Fréttablaðið - 21.12.2008, Side 2
2 21. desember 2008 SUNNUDAGUR
Auðunn, varstu í algjöri messi
þegar þú hittir hann?
„Ekki frá því að það verði smá
þynnka, en ég lifi það af.“
Auðunn Blöndal, sjónvarpsmaður
með meiru, var staddur í Barcelona
á dögunum þar sem hann vinnur að
sjónvarpsþætti um líf og starf íslenskra
atvinnumanna í íþróttum. Á ferðum
sínum hitti Auðunn undrabarnið Lionel
Messi, leikmann Barcelona, og fór vel á
með þeim félögum.
MÓTMÆLI Um fimm hundruð
manns komu saman á Austurvelli
í gær þar sem mótmælt var
ellefta laugardaginn í röð undir
yfirskriftinni Breiðfylking gegn
ástandinu.
Sem fyrr voru kröfur mótmæl-
enda þær að núverandi stjórnir
Seðlabankans og Fjármálaeftir-
litsins víki og boðað verði til
kosninga.
Fundarmenn sýndu samstöðu
og mótmæltu með ellefu mínútna
þögn en að því loknu hentu
nokkrir mótmælendur skóm og
snjó í Alþingishúsið auk þess sem
púað var á Alþingi. - ovd
Mótmæli á Austurvelli:
Hentu skóm í
Alþingishúsið
SKÓNUM KASTAÐ Hugmyndin að skó-
kastinu er líklega fengin úr fréttum af
því þegar írakskur fréttamaður kastaði
skóm sínum að George Bush Banda-
ríkjaforseta. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
LÖGREGLUMÁL Átján ára ökumaður
fólksbíls slapp án meiðsla þegar
hann ók bíl sínum í gegnum
girðingu og inn í garð við Norður-
götu á Akureyri í gærmorgun.
Maðurinn flúði af vettvangi en
skildi aðra númeraplötuna af
bílnum eftir í garðinum. Lögregl-
an var því fljót að hafa uppi á
honum þar sem hann reyndist
hafa ekið heim til sín. Þá reyndist
maðurinn, sem var á bíl móður
sinnar, hafa ekið á að minnsta
kosti tvo bíla áður en hann ók inn í
garðinn. Að sögn lögreglu var
maðurinn undir áhrifum áfengis
og lyfja en hann var yfirheyrður
síðdegis í gær. - ovd
Ölvaður á bíl móður sinnar:
Númeraplatan
varð eftir
MENNING „Þetta gekk mjög vel. Mjög gaman og
frábær lífsreynsla,“ sagði Baldvin Oddsson, fjórtán
ára trompetleikari, eftir að hafa spilað einleik með
Sinfóníuhljómsveit Íslands í gær.
Ekki á Baldvin langt að sækja hæfileika sína á
tónlistarsviðinu því faðir hans, Oddur Björnsson, er
básúnuleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Afi
hans, Björn R. Einarsson, var einnig básúnuleikari
við hljómsveitina á árum áður. Enginn þrýstingur
kemur frá þeim að verða tónlistarmaður í framtíð-
inni, segir Baldvin.
„Þetta er undir mér komið og þeir styðja mig í öllu
sem ég ákveð að gera,“ segir hann.
Trompetinn tekur mestan frítíma Baldvins en
hann hefur einnig gaman af fótbolta og er stuðnings-
maður Liverpool auk þess að vera áhugamaður um
flugvélar. Hann segir jafnvel koma til greina að
læra flugmanninn, en þó eigi trompetleikurinn hug
hans allan þessa stundina.
Spurður um framtíðina segist hann sjá fyrir sér að
fara út til Bandaríkjanna í trompetnám.
„Draumurinn er síðan New York-fílharmóníu-
hljómsveitin,“ segir Baldvin sem stefnir hátt.
Árlegir jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands
voru í gær. Baldvin lék trompetkonsert eftir
Giuseppe Tartini og skólakór Kársnesskóla söng
nokkur vel valin jólalög. - vsp
Nýfermdur trompetleikari spilaði einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands í gær:
Þriðju kynslóðar lúðraþeytir
SJALDAN FELLUR EPLIÐ … Þrjár kynslóðir tónlistarmanna
samankomnar. Björn R. Einarsson, Baldvin Oddsson og Oddur
Björnsson eftir tónleikana. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MENNTAMÁL Menntamálaráðherra
segist hafa fullan skilning á þeim
erfiðleikum sem Háskóli Íslands
stendur frammi fyrir í ljósi þess
að 1.630 nemendur bætast nú í
hópinn, um leið og fjárframlög
hafa verið minnkuð um tíu prósent
frá því sem áætlað var. Rektor
skólans hefur orðað það svo að
skólinn sé í „verulega alvarlegri
klemmu“.
„Ég hef haldið
þeim sjónarmið-
um á lofti við rík-
isstjórnarborðið
að það eigi að
hafa svigrúmið
eins mikið og
hægt er í þágu
menntunar. En
kröfurnar eru
þess eðlis að við
þurfum jafnvel
að skera ennþá meira niður á
næsta ári. Svigrúmið núna er jafn-
vel meira en það verður 2009,“
segir Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir.
Það sé hins vegar mikill mis-
skilningur að framlög til HÍ hafi
verið skorin niður um milljarð.
Verið sé að fresta framlagi upp á
655 milljónir vegna rannsóknar-
samnings við skólann.
