Fréttablaðið - 30.12.2008, Síða 36

Fréttablaðið - 30.12.2008, Síða 36
20 30. desember 2008 ÞRIÐJUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Í alvörunni maður! Kanntu ekkert annað Kinks-lag en I‘m on an Island?! Mig langar heim! Strax? Ertu eitthvað slappur? Nei. Ég sá strák í hvítri skyrtu þarna sem var miklu flottari en mín! Haha! Þú ert bara í stuði! Númer tólf í röðinni! Við erum að fara heim! Þetta er of mikið! Hvað núna? Nú kemur það besta. Við setjum hárið þitt í kassa og sendum til „Hár fyrir börn“. Og sam- tökin finna börn sem hafa not fyrir hárið. Þetta er eins og dauð rotta. Ekki þegar maður er nýbúinn að vera í krabba- meinsmeðferð Þetta var flott maður Þú syngur eins og fugl. Þar er ég sammála. Pabbi, það snjóaði í gær! Er það? Þú verður að koma út og sjá, hann nær upp að mitti! Er það? Vá! Ég hef ekki séð svo mik- inn snjó síðan ég var krakki! Komdu! Sjáðu, upp að mitti! Þú meinar upp að höku! Úff! Þegar áramótin nálgast fer um mig fiðringur, mér finnast þau spennandi og nýársnótt ævintýraleg mjög. Það er svo hátíðlegt, gaman og hollt að fara yfir árið sem er að líða og velta fyrir sér árinu fram undan. Ég hef í ár heitið því að setja mér áramótaheit aldrei þessu vant, og hafa það meira að segja ekki frumlegt: Fara að verja tíma í hreyfingu og líkamsrækt einhvers konar, held að það stefni í óefni hjá mér ef ég verð jafn löt við að hreyfa mig 2009 og ég var 2008. Miðað við efnahagsspár er þungt ár fram undan en eftir að vinkona mín nýkomin frá útlöndum sagði að allir væru að staglast á því að febrúar yrði hræðilegur á Íslandi, þá hef ég líka ákveðið að tala ekki um að febrúar verði hræðilegur. Og í stað þess að velta mikið vöngum yfir komandi ári, sem hvort eð er er ekki hægt að sjá fyrir, þá held ég að gamlárskvöld verði miklu skemmtilegra í ár ef umræður í boðum snúast frekar um liðin áramót. Útrás- arliðið getur til dæmis rifjað upp minning- ar af glæsiveislum í útlöndum. Við sem misstum af þeim veislum getum rifjað upp skemmtileg kvöld í partíum sem stóðu fram undir morgun. Eða var varið á hinum ýmsu skemmtistöðum, Traffík, Tunglinu, Hótel Íslandi, Skíðalandinu, Iðnó (samkvæmisleikur, hver þessara staða er enn til?). Skipst á svaðalegum sögum um misheppnuð og vel heppnuð áramót. Af nógu er að taka og örugglega margar skemmtilegar sögur sem eiga eftir að fljúga í samkvæmunum. Og þó að það sé um að gera að eyða ekki of fjár í flugelda á þessum síðustu og verstu þá ættu allir að gera sér ferð á sölustaði björgunarsveit- anna og styrkja gott starf þeirra með flugeldakaupum. Gleðilegt ár! Andi liðinna áramóta NOKKUR ORÐ Sigríður Björg Tómasdóttir Framleitt af 3 Sagas & Helga Hermanns- syni í samvinnu við Borgarleikhúsið. Sýningar hefjast 6. febrúar nk. í Borgar- leikhúsinu. Miðasala í síma 568 8000 eða á borgarleikhus.is Fyrstu sýningar: 6. febrúar 7. febrúar 8. febrúar 11. febrúar 12. febrúar 13. febrúar 20. febrúar 21. febrúar Miðasalan hefst kl. 10 í dag! Fyrstir koma, fyrstir fá.1

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.