Fréttablaðið - 03.12.2008, Blaðsíða 2
2 3. desember 2008 MIÐVIKUDAGUR
VINNUMARKAÐUR Fimm hundruð og
sextíu manns var sagt upp í tólf
hópuppsögnum í nóvember. 43
prósent þeirra sem misstu vinn-
una komu úr verslun, flutningum
og tengdum greinum. 33 prósent
voru í í mannvirkjagerð og tengd-
um iðnaði og um fjórðungur í sér-
fræðilegri þjónustu og upplýs-
inga- og útgáfustarfsemi. Þetta
sýna nýjar tölur frá Vinnumála-
stofnun.
83 prósent uppsagna í mánuðin-
um voru vegna starfsfólks á
höfuðborgarsvæðinu.
Að meðaltali sögðu fyrirtækin
sem um ræðir upp 23 prósentum
starfsmanna sinna. Uppsagna-
hlutfallið er langhæst í mann-
virkjagerð, eða yfir áttatíu pró-
sent.
Helstu ástæður uppsagna voru
sagðar rekstrarerfiðleikar, fyrir-
sjáanlegur samdráttur verkefna
eða verkefnaskortur, og endur-
skipulagning.
Í heild hefur fimm þúsund
manns verið sagt upp með hóp-
uppsögnum á árinu. Flestar til-
kynninganna bárust í október.
Þúsund manns hættu störfum
nú um mánaðamótin eftir að hafa
misst vinnuna í hópuppsögnum.
Önnur þúsund hætta um næstu
mánaðamót og annar eins hópur
um þar næstu mánaðamót. - hhs
Jón Adólf, hefurðu verið upp-
nefndur „Adolf Ingi“?
„Nei, ég hef eingöngu verið upp-
nefndur eftir gamla Dolla.“
Jón Adólf Steinólfsson tréskurðarlista-
maður var oft uppnefndur Adolf Hitler
í æsku, sem særði hann mjög. Ekki
er vitað hvort Adolf Ingi Erlingsson,
íþróttafréttamaður hjá RÚV, hefur lent í
svipuðum hremmingum.
STJÓRNMÁL Ríkisstjórnin ætlar, í
samvinnu við aðila vinnumarkaðar-
ins, að fara yfir nýsettar reglur um
gjaldeyrishömlur. Skoða á neikvæð
hliðaráhrif með það að markmiði
að takmarka þau eins og kostur er.
Seðlabankinn setti reglurnar, að
fengnu samþykki viðskiptaráð-
herra, á grundvelli laga sem
Alþingi samþykkti aðfaranótt
föstudags. Bankinn taldi samþykki
ráðherrans óþarft en sú skoðun
hlaut ekki hljómgrunn þingmanna.
Komið hefur í ljós að reglurnar
girða fyrir erlendar fjárfestingar á
Íslandi. Því vill ríkisstjórnin breyta
og hefur ákveðið að farið verði yfir
málið á vettvangi hennar. - bþs
Ríkisstjórnin um gjaldeyrishöft:
Fer yfir reglur
Seðlabankans
DÓMSMÁL Séra Gunnar Björnsson,
sóknarprestur á Selfossi, var í
gær sýknaður í Héraðsdómi Suð-
urlands af kynferðislegu áreiti og
blygðunarsemisbroti gegn tveim-
ur ungum stúlkum.
Alls höfðu lögreglu og ákæru-
valdi borist fimm kærur vegna
meintra brota séra Gunnars.
Ákært var í tveim málum en þrjú
þeirra voru felld niður þar sem
þau töldust ekki líkleg til
sakfellis.
Í dómnum sagði að sú háttsemi
sem ákærða hafi verið gefin að
sök, og sönnun sé talin liggja
fyrir um, lúti að því að hann hafi
faðmað umræddar stúlkur og
jafnframt strokið annarri þeirra
um bakið utan klæða, talandi um
að honum liði illa, en einnig kysst
hina á báðar kinnar.
Með hliðsjón af því sem undan
sé rakið telji dómurinn að þessi
háttsemi geti ekki talist
kynferðisleg áreitni í skilningi
almennra hegningarlaga. Þá sé
heldur ekki fallist á að ákærði
hafi með háttsemi þessari sýnt
stúlkunum yfirgang, ruddalegt
né ósiðlegt athæfi, sært þær né
móðgað. Því sé hann sýknaður af
báðum liðum ákærunnar.
Séra Gunnar mætti ekki við
dómsuppsögu í gær.
- jss
SR. GUNNAR BJÖRNSSON Var sýknaður í
héraðsdómi.