„Þetta er minna en miðað við
fjárlagafrumvarpið 2009 en heild-
arframlög til menntamála eru
samt 10 prósent meiri 2009 en
2008. Þannig að við erum að
bremsa okkur af.“
Þorgerður kveður svigrúm
háskólans hafa aukist mikið á síð-
ustu árum. „En síðan verð ég að
segja að miðað við þessa miklu
aðsókn þurfum við að skoða þetta
þegar komið er nýtt ár. En eins og
staðan er núna eru ekki til fjár-
heimildir fyrir meiru.“
En hvernig á HÍ að bregðast við
fleiri nemum á sama tíma og fram-
lögum er frestað?
„Háskólinn verður að gera það
sem hann getur til að taka inn
þessa nema, það er það sem við
erum að vonast til í ljósi þess að
fjárheimildir til hans hafa aukist
mjög mikið á síðustu árum.“
Rektor HÍ sagði í blaðinu í gær
að annaðhvort þurfi að segja nei
við umsækjendur eða taka áhættu
á að aukinn fjöldi bitni á gæðum
námsins. Ekki komi til greina að
minnka gæðakröfur.
„Mér finnst það mjög skrítið ef
þeir [í HÍ] ætla ekki að þjappa eins
og aðrir. Sveitarfélögin eru líka að
reyna að forgangsraða, til dæmis
með því að fjölga í bekkjum,“ segir
Þorgerður: „Þetta er mjög erfitt
ástand, það er kreppa. En það koma
inn, að mér skilst, milli annarrar og
þriðju umræðu fjárlaga 212 millj-
ónir, sem eru verðlagsuppfærslur
þannig að það getur verið að þetta
verði ekki eins sársaukafullt.“
Þetta hafi ekki komið fram við
umræður á þinginu.
klemens@frettabladid.is
Fé til menntamála
gæti minnkað 2009
Menntamálaráðherra segir „kröfurnar þess eðlis að við þurfum jafnvel að skera
ennþá meira niður á næsta ári.“ En einnig að skoða þurfi framlög í ljósi mikill-
ar aðsóknar. HÍ fái líklega 212 milljónir til viðbótar í verðlagsuppfærslur.
HÁSKÓLATORGIÐ Svo getur farið að um 1.630 manns til viðbótar berjist um laus
sæti við þetta torg eftir áramót. En alls óvíst er hvort fleiri stólar verði keyptir til að
mæta fjöldanum. Skólamönnum til hughreystingar mun vera von á 212 milljónum í
verðlagsuppfærslur, sem ekki var rætt um við fjárlagagerð. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÞORGERÐUR
KATRÍN
GUNNARSDÓTTIR
SIMBABVE, AP Robert Mugabe,
forseti Simbabve sagði í gær að
flokksfélagar hans í Zanu-Pf ættu
að byrja að undirbúa snemmbún-
ar forsetakosningar og að þeir
ættu að safna liði til að tap
kosninganna í mars síðastliðnum
endurtæki sig ekki.
Ummælin lét Mugabe falla í lok
tveggja daga flokksfundar þar
sem hann sagði um 5 þúsund
flokksfélögum að til nýrra
kosninga yrði boðað ef samráðs-
stjórnin félli.
Mugabe varð í öðru sæti í
forsetakosningum sem fram fóru
í mars. Tsvangirai, sem sigraði í
kosningunum dró framboð sitt til
baka í annarri umferð kosning-
anna þar sem hann sagði stjórn-
völd styðja ofbeldi sem stuðn-
ingsmenn hans voru beittir. - ovd
Samráðsstjórnin að falla:
Auknar líkur
á kosningum
HANS EIGN Forsetinn ávarpaði fundar-
menn, sagðist eiga Simbabve og hét því
að láta aldrei undan þrýstingi um að
segja af sér. NORDICPHOTOS/AFP
DÝRAHALD „Þetta er átjánda starfs-
árið okkar og ég man ekki eftir
öðru eins,“ segir Sigríður Heið-
berg í Kattholti um mikinn áhuga
fólks á því að taka að sér ketti
Kattholts.
„Það læðist að mér grunur um
að kreppan hafi áhrif á aukinn
áhuga fólks á köttum,“ segir Sig-
ríður. Hún segir gæludýr hafa
góð áhrif á fólk. „Maður hefur
fundið fyrir miklum hraða í þjóð-
félaginu á undanförnum árum en
það er enginn vafi að dýrin gera
mikið fyrir þann sem líður illa,“
segir Sigríður.
Hún segir aldrei færri en 70
ketti dvelja í Kattholti svo nóg sé
til fyrir þá sem vanti ketti. Öll
dýr, sem aldur hafi til, séu tekin
úr sambandi, hreinsuð og örmerkt
en það sé meðal annars gert til að
halda nákvæma skrá yfir ketti
sem koma í Kattholt.
„Fólk er búið að vera út og
suður en ætli það sé ekki einhver
lending núna. Það er farið að
hægja á og fólk fer að horfa á það
sem skiptir máli,“ segir Sigríður.
- ovd
Sífellt fleiri fjölskyldur sækja sér umkomulausa ketti í Kattholt:
Aldrei meiri áhugi á köttum
KATTHOLT Sigríður Heiðberg með einn
af vinum sínum í Kattholti.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Nauðgara enn leitað
Lögreglan leitar enn að Robert Dariuz
Sobiecki, sem dæmdur var í hæsta-
rétti í þriggja ára fangelsi fyrir að
nauðga stúlku á salerni á Hótel Sögu.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um
ferðir hans eða dvalarstað eru beðnir
að hafa samband við lögregluna í
síma 444 1100.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Leit að göngumönnum
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins
Landsbjargar leituðu í gærkvöldi að
tveimur göngumönnum sem villst
höfðu á Skarðsheiði. Annar mann-
anna fannst ómeiddur um klukkan
21 en hinn var enn ófundinn þegar
Fréttablaðið fór í prentun.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SPURNING DAGSINS