Fréttablaðið - 08.01.2009, Síða 50
34 8. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
3 2FY
RI
R
3 FYRIR 2
AF ÖLLUM SKIPTIBÓKUM
Við borgum
þér fyrir þrjár en
þú borgar bara
fyrir tvær.
markaður
H
TH
T
Janúar og febrúar-dúettinn
er í hugum margra leið-
inlegasta tvíeyki ársins.
Þetta gildir þó ekki um
kvikmyndaáhugafólk enda
rekur á fjörurnar margar
af bestu kvikmyndum hvers
árs á þessu tímabili.
Reyndar hefst kvikmyndaárið
2009 með íslenskri kvikmynd,
heimildarmyndinni Sólskinsdreng
eftir Friðrik Þór Friðriksson, sem
fjallar um einhverfu. Myndin
hefur þegar vakið mikla athygli en
hún segir sögu Margrétar Dag-
marar, sem hefur reynt allt til að
koma syni sínum, Kela, til hjálpar.
Hann er ellefu ára og með hæsta
stig einhverfu. Í tilefni af frum-
sýningunni munu Taylor Crowe og
faðir hans, Dr. David Crowe,
sækja landið heim en Taylor er
með hæsta stig einhverfu líkt og
Keli. Nánar verður rætt við Mar-
gréti í helgarblaði Fréttablaðsins á
laugardaginn.
Þeir sem kjósa frekar þægilega
afþreyingu hafa einnig úr nægu
að velja. Will Smith skiptir um gír
í kvikmyndinni Seven Pounds
eftir sama leikstjóra og gerði Pur-
suit of Happyness. Í stað þess að
berjast fyrir tilvist heimsins þá
hyggst Smith breyta lífi sjö mann-
eskja eftir að hafa orðið sama
fjölda að bana í umferðarslysi.
Guy Ritchie snýr síðan aftur í
undirheima eftir að hafa reynt,
með fremur misheppnuðum hætti,
að koma kvikmyndaferli fyrrver-
andi eiginkonu sinnar á flug. Rict-
hie er á svipuðum slóðum og í
Snatch og Lock Stock en kvik-
myndin RocknRolla segir frá bar-
áttu breskra glæpamanna um
yfirráð yfir rússneskri fasteigna-
svikamyllu.
Meðal þeirra sem leika í
RocknRolla má nefna skoska
sjarmatröllið Gerard Butler sem
lék aðalhlutverkin í Bjólfskviðu
og 300. Mynd helgarinnar kemur
þó án nokkurs vafa frá meistara
Clint Eastwoood. Hún heitir
Changeling og skartar sjálfri Ang-
elinu Jolie í aðalhlutverki. Mynd-
inni hefur þegar verið spáð mikilli
velgengni á Óskarnum en hún
hlaut meðal annars tvær tilnefn-
ingar til Golden Globe-verðlauna.
Christine er einstæð móðir í miðri
heimskreppunni á þriðja áratug
síðustu aldar. Hún uppgötvar sér
til mikillar skelfingar að syni
hennar hefur verið rænt og reynir
að fá aðstoð lögreglunnar en talar
þar fyrir daufum eyrum. Í kjöl-
farið fara fjölmiðlar á stjá og upp
úr kafinu kemur að sonur Christ-
ine er ekki eina barnið sem hefur
horfið sporlaust.
Týnt barn og breskur krimmi
SÓLSKINSDRENGUR FRIÐRIKS Heim-
ildarmyndin Sólskinsdrengurinn hefur
þegar vakið mikla athygli, en hún fjallar
á mannlegan hátt um einhverfu.
ÓSKARINN Kvikmyndinni Changeling er spáð mikilli velgengni á Óskarnum en hún
skartar sjálfri Angelinu Jolie í aðalhlutverki.
Kvikmyndin The Dark Knight
gæti brotið blað í sögu Óskars-
verðlaunanna því nú telja flestir
að hún eigi öruggt sæti meðal
þeirra kvikmynda sem tilnefndar
verða til Óskarsverðlauna. Í vik-
unni var tilkynnt að samtök fram-
leiðenda hefðu tilnefnt hana sem
bestu kvikmynd ársins. Keppir
hún þar við Frost/Nixon, The Cur-
ious Case of Benjamin Button og
Slumdog Millionaire eftir Danny
Boyle. Áður hafði félag leikara í
Hollywood tilnefnt Heath Ledger
fyrir bestan leik í aukahlutverki.
Þetta gefur til kynna að andlát
Heaths Ledger sé kvikmyndagerð-
arfólki ofarlega í huga og telja
fréttaskýrendur að þetta muni
hafa mikil áhrif á tilnefningarnar
sem kunngerðar verða 22. janúar.
Reyndar urðu kvikmyndagagn-
rýnendur hálf hvumsa þegar til-
nefningar til Golden Globe voru
kynntar en The Dark Knight hlaut
ekki náð fyrir augum þeirrar dóm-
nefndar.