Dómsuppsaga í Héraðsdómi Suðurlands í gær:
Séra Gunnar var sýknaður
Háskólatorgi Sæmundargötu 4 Sími 570 0777 boksala@boksala.is www.boksala.is
- Upplestur úr jólabókum á fi mmtudögum kl. 16
- Háma með kaffi og meðlæti
- Vefverslun opin allan sólarhringinn www.boksala.is
Í Bóksölu stúdenta, Háskóla-
torgi, fæst m.a. fjölbreytt
úrval af bókum úr hinni
vinsælu bókaseríu „A very
short introduction“ frá Oxford
University á hagstæðu verði.
FRUMLEGAR
OG FRÆÐANDI
BÓKAGJAFIR
FÓLK Það er mikilvægt að ráðamenn
viðurkenni ábyrgð í þeirri stöðu
sem uppi er í samfélaginu. Jafn-
framt er mikilvægt að þeir sýni
reiði fólks fullan skilning. Að
öðrum kosti er hætt við að ólgan
sem vart hefur orðið að undan-
förnu magnist. Þetta er mat Elsu
Báru Traustadóttur sálfræðings.
Almenningur hefur látið skoðan-
ir sínar í ljós á skipulögðum mót-
mælafundum, með greinaskrifum
og ýmsum öðrum hætti.
Elsa segir viðbrögðin eðlileg.
Fólk reiðist þegar það telur sér
ógnað eða finnst vegið að sér eða
stöðu sinni. „Ótti, kvíði og óvissa
brjótast oft út með reiði. Eins ef
fólk er sakað um eitthvað að ósekju.
Það er til dæmis eðlilegt að fólk
reiðist þegar sagt er að allir beri
ábyrgð og það eigi þar með sök á að
þjóðin sé komin í vond mál.“
Elsa telur jákvætt að fólk sæki
mótmælafundi eða skrifi greinar,
því finnist það þá vera að gera eitt-
hvað í málunum og fái útrás fyrir
tilfinningar sínar. Reiðin geti þó
snúist í höndum fólks því ef dag-
legt líf þess fer að snúast um reið-
ina geti afleiðingarnar orðið nei-
kvæðar og þar með alvarlegar. „Þá
getur depurðin tekið yfir og fólk
hætt að sjá möguleika þar sem
tækifæri leynast.“
Að mati Elsu skipta orð og gjörð-
ir ráðamanna miklu í ástandi sem
þessu. Leynimakk og tvöföld skila-
boð virki sem olía á eld. „Fólki líkar
illa ef það finnur að farið sé á bak
við það. Við höfum orðið vitni að
því að stjórnmálamenn segja eitt í
dag en annað á morgun og það
dregur enn frekar úr trausti og
eykur óöryggið. Þannig var það
með Alþjóðagjaldeyrissjóðinn,
aldrei mátti segja neitt. Á hinn bóg-
inn var jákvætt þegar aðgerða-
pakkinn fyrir fjölskyldurnar var
kynntur. Þá sögðust stjórnmála-
mennirnir hafa lagst yfir málið og
við sáum allavega að þeir höfðu
verið að gera eitthvað. Það er svo
annað mál hvort okkur þykja
aðgerðirnar nægilegar,“ segir
Elsa.
Viðurkenning á ábyrgð er mikil-
væg að hennar mati, bæði ráða-
mannanna sjálfra og þjóðarinnar
vegna. „Stjórnmálamaður sem seg-
ist hafa brugðist er með því að axla
ábyrgð og því líklegur til að fá
jákvæð viðbrögð en stjórnmála-
maður sem segist ekki hafa gert
mistök er ólíklegur til að skapa ró
og afla trausts.“ Viðurkenning
ráðamanna á reiði og viðbrögðum
fólks er líka nauðsynleg. „Það verð-
ur að sýna tilfinningum fólks skiln-
ing annars magnast ástandið. Það
má ekki afgreiða mótmælendur
sem skríl, vinstri sinnaða óláta-
belgi eða með ámóta niðrandi
athugasemdum. Það er aðeins til að
æra óstöðuga.“ bjorn@frettabladid.is
Ráðamenn verða að
viðurkenna ábyrgð
Viðbrögð fólks við bankahruninu eru eðlileg, að mati sálfræðings. Stjórnvöld
ráða miklu um framhaldið. Þau geta bæði gert illt verra og róað þjóðina.
MÓTMÆLT Átta laugardaga í röð hefur fólk komið saman á Austurvelli og látið í ljós andúð sína á ráðamönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BJÖRGUN Leit að rjúpnaskyttu,
sem saknað hefur verið í Árnes-
sýslu, hefur verið frestað fram á
laugardag. Maðurinn var á
rjúpnaveiðum um liðna helgi
ásamt félögum sínum en skilaði
sér ekki að bílnum á umsömdum
tíma.
