Fréttablaðið - 21.10.2008, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 21.10.2008, Blaðsíða 39
Okkur vantar strax umsóknir fyrir eftirfarandi störf: Norskt fyrirtæki óskar eftir umsækjendum til að taka þátt í vinnuhóp sem hefja á störf eigi síðar en 15. nóvember. Vinnuhópurinn verður staðsettur í Osló. Lengd verkefnis er reiknað til 1. mars 2009, með mögulegri framlengingu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í síðasta lagi 15. nóvember, en helst frá 1. nóvember. Umsóknir þurfa að berast fyrir miðvikudag 22. október. Kröfur til umsækjenda: Mikil þekking og reynsla af Java eða C forritunarmáli. Kostur með þekkingu af hvorutveggja. Kostur með þekkingu á sql Reynsla af notkun SCRUM Reynsla af notkun á "fitness" og sjálfvirkri prófun. Góð enskukunnátta og norðurlandamál kostur Einnig vantar okkur á skrá aðila með eftirfarandi þekkingu og reynslu: Rekstur tölvukerfa: Cirix , MCSE og MCSA, WMV, Cisco þekking og Cisco CCIE, reynslu í verk- stjórnun, netþekking og þekkingu á öryggismálum. Forritun: Þekkingu og reynslu í dot.net, C-sharp, J2EE, C og C++, reverse engineering, arkitekt lausnum og gagnavöruhús lausnum. Verkfræðinga Verkefnastjóra Bókara Allar ferilskrár eru velkomnar þó reynsla viðkomandi sé önnur en kemur fram hér að ofan. Vinsamlegast sendið umsóknir og fyrirspurnir til ithg@online.no og verður haft samband við viðkomandi í framhaldinu. Umsóknir þurfa að vera á ensku eða norður- landamáli. ITHG Consulting er ráðgjafafyrirtæki í eigu íslendinga í Oslo, Noregi. Meðal viðskiptavina eru nokkur ráðninga- fyrirtæki í Noregi sem við aðstoðum við að leita eftir umsóknum frá Íslandi. Consul t ing

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.