Fréttablaðið - 30.12.2008, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 30.12.2008, Blaðsíða 4
4 30. desember 2008 ÞRIÐJUDAGUR Þú getur alltaf treyst á prinsinn Hlíðasmára 8 • 201 Kópavogi • s: 554 7200 Reykjavíkurvegi 68 • 220 Hafnarfirði • s: 5557220 www.hafid.is SJÁVARÚTVEGSMÁL Veiðistofn mældist 270 þúsund tonn í nýafstöðnum rannsóknaleiðangri Hafrannsóknastofnunar. Aflaregla í loðnu gerir ráð fyrir að að minnsta kosti 400 þúsund tonn séu skilin eftir til hrygning- ar í lok vertíðar og ekki er gerlegt að leggja til veiðikvóta fyrir komandi vetrarvertíð að svo stöddu. Undanfarin ár hefur kvóti ekki verið gefinn út fyrr en á fyrstu mánuðum nýs árs og mun rannsóknaskip Hafró verða gert út til frekari rannsókna á loðnu eftir áramótin. Mælingarnar að þessu sinni sýndu hins vegar mikinn fjölda loðnuseiða á rannsóknasvæðinu frá Austur-Grænlandi til Austurlands. Seiði ársins í ár verða uppistaðan í veiði- og hrygningarstofni loðnu fyrir vertíðina 2010-2011. - shá Stofnmælingar loðnu: Ekki hægt að gefa út kvóta SUÐUREY VE Veiðistofn mælist ekki nægilega stór til að gefa út kvóta. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR Verðlækkun í flugi Stór flugfélög á borð við British Air- ways og Virgin Atlantic hafa tilkynnt verðlækkun á flugmiðum yfir Atlants- hafið. British Airways er með tilboð á 75 áfangastaði, þar á meðal er flugið fram og til baka milli London og New York á 259 pund. Flugmiðarnir hafa ekki verið jafn ódýrir í 20 ár. DANMÖRK LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gómaði í gærmorgun 22 ára gamlan mann á stolnum bíl eftir nokkra eftirför. Var hann í annarlegu ástandi. Klukkan hálfsjö í gærmorgun var tilkynnt um stolinn bíl, af gerðinni Toyota Corolla, í Hafnarfirði en þá hafði eigandinn ætlað að halda akandi til vinnu en gripið í tómt. Um klukkan níu sá lögreglan bílinn skammt frá Hlemmi og var ökumanninum gefið merki um að stöðva en sinnti hann því ekki. Hófst þá eftirför sem endaði við brúna í Skeiðarvogi en þar tókst lögreglu- mönnum á tveimur bílum að króa manninn af. Að sögn lögreglu má það teljast mikil mildi að tekist hafi að stöðva hann áður en hann hélt út á Miklubraut en hann var á leið þangað þegar náðist að stöðva hann. - jse Lögreglumenn í eftirför: Bílaþjófur góm- aður á flótta VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 17° 2° 6° 0° 1° 2° 2° 6° 2° 2° 20° 5° 9° 26° -2° 3° 12° 1° ÁRAMÓTIN 3-8 m/s en 10-15 allra syðst NÝÁRSDAGUR 3-10 m/s stífastur allra syðst 4 2 -1 -1 -2 -1 -1 5 4 7 -1 5 8 9 8 4 6 5 4 3 3 4 2 0 -1 1 -4 3 3 -3 -30 FÍNAR ÁRAMÓTA- HORFUR Veðurhorfurnar fyrir áramótin hafa lítið breyst. Vindur almennt hægur, síst þó reyndar allra syðst þar sem búast má við strekkingi. Það léttir til suðvestan og vestan til nálægt miðnætti en almennt verður skýjað og þurrt. Þó má búast við einhverjum dropum syðst og éljakornum á Vestfjörðum. Semsagt ágætt fl ugeldaveður. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur BANGLADESS, AP Ströng öryggis- gæsla var á götum í Bangladess í gær þegar efnt var til kosninga í fyrsta sinn í sjö ár. Kosninganna hefur verið beðið með óþreyju eftir tveggja ára neyðarástand. Eitthvað var um skærur og ásakanir um kosningasvik, en stjórnvöld óttast að óeirðir brjótist út eins og gerðist fyrir tveimur árum þegar síðast var reynt að efna til kosninga. Tveir fyrrverandi forsætisráð- herrar, Khaleda Zia og Sheikh Hasina, keppast um hylli kjósenda, en Fakhruddin Ahmed, forsætisráðherra bráðabirgða- stjórnar landsins, segist vonast til að stjórnarskipti gangi hratt fyrir sig. - gb Kosningar í Bangladess: Von um endur- reisn lýðræðis NÁTTÚRA Síld óð við yfirborðið í Vestmannaeyjahöfn í gær innan um skipin þar sem þau liggja bund- in yfir jól og áramót. Eyjamenn fjölmenntu niður að höfn í vetrar- stillunni til að fylgjast með þessu atferli fisksins. Mikið magn af síld var á ferðinni í og við höfnina. Sýnatökur benda til að hún sé sýkt að hluta. Valur Bogason, sérfræðingur Hafrannsóknastofnunar í Vest- mannaeyjum, sem var við sýnatöku við höfnina í gær, segir að lóðað hafi á síld víða og ljóst að mikið magn er á ferðinni. Valur og félag- ar hans fengu um 150 kíló í síldar- net sem þeir lögðu í stundarkorn við ytri höfnina. Sýnatakan er ekki síst ætluð til að kanna hvort síldin sé sýkt. „Síldin hefur gert þetta áður og menn hér í Eyjum segja mér að um 1960 hafi hún verið veidd í höfn- inni,“ segir Valur. „Þetta er því þekkt en sjaldgæft. Hún var komin fyrir jól því það hafa háhyrningar og súla verið að éta síld í Stakka- bótinni hérna rétt hjá höfninni und- anfarna daga.“ Valur segist þurfa að giska á það af hverju síldin leitar inn í höfnina. Kannski leiti hún að kaldari sjó eða æti en hvorugt fyrirfinnist á þess- um árstíma við Eyjar. „Síldin sem við náðum í netin sýnir okkur hvort það er óvenjuhátt hlutfall af síld- inni sýkt. En þar sem þetta er þekkt atferli hjá ósýktri síld er þetta lík- lega bara eitthvað tilfallandi núna.“ - shá Mikið magn af síld er í og við höfnina í Vestmannaeyjum: Síldin veður uppi í höfninni SÍLDIN VEÐUR Í HÖFNINNI Á fréttavefn- um Eyjar.net er stungið upp á því að fyrirtækin tvö sem vinna síld í Eyjum dæli henni beint úr höfninni. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR ORKUMÁL Orkuveita Reykjavíkur hefur ekki getað farið af stað með stækkun Hellisheiðarvirkjunar eða byggingu Hverahlíðavirkjun- ar eins og til stóð vegna erfiðleika við fjármögnun. Stjórn OR sam- þykkti í gær samning um orkusölu frá virkjununum til Norðuráls. Orkuveitan bíður nú eftir því að fá umsamin lán, upp á samtals tæplega 32 milljarða króna, afhent frá Þróunarbanka Evrópu og Evr- ópubankanum, segir Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri OR. Stjórn OR samþykkti í gær end- urnýjun á samningi við Norðurál um sölu á orku til fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Fyrirvarar eru í samningnum varðandi fjármögn- un uppbyggingar virkjana OR, segir Hjörleifur. Samið er um 100 megavött af orku til Helguvíkur. Þá fær Norð- urál 75 megavött til viðbótar sem hugsanleg atvinnuuppbygging í Ölfusi hefur þó forgang að fram á mitt næsta ár. Að lokum er í samn- ingnum viljayfirlýsing um sölu á 75 megavöttum vegna síðari áfanga álversins. Orkan verður afhent í ársbyrjun 2011. Áformað 360 þúsund tonna álver þarf um 625 megavatta orku. OR mun aðeins sjá því fyrir 175 megavöttum, og segir Hjör- leifur erfitt að sjá að fyrirtækið verði aflögufært um meiri orku til álversins. Tilkynnt var í gær að OR hafi tryggt sér fimm milljarða króna skammtímalán með útgáfu skulda- bréfa, sem eru sölutryggð af