Fréttablaðið - 08.01.2009, Page 16

Fréttablaðið - 08.01.2009, Page 16
16 8. janúar 2009 FIMMTUDAGUR hagur heimilanna ■ Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@ frettabladid.is DR. GUNNI neytendur@ frettabladid.is „Þetta er langerfiðasta spurning sem ég hef nokkurn tímann fengið,“ segir Hrund Gunn- steinsdóttir, forstöðumaður Prisma, nýstárlegs náms sem Listaháskólinn og Háskólinn á Bifröst fara af stað með í næsta mánuði, í samvinnu við Reykjavíkur Akademíuna. „Mér dettur þó helst í hug að nefna slummubuxurnar mínar góðu. Þessar buxur keypti ég þegar ég var barnshafandi af yngstu dóttur minni og hafa reynst mér einstaklega vel. Þær eru mjúkar alls staðar, vaxa með manni og skreppa svo aftur saman með manni.“ Hrund segist venjulega snögg að henda sér í þessar töfrabuxur og mjúka sokka þegar hún kemur heim úr vinnunni. Verstu kaupin á Hrund ekki jafnerfitt með að nefna. „Það eru án alls efa deCode- hlutabréfin,“ segir hún, enda var hún meðal þeirra fjölmörgu Íslendinga sem stukku á þann vagn rétt fyrir síðustu aldamót og töldu sig vera að gera skotheld kaup. „Eftir að hafa tekið ákvörðun um að kaupa þessi hlutabréf sá ég framtíðina í þvílíkt björtu ljósi. Ég sá fyrir mér að ég gæti flutt úr fimmtíu fermetra íbúðinni minni inn í nýja höll með öllu. Mér fannst ég dálítið snjöll,“ segir Hrund og hlær. Fljótlega hrundi þó tálsýnin í jöfnum takti við hlutabréfin, sem nú eru margfalt minna virði en þegar Hrund keypti þau. Útgjöldin > Verð á heilhveitibrauði, kílóverð miðað við verð á land- inu öllu í nóvembermánuði hvers árs. „Þú sýður kalt vatn og hellir því í plastbala, setur álpappír í botninn og skvettu af matarsóda út í. Svo þarftu ekki annað að gera en að horfa á silfrið verða fínt. Ef það er skygging í munstri á skartinu, eins og oft er í gömlu skarti, þá er þetta haft styttri tíma ofan í,“ segir Fríða Jónsdóttir, gullsmiður og skartgripahönnuður. „Þegar ekki gefst tími í þetta mæli ég með efni frá Goddard‘s sem heitir Silver Dip og fæst meðal annars í Fjarðarkaupum. HÚSRÁÐ SILFRIÐ HREINSAÐ Í BALA ■ Fríða Jónsdóttir, gullsmiður og skart- gripahönnuður, kann ráð við því þegar fellur á silfrið. NEYTANDINN: HRUND GUNNSTEINSDÓTTIR, FORSTÖÐUMAÐUR PRISMA Slummubuxurnar bestu kaupin 96 97 98 99 00 01 02 03 04 05 06 07 08 258 260 288 281 324 294 296 344 Hagkaup í Skeifunni mun áfram verða opið allan sólarhringinn, líkt og raunin hefur verið undanfarnar sex vikur. Í tilkynningu frá Hagkaupum kemur fram að fjöldi fólks sæki verslunina fram til klukkan tvö um nætur og hefjist ösin aftur upp úr klukkan sex á morgnana. Næturopnuninni hafi verið vel tekið og því verið ákveðið að halda henni áfram. Þá verði vöruúrval í versluninni lagað að þörfum þeirra sem versla utan venjulegs opnunartíma og þjónusta þar endurbætt. ■ Verslun Næturopnun Hagkaupa í Skeifunni áfram Stefnt er að því að losa Svalbarða við alla plast- poka á þessu ári. Markmiðið er að Svalbarði verði fyrsta samfélagið í Noregi sem er alfarið án plastpoka, að sögn norska dagblaðsins Aftenposten, og á það að koma náttúrunni til góða. „Við viljum hafa strangari umhverfiskröfur á Svalbarða. Ég get ekki ímyndað mér að það verði nokk- ur pólitísk andstaða við plastpokabanni að því gefnu