Um fimmtíu leitarmenn, frá
björgunarsveitum á suðvestur-
horninu, leituðu mannsins í gær
án árangurs. Áhersla var lögð á
að fínleita á ákveðnum svæðum.
Voru til þess notaðir bæði hundar
og hestar. - hhs
Leit að rjúpnaskyttu frestað:
Hefja aftur leit
á laugardaginn
VIÐSKIPTI Nýi Glitnir keypti eignir
fyrir um 13 milljarða króna úr
Sjóði 9. Sjóðnum voru ekki lagðir
til fjármunir.
Þetta kemur
fram í svari
Eignastýringar
Glitnis við
fyrirspurn
Markaðarins.
Bankarnir
hafa ekki
mótmælt því að
yfir hundrað
milljarðar hafi
runnið frá þeim í peningamark-
aðssjóði þeirra. Viðskiptaráð-
herra hefur sagt að ákvarðanir
um kaup á skuldabréfum í
sjóðnum hafi verið teknar af
stjórnendum bankanna á við-
skiptalegum forsendum.
Bankarnir hafa ekki viljað
upplýsa um samsetningu skulda-
bréfasafna peningamarkaðssjóð-
anna. - ikh, óká / sjá Markaðinn
Keyptu eignir úr Sjóði 9:
Greiddu fyrir 13
milljarða króna
Ásgeir Jónsson
Fjármagnsflótti, flot
og bankaleynd
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 3. desember 2008 – 50. tölublað – 4. árgangur
Hluthafaábyrgð
Skuggastjórnendur
ábyrgist skuldbindingar
4
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Ódýr olía | Verð á hráolíu fór í
rúma 47 dali á tunnu í gærmorg-
un og hafði ekki verið lægri í
rúm þrjú ár. Verðið fór hæst
í rúma 147 dali í júlí. Fulltrú-
ar OPEC-ríkjanna funduðu um
málið um helgina en söltuðu það í
hálfan mánuð.
Segja nei | Stjórn írska flugfé-
lagsins Aer Lingus vísaði tilboði
lággjaldaflugfélagsins Ryanair í
félagið útaf borðinu í fyrradag.
Tilboðið er helmingi lægra en
það sem Ryanair lagði fram fyrir
tveimur árum.
Tortímandi í neyð | Vöðva-
tröllið Arnold Schwarzenegger,
ríkisstjóri Kaliforníu, sem fyrir
allmörgum árum sló í gegn sem
Tortímandinn, hefur lýst yfir
efnahagslegu neyðarástandi í
Kaliforníu. Kassinn er tómur og
vel það. Verði ekkert að gert
verður ríkið auralaust í febrúar.
Mikil lækkun | Helstu hluta-
bréfavísitölur hafa fallið hratt
víða um heim í vikunni. Dow
Jones-vísitalan féll um tæp átta
prósent á mánudag. Það jafn-
gildir 680 stigum, sem er fjórða
mesta fallið frá upphafi.
Norskt hrun | Fasteignamark-
aðurinn í Noregi hrundi í haust
en sala á fasteignum hefur dreg-
ist saman um 60 prósent frá í
fyrra. Mestur er skellurinn í höf-
uðborginni, Ósló, en þar hefur
salan verið 45 prósentum minni
nú en í fyrra.
Jón Steinsson
Óhagkvæmni
eða spilling
6
Vistvæna
prentsmiðjan!
5
Yfirvofandi innlendur fjármagnsflótti, bæði í
bráð og lengd, er mun alvarlegri en viðbúinn
flótti erlendra krónubréfafjárfesta. Þetta kemur
fram í grein sem Ásgeir Jónsson, forstöðumað-
ur greiningar deildar Kaupþings, skrifar í Markað-
inn í dag.
Fjármagnsflóttann segir Ásgeir ekki aðeins rek-
inn áfram af ótta við myntina sjálfa, heldur af
hræðslu við að geyma verðmæti inni í íslensku fjár-
málakerfi þar sem þau frjósi, glatist eða verði að
pólitísku bitbeini.
