Fréttablaðið - 08.01.2009, Page 1

Fréttablaðið - 08.01.2009, Page 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI 33,4% 70,7% Fr ét ta bl að ið M or gu nb la ði ð Fréttablaðið er með 112% meiri lestur en Morgunblaðið Allt sem þú þarft... ... alla daga Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið 18–49 ára. Könnun Capacent í ágúst - október 2008. FIMMTUDAGUR 8. janúar 2009 — 7. tölublað — 9. árgangur VEÐRIÐ Í DAG DÍSELLA LÁRUSDÓTTIR Ánægð með kápu úr smiðju Calvins Klein • tíska • nám • á ferðinni Í MIÐJU BLAÐSINS HEILSA OG LÍFSSTÍLL Áramótaheit, ráðlegg- ingar og ótrúleg afrek Sérblaðið Heilsa og lífsstíll FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 HLÁTUR lengir lífið og telja sumir að hann megi nota til að vinna úr hvers kyns vandamálum og hugarvíli. Goodheart hlát- ur-markþjálfun verður kennd hjá Símey, símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar þann 13. janúar. www.simey.is „Kápan er rosalega flott og er meira að segja Calvin Klein,“ segir Dísella Lárusdóttir söngkona og hlær. „Hún er mjög hlý og fín. Ég fékk kápuna um þarsíðustu jól frá eiginmanninum en hann vissi að ég væri að leita mér að kápu og valdi hana handa mér.“Dísella segir þó að sinn fatastíll sé annars mjög einfaldur og að hún spái ekki mikið í föt. „Ég fer í þægileg föt og er mikil galla-buxnatýpa, fer bara í gall bog út eltist ekki við tískustrauma og yfirleitt man ég ekki hvar ég kaupi fötin.“ Starfi Dísellu fylgja þó glæsi-kjólar og fallegur fatnaður og við-urkennir hún að hugsa þurfi fyrir slíku. „Ég verð að leggja svolítið í það að líta faglega út. Þegar ég syng á tónleikum þá þarf ég að vera í fallegum kjólum og vel til höfð. Hins vegar man ég ekkertendilega h þar eru þannig að þetta er dásam-legt,“ segir hún hrifin en Dísella syngur á Vínartónleikum sinfóníu-hljómsveitarinnar og voru þeir fyrstu haldnir í gærkvöldi. „Þetta eru fernir tónleikar og hafa um árabil verið meðal vinsælustu tón-leika hljómsveitarinnar. Þetta er mjög auðmelt klassísk tónlist oghentar flestum “ Fékk kápuna í jólagjöfDísella Lárusdóttir heldur mikið upp á kápu sem hún fékk í jólagjöf frá eiginmanninum um þarsíðustu jól. Kápan er merkt Calvin Klein en þó segist Dísella lítið spá í föt og merki heldur skipti þægilegheit mestu. Kápuna góðu fékk Dísella í jólagjöf frá eiginmanni sínum um þarsíðustu jól. Kápan yljar vel á Íslandi en Dísella syngur á Vínartón- leikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Pattihúsgögn 80%afslætti valdar vörur á allt að heilsa og lífsstíll FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 Opið til 21 NÝTT KORTATÍMABIL Femínískir vindar í guðfræði Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir er fyrsti kvenprófessorinn við guð- fræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. TÍMAMÓT 26 Spennandi verkefni Eva María Jónsdótt- ir verður kynnir í Eurovision. FÓLK 38 Skiptir um lið Steinar Bragi segist ekki munu breytast þótt hann gangi til liðs við Forlagið. FÓLK 46 Kaflaskiptur leikur Ísland tapaði fyrir Túnis, 31-35, í lokaleik sínum á æfinga- móti í Svíþjóð í gær. ÍÞRÓTTIR 42 DÓMSMÁL Alþingi gekk líklega of langt í framsali á löggjafarvaldi þegar gjaldeyrislögum var breytt, að mati Vilhjálms H. Vilhjálms- sonar lögmanns. Þetta kemur fram í grein sem Vilhjálmur skrifar í Fréttablaðið í dag. Vilhjálmur segir bráðabirgða- ákvæði í lögunum fela Seðlabanka Íslands víðtækar heimildir til að setja reglur um háttsemi sem varðar við lög. Auk þess sé misræmi milli gildandi tollalaga og reglna Seðlabanka Íslands um gjaldeyrismál. Tollalög heimili fólki að fara með jafnvirði allt að 15 þúsund evra úr landi í erlend- um gjaldmiðli, en í reglum Seðlabankans er þessi fjárhæð takmörkuð við jafnvirði 2.940 evra. Þar sem tollalög séu sett af Alþingi verði reglur Seðlabanka Íslands að víkja. Þetta misræmi sé ótækt í réttarríki. - bs / Sjá síðu 24 Lögmaður átelur gjaldeyrislög: Bendir á ágalla og misræmi 8 3 5 3 5 ÁFRAM MILT Í dag verður fremur hæg suðlæg átt. Dálítil rigning eða súld með köflum sunnan og vestan til og norðan til með morgninum og síðan aftur undir kvöld, en bjart lengst af eystra. Hiti 4-10 stig. VEÐUR 4 HJÁTRÚ „Auðvitað er ekki hægt að fullyrða nokkuð um svona lagað fyrir víst, en allmargar sannfær- andi röksemdir liggja fyrir því hjá alvöru sálarrannsóknarfélögum heims að þetta sé