að við finnum náttúruvænni valkosti,“ segir Kjell Mork, formaður sveitarstjórnarinnar í Longyear-bænum á Svalbarða. Innflutningur á náttúruvænum pokum er þegar hafinn. Þeir pokar brotna niður og hverfa í náttúrunni. ■ Íbúar á Svalbarða Vilja banna plastpoka Í kjölfar þess að stafrænar mynda- vélar urðu algengar dró mjög úr hefðbundinni framköllun ljós- mynda. Einhverjir hafa svo lent í því að tapa ljósmyndum sínum sem geymdar hafa verið í tölvum sem bregðast eða er stolið. Aðrir sakna einfaldlega þess að handleika og skoða myndir í myndaalbúmum. Hver sem ástæðan kann að vera virðist sem útprentun mynda hafi aftur aukist. „Fólk tekur ekki færri myndir en áður en af því það er búið að sjá myndirnar í myndavélinni, í tölv- unni eða í sjónvarpinu er minni áhersla lögð á að prenta myndirnar á ljósmyndapappír,“ segir Jón Stef- án Karlsson, eigandi Úlfarsfells ehf. Jón Stefán segir ljósmyndaprent- un vera eitt af því sem fólk ætli sér alltaf að gera, en komi ekki alltaf í verk. Hann hvetur fólk til að koma myndum sínum á ljósmyndapappír. „Að minnsta kosti bestu myndunum því fólk hefur verið að tapa hundr- uðum mynda sem það hefur sett á harða diskinn í tölvunni sinni, sem svo hrynur,“ segir Jón Stefán. Í sama streng tekur Gerður Ósk- arsdóttir, eigandi Filmverks ehf. á Selfossi. „Maður er búinn að heyra ljótar sögur af því að fólk hafi glat- að myndunum sínum. Fólk er að vakna upp við það að tölvur og disk- ar eru kannski ekki varanleg geymsla fyrir myndirnar og því sé betra að eiga útprentuð eintök,“ segir Gerður. Jens Ormslev, eigandi og fram- kvæmdastjóri Pixlar ehf., segir mikla niðursveiflu hafa komið í framköllun ljósmynda eftir að staf- rænar myndavélar komu á markað- inn. Á undanförnum mánuðum hafi framköllun svo aftur aukist jafnt og þétt. „Fólk er farið að finna það að það vill hafa þetta eins og í gamla daga, í albúmi heima hjá sér en ekki bara í tölvunni,“ segir Jens. En þrátt fyrir þessa aukningu hefur framköllunarþjónustufyrir- tækjum fækkað mikið á undanförn- um árum. Sigurjón Haraldsson, framkvæmdastjóri Myndhraða, segir harða samkeppni ríkja á mark- aðnum. Hann segir 3.300 krónur ekki raunverð fyrir hundrað mynd- ir. „Það er of lágt verð en þetta er það sem viðgengst á markaðnum,“ segir Sigurjón. olav@frettabladid.is Ljósmyndirnar úr tölv- unum í myndaalbúmin AUGNABLIKIÐ „FEST Á FILMU“ Stafrænum myndavélum af ýmsum gerðum hefur fjölgað mikið á undanförnum árum og þær að miklu leyti komið í stað hefðbundinna myndavéla þar sem myndir eru festar á filmu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VERÐ Á 100 LJÓSMYNDUM Pixlar ehf. 2.900 krónur Hans Petersen 2.900 krónur Ljósmyndavörur 2.900 krónur Úlfarsfell ehf. 3.000 krónur Myndhraði 3.300 krónur Hraðfilman sf. 3.300 krónur Filmverk ehf. 3.600 krónur Verð miðast við uppgefið besta verð á framköllun á 100 ljósmyndum í stærðinni 10x15 sentimetrar. Frá og með 12. janúar verða Íslending- ar, sem og aðrir ferðamenn frá löndum sem eru undanþegin vegabréfsáritun til Bandaríkjanna, að sækja um rafræna ferðaheimild á vef bandarískra innflytj- endayfirvalda, https://esta.cbp.dhs.gov. Hægt er að stilla síðuna á íslensku og ætti því ekki að flækjast fyrir Íslending- um. Farþegar þurfa