Fréttablaðið - 21.12.2008, Page 64
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
Í dag er sunnudagurinn 21.
desember, 356. dagur ársins.
11.22 13.25 15.30
11.39 13.10 14.42
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Uppbúið rúm
í svefnpokaplássi
kr. 2.000 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is
Ef bókað er fyrir 1. febrúar 2009:
Flugsæti, með sköttum og öðrum greiðslum, sem gildir
fram og til baka til Köben, London eða Berlínar.
Bókunartímabil: 26. desember 2008 –31. janúar 2009.
Ferðatímabil: 15. janúar–15. maí 2009.
Takmarkað sætaframboð.
Ef bókað er eftir 1. febrúar 2009:
Jólagjafabréfið verður inneign að upphæð 25.900 kr.
Gildir til allra áfangastaða og gildir í tvö ár frá útgáfudegi.
Einfalt að kaupa.
Gaman að upplifa.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
með ánægju
Áttu vini og ættingja sem hafa gaman af ferðalögum?
Jólagjafabréf Iceland Express er einföld og skemmtileg leið til
að gleðja þína nánustu um jólin. Bókaðu vel heppnaða jólagjöf
á www.icelandexpress.is
Jólagjafabréf Iceland Express hittir beint í mark
25.900 kr.
Verð:
Sölutímabili lýkur kl. 18.00, 24. desember 2008.
Ferðatímabilið er
frá 15. janúar
til 15. maí
2009
Ömurlegustu jól sem ég hef lifað voru árið 1993. Ég var
nýfráskilinn og nýfluttur inn í
íbúðarkytru í miðborginni. Megnið
af hafurtaskinu mínu var því ýmist
enn í kössum eða hjá minni fyrr-
verandi. Kringumstæður mínar
höfðu verið þannig að lítið hafði
farið fyrir jólaskapinu hjá mér á
aðventunni og ofan á það var ég
staurblankur. Af þeim sökum
ákvað ég að gera ekkert úr jólun-
um, heldur herja þess í stað á fjöl-
skylduboðin yfir bláhátíðarnar og
halda svo áfram með líf mitt eins
og ekkert hefði í skorist. Hins
vegar gekk einhver pest þessi jól
þannig að mamma lagðist í bælið
og boðinu á jóladag var aflýst. Þar
sem ég átti ekki í nein önnur hús
að venda var ég því einn heima í
hálfkaraðri og óskreyttri íbúð. Ég
sauð mér frosna ýsu sem ég átti og
át hana með kartöflum og smjöri.
Það var jólasteikin mín.
ÉG HEF alloft orðið niðurdreginn
um dagana, en aldrei hefur annað
eins svartnættisþunglyndi með
sjálfsvorkunn og algjöru vonleysi
hellst yfir mig og þennan jóladag.
Samt var ekkert við kringumstæð-
urnar í sjálfu sér sem hefði átt að
gera mig dapran. Ýsa er góður
matur og húsnæði manns er alla
jafna ekki skreytt í hólf og gólf. Ef
þetta hefði verið virkur dagur í
janúar hefði ekki verið nein ástæða
til að kvarta. En þetta var ekki
virkur dagur í janúar heldur jóla-
dagur. Hann á að vera öðruvísi en
aðrir dagar ársins.
ÁSTÆÐA þess að ég er að rifja
þetta upp er sú að ég get ímyndað
mér að þessi jól sé svipað ástatt
um marga. Jólaskapið hefur
eflaust víða átt erfiðara uppdrátt-
ar nú en oft áður út af áhyggjum
og fjárhagslegu óöryggi. Aðventan
kynni að hafa gert ýmsum erfitt
um vik að fyllast sama jólaanda og
vanalega.
ÉG VIL samt skora á þá sem
þannig er ástatt fyrir að hunsa
ekki jólin með öllu. Það er beinlín-
is mannskemmandi að gera sér
engan dagamun á þessum árstíma.
Íburður er óþarfur, jafnvel bara til
vansa. Pínulítið greni, kerti, jóla-
kúla, engill eða stjarna ætti ekki
að vera neinum ofraun. Ekki held-
ur dós af jólaöli, súkkulaðimoli,
sneið af hreindýrakæfu eða annað
sem hver tengir sínum jólum. Það
er beinlínis sálartortímandi að
gera ekkert til að lyfta sér upp eða
lífga upp á umhverfi sitt núna í
svartasta skammdeginu.
ÉG MÆLI allavega ekki með því.
GLEÐILEG JÓL.
Ömurleg jól