Fréttablaðið - 21.12.2008, Qupperneq 16
21. desember 2008 SUNNUDAGUR
Er síminn til þín?
Lifðu núna
Settu flottan síma í jólapakkann
Nokia 2630
0 kr. út
1.000 kr. inneign á mán. í 12 mán.
Þú greiðir 0 kr. út og 1.500 kr. á mán. í 12 mán.
eða staðgreiðir 15.900 kr.
Sony Ericsson K660i
0 kr. út
1.000 kr. inneign á mán. í 12 mán.
Þú greiðir 0 kr. út og 3.000 kr. á mán. í 12 mán.
eða staðgreiðir 34.900 kr.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Bók um forsetann
prýdd stolnum
fjöðrum?
UMRÆÐAN
Ástþór Magnús-
son skrifar um
bók um forseta
Íslands
Í nýútkominni bók um forseta er sagt
að forsetinn hafi
tekið að brjósti sér
kjörorð mitt í
forsetakosningum
og „virkjað Bessastaði“.
Ég geri hér alvarlega athuga-
semd enda hefur Ólafur
Ragnar Grímsson gersamlega
brugðist friðarsinnum sem
vildu sjá forseta Íslands sem
boðbera friðar á alþjóðavett-
vangi og Ísland sem miðstöð
friðar og lýðræðisþróunar.
Forsetinn dró mig og aðra á
asnaeyrunum í fjölda ára og
hafði að engu fjölda áskorana
um að virkja Bessastaði.
Forsetinn hefur svikið
kosningaloforðin gefin í
beinum sjónvarpsumræðum í
aðdraganda forsetakjörs 1996
um að beita sér í friðarmálum.
Þegar ég hef gengið á fund
forsetans um þessi mál hefur
hann farið undan í flæmingi og
í besta falli svarað með
kurteislegu froðusnakki.
Bréfum mínum og áskorunum
Friðar 2000 um að leggja
friðarmálum lið hefur ekki
verið svarað. Þá neitaði
forsetinn að leggja okkur lið að
koma hér á fót alþjóðlegum
friðarháskóla þar sem m.a. yrði
þróað beint lýðræði, þrátt fyrir
víðtækan erlendan stuðning við
hugmyndina m.a. úr búðum
Sameinuðu þjóðanna. Í
skjalasafni forsetaembættisins
ættu einnig að finnast viðvar-
anir okkar frá 2001 gegn því að
Íslendingar styðji stríðsáætlan-
ir Bush Bandaríkjaforseta.
Forsetinn þagði þunnu hljóði
meðan tugþúsundir voru
drepnir og limlestir með
stuðningi íslensku þjóðarinnar.
Þá minni ég á að fyrsta
embættisverk Ólafs Ragnars
Grímssonar var að sæma
hershöfðingjann á Keflavíkur-
flugvelli fálkaorðunni. Fráleitt
er að halda því fram að
forsetinn hafi tekið að brjósti
sér mín kjörorð. Ég óska
opinberrar afsökunar frá
höfundi bókarinnar, Guðjóni
Friðrikssyni, á slíkri nauðgun á
mínum baráttumálum.
Rúmum 12 árum eftir
forsetakjörið erum við enn á
byrjunarreit.
Herstöðin á Keflavíkurflug-
velli sem gæti orðið
miðstöð alþjóðlegr-
ar friðargæslu er að
mestu ónýtt.
Óheillakrákan sem
náði forsetaembætt-
inu með blekking-
um og situr nú
fjórða kjörtímabilið
á Bessastöðum
hefur eytt dýrmæt-
um tíma í stuðning
við fjárglæframenn
sem stunduðu
áhlaup á rótgróin íslensk
fyrirtæki, þar á meðal óska-
barn þjóðarinnar, til að strippa
út öllu verðmætu í eina stærstu
Ponsí svikamyllu heims. Þrátt
fyrir að aðferðir slíkra
fjármálaskúrka séu ekki nýjar
af nálinni, lagði hámenntaður
prófessorinn embætti forseta
Íslands að veði.
Þjóðin situr eftir með sárt
ennið og sviðna jörð.
Úr því að ég er að tjá mig um
þessa bók er rétt að vekja
athygli á því að í hana vantar
gersamlega kaflana um
moldvörpustarfsemi forsetans
og hans stuðningsmanna. Mín
fyrstu kynni af þeim óheiðar-
leika var í aðdraganda
forsetakosninganna 1996,
þegar ÓRG í eigin persónu
rakkaði mig niður við útlend-
inga. Þar sem þarna á meðal
voru aðilar sem við báðir
þekktum bárust mér fregnir af
þessu. Þá kom til mín fólk sem
var að heyra þann rógburð frá
starfsmönnum á framboðs-
skrifstofu ÓRG við Hverfis-
götu, að ég hefði hagnast á
vopnasmygli. Við seinni
forsetakjör létu moldvörpur
forsetans sitt ekki eftir liggja.
Kosningabaráttan
2004 hófst með grátsöng frá
Ísafirði um að grunnskólabörn
yrðu af skólaferðalagi ef ég
færi í framboð vegna þess
gífurlega kostnaðar sem myndi
leggjast á sveitarfélagið að
lýðurinn fengi að mæta í
skólana þar að kjósa. Upphaf
ársins 2008 sló þó öll fyrri met
þegar fjölmiðlar í eigu
stuðningsmanna forsetans voru
nýttir dag eftir dag til að hylla
forsetann og grafa undan
hugsanlegum mótframboðum.
Síðan kórónað með því að
draga oddvita yfirkjörstjórnar
Norður á skjáinn til að telja
þjóðinni trú um það að það
væri nauðgun á lýðræðinu ef
mótframboð bærist gegn
forsetanum.
Höfundur bauð sig fram til
forseta Íslands 1996 og 2004.
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON