Fréttablaðið - 21.12.2008, Síða 3

Fréttablaðið - 21.12.2008, Síða 3
Við erum að búa okkur undir endurbyggingu íslensks efnahagslífs og laga okkur að breyttum aðstæðum. Þann 20. febrúar munum við taka upp nafnið Íslandsbanki. www.glitnir.is/nyrbankiverdurtil Nýr banki verður til # 1 Nýir tímar Við tökum þátt í uppgjöri við fortíðina af heilum hug. Við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að liðsinna óháðum aðilum í úttekt á starfsemi undanfarinna ára. Mikilvægt er að skapa sátt í samfélaginu svo unnt sé að beina kröftum að verkefnum framtíðarinnar. Breytt umhverfi Starfsumhverfi okkar hefur gjörbreyst. Í samfélaginu fer fram endurskoðun á verðmæta- og gildismati. Traustur, áreiðanlegur og öruggur viðskiptabanki er ríkur þáttur í fjárhagslegri velferð heimilanna og órjúfanlegur hluti af heilbrigðum atvinnurekstri. Við viljum rækta þetta hlutverk okkar vel. Uppbygging á Íslandi Mikið endurreisnar- og uppbyggingarstarf er framundan á Íslandi. Okkar verkefni er að vinna með fólki og fyrirtækjum að því að takast á við viðfangsefnin, hversu erfið sem þau kunna að vera. Okkur ber að varðveita þau verðmæti sem okkur hefur verið treyst fyrir. Við munum beita okkur af alefli í uppbyggingarstarfinu, því fjárhagslegur styrkur fólksins og fyrirtækjanna í landinu er samtvinnaður velgengni bankans og styrk. Varðveitum þekkinguna Hjá bankanum starfa um þúsund starfsmenn sem hafa á þessu ári tekist á við gríðarlegar áskoranir. Á umrótstímum er mikilvægt að varðveita þá þekkingu og reynslu sem byggð hefur verið upp. Vel menntað, reynslumikið og ánægt starfsfólk er lykillinn að því að við náum þeim markmiðum sem við setjum okkur í nýjum banka. Skoðanir viðskiptavina Við teljum mikilvægt í þessu ferli að hlusta eftir skoðunum og væntingum viðskiptavina. Í því skyni munum við opna vefsvæði fyrir skoðanaskipti og setja hugmyndakassa í útibú. Í breyttu umhverfi eru viðhorf almennings jafnvel enn mikilvægari en áður. Gegnsætt regluverk Við munum skerpa á og skýra betur þær reglur sem bankinn starfar eftir. Lánareglur bankans, starfsreglur stjórnar og starfsreglur áhættunefndar verða öllum aðgengilegar á vef bankans. Um langt árabil hafa einstaklingar getað skotið ákvörðunum bankans um skuldamál sín til umboðsmanns skuldara hjá bankanum. Hlutverk umboðsmanns hefur nú verið útvíkkað og eftirleiðis geta fyrirtæki gert slíkt hið sama. Eitt skref í einu Nýr banki verður ekki til á einni nóttu. Breytingar munu koma innan frá með virkri þátttöku starfsfólks. Umhverfi okkar er að taka miklum breytingum og sú aðlögun sem nú er að eiga sér stað kallar á hagsýni og ráðdeild. Framkvæmd nafnabreytingar mun taka mið af því. Hverri áskorun fylgja ný tækifæri Sóknarfærin liggja í náttúru Íslands, auðlindum og mannauði þjóðarinnar. Bankinn hefur ávallt verið í forystu í þjónustu við fyrirtækin í landinu. Við ætlum að byggja áfram á þeim sterka grunni og taka virkan þátt í að skapa verðmæti með íslenskum fyrirtækjum. Þannig styðjum við atvinnusköpun og skjótum styrkum stoðum undir íslenskt efnahagslíf og heimilin í landinu. 1 5 2 6 3 7 84 Nýr eigandi og ný stjórn hefur tekið við starfsemi Glitnis á Íslandi.  Það er okkar hlutverk að reisa nýjan banka, sem tekur þátt í uppbyggingu efnahagslífsins og verður einn af máttarstólpum íslensks samfélags. Mikil vinna er nú framundan. Við þjóðinni blasir nýr veruleiki og mun allt starfsfólk bankans leggjast á eitt við að móta nýja stefnu í breyttu umhverfi. Þann 20. febrúar tökum við upp nafnið Íslandsbanki.  Á nýju ári munum við breytast í Íslandsbanka. Stjórn og starfsfólk Nýja Glitnis

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.