Annars gætu Óskarsverðlaunin
orðið um margt merkileg því flest-
ir telja hasarmyndina The Dark
Knight sigurstranglega en fast á
hæla hennar fylgir teiknimyndin
Wall-E sem margir telja að gæti
mætt sterk til leiks. Og það yrði
nú saga til næsta bæjar ef hasar-
blaðahetja og teiknimyndafígúra
myndu berjast um sigurinn í
Kodak-höllinni.
Dark Knight gæti
brotið blað á Óskarnum
SIGURSTRANGLEGUR Heath Ledger þykir eiga Óskarinn vísan fyrir frammistöðu sína
sem Jókerinn í Dark Knight. Margir binda jafnvel vonir við að hún verði kosin besta
mynd ársins.
Aðdáendur alvöru hasarmynda
ættu að leggjast á bæn og biðja
góðan guð um að vernda kvik-
myndina The Expendables. Því
ekki er nóg með að handritshöf-
undurinn sé Sylvester Stallone
heldur leikur kappinn líka aðal-
hlutverkið. Það eitt og sér ætti
náttúrulega að nægja fyrir aðdá-
endur Stallones, sem eru fjölmarg-
ir, en mótleikarar Sly í myndinni
eru af þeirri „stærðargráðu“ að
hörðustu harðhausunum gæti
vöknað um augun.
Í gær var nefnilega tilkynnt að
Mickey Rourke hefði bæst í leik-
hóp Stallone en fyrir eru þeir
Jason Statham, Jet Li, Dolph Lund-
gren og bardagameistarinn
Randy Couture sem aðdáendur
UFC ættu að kannast við. En
svo söguþráðurinn komist
örugglega til skila hafa þeir Ben
Kingsley og Forest Whitaker
samþykkt að leika í myndinni.
Myndin segir frá hópi þrettán
málaliða sem fá nánast ómögulegt
verkefni. Þeir eiga nefnilega að
steypa af stóli suður-amerískum
einræðisherra sem stjórnar landi
sínu með harðri hendi. Rourke
verður ekki hluti af þessum hópi
heldur leikur þessi fornfrægi leik-
ari vopnasala sem dregst óvænt
inn í atburðarásina.
Stallone er þegar byrjaður að
leita að tökustöðum og kemur
Brasilía vel til greina ef marka má
frétt á vefsíðu kvikmyndatíma-
ritsins Empire. Að endingu er svo
rétt að árétta að Stallone situr að
sjálfsögðu sjálfur í leikstjóra-
stólnum.
Hasarmyndahetjur sameinast
Bók danska rithöfundarins Anne
Fortier, Julia, hefur vakið mikla athygli
og bandaríski leikstjórinn James
Mangold hefur þegar tryggt sér
kvikmyndaréttinn. Þetta þykja kannski
ekki merkileg tíðindi nema að bók
Fortier kemur ekki út fyrr en árið 2010.
Hins vegar verður ekki annað sagt en að
söguþráðurinn sé æði merkilegur því
hún segir sögu Júlíu sem kemst að því
að hún er fjarskyldur ættingi þessara
þekktustu elskenda bókmenntasögunn-
ar. Fortier fer síðan með lesendur í
tímaflakk, frá miðöldum í Veróna til
dagsins í dag.
Rómeó og Júlía er meðal þekktustu
leikverka heims en það er meðal fyrstu
verka Williams Shakespeare. Leik-
verkið hefur verið kvikmyndað ótal
sinnum, þar frægust er kvikmyndaút-
færsla Baz Luhrman með þeim Claire
Danes og Leonardo Di Caprio í aðalhlut-
verkum. Bók Fortier olli miklum usla á
bókamessunni í Frankfurt í september
og margir kvikmyndaspekúlantar eru
sannfærðir um að þarna sé ákaflega
spennandi verk í smíðum sem eigi eftir
að henta hvíta tjaldinu fullkomlega.
Mangold er meðal færustu leikstjóra
Hollywood um þessar mundir en eftir
hann liggja meðal annars kvikmyndirn-
ar Girl, Interrupted; Walk the Line og
3:10 to Yuma. Hann er einn framleið-
enda að sjónvarpsþáttunum Men in
Trees sem sýndir hafa verið á Stöð 2 við
miklar vinsældir.
Tilbrigði við Rómeó og Júlíu
JÚLÍA James Mangold er sagður ætla
að leikstýra kvikmyndinni Júlíu sem
fjallar um afkomanda einhverra þekkt-
ustu elskenda í heimi, Rómeó og Júlíu.
> EMPIRE FRUMSÝNIR T2
Kvikmyndatímaritið Empire fékk að
skyggnast að tjaldabaki Transformers 2
sem Michael Bay leikstýrir. Fyrri mynd-
in naut gríðarlegra vinsælda og er T2
beðið með mikilli eftirvæntingu. Þeim
sem vilja finna smjörþefinn af hasarnum
er bent á heimasíðu Empire, empireon-
line.co.uk.
ÓTRÚLEGUR HÓPUR
Sly Stallone, Mickey Rourke og Dolph Lundgren í sömu mynd
er eitthvað sem allir alvöru harðhausar hafa beðið eftir.