Fréttablaðið - 21.10.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
EFNAHAGSMÁL Svo virðist sem
langstærstur hluti lánakrafna
Seðlabanka Íslands í endurhverf-
um viðskiptum við banka og fjár-
málastofnanir hér á landi hafi
tapast við hrun bankanna síðustu
daga. Við meðferð skilanefnda
Landsbankans, Glitnis og Kaup-
þings yfir í ný félög urðu kröfur
Seðlabankans eftir í gömlu félög-
unum og má væntanlega afskrifa
þær að mestu eða öllu leyti. Gríð-
arlegar kröfur hvíla aukinheldur
á öðrum fjármálastofnunum,
einkum þó Icebank – nýja Spari-
sjóðabankanum – vegna sams
konar viðskipta og gegn veðum í
öðrum bönkum sem eru orðin
verðlítil. Heimildir Fréttablaðs-
ins herma að þær nemi vart undir
150 milljörðum króna, eða
fimmtán földu eiginfé Icebank.
Samanlagt tap Seðlabankans og
þar með íslenska ríkisins vegna
þessara viðskipta gæti því numið
um 300 til 350 milljörðum króna,
eða sem nemur tæplega öllum
gjaldeyrisvaraforða þjóðarinnar.
Reka mætti Landspítalann í sjö
ár fyrir slíka upphæð.
Seðlabankinn hefur boðið lána-
stofnunum vikulega að selja sér
verðbréf í endurhverfum við-
skiptum. Lánastofnanirnar láta
þá verðbréf útgefin af öðrum
fjármálastofnunum af hendi, fá
peninga í staðinn frá Seðlabank-
anum og kaupa bréfin síðan aftur
fjórtán dögum síðar á hærra
verði. Gríðarlegt útlánatap Seðla-
bankans af þessum sökum veikir
mjög fjárhagslega stöðu hans,
samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins, og kann svo að fara að Alþingi
þurfi að samþykkja að leggja
honum til umtalsvert nýtt fé á
næstunni. Eigið fé Seðlabankans
var í árslok 2007 um 91 milljarð-
ur króna.
Sérfræðingar sem blaðið hefur
rætt við segja að Seðlabankinn
hafi alls ekki gætt hagsmuna rík-
isins nægilega undanfarna daga.
Fulltrúar bankans hafi ekki sinnt
eftirlitshlutverki hjá skilanefnd-
um við tilfærslu eigna og skulda
yfir í ný félög og vanrækt að kalla
eftir viðbótartryggingum þegar
þess gerðist þörf og tækifæri
gafst til. Þetta átti til dæmis við
þegar ljóst var að lán Seðlabank-
ans til Kaupþings upp á 56 millj-
arða króna, með veðum í skulda-
bréfum útgefnum af
Landsbankanum, gætu glatast
vegna falls síðarnefnda bankans.
Þá er og gagnrýnt að stórir
útgefendur jöklabréfa hafi getað
fært fjármuni yfir í svokölluð
innistæðubréf Seðlabankans, eða
skammtímaskuldabréf, undan-
farna mánuði með stórfelldum
hætti og eigi nú fyrir vikið kröfur
á Seðlabankann og íslenska ríkið
sem jafngilda um 150 milljörð-
um. - bih
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Erna B. Einarsdóttir vinnurferðafullt ú
Í kröppum dansi í Krossá
Erna B. Einarsdóttir er nýliði í hjálparsveit. Hún er útivistarfrík, stundar herþjálfun af kappi meðfram því
sem hún æfir með hjálparsveitinni og segist hafa ferða- og ævintýraþrána í blóð
Erna í Krossá rétt áður en straumurinn hrifsaði undan henni fæturna í ánni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
NÁMSKEIÐ um vandamál er kunna að tengjast inniveru
í raka- og mygluskemmdu húsnæði verður haldið á vegum
Umhverfisstofnunar á Grand hóteli 24. október frá klukkan
8.30 til 12.00. Fyrirlesari er Kjell Anderson, yfirlæknir á vinnu-
og umhverfissjúkdómadeild við Háskólasjúkrahúsið í Örebro í
Svíþjóð. Fyrirlesturinn verður fluttur á sænsku.
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Fréttablaðið er með 116%
meiri lestur en Morgunblaðið.
33,47%
72,34%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18–49 ára. Könnun Capacent í maí–júlí 2008.
Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
21. október 2008 — 288. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
ERNA B. EINARSDÓTTIR
Með ferða- og ævin-
týraþrána í blóðinu
• heilsa
Í MIÐJU BLAÐSINS
List frá sjónarhóli barna
Fjölskyldumiðuð sýning
verður brátt opnuð í
Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar í tilefni af
aldarafmæli hans.
TÍMAMÓT 18
Flýr illsku og
hótanir
Árni Snævarr hvílir
sig á bloggskrifum
eftir umtalaðan pistil
um forsetafrúna.
FÓLK 30
BENEDIKT S. LAFLEUR
Sundkappi gefur út
talnaspekibók
Davíð og Jón Ásgeir með andstæðar tölur
FÓLK 30
STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR
Fær milljón krónur
sænskar
Hlýtur virt hönnunarverðlaun
FÓLK 30
Má bjóða þér
léttan kaffisopa?
