Tíminn - 17.02.1982, Síða 10

Tíminn - 17.02.1982, Síða 10
Miðvikudagur 17. febrúar 1982 ■ Nú stendur yfir á Kjar- valsstöðum sýning á hús- gögnum/ sem dönsku arki- tektarnir Rud Thygesen og Johnny Sörensen hafa hannað. Þeir nota nær ein- göngu náttúrleg efni, svo sem við, ull og baðmull. Það eru efni, sem er þægi- legt að vera í návist við og þau endast betur en gervi- efhin, sem hafa verið mjög mikið notuð. Gerviefnin endast illa og margir hafa ofnæmi fyrir þeim. Ofan- greindir tveir arkitektar hafa fengið mörg verðlaun fyrir sín húsgögn og fræg listasöfn hafa keypt hús- gögn, sem þeir hafa hannað. Verslunin Epal i Reykjavik stendur fyrir sýningunni á Kjar- valsstööum og er hægt aö panta hilsgögnin þar. Eins og áöur sagöi er ullarefni á húsgögnunum og á á stólunum, sem eru til sýnis hér á Kjarvalsstööum, Gefjunar- áklæöi. Aklæöiö er hannað hjá fyrirtækinu Kvadrat i Danmörku og er framleitt i 9 litum, en hver litur i 4 litbirgöum, þannig aö úr er að velja 36 mismunandi lit- brigðum. Húsgögnin eru öll gæöa- prófuö hjá Teknologisk Institut. Húsgögnin eru limd saman meö nýrri aöferö, þar sem hugmyndin aö samsetningunni er fengin frá náttúrunni sjálfri eöa hvernig ■ Þegar ég var á sýningunni á Kjarvalsstööum hitti ég þessa krakka og fékk þau til aö reyna barnastólana. Krakkarnir heita frá v. Jóhann Arní, fékk þau tii aö reyna barnastóIana.Krakk-arnir heita frá v.Jóhann Arni, Jón Ari, og Oddný Helgabörn. Barnastólar f þremur stærdum greinar trjánna ganga út úr stofn- inum. Rud Thygesen og Johnny Sörensen hófu i byrjun siöast- liöins áratugar náiö samstarf við fyrirtækiö Magnus Olesen i Durup og siöar bættust viö fyrir- tækin Erik Boisen Möbelfabrik i Vejen og Botium i Bonderup. Rösklega tiu ára samvinna hefur getiö af sér fjölbreytilegt úrvai samræmdra húsgagna. Markmiöiö er að búa til sem best húsgögn, hvaö varðar efni og ■ ■ Og krakkarnir prófuöu lfka endurnar, en þaö eru leiktæki, semreyndar eru ekki til sölu. Þær eru eingöngu sýningargripir og voru framleiddar úr afgangshlutum úr verksmiöjunni áriö 1977, þegar Magnús Olesen verksmiöjan átti afmæli. En Magnús Olesen verk- smiöjan framleiöir mikiö af húsgögnum þeirra arkitektanna Rud Thygesen og Johnny Sörensen. form og slá hvergi af gæöakröfum vegna verös. Auk húsgagna eru m.a. á sýningunni fallegir oliulampar til notkunar utanhúss, sem þeir hinir sömu arkitektar hafa hannað. Einnig upptakarar, eggjabikarar úr áli og pipar- og saltkvarnir. Sýning þessi vekur til umhugs- unar um hönnun og notagildi vandaðra húsgagna. Sýningunni lýkur um næstu helgi og þvi ekki seinna vænna aö fara aö sjá hana. ■ Þctta eru oliulampar til notk- unar utanhúss. Þeir eru sérlega stilhreinir og fallegir. Af þeim eru tvær geröir, önnur til að stinga niður i jöröina og hin til aö hafa á borði. ■ Börn þurfa aö sitja á stólum af réttri stærö. Annars er hætt viö aö þau fái hryggskekkju. Alltof al- gengt er hér á islandi iskólum aö börn sitji i stólum sem annaö hvort eru of litlir eöa of stórir fyrir þau. T.d. er eitthvaö um þaöaö 7—8 ára börn sitji I sömu stólum eftir hádegiö, sem 11—12 ára börn nota fyrir hádegið. Ólíklegt er aö þeir stólar hæfi börnum, sem á er um 30 cm hæðarmismunur. Mörg 12 ára börn eruoröin 160 cm eöa hærri, en 7—8ára börn eru um 125—130 cm á hæö.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.