Fréttablaðið - 21.12.2008, Side 22
2 matur
FREISTANDI ÆVINTÝRI
Hrefna Sigurjónsdóttir
VERSLUN SÆLKERANS
MATREIÐSLUBÓKIN
matur kemur út mánaðarlega með sunnudagsblaði
Fréttablaðsins. Ritstjórn: Emilía Örlygsdóttir og Roald
Eyvindsson Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Arnþór
Birkisson Pennar: Gunnþóra Gunnarsdóttir, Hrefna Sigurjóns-
dóttir, Ragnheiður Tryggvadóttir, Sólveig Gísladóttir, Vera
Einarsdóttir, Þórdís Lilja Gunnarsdóttir Ljósmyndir: Fréttablað-
ið Auglýsingar: Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is
SKÝRINGAR Á UPPSKRIFTATÁKNUM:
Café Konditori Copenhagen sérhæfir sig í tertu- og
kökugerð og býður upp á hinar ýmsu kræsingar sem
margar eru með dönsku ívafi. Bakaríið var stofnað
árið 1997 af þeim Tine Buur Hansen og Þormari
Þorbergssyni en er nú í eigu Arnars Snæs Rafnssonar.
„Okkar sérstaða er fyrst og fremst að bjóða upp á
mikið úrval af ferskum rjómatertum og hér gengur
fólk að þeim vísum. Auk þess erum við með rjóma-
smástykki, danska kransakökubita og svo auðvitað
allt sem heitir vínarbrauð í bland við rúnstykki, dönsk
rúgbrauð og fleira,“ segir Arnar. „Fyrir jólin gerum
við svo alltaf Ris á l´amande sem fólk getur pantað og
sótt dagana fyrir jól en það er hátíðareftirréttur sem
er mörgum að skapi. Þá eru Tonka-trufflur sérlega
vinsælar fyrir jólin, ásamt piparkökum, lagtertum og
sykurhúðuðum hnetum.“
Í bakaríinu að Suðurlandsbraut 4a er líka boðið upp
á súpu, létta rétti og smurbrauð í hádeginu en þar er
auk þess mikið úrval af alls kyns sérvöru og má þar
nefna brauðolíur, pestó, marmelaði, sultur og
smurosta.
Café Konditori Copenhagen
Þessi uppskrift kemur héðan og þaðan. Ég
hef sett hana saman
eftir mínu höfði úr
nokkrum réttum,“
segir María Níelsdóttir, sem gefur
uppskrift að sykursætri jóladags-
bombu úr makkarónum, marengs,
rjóma, ávöxtum og súkkulaði.
María býr bombuna til allt árið
sem eftirrétt en heitið dregur hún
af fjölskyldujóladagsboði Maríu
og systur hennar þar sem jóla-
dagsbomban þykir ómissandi.
„Rétturinn er mjög auðveldur
og maður er fljótur að gera hann,“
segir María og bendir á að mjög
gott sé að útbúa makkarónurnar,
rjómann og marengsinn aðeins
áður en berin og kremið eru sett
á.
En fær maður ekki sykursjokk?
„Nei, ekki þegar maður er búinn
að byggja sig upp með konfekti og
smákökum allan desember,“ segir
María hlæjandi og bætir við að
fyrir mikla sælkera sé hægt að
brytja kókosbollur í rjómann eða
hafa sælgæti ofan á með berjun-
um og ávöxtunum. - sg
BOMBA Á JÓLADAG
María og Anna Margrét, dóttir hennar,
hlakka til að gæða sér á bombunni.
Auðvelt og fljótlegt
er að búa til jóla-
dagsbombuna.
150 g makkarónur
½ l rjómi
púðursykurmarengs
ber/ávextir
krem
Kremjið makkarónur (um
það bil 150 g) í botn á
móti eða skál, bleytið
upp með ananassafa.
Setjið ½ lítra af þeyttum
rjóma ofan á. Brytjið
púðursykurmarengs ofan
í rjómann. Hægt er að
kaupa púðursykurmar-
engs eða baka (þeytið
vel 4 eggjahvítur og 2 dl
púðursykur og bakið í 40
mínútur við 100-120° C).
Setjið jarðarber, bláber,
vínber, banana og fleira
ofan á. Hellið kremi
óreglulega yfir.
KREM
4 eggjarauður
50 g flórsykur
80 g súkkulaði (suðu-
súkkulaði eða með
appelsínubragði)
40 g smjör
Þeytið eggjarauður og
flórsykur vel saman.
Bræðið súkkulaði og
smjör saman yfir
vatnsbaði og hrærið
varlega út í hina
blönduna.
Í staðinn fyrir krem má
eins bræða 100 g
súkkulaði og hella yfir.
JÓLADAGSBOMBA
Jóladagsbomba Maríu Níelsdóttur er ómissandi í árlegt fjölskylduboð
sem haldið er á jóladag en einnig vinsæl sem eftirréttur allt árið um
kring. Auðvelt og fljótlegt er að búa bombuna til.
Nammi
namm!
Af Bestu lyst 3
Af bestu lyst 3 er þriðja bókin í þessum flokki eftir
Nönnu Rögnvaldardóttur. Fyrri bækurnar hafa notið
mikilla vinsælda og er nú verið að endurprenta fyrstu
bókina vegna mikillar eftirspurnar.
Í matreiðslubókinni er að
finna uppskriftir að nýjum og
nútímalegum réttum sem
jafnframt eru hollir og ein-
faldir.
Meðal þess sem finna má í
bókinni eru uppskriftir að
hægelduðum kryddjurtalaxi,
fylltum kjúklingabringum,
baunabuffi með heitu tómat-
salati og hollum og girnileg-
um brauðum og kökum, auk
fjölda annarra heilsusamlegra
sælkerarétta.
Hverri uppskrift fylgja
upplýsingar um næringargildi
réttarins, meðal annars um hitaeiningar, fitumagn og
magn mettaðrar fitu, próteina og kolvetna.
Punkturinn yfir i-ið í hverri veislu er eftirrétt-urinn. Hvort sem aðalrétturinn hittir í mark eða ekki þá má bjarga ýmsu með góðum
eftirrétti. Eða eins og máltækið segir, allt er gott
sem endar vel.
Þegar kemur að því að útbúa eftirrétt er fjöl-
breytnin mikil. Fyrst ber að leiða hugann að því
hvers konar áhrifum maður vill ná fram. Er
hugmyndin að ljúka hátíðinni með heitri og
bragðmikilli böku þar sem fyllt er í magahólfin
með rjóma eða á að vekja bragðlaukana til lífsins
með fersku sorbet?
Þéttar kökur úr dökku súkkulaði, flauelsmjúkur
rjómaís með brakandi stökkum sælgætisbitum,
ferskir ávextir með smá sætindum eða volg
ávaxtabaka og tilheyrandi. Allt bráðnar þetta í
munni og sælutilfinningin hríslast um líkamann
þegar slaknar á taugum og skynfærin þenjast.
Ljóst er að úrvalið er mikið í ævintýraheimi
eftirréttanna og ekki að furða að Hans og Gréta
hafi látið glepjast af sælgætishúsi nornarinnar
forðum daga. Litríkt og ilmandi sætmeti er
ómótstæðilegt og er það kannski það sem allir
góðir eftirréttir eiga sameiginlegt – þeir eru sætir.
Að vísu missætir en sætir þó.
Gaman getur verið að blanda saman sætu og
beittu, súru bragði eins og til dæmis lime og
sítrónu við mjúkan rjóma eða rjómaost og slettu af
sykri. Key lime ostakakan, sem ég fékk eitt sinn á
Flórída, líður mér seint úr minni. Þar ríkti fullkom-
ið jafnvægi hins léttsúra ávaxtar og sætrar
rjómaostsblöndunnar. Tiramisú-kakan sem ég fékk
á veitingastað í Róm var líka ógleymanleg og
brostu Pino-bræðurnir í kampinn þegar ég óaði,
ummaði og stundi af nautn.
Oftast gildir þó að best er að borða
eftirrétti skynsamlega svo hin undursam-
lega vellíðan umbreytist ekki í flökur-
leika. Í raun kristallast
togstreita freisting-
anna í góðum
eftirrétti. Þú
mátt fá þér
smá og njóta
til fulls en
ef þú ferð
yfir
strikið
þá gæti
þér hefnst
fyrir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
Til hátíða-
brigðaE
Eftir-
réttur
Kökur
Hvunndags/til
hátíðabrigða
Sætindi