveitar sem væri alveg að fara meika það hefur sá hinn sami fyrir löngu komist að hinu sanna. Draumar Ólafs og tálsýnir hafa verið tættar í sundur frammi fyrir ótal hlæjandi áhorfend- um sem hálf skammast sín fyrir hönd litla aumingjans á upphækkuðu skónum. KASTLJÓSI fjölmiðla heimsins hefur verið beint að Íslandi og þolin- mæði áhorfenda fyrir örlögum sögu- persónanna helgast af því hve ógeðslega hlægilegar þær eru. Myndavélum veraldar er beint að fjölda klunnalegra en ægilega dýrra jeppa sem silast um götur landsins. Í þeim á eigandinn yfirleitt jafn mikið og Ólafur Ragnar átti í þeim hvíta sem hann mætti eitt sinn á sjálfum sér til háðungar. Draumur hans um að eignast hann með bílaláni var jafn óraunverulegur og nígerísku auðæf- in sem hann beið eftir og pappírs- auðurinn sem íslenskir ráðamenn trúðu á. ÉG GET ómögulega hlegið að óför- um þeirra Ólafs Ragnars, starfs- manns á plani, og Geirs Haarde, fyrr- verandi fjármála- og núverandi forsætisráðherra Íslands. Það er svo sárt að fylgjast með þeim reyna að halda reisn. Robert Z. Aliber, próf- essor emeritus við háskólann í Chicago, sagði í gær um Geir og kollega hans í ríkisstjórninni að þeir myndu nýtast jafn vel sem stjarnvís- indamenn og þeir gera sem stjórn- endur nútíma hagkerfis. En Geir á eftir að taka þeirri gagnrýni á svip- aðan átt og Ólafur Ragnar gerir þegar hann veit ekki hvað hann er að tala um, brosa og segja: „Þetta eru nú engin geimvísindi.“ Stjarnvísinda- menn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.