Fréttablaðið - 21.12.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
21. desember 2008 — 349. tölublað — 8. árgangur
dagar til jóla3
Opið til 22
LEIKSKÓLABÖRN RÆÐA UM JÓLIN
Kannski eru jólasveinarnir
með galdralykil?22
FÓLK Allar frægustu svítur
höfuðborgarsvæðisins eru
bókaðar um áramótin. Nóttin á
þeirri dýrustu, forsetasvítunni á
Nordica Hilton, kostar 125.
þúsund krónur. Sprengjugleði
þjóðarinnar hefur dregið ferða-
menn hingað til lands árum saman
og árið í ár verður ekki undan-
tekning á því. Þau hótel sem
Fréttablaðið hafði samband við
eru öll nær fullbókuð. - fgg/sjá síðu 38
Gamalárskvöld:
Allar svítur
eru bókaðar
SVEITARFÉLÖG Skuldir þúsunda ein-
staklinga við sveitarfélag sitt eru í
innheimtu hjá innheimtufyrirtækj-
um, til dæmis Intrum eða Moment-
um. Í slíkri innheimtu bætist við
kostnaður fyrir skuldarann. Hafn-
arfjörður er eina sveitarfélagið af
þeim fimm stærstu sem skiptir
ekki við slík fyrirtæki.
Ýmiss konar gjöld eru í inn-
heimtu; fasteignagjöld,
gatnagerðargjöld, leikskólagjöld,
gjöld fyrir frístundaheimili og
skólamáltíðir í grunnskólum, svo
eitthvað sé nefnt.
Hjá Reykjavík eru 6.000 kröfur í
innheimtu hjá Momentum og úti-
standandi skuldir nema 570 millj-
ónum króna. Fjöldi greiðenda gæti
verið minni þar sem hver og einn
gæti átt fleiri en eina skuld.
Í Kópavogi eru skuldir 98 ein-
staklinga í innheimtu upp á 6,3
milljónir króna. Þar að auki eru 23
fyrirtæki. Aðeins er ein krafa á
hvern greiðanda samkvæmt upp-
lýsingum frá bænum.
Akureyrarbær á útistandandi
37 milljónir í ógreiddum gjöldum
sem eru í innheimtu. Fjöldi mála
er 774, en þær kröfur deilast á 368
einstaklinga. Stærstur hluti upp-
hæðarinnar, um 17 milljónir, er
vegna fasteignagjalda, en 6,5
milljónir vegna leik- og grunn-
skóla.
Í Garðabæ eru 70,2 milljónir í
innheimtu hjá innheimtufyrir-
tækjum, í 113 kröfum á 85 ein-
staklinga. Í flestum tilfellum er
um að ræða fasteignagjöld, en
stærsta krafan er vegna gatna-
gerðargjalda. Tekin hefur verið sú
ákvörðun að hætta að senda gatna-
gerðargjöld í milliinnheimtu.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri
Hafnarfjarðar, segir að ástæða
þess að ekki sé skipt við inn-
heimtufyrirtæki þar á bæ sé tví-
þætt. Reiknað hafi verið út að
varðandi vanskil á fasteignagjöld-
um sé hagkvæmara að sveitar-
félagið innheimti sjálft dráttar-
vexti.
„Svo er um að ræða alls kyns
viðkvæma innheimtu, félagsíbúð-
ir, skólamáltíðir og fleira. Þetta er
mjög vandmeðfarið og við viljum
stýra því hvernig meðferð hvert
mál fær. Það getur þurft að taka
tillit til sérstakra aðstæðna og þá
má ekki vera þessi fjarlægð.“
- kóp
Sveitarfélög ganga
hart að skuldurum
Þúsundir krafna sveitarfélaga á einstaklinga eru í innheimtu hjá innheimtu-
fyrirtækjum. Hjá fjórum stærstu sveitarfélögunum nemur upphæðin um 683
milljónum króna. Hafnarfjarðarbær skiptir ekki við innheimtufyrirtæki.
BYGGÐ Á ÓGEÐFELLDRI
EIGIN REYNSLU
Steinar Bragi Guðmunds-
son rithöfundur hefur
vakið mikla athygli fyrir
skáldsögu sína Konur.
HELGARVIÐTAL 20
matur[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ]desember 2008
Súkkulaði-pavlova Sonju B. Guðfi nnsdóttur
Gersemar fyrir augaðKonfektgerð í nærri aldarfjórðung Sívinsælt sælgætiKaka að hætti Svandísar Kristiansen Rjómaostahringurmeð rifsberjum
Áb i
FYLGIR Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
0
-3
-2
00
VINDASAMT Í dag verður allhvöss
eða hvöss norðaustanátt suðaustan
til annars strekkingur. Snjókoma
suðaustan og austan til annars él á
víð og dreif. Víðast vægt frost.
VEÐUR 4
Á SKÍÐUM SKEMMTI ÉG MÉR Opið var í Bláfjöllum í gær og er þessi síðasta helgi fyrir jól fyrsta helgin sem opið er í Bláfjöllum í vetur. Færi var gott og þeir ekki sviknir sem
mættu á staðinn. Útlit er gott fyrir skíðaiðkun í dag. Skíðasvæði voru einnig opin á Akureyri og á Sauðárkróki. FRÉTTABLÐIÐ/VILHELM