Fréttablaðið - 08.01.2009, Síða 18
18 8. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta:103 Velta: 185 milljóni
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
352 -0,97% 961 -2,08%
MESTA HÆKKUN
EIMSKIPAFÉLAGIÐ +8,13%
ALFESCA +3,75%
MAREL +0,76%
MESTA LÆKKUN
STRAUMUR -11,41%
BAKKAVÖR -4,87%
ICELANDAIR -1,12%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 4,15 +3,75% ... Atlantic
Airways 174,00 +0,00 ... Atlantic Petroleum 680,00 +0,30% ... Bakka-
vör 2,15 -4,87% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið 1,33
+8,13% ... Føroya Banki 120,00 +0,00% ... Icelandair Group 13,25
-1,12% ... Marel Food Systems 79,30 +0,76% ... SPRON 1,90 +0,00%
... Straumur-Burðarás 1,63 -11,41% ... Össur 96,30 -0,93%
Breyttur Bjarni á skjánum
Nokkra athygli vakti þegar Bjarni Ármannsson,
fyrrum forstjóri, Glitnis steig fram með grein sem
birtist í Fréttablaðinu í byrjun vikunnar og ekki
síður viðtalið sem við hann var tekið í kjölfarið í
Kastljósi Sjónvarpsins. Í greininni og á skjánum
birtist annar Bjarni en sá sókndjarfi frumkvöðull
fjármálalífsins sem margir muna eftir. Auðmjúkur
viðurkenndi hann mistök hjá forsvarsmönnum
bankanna, ekki síður en á væng stjórnmálanna
og hjá stofnunum ríkisins og um leið að
hann hefði búið svo
um hnúta að Glitnir
fengi endurgreiddar
um 370 milljónir
króna sem samið
hafði verið um
vegna starfs-
loka
hans.
Tvær flugur í einu höggi
Maður í fjármálageiranum velti því fyrir sér hvort
Bjarni hefði gert sér hingað ferð til að standa fyrir
máli sínu, eða hvort hann hafi notað tækifærið
þar sem nú væri til umfjöllunar mál Vilhjálms
Bjarnasonar á hendur stjórn Glitnis vegna
starfslokasamninga Bjarna. Líkast til þyrfti hann
að bera vitni, sagði maðurinn og velti fyrir sér
hvort endurgreiðslan tengist þessu máli. Ólíklegt
verður það þó að teljast því Bjarni endurgreiddi
umsamin laun, en mál Vilhjálms snýst um þá
ákvörðun stjórnarinnar að kaupa af Bjarna
hlutabréf hans í bankanum á yfirverði. (Sem ef til
vill skýrist af yfirlýsingum nýrra eigenda bankans
um stórkostlegan vöxt í vændum.) Málið var
þingfest í maílok en þá sáu líkast til fáir fyrir hrun
íslensku bankanna og minna var fjargviðrast yfir
ofurlaunakjörum, þótt krísa lausafjárþurrðar í
fjármálaheiminum hefði þá þegar geisað
í um hálft ár. Í næstu viku verður málið
til meðferðar í dómi.
Peningaskápurinn ...
Íslenskir kaupsýslumenn
hafa lent í vandræðum þar
sem Danske bank neitar að
senda Bandaríkjadali hing-
að til lands. Málið er sagt
tæknilegt en hefur snúist
um lítið traust á íslensk-
um bönkum. Talsmaður
bankans vill lítið tjá sig um
málið en væntir lausnar
fljótlega.
„Vandamálin sem hafa snúið að
trausti á íslensku bönkunum og
Íslandi hafa verið svo mörg og
misjöfn. En þetta hefur allt verið
að róast og þetta er eitt af því fáa
sem er eftir,“ segir Sigríður M.
Torfadóttir, hjá Seðlabanka
Íslands.
Danske bank hefur ekki miðlað
Bandaríkjadölum hingað til lands
frá bankahruninu.
Við hrunið neitaði bankinn alfar-
ið að senda nokkurn gjaldeyri
hingað. Síðan hófu þeir að senda
hingað danska krónu og aðra
miðla, en hvorki fengust pund né
dalir.
„Þetta gleymdist bara í hávað-
anum sem varð hér í október, en
um leið og við tókum málið upp
aftur þá fóru pundin strax í gegn,
en þeir eru enn þá að skoða dollar-
ann. Þeir hafa viljað fá staðfest-
ingu á því að það sé tryggt að
greiðslur sem hingað eru sendar
berist réttum viðtakanda en verði
ekki frystar í viðkomandi banka
eins og gerðist með greiðslur til
gömlu bankanna, sem í einhverj-
um tilvikum frusu í Bandaríkjun-
um,“ segir Sigríður.
Danske bank veitti Sigríði þau
svör í gærmorgun að málið væri
tæknilegs eðlis og snerist um
hvers konar SWIFT skeyti skyldi
nota í þessum sendingum. „Vænt-
anlega kemur lausn í málið næstu
daga,“ segir Sigríður.
Eftir því sem næst verður kom-
ist hafa vandamál af þessu tagi
ekki komið til hjá öðrum erlend-
um bönkum svo Seðlabankanum
sé kunnugt um.
Kaupsýslumaður sem Frétta-
blaðið ræddi við segir að hann
flytji vörur frá Kína og selji í Dan-
mörku. Hann hafi hins vegar skipt
við íslenskan banka og Danske
bank. Við svo búið fái hann dansk-
ar krónur hingað til lands og þurfi
að skipta þeim í Bandaríkjadali
hér, við mun hærra verði en ytra,
til þess að greiða fyrir vörur í
Kína. Þetta ástand hafi varað mán-
uðum saman.
Talsmaður Danske bank vildi í
samtali við Fréttablaðið ekki veita
upplýsingar um málið að öðru
leyti en því að það væri tæknilegt
og þess vænst að úr leystist fljót-
lega. ingimar@markadurinn.is
VIÐ ÚTIBÚ DANSKE BANK Í KAUPMANNAHÖFN Hnökrar hafa verið á millifærslum á
erlendum gjaldeyri hingað til lands frá Danske Bank. Þar á bæ hefur verið borið við
tæknilegum örðugleikum, sem eingöngu virðast snúa að Bandaríkjadal. MYND/DANSKE BANK
Danske bank neitar að
senda dollara til Íslands
Flaga rambaði á barmi gjaldþrots
eftir hrun bankanna í október.
Flaga Holdings, stærsti lánar-
drottinn félagsins, sem skráð er í
Bandaríkjunum, breytti í kjölfar-
ið skuldum í hlutafé til að forða
félaginu frá gjaldþroti, fá upp í
kröfur og koma í veg fyrir upp-
sagnir starfsfólks.
Félagið á nú rúm 90 prósent
hlutafjár í Flögu og hefur eign
annarra nær þurrkast út. Ekki
eru upplýsingar um það hverjir
fara fyrir Flögu Holdings. Nýja
Kaupþing á kauprétt að hlut í
félaginu en hefur ekki nýtt hann.
Fyrir björgunaraðgerðir var
ekki útlit fyrir að Flaga gæti stað-
ið við skuldbindingar sínar þar
sem stærstu hluthafar voru ófær-
ir um að setja fé í reksturinn.
Í framhaldinu var óháð verð-
bréfafyrirtæki fengið til að gera
virðismat á Flögu sem dró þá
ályktun í ljósi stöðunnar að hluta-
féð væri einskis virði.
Í kjölfarið var hlutafé Flögu
lækkað verulega til að mæta upp-
söfnuðu tapi. Það var 720 milljón-
ir króna en er nú hálf milljón.
Lögmannsstofan Lex sendi um
áramótin hluthöfum Flögu bréf í
nafni Flögu Holdings og bauð
málamyndagreiðslu, eina krónu
fyrir hvern hlut í samræmi við
lækkun hlutafjár. Samkvæmt því
fær sá sem átti milljón hluti í
Flögu sjö hundruð krónur.
Starfsemi Flögu var flutt til
Bandaríkjanna fyrir tæpum
þremur árum og var flestu
íslensku starfsfólki sagt upp.
Engin starfsemi er hér í dag.
Fyrirtækið er með stærstu
svefnrannsóknarfyrirtækjum í
heimi.
Exista og gamla Kaupþing, við-
skiptabanki Flögu, voru stærstu
hluthafar félagsins. Flaga var
skráð í Kauphöllina þar til í maí í
fyrra. Bankinn var þjóðnýttur í
bankahruninu í október síðast-
liðnum og hefur Exista glímt við
verulega fjárhagsörðugleika upp
frá því. - jab
SVEFNTÆKIN SETT SAMAN Flaga, eitt af
stærstu fyrirtækjum á sviði svefnrann-
sókna, er á gjörgæslu eftir hremmingar
stærstu hluthafa. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
Flögu bjargað fyrir horn
Stærsti lánardrottinn svefnrannsóknafyrirtækisins Flögu hefur tekið félagið yfir.
TÍU STÆRSTU Í FLÖGU
Félag Hlutfall
Exista 22,01%
Kaupþing 19,15%
Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 11,33%
ResMed Inc 6,62%
Eignarhaldsfélagið Stofn ehf. 5,04%
Kaupþing ÍS-15 3,77%
BOP ehf. 3,54%
Helmke Ingrid Margret Priess 2,61%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 2,08%
Landsbankinn Luxembourg SA 2,03%
„Þessi eina samræmda fasteigna-
skrá hefur verið að byggjast upp
undanfarin ár og nú fannst mönn-
um eðlilegt að heiti stofnunarinn-
ar endurspeglaði þróunina,“ segir
Haukur Ingibergsson, forstjóri
Fasteignaskrár Íslands.
Fasteignaskráin er nýtt heiti
Fasteignamats ríkisins og tók
nafnabreytingin gildi um áramót.
Engar breytingar verða á starf-
semi stofnunarinnar.
Haukur segir að fram undir
aldamót hafi fasteignaskráin ein-
göngu verið haldin um fasteigna-
mat. Árið 1999 hafi brunabótamat
verið fært til fasteignamatsins og
þinglýsingar vegna fasteigna árið
2001. Síðar hafi verið færðar þang-
að jarðaskrá og lögbílaskrá og
loks í hittifyrra álagning fast-
eignagjalda og fasteignaskatts.
„Fasteignaskráin er eina upp-
lýsingakerfið sem er sameiginlegt
öllum sveitarfélögum og ríkinu.
Þetta endurspeglar hvað fast-
eignamálin koma víða við í samfé-
laginu,“ segir Haukur. - ikh
Fasteignaskrá verður til
Vöruskipti við útlönd voru hag-
stæð um 2,5 milljarða króna í
nóvember, samkvæmt tölum
Hagstofunnar.
Vörur voru fluttar út fyrir 43,2
milljarða en inn fyrir 40,6. Hag-
stofan bendir á að í þessum mán-
uði hafi meðalverð erlends gjald-
eyris verið 93,3 prósentum
hærra en í sama mánuði árið
2007.
Viðskiptajöfnuður í nóvember
árið 2007 var hagstæður um
fimm milljarða króna miðað við
gengið í nóvember í fyrra, að því
er fram kemur í yfirliti Hagstof-
unnar.
Hallinn á vöruskiptum við
útlönd fyrstu ellefu mánuði árs-
ins 2008 var tæpir 29 milljarðar
króna. Það er mikil breyting frá
árinu á undan þegar hallinn á
sama tímabili nam yfir 111 millj-
örðum króna. - ikh
Viðsnúningur milli ára
Exista bíður niðurstöðu málaferla
Kaupþings í Bretlandi og hefur
veitt bankanum aðgang að öllum
gögnum vegna undirbúnings máls-
höfðunar. Þetta kemur fram í til-
kynningu félagsins í gær.
Fram kemur að sem stærsti hlut-
hafi Kaupþings hafi Exista kannað
grundvöll málaferla vegna greiðsl-
u stöðvunar Kaupthing Singer &
Friedlander, dótturfélags Kaup-
þings í Bretlandi. „Í ljósi þess að
Kaupþing banki hefur afráðið að
höfða mál gegn breskum stjórn-
völdum, hyggst Exista bíða niður-
stöðu málaferla Kaupþings áður en
ákvörðun verður tekin um frekari
málarekstur,“ segir í tilkynning-
unni. - óká
Bíða niður-
stöðu málaferla
„Eftir að við sáum ummæli Þór-
dísar [J. Sigurðardóttur, stjórnar-
formanns Teymis] í fjölmiðlum
töldum við þau stangast á við sam-
runaáætlun Hive og Sko. Þá send-
um við inn kvörtun til Samkeppn-
iseftirlitsins á mánudag,“ segir
Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri
Símans.
Starfsmenn Samkeppniseftir-
litsins brugðust við kvörtuninni í
gær og leituðu gagna um áætluð
brot og samráð í skúffum, skotum
og ruslafötum í húsakynnum
Teymis og dótturfélaga. Að því
loknu tók tæknideildin til starfa
en hún tók afrit af rafrænum
gögnum úr tölvum starfsmanna.
Þórdís sagði í kjölfar brottrekst-
urs Hermanns Jónassonar, fyrr-
verandi forstjóra Tals, fyrirtæk-
inu óheimilt að gera samning við
önnur fyrirtæki en Vodafone um
aðgang að farsímanetum næstu
fimm árin. Hermann hafði áður
gert samning við Símann.
Samkeppniseftirlitið sagði í til-
kynningu í gær skilyrði fyrir sam-
runa Hive og Sko, sem nú starfa
undir merkjum Tals, hafa miðast
að því að tryggja samkeppnislegt
sjálfstæði Tals og að full og óskor-
uð samkeppni ríki á milli Tals og
Vodafone.
Jóhann Óli Guðmundsson,
stjórnarmaður Tals, sagði í greina-
gerð sem hann sendi frá sér í gær
samning Tals við Símann afar hag-
stæðan enda hafi vaxtakjörin
verið betri en Vodafone hafi boðið
auk þess sem fyrirtækið hafi svik-
ið samninga um verðbreytingu.
Í tilkynningu frá stjórn Teymis í
gær er ásökunum Samkeppniseft-
irlitsins, Símans og rangfærslum
minnihluthafa Tals vísað á bug.
Samtímis fagnar stjórnin því að
eftirlitið leiti af sér allan grun um
viðskiptahætti fyrirtækjanna og
hvetur til að rannsókn verði hrað-
að svo málið dragist ekki á lang-
inn. - jab
STAÐIÐ Í DYRUNUM Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður, ræðir hér við Snorra
Magnússon, lögreglumann, sem stóð vaktina í dyragættinni á meðan starfsmenn
Samkeppniseftirlitsins leituðu gagna innandyra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Húsleit hjá Teymi