Fréttablaðið - 21.10.2008, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 21.10.2008, Blaðsíða 26
18 21. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR timamot@frettabladid.is ALFRED NOBEL FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1833. „Það er mín eindregin ósk að verðlaunin verði veitt án tillits til þjóðernis. Sá sem á verðlaun- in mest skilið á að hljóta þau og gildir einu hvort viðkomandi sé frá Norðurlöndunum eða ekki.“ Nobel var sænskur uppfinninga- maður, þekktastur fyrir að finna upp dínamítið. Nóbelsverðlaunin voru sett á fót sem hans hinsta ósk en hann var miður sín yfir því að uppfinning hans skyldi vera notuð til illra verka. Hann vildi að verð- launin færu til þeirra sem gerðu heiminum gott. MERKISATBURÐIR 1916 Fyrstu alþingiskosningarn- ar haldnar eftir að konur fá kosningarétt. 1916 Pétur Ottesen er kjörinn á þing 28 ára gamall. Hann situr á þingi í tæp 43 ár, lengur en nokkur annar. 1933 Þjóðaratkvæðagreiðsla um bannlögin svonefndu fer fram. Í kjölfar hennar er áfengisbann afnumið. 1967 Upp kemst um eitt mesta áfengissmygl í áratugi. Það er kallað Ásmund- armálið, kennt við bát- inn Ásmund. Þúsundum lítra af áfengi var smyglað til landsins og var smyglið geymt í skipsflaki í Elliða- árvogi. 2006 Hellisheiðarvirkjun er formlega gangsett. Nýsköpunarstjórnin tók við stjórnartaumunum á Íslandi þennan dag árið 1944. Ólafur Thors varð forsætis- og utanríkisráðherra fyrir Sjálfstæðis- flokkinn en auk hans mynduðu Sósíalistaflokkur- inn og Alþýðuflokkurinn stjórnina. Færa má fyrir því rök að nýsköpunarstjórnin hafi lagt grunninn að þeim framförum sem urðu á Íslandi eftir lok seinni heimsstyrjaldar. Þegar ný- sköpunarstjórnin tók við áttu Íslendingar gríðar- legar erlendar innistæður. Eftir þrengingarnar á kreppuárunum kom gullöld í atvinnusögu Íslend- inga. Atvinnuleysið hvarf, laun snarhækkuðu og alls staðar var eftirspurn eftir vinnuafli. Einstakt tækifæri skapaðist þar með til að nýta féð til upp- byggingar atvinnuveganna. Til að svo mætti vera urðu stéttir landsins að standa saman. Úr þessu spratt nýsköpunarstjórnin. Keyptir voru togarar til landsins, svonefndir nýsköpunartogarar. Stjórnin sat til 4. febrúar 1947 þegar hún sprakk vegna deilna um veru bandarísks hers á landinu. Sjálfstæðismenn sömdu þá við Fram- sóknarflokk og Alþýðuflokk um myndun nýrrar ríkisstjórnar. ÞETTA GERÐIST 21. OKTÓBER 1944 Nýsköpunarstjórnin mynduð Myndhöggvarinn Sigurjón Ólafsson hefði orðið hundrað ára í dag en hann lést árið 1982. Þá er Listasafn Sigur- jóns Ólafssonar tuttugu ára um þess- ar mundir en það var opnað almenn- ingi árið 1988. Á þessum tímamótum hefur Listasafnið beitt sér fyrir fjöl- þættu sýningar- og kynningarstarfi bæði innanlands og utan. Sýningin Stund hjá Sigurjóni verð- ur opnuð í listasafninu að Laugarnes- tanga 70 á laugardag. Hún er sérstak- lega ætluð börnum í fylgd með full- orðnum. „Við höfum útbúið leik um safnið sem ætlað er að vekja forvitni barna, auðvelda þeim að upplifa verk- in, setja fram spurningar og örva sam- ræður þeirra við hina fullorðnu,“ segir Birgitta Spur, safnstjóri listasafnsins og ekkja Sigurjóns. Á sýningunni fá börnin í hendurn- ar spjöld með mismunandi flokkum og geta valið að skoða andlitsmyndir, dýr eða verk sem örva ímyndunaraflið. Hinir fullorðnu fá annars konar spjöld með upplýsingum og lausnum sem hjálpa til við að stýra samræðunum og þannig rekur fjölskyldan sig um safn- ið. „Hugmyndin er að fjölskyldur geti komið hingað og átt góða stund saman. Börnin fá tækifæri til að uppgötva listina og foreldrarnir að sjá hana frá sjónarhóli barnsins,“ segir Birgitta og nefnir fleiri viðburði í tengslum við afmælið. „Í sumar var efnt til sýningar í stöðvarhúsi Búrfellsvirkjunar þar sem vinna listamannsins við gerð lág- myndanna á Búrfellsstöð var kynnt, en á stöðinni er 90 metra langt úti- listaverk eftir Sigurjón. Við létum gera bækling, sýndum myndband með honum að störfum og handverkfærin sem hann notaði.