Fréttablaðið - 03.11.2008, Page 34
22 3. nóvember 2008 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Nánar á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Kynntu þér tæmandi lista yfir ferðir á leiki á www.expressferdir.is
14.–16. nóvember
Man Utd.
Stoke
25.–26. nóvember
Arsenal
Dynamo Kyiv
14.–16. nóvember
Arsenal
Aston Villa
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Boltinn er hjá okkur!
Flug og miði á leik:
39.900 kr.
Flug og miði á leik:
35.000 kr.
Verð á mann í tvíbýli:
49.900 kr.
Innifalið: Flug m/sköttum og öðrum greiðsl-
um, miði á leikinn og hótel m/morgunverði.
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
Innifalið: Flug m/sköttum og miði á leikinn.
Innifalið: Flug m/sköttum og öðrum
greiðslum og miði á leikinn.
Iceland Express karla:
Grindavík-Þór Ak. 108-87 (54-54)
Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 37, Páll
Kristinsson 17, Brenton Birmingham 12 (11 frák.,
6 stoðs., 5 stolnir, 4 varin), Þorleifur Ólafsson 12,
Helgi Jónas Guðfinnsson 9, Guðlaugur Eyjólfsson
7, Arnar Freyr Jónss. 6 (9 stoðs.), Björn Brynjólfss.
5, Davíð Hermannss. 2, Nökkvi Már Jónsson 1.
Stig Þórs: Cedric Isom 21 (10 frák., 8 stoðs.),
Guðmundur Jónsson 17 (12 frák.), Hrafn
Jóhannesson 14, Óðinn Ásgeirsson 12, Jón Orri
Kristjánsson 11, Bjarki Ármann Oddsson 9, Baldur
Ingi Jónsson 3.
Njarðvík-Tindastóll 75-84 (41-41)
Stig Njarðvíkur: Magnús Þór Gunnarsson 21 (6
frák.m 5 stoðs.), Logi Gunnarsson 17, Friðrik
Stefánss. 15 (13 frák.), Sævar Sævarss. 13, Hjörtur
Hrafn Einarss. 6, Sigurður Gunnarss. 3.
Stig Tindastóls: Benjamin Luber 26 ( 6 frák.
m 5 stoðs.), Darrell Flake 18 (10 frák.), Svavar
Atli Birgisson 14, Helgi Rafn Viggósson 11, Ísak
Sigurjón Einarsson 8, Soren Flæng 7.
Stjarnan-Skallagrímur 82-45 (51-22)
Stig Stjörnunnar: Fannar Freyr Helgason 15, Kjart
an Atli Kjartansson 11, Guðjón Hrafn Lárusson 10
Justin Shouse 9, Hjörleifur Sumarliðason 8,
Jovan Zdravevski 7, Birkir Guðlaugsson 6, Ólafur
Jónas Sigurðsson 4, Hafþór Örn Þórisson 4, Helgi
Þorleiksson 4, Hilmar Geirsson 4.
Stig Skallagríms: Þorsteinn Gunnlaugsson 13,
Sveinn Arnar Davíðsson 12, Pálmi Þór Sævarsson
8, Trausti Eiríksson 5, Bjarni Ómar Nielsen 3,
Óðinn Guðmundsson 2, Sigurður Þórarinsson 2.
Norska úrvalsdeildin
Tromsø-Stabæk 0-1
Veigar Páll Gunnarsson lék allan leikinn en Pálmi
Rafn Pálmason kom inn á í hálfleik.
Fredrikstad-Lyn 0-2
Theódór Elmar Bjarnason lék allan leikinn hjá Lyn
en Garðari Jóhannssyni var skipt útaf á 83. mín.
Rosenborg-Bodø/Glimt 1-3
Strømsgodset-Viking 3-2
Vålerenga-Brann 0-1
Ármann Smári Björnsson, Ólafur Örn Bjarnason
og Gylfi Einarsson léku allan leikinn með Brann
og Birkir Már Sævarsson kom inn á 49. mínútu.
HamKam-Molde 0-1
Aalesund-Lillestrøm 3-0
Haraldur Guðmundsson sat á bekk Aalesund.
