Fréttablaðið - 21.12.2008, Page 62
38 21. desember 2008 SUNNUDAGUR
NÝJU JÓLASVEINARNIR
Hvað er að frétta? Ég er nýbúinn að opna
aðventusýningu á vinnustofunni sem er á horni
Njálsgötu og Snorrabrautar. Er þar á hverjum degi
til jóla og tek á móti gestum og gangandi frá klukk-
an 16-18.
Augnlitur: Grænn.
Starf: Listmálari.
Fjölskylduhagir: Eiginkona, tveir strákar, mennta-
skólamær og Golden Retrievertíkin Sunna.
Hvaðan ertu? Reykjavík. Ættaður frá Ölkeldu í
Staðarsveit, því algjör „öllari“.
Ertu hjátrúarfullur? Jebb, þoli t.d. alls ekki svarta
ketti.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Frasier, Little Brita-
in, Catherine Tate Show.
Uppáhaldsmaturinn: Rjúpur og öll villibráð.
Fallegasti staðurinn: Tvímælalaust útsýnið
úr pottinum mínum í sveitinni. Uppland
Hafnarfjarðar er líka í miklu uppáhaldi
hjá mér og tíkinni.
iPod eða geislaspilari: iPod.
Hvað er skemmtilegast? Hitta
góða og skemmtilega vini.
Hvað er leiðinlegast? Það
allra leiðinlegasta í heimi
er að rífast, og að standa í
biðröð.
Helsti veikleiki: Segi hlut-
ina stundum í stað þess að
þegja...
Helsti kostur: Fljótur að
gleyma...
Helsta afrek: Hiklaust börnin mín.
Og síðan örfá málverk.
Mestu vonbrigðin? Þegar mér hefur
tekist að klúðra einhverju hrika-
legu, sem er alltaf að gerast.
Hver er draumurinn? Að lifa
á listinni og að sjá börnin
mín dafna.
Hver er fyndnastur/fyndn-
ust? Einar Örn, Karl Pétur,
Anna í Sjáðu, Bjössi, Lolla
og Össi, viltu fleiri?
Hvað fer mest í taug-
arnar á þér? Kommar,
smásálir og allar þving-
anir.
Hvað er mikilvægast? Heilsan,
fjölskyldan og stöðugleiki.
HIN HLIÐIN PÉTUR GAUTUR SVAVARSSON MYNDLISTARMAÐUR
Leiðinlegt að standa í biðröð
04.03.
1966
Tíundi var Bjöggi gamli,
sleiktur svaka gæ.
Teinóttur í miðbænum
við alla sagði hæ.
Fótbolta- og lista-
og kranakóngurinn,
rann með allt á rassgatið
aftur í annað sinn.
Allar dýrustu svítur Reykjavíkur
eru upppantaðar yfir áramótin.
Fréttablaðið hafði samband við
hótelstjóra fjögurra frægustu
hótela höfuðborgarinnar og alls
staðar var sama sagan; hvergi
var hægt að panta svítu á gaml-
árskvöld, þær væru upppantað-
ar.
Þessi lauslega könnun Frétta-
blaðsins leiddi í ljós að dýrasta
svítan er á Hilton Nordica-hótel
við Suðurlandsbraut. Nóttin þar
kostar litlar 125 þúsund. Að sögn
Ingólfs Haraldssonar hótelstjóra
hefur hún þegar verið pöntuð um
áramótin. Nordica Hilton býður
reyndar upp á tvær minni svítur
og nóttin í þeim kostar 55 þús-
und. Þær eru báðar fráteknar
yfir áramótin. Ingólfur segir þó
að aðeins minna sé um pantanir
þetta árið heldur en í fyrra. „Þá
vorum við smekkfull en nú er
bara fullt,“ segir Ingólfur sem
reiknar með því að um 350 gestir
ætli sér að vakna á nýju ári við
ljúfan umferðarnið frá Suður-
landsbrautinni.
