Fréttablaðið - 21.10.2008, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 21. október 2008 3
Hvenær myndast réttur á
barnalífeyri vegna skóla-
náms eða framlag vegna
skólanáms?
Við 18 ára aldur barns lýkur
greiðslum meðlags og/eða
barnalífeyris til foreldris.
Ungmenni sem er í lögbundnu
námi getur átt rétt á áframhald-
andi greiðslum sem er barnalíf-
eyrir vegna skólanáms eða
framlag vegna skólanáms frá
meðlagsskyldu foreldri.
Hvað er framlag vegna
skólanáms ungmenna og
hver eru skilyrði?
Samkvæmt barnalögum er
hægt að úrskurða meðlagsskylt
foreldri til að inna af hendi
framlag vegna menntunar til
ungmenna á aldrinum 18 til 20
ára. Sýslumenn um land allt
staðfesta samning eða
úrskurða um slíkt framlag.
Eftir að úrskurður/samningur
hefur verið gefinn út getur
ungmennið sótt um að Trygg-
ingastofnun hafi milligöngu um
þessar greiðslur. Frumrit
samnings þarf að fylgja með
umsókn.
Hvað er barnalífeyrir vegna
skólanáms og hver eru skil-
yrðin?
Enn fremur er heimilt að greiða
ungmenni á þessum aldri
barnalífeyri vegna skólanáms
ef foreldri þess er látið eða
lífeyrisþegi. Sama á við ef ekki
tekst að hafa uppi á foreldri eða
ef sýslumaður hafnar beiðni um
framlag vegna menntunar á
grundvelli efnaleysis foreldris.
Ungmenni sækja sjálf um
barnalífeyri vegna skólanáms
til Tryggingastofnunar. Með
umsókn þarf að fylgja ítarlegt
skólavottorð sem sýnir eininga-
fjölda náms og staðfest afrit af
skattframtali.
Ítarlegar upplýsingar um
skilyrði greiðslna, fjárhæðir og
fleira ásamt umsóknareyðu-
blöðum er að finna á vefsíðu
okkar, www.tr.is.
Barnalífeyrir vegna skólanáms og
framlag vegna skólanáms
Ný rannsókn staðfestir að ef
konur gefa brjóst í ár af sínu
æviskeiði þá minnkar áhættan á
brjóstakrabbameini um 4,8%.
Líkurnar á að konur fái brjósta-
krabbamein einhvern tíma á
ævinni eru einn á móti níu. Rann-
sakendur segja að því sé mikil-
vægt að konur geri sér grein fyrir
jákvæðum áhrifum brjóstagjaf-
ar.
Auk þess að draga úr áhættu á
krabbameini hefur brjóstagjöf
aðrar jákvæðar afleiðingar í för
með sér. Tengsl hafa fundist á
milli offitu barna og brjóstagjaf-
ar þannig að þau sem fá brjósta-
mjólk eiga síður við offituvanda-
mál að stríða og brjóstagjöf
styrkir ónæmiskerfi nýbura.
Doktor Rachel Thompson, ein
af forvígismönnum nýju rann-
sóknarinnar, segir að mikilvægt
sé að koma þeim boðskap á fram-
færi að brjóstagjöf geti varið
konur fyrir brjóstakrabbameini
og því sé mjög gott að gefa ein-
göngu brjóst fyrstu sex mánuðina
af ævi barnsins.
Heimild: http://news.bbc.co.uk
Brjóstagjöf dregur
úr áhættu á krabba
ÞINN RÉTTUR
Almannatryggingalög
kynnt fyrir þér
Þinn réttur getur verið margs konar í almannatryggingakerfinu. Með mánaðarlegum dálki
vill Tryggingastofnun vera þér, lesandi góður, innan handar með því að kynna fyrir þér
ýmis ákvæði almannatryggingalaganna og þannig benda á mögulegan rétt til greiðslna
sem er þér ef til vill ekki kunnugur.
Sjá vefinn www.tr.is
Margt bendir til þess að brjóstagjöf dragi úr áhættu á brjóstakrabbameini.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Auglýsingasími
– Mest lesið
Íhugun og slökun
KYRRÐARSTUND Í ROPE YOGA-SETRINU
„Ég vil bara sýna samhygð á þessum breytingatímum og
ákvað að veita fólki aðstöðu til að koma saman á kyrrðar-
stund,“ segir Guðni Gunnarsson sem leiðir samkomu
í Rope Yoga-setrinu á Engjateigi 17-19 á laugardög-
um frá 13.30 til 14.30. Samkomuna nefnir hann
Íhugun, athygli og slökun. Þangað er Rope Yoga-
iðkendum, aðstandendum og vinum sérstak-
lega boðið að koma endurgjaldslaust.
„Allt sem við veitum athygli vex og dafnar,“
segir Guðni. „En ef hugurinn er fastur í þrá-
hyggju þá er maður að skaða sjálfan sig og
sitt umhverfi. Svona samkoma getur rifið
okkur upp og orðið til góðs.“ - gun
S J Ú K R A Þ J Á L F U N
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s
k
h
ö
n
n
u
n
Allt að fyllast í TT,
síðustu innritunardagar!
Höfum bætt við tíma fyrir hádegi í TT aðhaldsnámskeiðunum
Nýr tími þrisvar í viku: kl. 10:15 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga - Barnapössun
Staðurinn - Ræktin
telpurS onuK r
Erum að selja ósóttar pantanir Sími 581 3730
Ekkert lát hefur verið á aðsókn í TT aðhaldsnámskeiðin
og er okkur því ánægja að bjóða þessa tíma sem henta sérlega vel heimavinnandi mæðrum.
Aðrir TT tímar í boði:
6:15 – mán, mið, fös
7:20 – mán, mið, fös
(9:30) – byrjar seinna
10:15 – mán, mið, fös - Barnapössun
12:05 – mán, mið, fös - Barnapössun
14:20 – mán, mið, fös - Barnapössun
16:40 – mán, mið, fös - Barnapössun
17:40 – mán, þri, fös - Barnapössun
18:40 – TT3 mán, þri, fim - Barnapössun
19:25 – mán, mið, fim (19:45)
Fundur fyrir alla flokka sunnudaginn 26. október kl. 15:00 og 16:00 - TT1
og kl. 17:00 - TT3.
Velkomin í okkar hóp!
Mánudaga og mmtudaga