“ Sýning á andlitsmyndum Sigurjóns var svo opnuð í Friðriksborgarsafninu í Danmörku 26. september og stend- ur hún til 31. desember. „Ég hef aldrei séð þessar myndir í jafn fallegri um- gjörð en andlitin lifna við á litríkum grunni,“ lýsir Birgitta. Í tilefni sýning- arinnar var gefin út bók á dönsku og ensku sem upp á dönsku kallast Bill- edhuggeren Sigurjón Ólafsson og hans portrætter. Fyrir skemmstu var síðan opnuð sýning í Hafnarborg með úrvali mód- ernískra verka Sigurjóns og Þorvalds Skúlasonar og ætti því að vera af nógu að taka. vera@frettabladid.is SIGURJÓN ÓLAFSSON MYNDHÖGGVARI: ALDARAFMÆLI Langar að vekja forvitni barna SÝNINGAR INNANLANDS OG UTAN Birgitta Spur, ekkja Sigurjóns, í efri sal Listasafnsins að Laugarnestanga. Safnið hefur í tilefni aldarafmælisins staðið fyrir fjölþættu sýningar- og kynningarstarfi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærr- ar móður okkar, dóttur, barnabarns og systur, Erlu Jónínu Jónsdóttur Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks sem önnuðust hana í veikindum hennar. Jón Marel Magnússon Ída Bjarklind Magnúsdóttir Ída S. Sveinbjörnsdóttir Jón S. Hreinsson Snjólaug Valdimarsdóttir Jónína Hallgrímsdóttir Erla Stefánsdóttir Jón Guðmundsson og systkini hinnar látnu. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurður Einar Magnússon Réttarheiði 6, Hveragerði, lést fimmtudaginn 16 október. Jarðarförin fer fram frá Hveragerðiskirkju föstudaginn 24. október kl. 14. Borghildur Traustadóttir Elísabet Einarsdóttir Kári Þór Michelsen Brynhildur Sigurðardóttir Sigurður Sveinsson Ingveldur Sigurðardóttir Þorvaldur Hannesson Sigríður Björk Sigurðardóttir Guðmundur Sigurðsson Njörður Sigurðsson Kolbrún Vilhjálmsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Heiðrún Soffía Steingrímsdóttir, fyrrum formaður Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á Akureyri, til heimilis að Grundargerði 3a, lést á öldrunarheimilinu Hlíð 18. október. Útförin verður auglýst síðar. Edda H. Þorsteinsdóttir Þorsteinn Jónatansson og aðrir aðstandendur. Ívar Reynir Steindórsson (Frá Teigi), Furugrund 66, Kópavogi, lést á Landspítalanum við Hringbraut 16. október. Útförin fer fram frá Hjallakirkju föstudaginn 24. október kl. 13.00. Sólveig Jóhannesdóttir Þórarinn Ívarsson Maitza Esther Pacifico Ospino Steindór Ívarsson Jón Sigurðsson Sigurjón Ívarsson Ásta Guðríður Björnsdóttir Guðrún Ívarsdóttir Þorvaldur Siggason Rúnar Ívarsson Sigrún Sölvey Gísladóttir Kolbrún Ívardóttir Jóhann Anton Ragnarsson Ólafur Björn Heimisson Júlíana Ósk Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður,ömmu og langömmu, Guðlaugar Marteinsdóttur, Hrafnistu í Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks á 4A og 4B Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Guðjón Ólason María Guðbjörg Óladóttir Flóvent Johansen Sigurlaug Maren Óladóttir Smári Hauksson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Birthe Helena Leoson, Austurvegi 5, Grindavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík, mánudaginn 13. október. Útförin fer fram frá Njarðvíkurkirkju, Innri-Njarðvík, föstudaginn 24. október kl. 13.00. Jensia Michala Leo Þórir Magnússon Nikulás Leo Johannesson Gunnhild Absalonsen Johann Maríus Leo Anna Björghild Jensa Leo Johannes Leo Johannesson Janne Katrine Nordle barnabörn og barnabarnabörn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.