Sama var upp á teningnum hjá
Eiríki Inga Friðgeirssyni, hótel-
stjóra Hótels Holts. Hann var
reyndar ekki búinn að ganga frá
öllum pöntunum á stóru svítun-
um en sagði regluna einfaldlega
þá að þær væru fullsetnar yfir
áramótin. Eiríkur segir að flestir
gestir dveljist í fjóra daga og
stærsti hluti þeirra fari heim á
nýársdag. „Flugeldarnir eru
stærsta aðdráttaraflið,“ segir
Eiríkur.
Vinsælasta hótel þeirra sem
vilja njóta lífsins í miðborginni
er án nokkurs vafa 101 Hotel. Þar
fengust þær upplýsingar að báðar
svítur hótelsins væru uppteknar
yfir áramótin; annars vegar
glæsileg íbúðarsvíta þar sem
nóttin er verðlögð á 111 þúsund
og hins vegar svíta með svölum
en næturgisting þar kostar rúmar
83 þúsund krónur.
Hótel Saga hefur notið mikilla
vinsælda meðal erlendra gesta
sem koma hingað til lands yfir
áramótin. Kristján Daníelsson
hótelstjóri segir að allar svíturnar
séu uppbókaðar. Þar sé stolt hót-
elsins, Forsetasvítan, engin und-
antekning en nóttin þar kostar 75
þúsund krónur. Auk þess hefur
hótelið yfir að ráða átta minni
svítum. Þær eru þegar pakkaðar.
„Við erum með smá dagskrá fyrir
gestina á gamlárskvöld. Gestirnir
fá sér að borða í Súlnasal og svo á
miðnætti fer fólk upp á Grillið,
fær sér kokkteil og snittur og
horfir á flugeldana,“ segir Kristj-
án. freyrgigja@frettabladid.is
NORDICA HILTON: DÝRASTA SVÍTAN PÖNTUÐ FYRIR ÁRAMÓTIN
Allar flottustu svíturnar
upppantaðar um áramótin
„Jú, jú, þetta eru nánast landráð. Og ég vona að
forsetinn fyrirgefi mér þetta,“ segir Sigmundur
Ernir Rúnarsson, rithöfundur og sjónvarpsmaður.
Og bætir við: „En það er í takt við tíðarandann að
alþýðukona leggi útrásarforsetann.“
Nú er bardaginn um bóksöluna að ná hámarki. Og
bókaútgefendur eru ánægðir, sala bóka fer fram úr
björtustu vonum og stefnir í að Arnaldur Indriðason
slái enn eitt metið og fari jafnvel yfir 30 þúsund seld
eintök. Og sala bókar Sigmundar um Magneu
Guðmundsdóttur, óþekktu alþýðukonuna, hefur farið
fram úr björtustu vonum og er mest selda ævisagan.
Saga af forseta eftir Guðjón Friðriksson er í öðru
sæti – óvænt. Útgefandinn Pétur Már Ólafsson hjá
Veröld er kátur. „Við þóttum býsna djörf að prenta
5.000 eintök af Magneu í upphafi en viðtökurnar
hafa verið langt umfram væntingar; mest selda
ævisagan, besta ævisagan að mati starfsfólks
bókaverslana – og í dag kemur hressileg viðbótar-
prentun á lager.“ Pétur Már dregur ekki úr því að
bjart sé yfir Veröldinni. Og upplýsir að Auðn Yrsu
Sigurðardóttur sé á fljúgandi siglingu. „Við létum
prenta risaupplag af Auðninni fyrr í haust, 10.000
eintök, og þótti óðsmanns æði. En … við fengum nú
fyrir helgina myndarlega viðbót á lager úr Odda,
enda fyrsta prentun á þrotum. Það stefnir því í
algjört met hjá Yrsu og ætti bókin að seljast í um
13.000 eintökum.“ - jbg
Alþýðukona leggur útrásarforsetann
SIGMUNDUR OG MAGNEA Sigmundur segir það í takt við
tímann að alþýðukona leggi útrásarforsetann. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ALLT BÓKAÐ
Allar flottustu svíturnar í Reykjavík eru upppant-
aðar um áramótin. Ingólfur Haraldsson, hótel-
stjóri á Nordica Hilton, þarf að sjá til þess að sá
sem greiðir 125 þúsund krónur fyrir nóttina í
forsetasvítunni verði ánægður með dvölina.
