Tíminn - 15.05.1982, Page 1

Tíminn - 15.05.1982, Page 1
Vidtal vid frambjódcndur: Kristján Benediktsson - bls. 10 Blað 1 Tvo blöð ídag Helgin 15.—16. maí 1982 1109, tölublað — 66 árg. ! - - i —I Billy r Moskvu — bls. 5 „Hreint ævintýri” — bls. 12-13 SÓKN SflMDI IIM 4-5% MEÐALTALSKAUPHÆKKUN — Samningstíminn er til 1. maí á næsta ári ■ Alltfrá 1% til 10% launahækk- un höföu Sóknarfélagar upp úr krafsinu, eftir þvi sem Tíminn hefur hlerað, en meðalhækkunin mun liggja einhversstaðar á bil- inufrá 4% til 5%. Samningarnir munu vera nokkuð óvenjulegir að þvi leyti að aðallega var samið um mikla umturnun i flokkaskipuninni, þannig að mest áhersla var lögð á að jafna bilið á milli Sóknarmanna og annarra launþega,sem vinna sambærileg störf. Samningar tókust um há- degisbilið i gær á milli Starfs- mannafélagsins Sóknar og við- semjenda þess, eftir stanslaus- an fund frá þvi klukkan 15 daginn áður. Samkomulagið verður borið undir atkvæði félagsmanna i Sökn á mánudag- inn kemur. Samningsaðilar vildu’ekki tjá sig um efni samkomulagsins i gær, en Björg Þorleifsdóttir hjá Sókn sagði að árangurinn væri þolanlegur og áfangar hefðu náðst fyrir jímsa, þar sem erfið- lega heföi gengið aö semja um áður. Talið er sennilegt að Sóknar- félagar verði almennt ánægðir með samkomulagið, þvi þar séu leyst ýms mál sem lengi hafa brunniö á mönnum, svo sem Kleppsdeilan. Samningurinn sem nú var gerður gildir til 1. mai 1983. SV ■ Merin á myndinni viröist horfa heldur sorgmæddum augum á aug lýsingaskiltiö og lái henni hver sem vill. Annars voru hrossin stödd á Lækjartorgi i gær af þvi tilefni aö Fáks konur seldu vegfarendum þar happdrættismiða. Timamynd: Ella. Lán til bústofnskaupa misnotað: LflNTAKANDA gert ad ENDURGREIÐA UNIÐ ,Það segir sig sjálft að þetta lán er fallið I gjalddaga, og þar með endurkræft,” sagði Stefán Pálsson, framkvæmdastjóri Stofnlánadeildar landbúnaðar- ins I gær, þegar blaðamaður Timans spurði hann hvað yrði gert I máli bónda eins I Austur- Húnavatnssýslu, sem I fyrra fékk lán úr sjóðnum til bústofns- kaupa, alls krónur 84.480, en nýtti siðan ekki krónu af þessu láni til fjárkaupa. Til þess að fá lán úr Stofn- lánasjóði til kaupa á bústofni þarf að leggja fram vottorð undirritað af hreppstjóra um að viðkomandi hafi ábúð á jörðinni og i öðru lagi vottorð undirritað af hreppstjóra og oddvita um að kaupin á bústofninum hafi farið fram. Hreppstjórinn og oddvitinn undirrituðu vottorðið um kaupin i þeirri trú að þau hefðu farið fram, en um það höfðu bæði kaupandi og seljandi fullvissað þá. Siðastliðið haust, þegar féð kom af fjalli, samdist hins vegar ekki með kaupanda og seijanda, þar sem kaupandi vildi ekki greiöa fullt gangverð kindanna, og varð þvi ekki af kaupunum. Kaupandinn mun siðan hafa nýtt þessa fjármuni til annarra hluta en kaupa á bú- stofni, en eins og kemur fram i máli Stefáns hér að framan þá mun sjóðurinn nú vera með ráðstafanir i undirbúningi til þess að fá kaupandann til að endurgreiða lánið. —AB

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.