Tíminn - 15.05.1982, Síða 5
Laugardagur 15. mai 1982
5
■ Yfirmenn grisk-kaþólsku kirkjunnar i Sovétrikjunum taka á móti Billy Graham á flugvellinum i
Moskvu, Billy Graham er lengst til hægri.
Billy Graham
heimsækir Rússa
Honum var vel tekid að þessu sinni
■ FYRIR 23 árum fór hinn heims-
kunni ameriski predikari, Billy
Graham, til Sovétrikjanna sem
venjulegur ferðamaöur. Rússar
létust þá ekki veita ferðalagi hans
neina eftirtekt, enda þótt þeir telji
það oftast sögulegan atburð, þeg-
ar frægir menn sækja þá heim. Að
þessu sinni létu þeir eins og um
hversdagslegan ferðalang væri
að ræða.
Það var skýringin á þessari af-
stöðu þeirra, að Billy Graham
hafði deilt hart á kommúnismann
i predikunum sinum og talið hann
ósamrýmanlegan kristni og
kirkju. Margir andkommúnistar
gerðu sér dátt við Billy Graham á
þessum tima.
Billy > Graham heimsótti
Moskvu i annað sinn um siðustu
helgi. Nú var honum tekið með
kostum og kynjum. Einn af æðstu
biskupum grisk-kaþólsku kirkj-
unnar i Sovétrlkjunum tók á móti
honum á flugvellinum i Moskvu,
ásamt ýmsum kirkjuleiðtogum
öðrum. Siðar fékk Graham tæki-
færitilað ræða við ýmsa nánustu
samverkamenn Brósnjef.
Erindi Graham til Sovétrikj-
anna að þessu sinni var að sækja
fund ýmissa kirkjuleiðtoga, sem
voru komnir viða að. Tilefni fund-
arins var að ræða um baráttu
kirkjunnar gegn kjarnavopnum.
Billy Graham hefur tekið mjög
virkan þátt í þeirri baráttu i
Bandarikjunum.
Ýmsir áhrifamiklir ménn I
stjórn Bandarikjanna, m.a. Bush
varaforseti, reyndu að telja Billy
Graham hughvarf og fá hann tíl
að hætta við ferðina til Moskvu.
Billy Graham sat samt viö sinn
keip.
Hann geröi grein fyrir þvi áður
en hann fór frá Bandarikjunum,
að hann teldi það ekki fyrst og
fremst pólitiskt mál að berjast
gegn kjarnavopnum, heldur ekki
siður siöferðilegt og trúarlegt
málefni. Stjórnmálamenn hafa
reynt að stöðva kjarnavopna-
kapphlaupið siðan þau komu fyrst
til sögu. Þeim hefur ekki tekizt
það. Það er kominn timi til þess
fyrir kirkjunnar menn að leggja
hönd á plóginn.
Ég er fæddur og uppalinn i
Bandarikjunum, sagði Graham
enn fremur, og er trúr bandarisk-
ur þegn. En ég tel mig einnig
heyra til hinu alþjóðlega samfé-
lagi, og er þvi ekki aðeins ábyrg-
ur gagnvart einni þjóö, heldur
öllu mannkyninu.
BILLY Graham tók ekki aðeins
þátt i umræddri ráðstefnu, heldur
flutti predikanir i tveimur rúss-
neskum kirkjum á sunnudaginn
var.
Fyrst flutti hann predikun i
baptisku kirkjunni I Moskvu. Um
1000 áheyrendur voru i kirkjunni
og var hún raunar meira en full-
skipuð. Aðgöngumiða þurfti til að
komast i' kirkjuna og hlusta á
Graham, enda var óttast, að að-
sókn yrði ella meiri en húsrúm
leyfði.
Nokkrir útlendingar voru i
kirkjunni, auk leynilögreglu.
Mikill meirihluti kirkjugesta var
þó rússneskur. Sumir þeirra
höfðu komið frá fjarlægum hér-
uðum i Sovétrikjunum, m.a. frá
Uzbekistan, Ukrainu, Eistlandi
og Siberiu. Þeir höfðu heyrt sagt
frá þvi I útsendingum brezka út-
varpsins, aðBilly Graham myndi
predika i Moskvu tiltekinn dag.
Ekkert hafði hins vegar verið til-
kynnt um það I rússneskum fjöl-
miðlum.
Talið er aö um hálf miiljón
baptista sé i Sovétrikjunum.
Allstór hópur, eða nokkur
hundruð manns hafði safnazt
saman við kirkjuna, áður en Biily
Graham kom, og hóf að syngja
sálma. Söngnum var haldið
áfram meðan á predikuninni stóð
og raunar lengur. Lögreglan lét
þetta afskiptalaust, þótt hún sé
vön að dreifa slikum hópum.
