Tíminn - 20.06.1982, Qupperneq 5
SUNNUDÁGUR 20. JÚNÍ 1982
fyrir. Ekki kom lögreglumönnunum þó
til hugar í bili að kanna hvemig á þvi
stæði að hann hefði í upphafi þvertekið
fyrir að hafa með sér farangur, en settu
bæði Kalla og töskuna hans upp i bil og
óku sem leið iá i Kópavoginn.
Fyrsta
játningin
Kalli var síðan yfirheyrður lengi dags.
Hann kvaðst ekki eiga annað erindi til
Kaupmannahafnar en heilsa upp á vini
og kunningja og fara á tónleika með
ensku rokkhijómsveitinni Rolling Ston-
es og hefðu vinir hans í Höfn fest kaup
á miða handa honum. Að öðra leyti
höfum við ekki nákvæmar spumir af
yfirheyrslum lögreglunnar yfir Kalia;
hann var spurður i þaula um fýrmefndan
reiðhjólaþjófnað og önnur þau mál sem
iögreglumennimir töldu að hann myndi
vera þeim fróðari um. Gekk svo um sinn
að Kalli sat á tali við lögregluna, en allan
timann beið ferðataska hans óopnuð.
Það var ekki fyrr en forvitni lögreglunn-
ar um líf og störf Kalia hafði verið
fullnægt að mestu leyti að einhverjum
datt í hug að úr þvi að þessi taska væri
þama á annað borð væri eins gott að líta
á innihaldið. Viðkomandi fór að gramsa
í töskunni og rakst þar meðal annars á
— Um innbrotið
I Gull og silfur
og hvernig málið
upplýstist
kunningja sina upplýsti hann þó um
málið, nefnum þá bara Kalla og Halla,
enda taldi hann sig þurfa aðstoð þeirra
við að koma skartgripunum úr landi.
Skartgripimir, eða a.m.k. meginhluti
þeirra, vom faldir á heimili hér i borg
og skal tekið fram að húsráðendur þar
höfðu ekki hugmynd um að hjá þeim
leyndist hið eftirsótta þýfi. Leið nú og
beið.
Tilviljun veldur því
að rannsóknin
kemst á skrið
Pað gerðist næst í málinu að
eldsnemma að morgni laugardagsins
fimmta júní síðastliðinn sat maður
nokkur að kaffidrykkju i kaffiteriu
Hótels Loftleiða. Heimildum okkar ber
öldungis ekki saman um hvort hér var á
ferðinni lögregluþjónn eða leigubíi-
stjóri, en það skiptir engum sköpum:
margir leigubílstjórar hafa ýmsa sam-
vinnu við lögregluna og þekkja vel til
„undirheimanna" í borginni. Nema
hvað - um það bil sem lögregluþjónn-
inn/leigubílstjórinn var að Ijúka úr
kaffibollanum sinum kom hann auga á
ungan mann sem hann kannaðist við -
og það ekki af góðu. Þarna var kominn
Kalli, trúnaðarvinur innbrotsþjófsins
Palla, og vissi kaffidrykkjumaðurinn
ýmislegt misjafnt um Kalta þennan, þar
á meðal að hann væri annaðhvort
heimilisfastur eða altént tíður gestur í
fbúð einni hér í Reykjavik sem meðal
kunnugra gengur ýmist undir nafninu
„Hassbælið" eða ,Grenið“. Liggur i'
hlutarins eðli að lögreglan hefur talið sér
skylt að hafa nokkurt eftirlit með stað
sem kallaður er þvílíkum nöfnum, enda
ku flestir þeirra sem þangað venja
komur sinar vera „góðkunningjar lög-
reglunnar" á einn eða annan hátt. Fyrr
þessa sömu nótt hafði verið handtekinn
fyrir utan umrædda ibúð annar ungur
maður og var hann þá að bera inn úr
stolnum bil nokkur útvarps- og kassettu-
tæki, sem hann hafði þá um nóttina rænt
austur á Selfossi. Um sama leyti var
tilkynnt að fyrmefndur Kalli væri á ferð
um borgina á reiðhjóli sem trauðla væri
hans eigið. Þetta vissi hinn kaffiþurfi
vinur okkar og er hann sá að Kalli fór
ekkert í felur með að hann hafði undir
höndum farseðil til Kaupmannahafnar,
flýtti hann sér að gera Rannsóknarlög-
reglu rikisins viðvart. Rannsóknarlög-
reglan reyndist hafa áhuga á málinu og
vom tveir rannsóknarlögreglumenn
sendir suður á Keflavikurflugvöll i veg
fyrir Kalla.
Er rannsóknarlögreglumennirnir
komu suður á völl hafði Kalli þegar
„tékkað sig inn“, eins og það heitir. Þeir
viku sér að honum, sögðust hafa hann
grunaðan um reiðhjólaþjófnað og
áreiðanlega sitthvað fleira, og siðan
leituðu þeir á honum. Við þá leit fundust
meðal annars tvær hasspípur, nefnilega
gripir sem teljast ekki beinlínis löglegir.
Sáu rannsóknarlögreglumennirnir nú öll
tormerki á því að Kalli fengi að fara úr
landi í þetta sinn og sögðust mundu taka
hann til yfirheyrslu i Kópavogi. Kalli var
ekki i neinni aðstöðu til að hafna því
kostaboði.