Landsbankanum. Vextir af láninu eru 1,25 prósentustigum yfir stýri- vöxtum Seðlabankans, eða 19,25 prósent eins og vextirnir eru í dag. Lánið er til 15 mánaða, og er hugs- að til að greiða útistandandi skuld- ir vegna ársins 2008. Guðlaugur Gylfi Sverrisson, stjórnarformaður OR, segir vext- ina vissulega háa, en búist sé við því að stýrivextir lækki hratt á næstunni. brjann@frettabladid.is Dráttur á afhendingu lána tefur virkjanir Dregist hefur að OR fái umsamin erlend lán upp á tæpa 32 milljarða króna. Lánin þarf til þess að af stækkun Hellisheiðarvirkjunar og byggingu Hverahlíða- virkjunar verði. Orkan á meðal annars að fara til álvers Norðuráls í Helguvík. „Almenningur á þessa orku, og það gengur ekki að það sé verið að versla með hana án þess að almenningur fái að vita hvaða verð fæst fyrir,“ segir Svandís Svavarsdóttir, fulltrúi Vinstri grænna í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Svandís lagði fram tillögu um að leynd yfir orkuverði til Norðuráls yrði aflétt á stjórnarfundi í gær. Meirihluti stjórnarinnar vísaði tillögunni frá. Ákvað Svandís þá að víkja af fundi meðan rætt var um verðið. Í bókun sem hún lagði fram segist hún ekki geta gengist undir þá afarkosti að þurfa að halda verðinu leyndu fyrir borgarbúum. Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri OR, segir ekki koma til greina að aflétta leyndinni. Orkuveitan semji við marga um orkusölu, og það myndi gera samningsstöðu fyrirtækisins verri væri verðið gert opinbert. Fréttablaðið upplýsti um mitt ár í fyrra að umsamið verð í fyrri samningi hafi verið rétt um tvær krónur á kílóvattstund. Samkvæmt tilkynningu frá OR er verðið óbreytt frá fyrri samn- ingum, og því að líkindum um tvær krónur á kílóvattstund. Svandís greiddi atkvæði gegn endurnýjun samnings við Norðurál á fundi stjórnar OR í gær. Samningurinn hefði runnið út um áramót. Svandís segir að tilvalið hefði verið að nota tækifærið og endurmeta þau verkefni sem orka OR eigi að renna til, og velja grænni, sjálfbærari og fjölbreyttari verkefni. Það séu gríðarleg vonbrigði að stjórn OR hafi ekki valið að fara þá leið. MÓTMÆLIR LEYND YFIR ORKUVERÐINU LEYND YFIR ORKUVERÐI Orkuverð í samningi við Norðurál er ekki gefið upp. Fréttablaðið hefur upplýst að verðið í fyrri samn- ingi var um tvær krónur á kílóvattstund. Í tilkynningu frá OR kemur fram að orkuverðið sé óbreytt í endurnýjuðum samningi. GENGIÐ 29.12.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 227,2573 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,32 125,92 183,75 184,65 179,35 180,35 24,068 24,208 18,011 18,117 16,298 16,394 1,3852 1,3934 194,74 195,9 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR RÚSSLAND, AP Jósef Stalín, einn grimmasti einræðisherra 20. aldar, lenti í þriðja sæti yfir helstu mikilmenni Rússlands í netkosningu á vegum rússneska ríkissjónvarpssins Rossiya. Kosningarnar hafa staðið í þrjá mánuði og um hálf milljón manna hefur tekið þátt í atkvæða- greiðslu, ýmist á netinu eða með símaskilaboðum. Í fyrsta sæti lenti Alexander Nevský, þrettándu aldar dýrling- ur sem vann frækin hernaðaraf- rek, en í öðru sæti varð Pjotr Stolypin, forsætisráðherra á tímum Nikulásar II. keisara. - gb Netkosning í Rússlandi: Stalín í hópi mikilmenna

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.