Formúla eitt
LOKSTAÐAN Í HEIMSBIKARNUM:
1. Lewis Hamilton, McLaren 98
2. Felipe Massa, Ferrari 97
3. Kimi Räikkönen, Ferrari 75
4. Robert Kubica, Sauber 75
5. Fernando Alonso, Renault 61
6. Nick Heidfeld, Sauber 60
ÚRSLITIN Í GÆR
FÓTBOLTI Kvennalandsliðinu í
fótbolta hefur í fyrsta sinn verið
boðið að taka þátt í efri hluta hins
árlega æfingamóts Algarve Cup
sem fer fram í sextánda sinn í
Portúgal í mars næstkomandi.
Íslenska liðið hefur verið með í
C-riðli mótsins undanfarin tvö ár
en fær nú tækifæri til að mæta
bestu knattspyrnuþjóðum heims í
A eða B-riðli þessa sterka móts.
Á mótinu í fyrra vann íslenska
liðið alla fjóra leiki sína og
tryggði sér 7. sætið sem var besti
möguleiki þjóða sem spila í C-
riðlinum. Nú fá stelpurnar okkar
aftur á móti tækifæri til að keppa
um sjálfan titilinn. - óój
Kvennalandsliðið í fótbolta:
Mæta þeim bestu
á Algarve Cup
GÓÐUR UNDIRBÚNINGUR Stelpurnar
okkar er á leið á EM. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Bolton vann gríðarlega
mikilvægan sigur á Manchester
City, 2-0, í ensku úrvalsdeildinni
og komst fyrir vikið af botninum
og upp fyrir Tottenham og
Newcastle. Þetta var aðeins annar
sigur liðsins í síðustu níu leikjum.
Grétar Rafn Steinsson lék allan
leikinn fyrir Bolton sem hægri
bakvörður og lagði upp fyrra
mark Bolton á 77. mínútu,
brunaði þá upp hægri vænginn og
sendi boltann þvert fyrir markið
þar sem Ricardo Gardner stóð
fyrir opnu marki. Seinna markið
sjálfsmark Richards Dunne. - óój
Bolton komst af botninum:
Grétar Rafn
lagði upp mark
> Ragnar akstursíþróttamaður ársins
Torfæruökumaðurinn Ragnar Róbertsson var kjörinn
akstursíþróttamaður ársins í lokahófi akstursíþrótta-
nefndar ÍSÍ/LÍA, sem fram fór í Sjallanum um helgina.
Ragnar náði í ár einum besta árangri sem íslenskur
torfæruökumaður hefur náð, en hann keppti í ellefu
keppnum í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Íslandi og náði
að vinna allar nema eina. Með þessum árangri tryggði
hann sér Heimsbikarmeistarann, Norðurlandameistar-
ann og Noregsmeistaratitil í flokki sérsmíðaðra götubíla.
Ragnar endaði einnig í þriðja sæti í
keppninni um Íslandsmeistaratit-
ilinn þrátt fyrir að hafa einungis
tekið þátt í tveimur keppnum í
Íslandsmótinu. Ragnar keppir á
„N1 Willys“ bíl sem hann smíðaði
1999.
Nýliðar Breiðabliks í Iceland Express deild karla komu mörgum á
óvart með 21 stigs sigri sínum á Íslandsmeisturunum í Keflavík
á föstudagskvöldið. Sigur Blika var sögulegur, þeir unnu sinn
fyrsta úrvalsdeildarsigur í Keflavík og Keflavík hefur ekki tapað
heimaleik stærra í deildinni í rétt tæp 14 ár. Fyrir leikinn
höfðu líka ríkjandi Íslandsmeistarar unnið 50 heimaleiki
í röð á móti nýliðum eða síðan að nýliðar Keflavíkur
unnu meistara Njarðvíkur 93-91 4. mars 1983.
Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Blika, hefur stjórnað
Njarðvíkingum til sigurs í Keflavík og vissi greinilega
hvað þurfti til svo að Blikar stigu þetta stóra skref.