Umræðan um bankaleynd tengist svo beint um-
ræðunni um traust á stofnunum landsins. „Banka-
leynd kemur því í veg fyrir að hægt sé að kúga fólk
sem lendir upp á kant við stjórnvöld, stjórnmála-
flokka, ríkisstofnanir stórfyrirtæki eða jafnvel fyrr-
verandi maka með því að leka upplýsingum í fjöl-
miðla eða hvískra þeim með öðrum hætti inn í opin-
bera vitneskju. Bankaleyndin er því hluti af vernd
þegnanna í lýðræðislegu samfélagi,“ segir Ásgeir, en
áréttar um leið að sú þagnarskylda eigi samt ekki að
koma í veg fyrir rannsókn á bönkunum né á að lög-
brot séu upplýst. „Hún tryggir aðeins að slíkt sé gert
í lögformlegu ferli. Það er gríðarlega mikilvægt að
haldið sé í leikreglur lýðræðis, laga og reglu við að
færa þessi mál upp á yfirborðið. Réttlæti sem feng-
ið er með því að brjóta allar þessar reglur er því
ekki aðeins sýndarréttlæti heldur mun verða til stór-
skaða fyrir landið þar sem íslenskt fjármálakerfi
mun ekki bera þess bætur.“ - óká / sjá síðu 5
Bankaleynd er hluti af lýðræðinu
Vandræði krónunnar tengjast trausti á stofnunum landsins, ekki myntinni einni.
„Nýi Glitnir greiddi ekki inn í
Sjóð 9 heldur keypti eignir, alls
fyrir um 13 milljarða króna.“
Þetta segir í svari Eignastýring-
ar Glitnis við fyrirspurn Mark-
aðarins.
Fram hefur komið, og ekki
verið mótmælt, að yfir hundrað
milljarðar króna hafi runnið frá
bönkunum inn í peningamark-
aðssjóðina.
Markaðurinn spurði viðskipta-
ráðherra sem sagði að ákvörð-
un um kaup á skuldabréfum í
sjóðunum hefðu verið teknar á
viðskiptalegum forsendum af
stjórnendum bankanna.
Ef frá er talið svar Eignastýr-
ingar Glitnis, eru svör bankanna
við fyrirspurn Markaðarins svo
gott sem samhljóða. Ekki eru
gefnar upplýsingar um samsetn-
ingu sjóðanna. Ekki er greint frá
því hverjar voru viðskiptaleg-
ar forsendur þess að greitt var
inn í sjóðina, það er að bréf hafi
verið keypt úr þeim. Svörin eru
á þá lund að byggt hafi verið á
mati frá óháðum endurskoðend-
um. Stjórn viðkomandi banka,
hvers um sig, í lok október, hafi
tekið ákvörðunina.
Glitnir upplýsir að engin
skuldabréf á Glitni banka hafi
verið í Sjóði 9.
Nýi Landsbankinn segir að ná-
kvæm skipting skuldabréfasafns
sé ekki gefin upp. Þó sé aug-
ljóst að þar hafi verið skuldabréf
bankanna, þar sem bréf Kaup-
þings hafi vegið þyngst. „Einnig
voru þar skuldabréf fyrirtækja
sem enn eru í rekstri og því
ekki rétt að nefna þau opinber-
lega þar sem það gæti haft skað-
leg áhrif á gengi þeirra,“ segir í
svari Landsbankans.
Nýja Kaupþing segir að bréf
hafi verið seld úr sjóðunum áður
en þeir voru gerðir upp. Kaup á
bréfum hafi verið að kröfu Fjár-
málaeftirlitsins sem vildi láta
greiða úr og slíta sjóðunum. - ikh
Þrettán millj-
arðar í Sjóð 9
Björn Ingi Hrafnsson
skrifar
Íslenskt stjórnkerfi ferðast á hraða snigilsins og
fylgdi alls ekki eftir stækkun fjármálageirans í
landinu á undanförnum árum. Ísland stóð á end-
anum uppi eitt og yfirgefið þegar neyðin var sem
stærst. Þetta kom fram í máli Sigurðar Einarsson-
ar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, í er-
indi sem bar yfirskriftina Morðgátan um Kaupþing,
sem hann flutti á fundi viðskiptaráðsins í Stokk-
hólmi í síðustu viku.
Rakti Sigurður fjölmargar ástæður fyrir falli
Kaupþings og íslensku bankanna og tók nokkra
sök á sig í þeim efnum. Kvaðst hann vera þess full-
viss að Ísland gengi fljótlega í Evrópusambandið til
þess að endurreisa efnahaginn, rétt eins og Svíar
og Finnar hafi gert í upphafi tíunda áratugar síð-
ustu aldar. Það sé sorglegt að hrun fjármálakerfis-
ins hafi þurft til.
Seðlabankinn fékk sinn skammt í ræðu Sigurðar.