BJARTVIÐRI Í dag verða norðvest-
an 10-18 m/s við norðaustur- og
austurströndina, annars hægari.
Úrkomulítið en él norðaustan til
fram á kvöld. Frost víða 1-6 stig, hiti
0-4 stig syðra.
VEÐUR 4
1
0 -1
-1
0
Seðlabanki Íslands gæti
tapað 350 milljörðum króna
Seðlabankinn sætir harðri gagnrýni. Stærstur hluti krafna í endurhverfum viðskiptum gæti tapast. Mikið
áfall fyrir bankann, sem gæti þurft umtalsvert nýtt fé. Kröfur á Icebank fimmtánfalt eigið fé bankans.
Grindavík vann Suður-
nesjaslaginn
Grindvíkingar unnu
Njarðvíkinga í
Ljónagryfjunni í
Iceland Express-
deild karla í
gærkvöld.
ÍÞRÓTTIR 26
Allir verja sig og sína
Rögnu Skinner píanóleikara finnst
erfitt að fylgjast með umfjöllun
breskra fjölmiðla um Ísland.
TILVERA 12
FÓLK „Það er mjög mikil sæla
sem fylgir þessu,“ segir Siv
Friðleifsdóttir alþingismaður
sem tilheyrir sístækkandi hópi
landsmanna sem sækir sjósund
sér til heilsubótar.
„Fólk verður ekki eins kulsælt
og þetta hefur einnig góð áhrif á
astma,“ segir Siv sem bætir við
að öll skynjun styrkist við að
fara í svo kalt bað. Hún segist í
nokkur ár hafa farið í sjósund
um hver áramót með hópi góðra
vina. „Svo hef ég nýtt tækifærið
og skellt mér í sjósund hér og
þar á ferðum mínum um landið.“
Undanfarið hefur hún stundað
sjósund vikulega í góðum hópi
vina. Siv segir aðstöðu í Naut-
hóls vík með allra besta móti.
„Eftir sjósundið hitum við okkur
upp í heita pottinum og þá
ræðum við pólitík og landsins
gagn og nauðsynjar.“ - ovd
Heilsubót Sivjar Friðleifsdóttur:
Mikil sæla að
synda í sjónum
FRÁ NAUTHÓLSVÍK Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, lét kuldann ekki aftra sér frá sundspretti í gær. Sjávarhiti
mældist 6,1 gráða og lofthiti 1,6 gráður í Nauthólsvíkinni. Siv segir sjóböð afar hressandi heilsurækt auk þess sem félagsskapur-
inn sé með besta móti. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VEIÐI Skógrækt ríkisins hefur
ákveðið að fara í tilrauna- og þró-
unarverkefni um sölu rjúpnaveiði-
leyfa í þjóðskógum landsins, einn í
hverjum fjórðungi. Með verkefn-
inu er vonast til að nýtt fyrirkomu-
lag við veiðar hafi jákvæð áhrif á
veiðimenningu hér á landi og
stuðli að auknu öryggi veiði-
manna.
Jón Loftsson skógræktarstjóri
segir að hannað hafi verið bókun-
arkerfi á netinu sem verður notað
í tilraunaverkefni á komandi
rjúpnaveiðitímabili sem hefst 1.
nóvember. „Með þessu viljum við
reyna að bæta veiðimenningu hér
á landi; menn virði eignarétt,
landamerki og það fólk sem er að
veiða á sama svæði. Menn kaupa
sér einfaldlega svæði, eins og dag
í laxveiðiá, og þar gilda ákveðnar
reglur. Þetta er hálfgerð villi-
mennska í dag; menn vaða um án
þess að kanna hvort svæðið er
almenningur eða eignarjörð.“
Vonast er til að landeigendur
sjái sér hag í að vera þátttakendur
í verkefninu í framtíðinni og skrái
sín lönd á vefinn og þar með
stækki svæðið þar sem fyrirkomu-
lagið er aðgengilegt og öruggt.
Gistihúsaeigendur eða fólk sem
rekur bændagistingu í nágrenni
veiðisvæðanna komi einnig til með
að bjóða fram þjónustu sína. Jón
gerir ráð fyrir að veiðileyfin verði
seld á þrjú til fjögur þúsund krón-
ur fyrir hverja byssu. Verkefnið
er að erlendri fyrirmynd.
Davíð Ingason, varaformaður
Skotveiðifélags Íslands, telur
verkefnið vera jákvætt, eðlilegt
sé að skotveiðimenn hafi aðgang
að ríkisjörðum. „Eina hættan er að
einstakir menn kaupi upp veiði-
rétt til lengri tíma. Aðalatriðið er
að vel sé að þessu staðið.“ - shá
Skógrækt ríkisins hyggst leyfa tilraunaveiði á rjúpu í þjóðskógum landsins:
Stefnt að betri veiðimenningu
Í FÆRI Skógræktin ætlar að opna fyrir
rjúpnaveiði í löndum upp af þjóðskóg-
um. MYND/DANÍEL BERGMANN