Tíminn - 28.02.1982, Blaðsíða 9

Tíminn - 28.02.1982, Blaðsíða 9
Sunnudagur 28. febrúar 198? menn og málefni f Byggjum borg en ekki samansafn þorpa ■ 1 Reykjavik er nóg landrými fyrir alla þá er þar vilja búa. ■ „Ég vildi að ég gæti gert blóðuga byltingu og sett ykkur af og tekið að mér stjórnina, en ég er vopnafá svo af þvi verður víst ekki”. Þannig ávarpar húseigandi i Reykjavik borgarstjórn sina og fer ekki á milli mála að veru- lega er farið að reyna á þolin- mæði borgarans þegar hann finnur sig knúinn til að rita borgarstjóm bréf og bera upp kvörtunarefni sin með orðalagi sem þessu. Bréfritari er Edda Björns- dóttir Bjarkargötu 10, og þegar erindi hennar er skoöað nánar kemur iljós að hún hefurgengið á milli Pontiusar og Pílatusar i borgarkerfinu til að fá leyfi til að setja kvist á hús sitt, væntan- lega tii aö rýmka þaö og nýta betur en nú er. Einnig fór hún þess á leit að fá leyfi til að setja útidyr á þá hlið hússins er snýr frá götu til þess að þær fjöl- skyldur sem íhúsinu eiga heima geti búið sem mest að sinu án óþarfa samgangs. Hér sýnist um ofureðlilega ósk að ræöa og þarf siður en svo að bera vott um neins konar ósamlyndi milli ibúanna. Vik skal á milli vina og gott ná- grenni byggist ekki hvað sfst á þvi að of nánu sambýli sé bók- staflega ekki troðiö upp á ftílk. Það sem hér hefur gerst er að einn af i'búum Reykjavikur- borgar hefur komist i kast við kerfisem samanstendur af em- bættismönnum, nefndum, sér- fræðingum alls konar og borgaryfirvöldum og hverju sem um er að kenna fæst erindi borgarans ekki afgreitt. Kannski er það rangt lagt fyrir og ætti að vera hægtað leiðrétta það i stað þess að visa erindinu frá. Vera má aö formgallar á umsókninni um kvist og útidyr komi i veg fyrir aö hún hljóti eðlilega afgreiðslu, eða að hana beri ekki rétt að „kerfinu”. Timinn gerir máli þessu nokkur skil s.l. fimmtudag og þar er haft eftir Kristjáni Bene- diktssyni borgarfulltrúa að er- indi Eddu Björnsdóttur hafi tvi- vegis verið visað frá bygginga- nefnd. „Þetta færir okkur heim sanninn um aö þarna hefur eitt- hvað meira en litið verið að frá upphafi. Mér finnst þvi ekki rétt að skella skuldinni alfarið á bygginganefnd. Skuldin liggur h'ka hjá arkitektinum.sem er að teikna þessar breytingar, og fer i þeim út fyrir þær reglur sem gilda um byggingar hér i borg- inni”, er haft eftir Kristjáni. 111 múraðar Sjálfsagter að hafa einhverj- ar rúmar reglur um útlit húsa i borginni sem annars staðar og hafi arkitekt tekið að sér að hanna breytingar á húsi hlýtur hann að táia mið af þeim regl- um sem i gildi eru. Tvisvar er búið að teikna ráðgerðar breytingar á húsinu og jafnoft hefur bygginganefnd visaö er- indinu frá, þar sem teikningarn- ar standast ekki ákvæði i bygg- ingarsamþykkt, en þær reglur sem súrrað er saman í svoköll- uðum byggingasamþykktum eru álika skiljanlegar öllu venjulegu fólki og lagabálkar um skatta, eöa hegningar en þetta eru þærbibliur sem skipu- lagsnefndir og bygginganefnda- menn starfa samkvæmt og eiga sjálfsagt einhvern þátt i að sem ja. Engu er líkara en húseigandi sá erhérum ræðir sé leiksoppur arkitektsins sem er honum til ráðuneytis um breytingar á húsinu og arkitektana i bygg- inganefnd sem tnla á bygg- ingarsamþykkt og breyta ekki út af boðum hennar. Arangurinn er að hUseigandinn snýr sér til borgarstjórnar og tjáir henni þá frómu ósk sina að bylta stjórn- inni með blóðugri byltingu. Hér hlýtur að vera hægt að ná samkomulagi ef vilji er fyrir hendi og sérviska arkitekta ekki ein látin ráða ferðinni. Öskir og þarfir borgaranna hljóta að ganga fyrir bókstafnum eða þvermóðskufullu stolti misvit- urra arkitekta. Breyting A siðustu árum hefur orðiö mikil breyting á þvi viðhorfi borgaryfirvalda að leyfa fólki að bæta við hús sin og breyta. Oftast er þá um aö ræða að lyfta þökum og setja kvisti. Þannig er hægt að bæta við tiltölulega ódýrum ibúðumi eldrihverfum. Merki þessarar