„Frábært hugarfar og mikil trú. Eins fáránlega og það
hljómar þá höfðum við ofboðslega mikla trú á því að við
værum að fara að taka þennan leik. Við vorum að spila
ótrúlega vel, það var mikil barátta í liðinu og mikið líf í
kringum mannskapinn allan tímann,“ segir Einar Árni
en það var 57 stiga sveifla hjá liðinu milli leikja eftir 36
stiga tap á móti KR. „Ég held að margir hafi stimplað
okkur vonlausa eftir leikinn á móti KR en eftir sem
áður þá verður þetta erfitt í vetur þrátt fyrir að við höfum unnið
Keflavík,“ segir Einar Árni.
Hann undirbjó sitt lið vel fyrir svæðispressu Keflvíkinga og það
bar árangur. „Að fara í gegnum leik á þeirra heimavelli þar sem
þeir eru að pressa okkur í 40 mínútur og vera aðeins með 13
tapaða bolta er mikill sigur,“ segir Einar og fram undan er leikur
á móti stigalausum ÍR-ingum í kvöld. „Þetta er ofboðslega
erfiður leikur. Við erum að fara að mæta feykilega góðu
liði sem er langt frá því að vera einhver fallkandidat. Þetta
snýst fyrst og fremst um það að menn tapi ekki sýn á
það sem færði okkur þennan góða leik á móti Keflavík,”
segir Einar sem treystir á góðan stuðning. „Ég myndi líta á
þennan leik hjá strákunum sem áskorun á stuðningsmenn
Breiðabliks að fjölmenna á leikinn á mánudaginn [í kvöld]
sem skiptir okkur gríðarlega miklu máli,“ segir Einar en þrátt
fyrir glæsilegan sigur á Keflavík hefur markmið liðsins ekkert
breyst. „Ég er ekki að velta fyrir mér sæti í úrslitakeppninni í
dag. Við þurfum bara að fyrst og síðast að koma okkur í þá
stöðu að vera ekki í fallsæti,“ sagði Einar að lokum.
EINAR ÁRNI JÓHANNSSON, ÞJÁLFARI BREIÐABLIKS: FYRSTU NÝLIÐAR Í 25 ÁR TIL AÐ VINNA ÚTISIGUR Á MEISTURUM
Margir stimpluðu okkur vonlausa eftir KR-leikinn
FORMÚLA 1 Það var ekki nóg með að
úrslitin í baráttunni um heims-
meistaratitilinn réðust í lokamóti
ársins heldur réðust þau í síðustu
beygju og á endanum munaði
aðeins einu stigi á Lewis Hamilton
og Felipe Massa.
Lewis Hamilton var við það að
missa frá sér annan heimsmeist-
aratitil á jafnmörgum árum en
náði að vinna sig upp um sæti og
tryggja sér fimmta sætið sem
var nóg. Hamilton er aðeins 23
ára, 9 mánaða og 26 daga gamall
og fyrsti Bretinn til að vinna
heimsmeistaratitilinn síðan
Damon Hill vann hann árið 1996.
Hann bætti met Fernandos
Alonso sem var 24 ára, eins
mánaðar og 27 daga gamall
þegar hann vann 2005.
„Það er engin leið að koma
orðum að því hvernig mér
líður. Ég hugsaði: Náði ég
þessu? Er þetta komið? Þegar
þeir sögðu mér að ég hefði
náð þessu þá missti ég mig
alveg,“ sagði Hamilton sem
grét af gleði eftir að heims-
meistaratitilinn var í höfn.
Dramatíkin í lokakapp-
akstri ársins í Brasilíu í gær
var engu lík og þegar Fel-
ipe Massa kom fyrstur í
mark leit út fyrir að hann
væri að tryggja sér líka heims-
meistaratitilinn á heimavelli.
Lewis Hamilton var þá dottinn
niður í sjötta sætið og það hefði
verið nóg fyrir Massa. Hamilton
tókst hins vegar að stinga sér fram
fyrir Þjóðverjann Timo Glock og
tryggja sér heimsmeistaratitilinn
um leið og Ferrari-menn fögnuðu,
að þeir héldu, glæsilegum sigri
síns manns. Glock var 18
sekúndum á
undan Ham-
ilton fyrir
loka-
hringinn en hann var á dekkjum
fyrir þurra braut og það skall á
úrhelli í lokakafla kappaksturs-
ins.