Tökur á spennuþáttaröðinni Rétt-
ur eru hafnar og ganga að sögn
Magnúsar Viðar Sigurðssonar,
framleiðanda, mjög vel. Eins og
komið hefur fram í Fréttablað-
inu eru lögfræðingar í aðalhlut-
verki í þáttunum og fara tökur í
dómsal fram í héraðsdómi
Reykjanes. „Við fengum góðfús-
legt leyfi hjá forsvarsmönnum
hússins að fá að taka upp þegar
ekkert væri að gerast í sölun-
um,“ segir Magnús. Hugsað er
fyrir hverju smáatriði í þátt-
unum og fengu aðstandendur
Réttar meðal annars afnot af
dómaraskikkjum frá félagi
Laganema, Orator. Fjöldi lög-
fræðinga hefur jafnframt
komið að gerð hand-
ritsins, lesið það yfir
og stílfært svo að
það sé í takt við
íslenskt réttar-
kerfi. Og til að glæða þættina
enn raunverulegri blæ mun einn
virtasti lögfræðingur landsins,
Helgi Jóhannesson, leika lítið
hlutverk í þáttunum. „Já, hann
setti það sem skilyrði þegar hann
las yfir handritið,” segir Magnús
í léttum dúr. Sýningar á Rétti
hefjast á Stöð 2 í janúar. -fgg
Réttur er settur
LEIKUR LÍTIÐ
HLUTVERK Helgi
Jóhannesson,
lögfræðingur, leikur
lítið hlutverk í Rétti.
AÐALSTJARNAN
Jóhanna Vigdís Arnar-
dóttir leikur aðalhlut-
verkið í þáttunum
sem hefja göngu sína
í janúar á Stöð 2.
Bækur frá
Forlaginu
Birna Jóna Magnúsdóttir
Bakkastaðir 13
Björk Guðmundsdóttir
Mávatjörn 14
Helgi Magnússon
Þrastarási 71a
Inga Agnarsdóttir
Hofsvallagata 22
Miriam Thorarensen
Skarðshlíð 12e
Pétur Hjálmarsson
Borgarási 2, Flúðum
Sigurður Þórir Þórisson
Grundartanga 14
Sigurrós Ósk Karlsdóttir
Berjarima 22
Steingrímur Þorgeirsson
Hafraholti 44
Jólaleikurfréttablaðsins
Sváfnir Hermannsson
Engjahjalli 25
Valgerður H. Rúnarsdóttir
Gullengi 17
Viktor Pétursson
Logafold 50
Bíókort frá
Sambíóunum
Anína Marín Thorstensen
Efstahlíð 33
Anna Garðarsdóttir
Álftamýri 54
Áslaug Hallvarðsdóttir
Leirutangi 17b
Benjamin Liam Finze
Framnesvegur 1
Hafþór Theodórsson
Engjasel 67
Helena Rut Baldursdóttir
Aratúni 38
Kristján Carlsson Granz
Tunguvegur 10
Kristján Óðinn Unnarsson
Kambahrauni 26
Margrét Gunnarsdóttir
Rauðarárstíg 36
Olga Helgadóttir
Blöndubakki 5
Svanhvít J. Jóhannsdóttir
Þórufell 18
Tómas Kristjánsson
Skógarás 3
Gjafakort frá
Þjóðleikhúsinu
Björg Lárusdóttir
Hólaberg 34
Halldór Jóhannesson
Viðarrima 44
Taktu þátt á visir.is
Vinningshafar
Vinninga skal nálgast í móttöku Fréttablaðsins, Skaftahlíð 24.
Opið alla virka daga frá klukkan 8-17.