Um það bil sem þeir þremenningar
vom að ganga ut i bil spurði annar
lögreglumannanna Kalla hvort hann
hefði haft með sér einhvern farangur.
Kalli flýtti sér að neita því, en rétt i þann
mund var nafn hans kallað upp i
hátalarakerfi flugvallarins. Það hafði
nefnilega ekki farið framhjá afgreiðslu-
mönnum að Kalli mundi ekki úr landi i
bili og þegar hann kom að afgreiðslu-
borðinu ásamt fylgdarmönnum sínum
spurði einn afgreiðslumaðurinn hvort
hann ætlaði ekki að taka með sér
ferðatöskuna sina. Þama átti Kalli sem
sé ferðatösku sem hann gat ekki þrætt
ullarsokk einn vænan sem hann fann
fljótt að eitthvað var falið i. Og viti
menn: gull og silfur!!
í sokk þessum fundust alls 68 hringir
og 3 gullarmbönd og þótti lögreglunni
nú liggja i augum uppi að Kalli hefði átt
að selja þennan vaming í Kaupmanna-
höfn eða annars staðar á meginlandi
Evrópu. Breyttu yfirheyrslunar nú um
svip og þar kom að Kalli játaði og nefndi
sér samseka þá Halla og Palla. Fóm
hjólin nú að snúast fýrir alvöra.
Aðfaramótt sunnudags eða snemma
sunnudagsmorguns var Halli færður til
yfirheyrslu og hlaut að játa. Palli fannst
hins vegar hvergi.
Innbrotsþjófurinn
sjálfur hand-
tekinn
Palli var farinn i felur. Hann hafði
frétt af handtöku Kalla og bjóst þegar i
stað við að nú væri spilið búið. Hann
Ieitaði hælis í húsi nokkra hér í
Reykjavík, þar sem bjuggu vinir hans
og hafði hægt um sig yfir helgina. Á
sunnudagskvöldið hafði hann hins vegar
komist að þeirri niðurstöðu að þýðing-
arlaust væri að vera i felum og mun hafa
hugsað sér að gefa sig fram daginn eftir.
En lögreglan varð fyrri til.
Seint um nóttina, eða undir morgun,
hringdi síminn i áðurnefndu húsi. Kalli
var í símanum og spurði eftir Palla.
Er Palli fór i simann sagði Kalli
honum að allt væri komið upp á
yfirborðið og nú yrði hann að gera svo
vel að koma og upplýsa málið að fullu
og öllu. Annars yrðu þeir Halli dæmdir
í langt gæsluvarðhald. Palli kvaðst
skyldu koma og talaði einnig við
lögregluna. Rannsóknarlögreglumaður-
inn sem talaði við hann sagði að nú
kæmu þeir að sækja hann, hann skyldi
vera tilbúinn. Palli jánkaði því.
Skömmu síðar staðnæmdist bill lög-
reglunnar fyrir utan húsið, hurð var
opnuð og rannsóknarlögreglumaður
benti Palla - sem kominn var útúr húsinu
- að stiga inn. Palli gerði það, hann var
fluttur i yfirheyrslu og játaði greiðlega.
Var þeim Palla, Kalla og Halla siðan
sleppt eftir að þeir höfðu bent á hvar
afgang þýfisins væri að finna. Kom
mestur hluti þess i leitirnar og biða þeir
þremenningar nú dóms.
Það fór þvi aldrei svo að þetta
fagmannlega innbrot yrði ekki upplýst...
- ij tók sarnan
Starf bæjarstjóra
Starf bæjarstjora á Sauðárkróki er laust til
umsóknar.
Upplýsingar um starfið gefur bæjarstjóri í
síma 95-5133.
Umsóknarfrestur er til 28. júní n.k. og skulu
umsóknir stílaðar til bæjarstjórans á Sauðár-
króki.
16. júní 1982
Bæjarstjóri
ARGERÐ 1982
Pétur Sigurðsson
fv. forstjóri
Landhelgisgæslunnar
segir:
„Þetta er 2.
Wartburginn mini
og það segir
sína sögu"
TRABANT/WARTBURG UMBOÐIÐ
Ingvar Helgason
Stóri bíllinn
á lága verðinu
Loksins kominn aftur
Til afgreiðslu
Pantanir óskast
staðfestar.
•
Þeir sem kaupa
einu sinni
WARTBURG
kaupa hann
aftur og aftur
Byggður á grind, með 65 ha. tvigengisvél (gamla
Saab vélin)
Gormar á ölium hjólum og billinn þvl dúnmjúk-
ur
Eiginleikar I snjó og iausamöl frábærir.
Stálklætt stálgrindarhús
Framhjóladrifinn
Eúðuþurrkur, fjórar stillingar (m/biðtfma)
Óvenju stórt farangursrými
StiIIanleg sætabök
Rafm. rúðusprautur, aftan og framan
Rúðuþurrkur á afturrúðu
Höfuðpúðar á framsætum
Upphituð afturrúða
Gólfskiptur.
Sýningarsalurinn v/Rauðagcrði,
sími 33560