Felipe Massa tryggði Ferrari
heimsmeistaratitil ökuliða og
vann heimakappakstur sinn af
miklu öryggi en þetta er í annað
skiptið á þremur árum sem hann
nær því.
Massa grét í leikslok enda hafði
hann skömmu eftir að hann kom í
mark fengið þau röngu skila-
boð að heimsmeistaratitillinn
væri kominn í höfn.
„Þetta var fullkominn
kappakstur og við leystum
allt frábærlega við mjög
erfiðar aðstæður. Ég er
rosalega stoltur af öllum
sem koma að liðinu. Því
miður vantaði okkur
aðeins eitt stig en svo-
leiðis er bara formúlan,”
sagði Massa sem hal-
aði inn einum sigri
meira en Hamilton á
tímabilinu en það
dugði ekki til.
Myndskeiðið af
starfsmönnum
Ferrari þegar þeir
fara í gegnum allan
tilfinningaskalann,
frá því að fagna titil-
inum í að fá fréttirn-
ar um að Hamilton
hefði í raun unnið,
verða væntanlega
spilaðar um ókomna
tíð enda sýnir fátt
annað betur hvað gekk
á síðustu sekúndurnar
á þessu frábæra keppn-
istímabili í formúlunni.
ooj@frettabladid.is
Hamilton heimsmeistari
Úrslitin um heimsmeistaratitilinn í formúlunni réðust ekki fyrr en í síðustu
beygju og um tíma héldu Ferrari-menn að Felipe Massa hefði unnið titilinn.
TÁRAÐIST Felipe Massi gat ekki varist gráti eftir dramatíkina
í lokin á Brasilíukappakstrinum. NORDICPHOTOS/AFP
MEISTARINN Lewis Hamilton
fagnar titilinum sem hann
var nærri því búinn að
missa annað árið í röð.
NORDICPHOTOS/AFP
KÖRFUBOLTI Grindvíkingar halda
áfram sigurgöngu sinni í Iceland
Express deild karla í körfubolta
eftir 108-87 sigur á Þór í gær.
Mesta spenna kvöldsins var þó í
leik Njarðvíkur og Tindastóls í
Ljónagryfjunni þar sem Tinda-
stólsmenn unnu fjórða sigur sinn í
fimm leikjum á tímabilinu.
Eftir tvo góða útisigra í röð
þurfa Njarðvíkingar að bíða enn
eftir fyrsta heimasigri vetrarins
eftir 75-84 tap á móti Tindastól í
Ljónagryfjunni í gær. Njarðvík
tapaði einnig fyrsta heimaleik
sínum á móti Grindavík.
Ben Luber kvaddi Stólana með
enn einum stjörnuleiknum en
hann var með 26 stig, 6 fráköst og
5 stoðsendingar í gær auk þess að
raða niður mikilvægum vítum í
lokin. Frakkinn Alan Fall mun
leysa Luber af og hans bíður ekki
auðvelt hlutverk enda kveður
Luber Krókinn með 15,6 stig og
5,4 stoðsendingar í leik auk 80 pró-
senta sigurhlutfalls liðsins.
Magnús Þór Gunnarsson fór
mikinn í liði Njarðvíkur og skor-
aði 21 stig og Logi Gunnarsson var
með 17 stig flest þeirra í seinni
hálfleik.
Grindavík og KR eru enn einu
ósigruðu liðin eftir 21 stigs sigur
Grindavíkur á Þór í gær en KR
spilar fimmta leik sinn á móti FSu
í kvöld. Eftir jafnan fyrri hálfleik
fóru Páll Axel Vilbergsson og
Grindavíkurliðið í gang í þriðja
leikhluta og gerði út um leikinn
með því að vinna hann 32-11.
Páll Axel Vilbergsson skoraði 37
stig í leiknum þar af þrettán þeirra
í þriðja leikhlutanum. Brenton
Birmingham átti mjög góðan leik
með Grindavík og skilaði góðum
tölum á öllum sviðum leiksins.
- óój
Þrír leikir fóru fram í fimmtu umferð Iceland Express deildar karla í gærkvöldi:
Grindavík áfram á sigurbraut
LAUFLÉTT Hér reynir Stjörnumaðurinn
Hilmar Geirsson að verja skot frá Trausta
Eiríkssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI