Fréttablaðið - 21.12.2008, Síða 50
26 21. desember 2008 SUNNUDAGUR
„Í dag gefst fólki í fyrsta skipti tæki-
færi á að fá friðarlogann heim til sín,“
segir Erling Jóhannesson, skáti í sér-
verkefnum, sem stýrir því verkefni
skátahreyfingarinnar að færa friðar-
logann inn á heimilin.
Saga logans er löng en hann er kveikt-
ur af lifandi ljósi sem logar í fæðingar-
kirkju Krists í Betlehem. Hvað hann
hefur logað þar lengi er ekki vitað en
elstu heimildir þar sem hans er getið
eru frá tímum krossfaranna rétt eftir
árið 1000 e. Kr.
„Árið 1986 sendi útvarpsstöð í Aust-
urríki ungan skáta af stað að sækja
ljósið til Betlehem og tendra það í Aust-
urríki. Þaðan hefur sá siður að tendra
hann í kirkjum síðan dreifst í gegnum
skátahreyfinguna um allan heim. Log-
inn kom hingað til lands árið 2001.“
Loganum hefur því í sjö ár verið
dreift í kirkjur víða um land hér á Ís-
landi á aðventunni. Árið um kring er
loginn í varðveislu nunnanna í Sankti
Jósefsspítala þar sem þess er gætt að
hann slokkni ekki. Í dag verður hægt
að fá ljósið í flestum kirkjum lands-
ins og svo við inngang Smáralindar og
Kringlunnar í Reykjavík.
„Fólk kemur þá með lugtir eða úti-
kerti með sér sem hægt er að byrgja
og færir logann heim. Það er enginn
skaði skeður þótt loginn slokkni hjá
hverjum og einum, þá er bara hægt
að koma og sækja sér hann aftur. Fólk
getur klippt ofan af kókdollu og sett
kerti í botninn svo ég rifji upp gömul
skátaráð. Þannig er hægt að bera log-
ann heim og færa hann þar á öruggt
eldfæri eins og olíulampa.“
Erling segir þá hugmynd að færa
fólki friðarlogann heim löngu orðna
tímabæra. Ef ekki núna þá hvenær?
Hann segir þetta litla jólagjöf frá
skátahreyfingunni og gaman að vera
milliliður í slíku verkefni.
„Allir kveikja á kertum yfir jólin
og fólk hefur hvert sinn háttinn á. En
um leið og þú kveikir á kerti með ein-
hverri athöfn eða hugleiðingu þá set-
urðu það í stærra samhengi en það
sem við erum öll að upplifa þessa dag-
ana. Þetta ljós er orðið langlíft og hefur
lifað mörg stríð og stærri hörmungar
en við erum að horfa upp á núna.“
Nánar má fræðast um friðarlogann
á www.fridarloginn.is. heida@frettabladid.is
SKÁTAHREYFINGIN: FÆRIR FRIÐARLOGANN TIL HEIMILANNA
Ljós sem lifað hefur mörg stríð
JÓLAGJÖF FRÁ SKÁTUM Erling Jóhannesson heldur utan um það verkefni skátahreyfingarinnar að færa fólki friðarlogann. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ástkær móðir okkar, amma og langamma,
Ólöf Guðmundsdóttir
(Lóa)
Sóltúni 2, áður Gullteig 29, Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þriðjudaginn
9. desember. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sóltúns
Jarðarförin hefur farið fram.
Heiður Sæmundsdóttir Sixten Holmberg
Fríður Hlín Sæmundsdóttir Hávarður Emilsson
Friðjón Sæmundsson Kristín Benediktsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð
og velvilja við fráfall og útför eiginmanns
míns, föður okkar og afa,
Gunnars Matthíassonar
Grenimel 25, Reykjavík.
Sérstakar þakkir viljum við færa Karitas - hjúkrunar-
þjónustu fyrir frábæran stuðning og aðstoð.
Theodóra Ólafsdóttir
Ingibjörg Þóra Gunnarsdóttir
Elín Kristín Gunnarsdóttir
Dóra Björk Guðjónsdóttir Þorvaldur Hrafn Ingvason
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Þuríður Jónasdóttir
frá Flateyri, áður Ásvallagötu 49,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudag-
inn 22. desember klukkan 15.00. Jarðsett verður í
Flateyrarkirkjugarði þann 27. desember.
Helgi Sv. Sigurðsson
María Sigurðardóttir Böðvar Gíslason
Gísli Árni Böðvarsson Hekla Guðrún Böðvarsdóttir
Harpa Þuríður Böðvarsdóttir Torfi Hjörvar Björnsson
Sigrún Perla Böðvarsdóttir Olav Veigar Davíðsson
Sigurður Björn Torfason Baldur Böðvar Torfason
Gullbrúðkaup
Hjónin Ástvaldur
Kristmundsson
og Ellen Júlía
Sveinsdóttir,
til heimilis að Berjarima 8 Reykjavík,
eiga 50 ára brúðkaupsafmæli í dag,
21. desember.
Kristín Sigríður
Halldórsdóttir
Kæru vinir og vandamenn.
Um leið og við óskum ykkur gleðilegrar hátíðar viljum
við þakka ykkur fyrir allan þann stuðning og umhyggju
sem þið sýnduð Kristínu dóttur okkar. Einnig viljum
við þakka allan þann hlýhug og vináttu sem þið sýnd-
uð okkur á erfiðum tímum.
Innilegar kveðjur,
Hanne Hintze Halldór Sigurðsson
og fjölskylda.
timamot@frettabladid.is
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma,
dóttir og systir,
Hólmfríður Helgadóttir
Auðbrekku, Hörgárdal,
lést á sjúkrahúsi Akureyrar 18. desember,
útförin verður að Möðruvöllum í Hörgárdal laugar-
daginn 27. desember kl. 13.30. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkað en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Krabbameinsfélag Akureyrar.
Bernharð Arnarson Þórdís Þórisdóttir
Bergvin Þórir, Anna Ágústa, Ísak Óli og
Karin Telma Bernharðsbörn
Helgi Sigurjónsson Sigríður Ketilsdóttir
og systkini hinnar látnu.
Fyrirrennari Ölfusárbrúar sem nú stend-
ur eyðilagðist árið 1944. Óhappið varð
þegar mjólkurbíll með annan í togi ók út
á brúna en vegna þunga bílanna slitnaði
strengur í brúnni. Bílarnir enduðu báðir í
ánni en mannbjörg varð.
Smíði þeirrar brúar hófst árið 1891 og
var hún vígð sama ár. Tryggvi Gunnars-
son og Vaughan & Dymond gerðu tilboð í verkið sem hljóðaði upp á
66.000 krónur. Vinnan við brúna gekk þó ekki áfallalaust fyrir sig en í
upphafi verks drukknaði maður sem fór út á ána á efnispramma sem
hvolfdi. Einnig kom í ljós þegar stöplar brúarinnar höfðu verið steyptir
að þeir voru ekki nógu háir. Hæstu klakastykkin á veturna gætu rekist
upp undir brúna. Stöplarnir voru því hækkaðir. Burðarstangir reynd-
ust einnig of langar svo taka þurfti þær í sundur og sjóða saman
aftur. Vígsla brúarinnar fór svo fram um haust 1891. Hún gegndi hlut-
verki sínu í 53 ár þangað til óhappið varð árið 1944.
Nýja brúin sem nú stendur var eins og áður sagði vígð 21. desember
1945 og þjónar hún enn tilgangi sínum.
ÞETTA GERÐIST: 21. DESEMBER ÁRIÐ 1945
Ný brú yfir Ölfusá vígðSAMUEL L. JACKSON ER FIMM-
TUGUR Í DAG.
„Það fara ekki allir í bíó til
að láta breyta lífi sínu.“
Leikarinn Samuel L. Jack-
son hefur leikið í myndum á
borð við Pulp Fiction sem að
margra mati þykir standa upp
úr í kvikmyndasögunni. Hann
hefur einnig tekið að sér hlut-
verk í myndum eins og xXx
þar sem hann lék á móti Vin
Diesel.
AFMÆLI
GÍSLI SNÆR
ERLINGSSON
kvikmynda-
gerðarmaður
er 44 ára í
dag.
JANE
FONDA leik-
kona er 71
árs í dag.