raunveruleg ljósmynd af „draug“, eða framliðnum eins og vér nefnum yfirleitt hina látnu sem eru viljandi eða óviljandi að reyna að birtast í okkar heimi,“ segir Magnús Skarphéðinsson, formaður Sálarrannsóknafélags Reykjavíkur. Bandarískur lögmaður, Stuart Peacock, dvaldi ásamt fjölskyldu á Íslandi yfir hátíðarnar og náði einstakri mynd í Hólavallakirkju- garði á jólanótt. Og verður ekki betur séð en þar séu draugar á ferð. - jbg / sjá síðu 46 Einstök ljósmynd: Draugar á ferð í Hólavallagarði VIÐSKIPTI Hugmyndir um innlausn gjaldeyrissamninga á öðru en skráðu gengi stangast á við yfir- lýsingu Íslands við Alþjóðagjald- eyrissjóðinn. Gunnar Tómasson hagfræðingur segir þetta þýða að framvirka gjaldeyrissamninga sjávarútvegsfyrirtækja eða ann- arra við gömlu bankana verði að færa í hina nýju á skráðu gengi. Í 22. lið yfirlýsingarinnar segir: „Enn fremur skuldbindum við okkur til að leggja ekki frekari höft á gjaldeyrisviðskipti né að koma á fjölgengisfyrirkomulagi.“ Það þýðir að hugmyndir Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, lífeyris- sjóðanna, sjávarútvegsfyrirtækja og fleiri um tilbúið gengi brjóta í bága við yfirlýsinguna. Framvirku samningarnir standa, þótt gengið sé orðið þeim sem þá gerðu óhag- stætt núna þar sem það er hærra. Hugmyndir þeirra sem vilja gera upp gjaldeyrissamninga miðað við hærra gengi en nú er eru undir sömu sök seldar. Þar má nefna fyrirtækið Kjalar sem vill gera sína samninga upp miðað við markaðsgengi þeirra á gjalddaga, 14. október. Þá kostaði evran 305 krónur hjá evrópska seðlabankan- um og vill fyrirtækið miða við það, en er tilbúið til málshöfðunar ella. „Neyðarlögin heimila okkur ekki að sækja rétt okkar gagnvart skilanefnd Kaupþings. En hins vegar munum við verja þennan rétt ef nefndin fellst ekki á kröfur okkar um þennan skuldajöfnuð,“ segir Hjörleifur Jakobsson, for- stjóri Kjalars. Gunnar starfaði hjá AGS í aldar- fjórðung. Hann segir hið sama gilda um hugmyndir Kjalars og sjávarútvegsráðherra; í báðum til- vikum sé gert ráð fyrir tvöföldu gengi sem sé óheimilt. Hann segir mörg dæmi um ríki sem fengið hafa aðstoð sjóðsins og reyna að nota aðferðir sem þessar. Niður- staða sjóðsins sé alltaf sú sama, hvaða aðferð sem þau beiti. Sjóð- urinn frysti lán til viðkomandi lands þar til slíkt hafi gengið til baka. - kóp, bj, ikh / Sjá síðu 4 Tvöfalt gengi þýðir frystingu lána AGS Uppgjör gjaldeyrissamninga verður að miða við markaðsgengi þar sem óheim- ilt er að hafa fleiri en eitt gengi skráð hér á landi. Annað væri brot á viljayfirlýs- ingu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og gæti fryst lán frá honum til landsins. STUART PEACOCK VILJA SKÝRINGAR Fjöldi starfsmanna St. Jósefsspítala beið eftir Guðlaugi Þór Þórðarsyni heilbrigðisráðherra meðan hann fundaði á Hótel Hilton. Starfsmennirnir vildu fá skýringar vegna breytinga á starfsemi spítalans, en mikil óánægja er þeirra á meðal. Ráð- herra lofaði að hitta starfsmenn í Hafnarfirði í dag. Sjá síðu 6 FRÉTTABLAÐIÐ/GVA REYKJAVÍK Reykjavíkurborg mun selja húsin við Laugaveg 4 og 6 til verktaka. Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir að 20 milljónir fari í húsin á næsta ári, sem nýttar verða til útlitshönnunar. Borgin keypti húsin í fyrra á 580 milljónir króna, en kaupin voru nokkuð umdeild. Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir að 560 milljónir fari í uppbyggingu húsanna við Lækjar- götu 2 og Austurstræti 22, sem borgin keypti fyrir 584 milljónir króna. Frá þeirri upphæð dróst þó umtalsvert vátryggingarfé. Fjárhags áætlun við uppbyggingu er um einn milljarður. Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri framkvæmda- og eigna sviðs Reykjavíkur, segir ætlunina að byggja húsin við Austurstræti upp, en selja húsin við Laugaveg til uppbyggingar. Það skýri mun- inn á fjárframlagi til húsanna. „Skipulagið gerir ráð fyrir að Reykjavíkurborg gangi frá útliti húsanna, en verktakar hafi heldur frjálsar hendur um hvernig tengja má við Skólavörðustíg og húsið á bak við. Hvað Austurstrætið varð- ar eru þar mjög ströng skilyrði og borgin mun byggja þar upp áður en selt verður.“ Hrólfur tekur fram að fram- kvæmdir séu háðar því að takist að tryggja lánsfjármagn. - kóp Reykjavíkurborg ætlar ekki að endurbyggja Laugaveg 4 og 6: Framkvæmdir bíða kaupenda

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.