1 predikun sinni gætti Billy
Graham þess að deila ekki á
stjómskipulag Sovétrikjanna eða
afstöðu þeirra til trúarbragða, en
túlkaði eigi að siöur ákveðið
kenningar Krists og kirkjunnar.
Ræða hans var jafnóöum þýdd á
rússnesku og þótti það takast vel.
Að lokinni predikuninni i bapt-
istakirkjunni fór Billy Graham til
einnar aðalkirkju grisk-kaþólsku
kirkjunnar i Moskvu og flutti þar
predikun að viðstöddum ýmsum
helztu yfirmönnum hennar og er-
lendum trúarleiðtogum, sem
ásamt Billy Graham sóttu áður-
nefnda ráðstefnu. Pimen, erki-
biskup frá Minsk, þakkaði Billy
Graham ræðuna og fór jafnframt
lofsamlegum orðum um hann
sem frábæran predikara.
BILLY Graham þakkaði erki-
biskupnum fyrir orð hans og lét
að lokum ummælt á þessa leið:
Ég vil minna ykkur á, að á
þessum árstima fyrir 37 árum
börðust Rússar og Bandarikja-
menn hlið við hlið gegn sameigin-
legum óvini, nasismanum. Við
eigum I dag sameiginlegan óvin,
þar sem er hættan á kjarnorku-
styrjöld.
Lfklegt þykir, aö Billy Graham
hafi i viðræðum sinum við rúss-
neska stjórnmálamenn talað máli
sex RUssa, sem fyrir fjórum ár-
um settust að i' bandarlska sendi-
ráðinu eftir að þeir hefðu beðið
um að mega yfirgefa Sovétrikin
af trúarástæðum en fengið synj-
un. Ekkert hefur Billy Graham
látið uppi um þetta opinberlega,
enda myndi það ekki greiða fyrir
beiðninni.
Billy Graham hefur látið vel af
gestrisni og móttökum Rússa.
Hægri menn i Bandarikjunum,
sem hafa dáð Billy Graham ára-
tugum saman, sýna honum ekki
sömu aðdáun og áður siðan hann
hóf þátttökuna i baráttunni gegn
kjarnavopnum. Hins vegar hefur
alit hans aukizt hjá frjálslyndari
mönnum, sem áður höfðu frekar
horn i sfðu hans. Afstaða hans nú
þykir staðfesta, að hann stjómast
af sannfæringu og trú en ekki af
löngun eftir vinsældum, eins og
oft hefur verið haldið fram um
hann.
Billy Graham er 63 ára að aldri
og hefur aldurinn ekki dregið úr
áhrifum hans sem predikara.
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
O/m TUIVGSRAM
Lágspenntar Ijósaperur
12 - 24 - 36 volta fyrirliggjandi
Pantanir á lágspenntum ljósaperum fyrir
haustið óskast sem fyrst.
Raftækjaverslun íslands h.f.
Ægisgötu 7 — simar 17975/75 Rvk.
Rafvirkja
vantar til starfa hjá Rafveitu Borgarness.
Upplýsingar gefur Rafveitustjóri i sima
93-7292 _ . .. _
Rafveita Borgarness
Ferðamenn ath.
að öllu forfallalausu er heimilt að tjalda i
Þjóðgarðinum á Þingvöllum frá 1. júni
Þjóðgarðsvörður
Frá skólunum f Mosfellssveit
Innritun nýrra nemenda skólaárið 1982-
1983 fer fram i skólanum mánudaginn 17.
mai og þriðjudaginn 18. mai n.k. kl. 9-12.
Simar Varmárskóla (6-12 ára) 66154, 66267
Simi gagnfræðaskólans (13-15) 66186
Ariðandi er að foreldrar sem hyggjast
flytjast i skólahverfið fyrir næsta haust
láti skrá börn sin i skólanum.
Skólastjóri
Kælitækjaþjónustan
Reykjavíkurvcgi 62, Hafnarfirði, sími 54860.
Önnumst alls konar nýsmíði. Tökum að
okkur viðgerðir á: kæliskápum,
frystikistum og öðrum kælitækjum. Fljót
og góð þjónusta.
Sendum I póstkröfu um land allt
Land-Rover eigendur
Nýkomið á mjög hagstæðu verði:
Öxlar framan og aftan
Öxulflansar
Hjöruliðskrossar
Girkassaöxlar
Girkassahjól
Fjaðrafóðringar
Hraðamælisbarkar
Hurðarskrár
stýrisendar
spindlasett
kúplingspressur
kúplingsdiskar
og margt f leira
Lokað verður frá 18/5-6/6
Póstsendum.
Bílhlutir h/f
Suðurlandsbraut 24 — Reykiavik
,S.38365.