Fréttablaðið - 21.10.2008, Blaðsíða 17
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Erna B. Einarsdóttir vinnur sem
ferðafulltrúi hjá Ferðafélagi
Íslands. Hún er nýliði í hjálpar-
sveit og viðurkennir að hún sé
útivistarfrík. Meðfram hjálpar-
sveitinni stundar Erna líka her-
þjálfun.
„Ég byrjaði að æfa bootcamp í
haust. Það er rosalega gaman og
heldur mér við efnið betur en að
eiga líkamsræktarkort einhvers
staðar. Þá gefst maður bara upp
en þetta eru bara fastir tímar og
maður mætir.“
Erna hafði lengi ætlað sér að
byrja að æfa með hjálpasveitun-
um og dreif sig í fyrrahaust.
„Fjölskyldan er öll í þessu, pabbi
og frændi minn og svo fór systir
mín í þetta líka. Þetta er rosalega
gaman og ég ætlaði að vera byrj-
uð fyrir mörgum árum.“
Á meðfylgjandi mynd sést Erna
í kröppum dansi úti í Krossá í
Þórsmörk. Þar lærði hún að vaða
ár og koma línu í bíla sem eru
fastir úti í ám. „Þetta var mjög
erfitt, ég stóð meðan myndin var
tekin en örfáum sekúndum seinna
datt ég. Það var eins og fæturnir
væru hrifsaðir undan mér í
straumnum, en þá hékk ég í öðru
bandi og flaut bara með straumn-
um eftir línunni yfir á hinn bakk-
ann.“
Spurð hvort nauðsynlegt sé að
vera í formi til að komast í hjálp-
arsveitirnar segir hún að það sé
ekki verra en þolið sé fljótt að
koma á æfingum. „Ég gekk
Laugaveginn í sumar með hjálp-
arsveitinni og líka Fimmvörðu-
hálsinn. Í fyrra fórum við á Tind-
fjöll og gengum fjóra tíma í
skafrenningi og sváfum í tjöldum
tvær nætur svo það er ágætt að
vera í formi þegar maður byrjar.
Ég hef alltaf verið eitthvað í
íþróttum og æfði til dæmis hand-
bolta í tíu ár. En svo þjálfast
maður bara upp.“
Erna hefur gaman af að ferðast
um hálendið og ferðast mikið á
jeppa með kærastanum. „Mamma
og pabbi hafa líka ferðast með
okkur systurnar síðan við vorum
litlar svo þetta er í blóðinu.Ég
mun halda áfram í hjálparsveit-
unum fyrst ég er loksins byrjuð.“
heida@frettabladid.is
Í kröppum dansi í Krossá
Erna B. Einarsdóttir er nýliði í hjálparsveit. Hún er útivistarfrík, stundar herþjálfun af kappi meðfram því
sem hún æfir með hjálparsveitinni og segist hafa ferða- og ævintýraþrána í blóðinu.
Erna í Krossá rétt áður en straumurinn hrifsaði undan henni fæturna í ánni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
NÁMSKEIÐ um vandamál er kunna að tengjast inniveru
í raka- og mygluskemmdu húsnæði verður haldið á vegum
Umhverfisstofnunar á Grand hóteli 24. október frá klukkan
8.30 til 12.00. Fyrirlesari er Kjell Anderson, yfirlæknir á vinnu-
og umhverfissjúkdómadeild við Háskólasjúkrahúsið í Örebro í
Svíþjóð. Fyrirlesturinn verður fluttur á sænsku.