Þar var vaxtastefna hans harðlega gagnrýnd, hún
hefði haldið uppi fölsku gengi krónunnar og lokk-
að til landsins spákaupmenn sem gerðu út á vaxta-
munaviðskipti. Hann hefði ekki náð markmiðum
sínum um verðbólgu og fjármálastöðugleika, en
vildi engu síður bæta við sig verkefnum og taka
yfir stjórn Fjármálaeftirlitsins. Furðaði hann sig á
því og bætti við að með þjóðnýtingu Glitnis hefðu
stjórnvöld og Seðlabankinn hleypt af stað skriðu
sem ekki hefði tekist að stöðva.
Hugmyndin hefði verið að styrkja stöðu Glitn-
is svo hann fengi sama lánshæfismat og ríkið, en
niðurstaðan hefði orðið þveröfug og bæði ríkið og
bankarnir verið kolfelldir í lánshæfismati í kjöl-
farið og erlendir fjárfestar gert allt til að losa
sig við íslenskar eignir, án tillits til gæða þeirra.
Ofan í kaupið hafi Alþingi sett neyðarlög þar sem
gerður var greinarmunur á kröfuhöfum jafnvel á
grundvelli þjóðernis sem hafi verið augljóst brot
á Evrópureglum og formaður bankastjórnar Seðla-
bankans komið fram í sjónvarpi og tilkynnt að ekki
stæði til að borga nema brot af erlendum skuldum
bankanna. Fyrir vikið hafi bresk stjórnvöld talið
hættu á að eignir Landsbankans í Bretlandi yrðu
fluttar til Íslands sem trygging fyrir íslenskum
innstæðum án þess að breskir sparifjáreigendur
fengju neitt.
Sagði Sigurður að Kaupþing Singer og Friedland-
er í London hefði verið breskur banki og hefði því
átt að lúta þarlendum reglum. Hafi bresk yfirvöld
talið hann gjaldþrota hefðu þau átt að þjóðnýta
hann. Aðgerðir þeirra séu óafsakanlegar og þess
vegna telji hann að dauðdaga Kaupþings hafi ekki
borið að með eðlilegum hætti.
Morðgátan um Kaupþing
Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaup-
þings, segir dauðdaga bankans ekki hafa borið eðlilega að.
VIÐSKIPTI Reglur Seðlabanka
Íslands um gjaldeyrisviðskipti
hindra skráningu hlutafjár í
evrum, að sögn Einars Sigurjóns-
sonar, forstjóra Verðbréfaskrán-
ingar Íslands.
Samkvæmt reglunum er
óheimilt að gefa út og selja
verðbréf, hlutdeildarskírteini
verðbréfa- og fjárfestingarsjóða,
peningamarkaðsskjöl eða aðra
framseljanlega fjármálagerninga
sem ekki eru í krónum.
Einar gerir ráð fyrir að sótt
verði um undanþágu frá reglunum
til Seðlabankans. Hann segir vonir
standa til að gjaldeyrishömlur
verði endurskoðaðar í mars í
síðasta lagi. - jab, óká / Sjá Markaðinn
Gjaldeyrislög trufla áætlanir:
Lögin tefja
evruskráningu
7%
42%
15%
11%
1%
3%
14%
3%
2% 2%
Fiskvinnsla
Iðnaður
Mannvirkjagerð
Verslun, viðg.
Flutningar
Gisti-/veitingahús
Uppl. og útgáfa
Fjárm. og trygg.
Sérfr. starfsemi
Ýmis starfsemi
HÓPUPPSAGNIR Á ÁRINU 2008 EFTIR ATVINNUGREINUM
Fimm hundruð og sextíu manns misstu vinnuna í hópuppsögnum í nóvember:
Verslun tók stærsta skellinn
NÁTTÚRA Rannsóknarmenn frá
Hafrannsóknastofnun tóku í
síðustu viku sýni úr skugganefju
sem fannst við Hvaleyrarholt
sunnan Hafnarfjarðar. Að sögn
Droplaugar Ólafsdóttur, frá
Hafrannsóknastofnun, er
skugganefja afar sjaldséð hér um
slóðir og er þetta einungis í
sjöunda sinn svo vitað sé sem hún
finnst hér við land. Í ljós kom að
kjálkinn er illa brotinn svo talið
er hugsanlegt að þessi rúmlega
fimm metra langi hvalur hafi
rekist á bát.
Það voru starfsmenn á golfvell-
inum á Hvaleyrarholti sem urðu
fisksins fyrst varir. - jse
Sjaldgæft smáhveli:
Kann að hafa
lent í árekstri
FISKURINN RANNSAKAÐUR Starfsmenn
Hafró rannsaka þetta sjaldséða smá-
hveli. MYND/DROPLAUG ÓLAFSDÓTTIR
SPURNING DAGSINS