stefnubreyging- ar má sjá viða um borgina og er sisttillýta. Yfirleitt verða hUsin svipmeiri og viðkunnanlegri en áður og umfram alltnýtast þau betur. Hér áður fyrr voru nær einu breytingarnar sem leyfðar voru á húsum að skipta um glugga og urðu þær framkvæmdir þvi miður oftast til lýta þvi glugga- póstar urðu yfirleitt eldsmatur en hræðilegar, stórar rúður settar i stað hinna minni. Þetta kalla áhugamenn um menningarverðmæti að „augn- stinga” hús. Um þetta var ekk- ert i byggingarsamþykktum. Annaö erþað sem borgaryfir- völd hafa fært mjög i frjáls- ræðisátt, en þaö er svonefnd þétting byggðar. 1 Reykjavi'k eru næg byggingarsvæði innan EQiðaáa sem ekkert er annaö v.ð að gera en reisa á þeim hús. Varfærnislega er farið af stað, en þó hafa viða risið allsnotur hús og jafnvel litil hverfi þar sem áður þótti góðgá að hrtífla við holti eða mel.Og ekki vantar að nóg er af úrtölufólki þegar til mála kemur að reisa hús á mel eða i mýri. Fámennir en háværir hópar taka sig stundum saman um að mótmæla fyrirhuguðum fram- kvæmdum hér eða þar i borgar- landinu. Þá er hvaða nakinn berangur sem er, orðinn að ein- hverju sem kallað er „útivistar- svæði”, og borgaryfirvöldum hótað öllu illu ef þau dirfast að leyfa einhverjum að reisa þar hús. Alltof ofter farið að kröfum þessara hópa sem reyndar gera aldrei neina skynsamlega grein fyrir máli si'nu eða hvaö það ætlareiginlega að vernda eöa til hvers. Ferðalag Reykvikingareru áreiöanlega mestu ferðamenn hérlendis á landi að langferðabilstjórum ef til vill undanskildum . Svo hönduglega hefur tekist til við skipulag borgarinnar að tug- þúsundir borgarbúa þurfa að ferðast tugi ki'lómetra á dag milli heimila sinna, vinnustaða skóla og þjónustustofnana. Hér skal engum getum að þvi leitt hvað þetta kostar i peningum og tima. Væri kannski verkefni fyrir einhverja af þeim þróunar- og rannsóknarstofnunum, sem komið hefur verið á fót, að glima við. Tekist hefur að reisa Reykja- vik i hálfhring kringum Kópa- vog, og nú deila menn i borgar- stjórn um hvort sé heppilegra að reisa enn nýtt hverfi uppi á heiði námunda við Rauðavatn eða við norðanverðan Grafar- vog. Báöir staöirnir hafa sér það til ágætis aö vera vel fjarri allri annarri byggð. Það er sem sagt gamla ihaldsstefnan i báðum tilvikum, að það sé al- gjör nauðsyn að Reykjavik megi ekki byggjast ööruvisi en sem aðskilin þorp, sum æriö stór að visu og helst á aö vera langt i næsta þéttbýliskjarna. Stórhuga A meðan þessu fer fram l iðst ofstopafólki að koma i veg fyrir að byggt sé á miklu og góðu byggingalandi i sjálfri borginni. Það sama fólk hefur hreiðrað vel um sig i byggðinni og ætlar sér áreiðanlega ekki aö fiytja upp á heiði eða austur og norður i vog. Fyrir nokkrum árum voru uppi samtimis i þrem byggðar- lögum áætlanir um stórfellda byggð. Á Kjalarnesi átti að reisa 50 þús. manna byggð, i Mosfellssveit átti að taka við 50 þús. manns og Reykjavik gat náttúrlega ekki verið eftirbátur og skipulagsfræðingar litu hýru auga allt upp undir úlfarsfell og dunduöu sér við að leggja frum- drög að 50 þús. manna byggð þar. Svo datt einhverjum i hug aölita i mannf jöldaspá Hagstof- unnar og þá voru stórtæku áætlunirnar settar niður i skúffu. Það er áreiðanlega rétt stefna sem núverandi borgarstjórnar- meirihluti hefur tekið upp og greint er frá hér að framan að rýmka verulega um reglur varðandi þaklyftingar og kvisti og það ætti ekki að saka neinn þótt einhverjar sérviskur húsa- hönnuða fái að fljóta með jafn- vel þótt boðorð byggingarsam- þykktarinnar séu brotin. Þau eru ekki annað en manna- setningar. Sú árátta skipulags- fræðinga að steypa helst heilu hverfin i sama mótið er vægast sagt umdeilanleg og enginn er kominn til með að segja að kon- an sem langar til að fá kvist á húsið sitt við Bjarkargötu og arkitekt hennar hafi neitt lakari smekk en samanlögð hjörðin i bygginganefnd, skipulagsnefnd og umhverfisnefnd, sem kann væntanlega