sjálfir að sækja um þessa ferðaheimild (ESTA) og æskilegt er að sótt sé um minnst 72 tímum fyrir brottför þó reynt sé að afgreiða umsóknir með minni fyrirvara. Flestum verður svarað um hæl. Þegar ferðaheimild hefur einu sinni verið veitt gildir hún í tvö ár, en fyrir hverja ferð til Bandaríkjanna þarf að fara aftur á heimasíðu ESTA og uppfæra ferðaupplýsingar fyrir hverja ferð. Rafræna ferðaheimildin mun leysa I-94W formið af hólmi, að reynslutíma loknum, en það er græna formið sem ferðalangar til Bandaríkjanna kannast við að fylla út í flugvélunum. Fyrst um sinn verður einnig notast við I-94W formið en mælst er til að farþegar hafi með sér prentaða ESTA-kvittun fyrir flug. ■ Ferðalög Rafræn ferðaheimild til Bandaríkjanna Leigubílstjórar hjá Hreyfli-Bæjarleiðum söfnuðu 6,3 milljónum til styrktar átaki Krabbameinsfélags Íslands gegn brjóstakrabbameini. Keyrt var undir bleikum ljósum í október og nóvember og söfnuðust peningarnir með sölu á bleikum slaufum auk þess sem hluti hvers fargjalds rann til átaksins. Bleikar slaufur voru seldar fyrir 4.990.000 krónur og 1.300.000 krónur söfnuðust í pöntuðu fargjaldi. Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands segir að settum takmörkum hafi verið náð og með söfnuninni hafi tekist að fjármagna nýjan greiningarbúnað að fullu. ■ Söfnun Bleikir leigubílar söfnuðu 6,3 milljónum Óska eftir að kaupa enskt Lingafon námskeið Óska eftir að kaupa enskt Lingafon námskeið útgefi ð 1978 eða síðar. En útgáfuár bóka er skráð áberandi fremst í bókum. stg. 20.000 kr. Upplýsingar í síma 865 7013 Björgvin Ómar Ólafsson Fátt er betra fyrir sálartetrið en að fá sér ís, nema ef vera skyldi súkkulaði. Í skammdegismyrkrinu er upplagt að gúffa í sig ís – en muna bara að svitna í klukkutíma á móti. Blessaður ísinn hefur hækkað eins og annað. Heiðdís skrifar: „Ég var í Kringlunni og ákvað að fá mér ís í ísbúðinni hjá Hagkaupum. Í fyrsta sinn á ævinni hætti ég við að kaupa mér ís af því að hann var of dýr. Lítill bragðarefur er kominn í 790 krónur hjá þeim. Miðstærð var á 890 og stór á 990 krónur. Mig grunaði að ísinn hefði hækkað undanfarið en þetta var of mikið. Tæpar 800 krónur fyrir smá ís og smá nammi! Ég sá fram á að fá aldrei ís aftur! Því fór ég í verðkönnunarleiðangur í Fákafenið í Erlu-ís. Vissulega hefur verðið þar einnig hækkað en var samt viðráðanlegra. Hjá þeim kostaði lítill bragðarefur 590 kr., miðstærð 690 kr. og stór 790 kr. Dýrt, en aðeins skárra.“ Ég gerði litla bragðarefskönnun. Í Ísbúðinni í Smáralind er sama háa verðið og í Kringlunni. Ísbúðin Garðabæ er staðsett að Litlatúni 1-3. Þar eru þrjár stærðir bragðarefs á 690, 790 og 890 krónur og eins og hjá öllum hinum fær maður þrjár tegundir af nammi eða ávöxtum í refinn sinn. Í ísbúðinni í Álfheimum er verðið 620, 720 og 820 krónur og nákvæm- lega sama verð er hjá Brynju á Akureyri. Því miður segjast þau ekkert á leiðinni í bæinn með ísinn sinn góða. Margir vilja meina að „gamli ísinn“ hjá Ísbúð Vesturbæjar á Hagamel sé svipaður Brynjuís á bragðið. Þar er „þeytingurinn“ á 550, 650 og 800 krónur – klárlega besti díllinn í bænum! Neytendur: Heiðdís hætti við að fá sér ís Bragðarefir á ýmsu verði

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.