byggingarsam- þykktina eins og klerkur guðs- spjöllin. Byggjum Þétting byggðarinnar er verkefni sem óefað er meira að- kallandi en fleiri þorp uppi á heiðieða norðan við vog. Hún er þegar hafin og ber litið á kvört- unum eftir að húsin eða hverfin risa. Og nægt rúm er eftir enn og verður. Mannfjölgunin er ekki slik að ekki verði rúm fyrir þá, sem i Reykjavik vilja búa, að þeim dugi ekki jörð Ingólfs bónda og þurfi ekki að breiða sig út um landnám hans. En það hefur miðað i rétta átt i byggingamálum Reykjavikur með fleira en það sem lýtur að kvistum og þaklyftingum. Hér og hvar i gömlum hverfum hafa risið hús sem falla einkar vel að umhverfi sinu og bæta það oft fremur en hitt. Stundum risa þessi hús á lóðum sem ein- hverra hluta vegna hafa aldrei veriö byggðar en oftar en ekki hafa gamlir fúahjallar eða steinkumbaldar sem farnir voru að molna vikið fyrir nýsmiðinni. Hús þessi eru eftirsótt af kaupendum og t'á færri en vilja og sýnir það að fólk vill búa i Reykjavik sé þess nokkur kostur. Hér á árum áður voru iðulega byggð hús i grónum hverfum, eða i háheilagri miðborginni sem er ág óðri leið með að verða samansafn fúahjalla og ryðkumbalda sem stungu óþyrmilega i stúf við allt um- hverfisitt kassalöguð bákn með gljábrenndum álþynnum milli glugga eða grámygluleg bákn með skeljasandspússningum. Allavega sviplaus og fráhrind- andi byggingalist. Þeir arki- tektar sem þarna stóðu að verki komu óorði á nýbyggingar og þáverandi bygginganefndir lögðu blessun sina yíir. Griðarstaður Upp úr þessu rólinu greip húsaverndunaræðið um sig. Þaö er i sjálfu sér gott og blessað út af fyrir sig en óttalega er orðin leiðigjörn suðan um að einhver óbætanlega menningarverð- mæti fari I súginn ef hreyfa á við nær sama hvaða ryðkumbalda sem er. Það væri nær aö úthluta áhugafólki um rottugang og gólfkulda landspildu uppi á heiði eða norður við vog en að fara að reisa þar nýja byggð. Sfðan er bitið höfuðið af skömm- inni þegar l'arið er að l'lytja af- lóga hrólfatildur utan af landi til að setja upp i höfuðborginni. Eitt er það sem hamlar eðli- legri byggð i sjálfri Reykjavik en það er eignarrétturinn. Sum- ir eiga lóðir eða ónýt hús á lóð- um sem þeir vilja byggja á en fá ekki. Annars staðar eru smærri og stærri landflæmi i eigu ein- hverra aðila sem hvorki kæra sig um aö nýta þær né selja. Grjótaþorpið er dæmi um hið fyrrnefnda. Hið eina sem þar hefur mátt gera i marga áratugi er að byggja Morgunblaöshöll og leggja æ stærri svæði þar undir bilastæði úr grús og mold. Allt annað er bannað og hefur verið lengi. Áhugafólk um verndun nagdýra og útbreiðslu bilastæöa leggur blátt bann við öllu öðru og borgaryfirvöld hlýða. Stórar og smáar lóðir og jafn- vel landspildur eru i eigu aðila sem nota þær næsta litiö en væri vilji og myndugleiki fyrir hendi ætti að vera hægt að komast að samkomulagi um nýtingu þeirra. Skýja A velmektardögum sinum gerði ihaldið i Reykjavik græna byltingu sem fólst aðallega i þvi að birta laglegar teikningar af einhverjum „útivistarsvæðum” I borginni og flytja ibúanna burtu. Hvorki var sparað fé né fyrirhöfn að flytja ibúana sem lengst á brott. Græningjarnir sem þarna stóðu að verki þurftu ekki að lita á neinar upplýsingar um veðurfar eða meðalhita fremur en þeir sem skipulögðu hverfin fyrir 150 þúsund manns að koma við á Hagstofunni til að lita á mannfjöldaskýrslur. Það eru sem sagt reistar skýjaborg- ir úr járnbentri steinsteypu. Það er engin goðgá að reisa byggö i Reykjavik og af allflest- um gömlum og úr sér gengnum húsum er engin eftirsjá aðeins ef þeir arkitektar sem hanna hús i þeirra stað hafa þá smekk- visi til að bera að reisa betri hús og aðlaðandi á grunni hinna gömlu. Það er umfram allt vondum arkitektum og sérvitrum skipu- lagsfræðingum um að kenna að visa þarf Reykvikingum burt úr eigin borg. * Oddur Olafsson, ritstjórnarfulltrúi skrifar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.