Fréttablaðið - 08.01.2009, Page 58
42 8. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Iceland Express deild kvk
Valur-Hamar 61-60 (36-26)
Stig Vals: Signý Hermannsdóttir 23 (10 frák., 10
varin), Þórunn Bjarnadóttir 12 (8 frák.), Guðrún
Sesselja Baldursdóttir 12, Tinna Björk Sigmunds
dóttir 10 (6 stoðs.), Lovísa A Guðmundsdóttir 4
(14 frák., 4 varin).
Stig Hamars: La Kiste Barkus 25 (14 frák.), Dúfa
Dröfn Ásbjörnsdóttir 13, Íris Ásgeirsdóttir 9,
Hafrún Hálfdánardóttir 6, Fanney Lind Guð
mundsdóttir 6, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 1.
Signý Hermannsdóttir hjá Val varði síðasta
skot leiksins og tryggði sínu liði sigurinn og sér
þrefalda tvennu.
Grindavík-Keflavík 66-82 (39-40)
Stig Grindavíkur: Íris Sverrisdóttir 13 (7 fráköst),
Helga Hallgrímsdóttir 13 (6 fráköst), Ingibjörg
Jakobsdóttir 13, Lilja Sigmarsdóttir 8 (11 fráköst),
Jovana Stefánsdóttir 7 (9 fráköst), Berglind
Magnúsdóttir 5, Petrúnella Skúladóttir 5 (6
fráköst, 8 stoðs.), SandraGrétarsdóttir 2.
Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsdóttir 29, Pálína
Gunnlaugsdóttir 15, Hrönn Þorgrímsdóttir 10,
Marín Karlsdóttir 7, Ingibjörg Vilbergsdóttir 5,
Rannveig Randversdóttir 3, Halldóra Andrésdóttir
3.
KR-Snæfell 69-54 (35-29)
Stig KR: Margrét Kara Sturludóttir 17, Hildur Sig
urðardóttir 17, Sigrún Ámundadóttir 16, Guðrún
Þorsteinsdóttir 9, Guðrún Arna Sigurðardóttir 6,
Guðrún Ámundadóttir 4.
Stig Snæfells: Kristen Green 15, Berglind Gunn
arsdóttir 14, Sara Andrésdóttir 11, María Björns
dóttir 7, Gunnhildur Gunnarsdóttir 5, , Unnur
Ásgeirsdóttir 2.
N1 deild kvenna
Stjarnan-Grótta 30-17 (16-9)
Mörk Stjörnunnar: Þorgerður Anna Atladóttir 6,
Elísabet Gunnarsdóttir 4, Alina Petrache 4, Kristín
Jóhanna Clausen 3, Sólveig Lára Kjernested 3,
Hildur Harðardóttir 2, Harpa Sif Eyjólfsdóttir 2,
Fanney Ingvarsdóttir 2, Þórhildur Gunnarsdóttir 2,
Indíana Jóhannsdóttir 1, Ester Ragnarsdóttir 1.
Mörk Gróttu: Ragna Karen Sigurðardóttir 5,
Laufey Guðmundsdóttir 4, Elsa Óðinsdótitr 2,
Karólína Bærhenz 1, Hildur Andrésdóttir 1, Auður
Ómarsdóttir 1, Sigrún Jónsdóttir 1, Arndís María
Erlingsdóttir 1, Anett Köbli 1.
Enski deildarbikarinn
Derby-Man. Utd 1-0
1-0 Kris Commons (30.).
Skoska úrvalsdeildin
Motherwell-Hearts 1-0
1-0 Chris Porter (11.). Eggert Gunnþór Jónsson
spilaði allan leikinn hjá Hearts.
ÚRSLIT
> Emil í skiptum fyrir Dalla Bona?
Emil Hallfreðsson er á meðal þeirra leikmanna sem Regg-
ina er tilbúið að hlusta á kauptilboð í, samkvæmt Gabriele
Martino, yfirmanni íþróttamála hjá félaginu. Reggina leit-
ast nú eftir að styrkja leikmannahóp sinn og meðal þeirra
leikmanna sem orðaðir eru við félagið er Sam Dalla Bona
hjá Napólí, fyrrverandi leikmaður Chelsea og AC Milan.
„Dalla Bona er áhugaverður leikmaður en í augnablik-
inu erum við með of marga miðjumenn. Ef Emil færi frá
okkur myndi opnast möguleiki. Best væri náttúrulega að
skipta bara á leikmönnunum. Ég bíð nú bara eftir símtali
frá Napólí,“ sagði Martino í viðtali á
útvarpsstöðinni Radio Marte. Napólí
lýsti opinberlega yfir áhuga sínum á
Emil í fyrra en óvíst er hvort hann sé enn
á óskalista þess.
Ólafur Stefánsson skrifaði á þriðjudag undir tveggja ára samning við
þýska úrvalsdeildarfélagið Rhein-Neckar Löwen. Endapunkturinn á
skrautlega sögu er því kominn en Ólafur ætlaði upprunalega að
ganga í raðir danska C-deildarliðsins AG Handbold.
„Ég var búinn að ákveða þetta um jólin þegar ég fékk tíma til
þess að fara almennilega yfir málin. Þetta er náttúrulega mikil
áskorun og getur farið í allar áttir sem er spennandi. Ég vona
samt að þetta verði góð og skemmtileg reynsla,“ sagði Ólafur
sem segist einnig vera mjög spenntur fyrir því að leika með
Guðjóni Vali Sigurðssyni. Hjá Löwen hittir Ólafur einnig
fyrir stráka sem hann hefur áður kynnst á ferlinum.
„Það er einhver kaótísk ólga í mér sem fer í einhverja
óreiðu aftur. Þetta er orðið fínt á Spáni en Spánn er
besta land sem ég hef spilað í. Ég lærði mikið þar og
svolítil synd að fara frá þeim en ég held að það sé
ágætis leið síðustu tvö árin að gera eitthvað nýtt og
brjálað. Vonandi endar ferillinn svo vel, en takmark-
ið er að vinna deildina og Meistaradeildina. Það
er hin nýja áskorun,“ sagði Ólafur.
Hann mun leika undir stjórn Noka Serdarusic hjá Löwen en hann
gerði Kiel að stórveldi þau 15 ár sem hann þjálfaði þar.
„Þjálfarinn ku vera harður og erfiður en hefur árangurinn með
sér. Verður áhugavert að vinna með honum. Ég hef svo sem
lent í mörgum skrautlegum þjálfurum en þetta verður vonandi
skemmtilegt. Ég stefni á að taka þetta á gleðinni, njóta mín
og vonandi spila vel,“ sagði Ólafur sem mun væntanlega deila
skyttustöðunni með þýska landsliðsmanninum Holger
Glandorf sem Löwen reynir að kaupa þessa dagana.
„Hann er svakaleg stórskytta og fínn gaur líka. Ég
yrði bara þakklátur fyrir að fá einhvern góðan
með mér því ég hef ekki orku í að halda
uppi eins manns sýningu. Vonandi held ég
mínum 15 mínútum í hvorum hálfleik sem
ég stefni á að nýta mjög vel,“ sagði Ólafur
sem lék ekki sýningarleik í Þýskalandi í
gær eins og einhverjir fjölmiðlar höfðu
greint frá. Hann hafnaði boði um að taka
þátt í leiknum.
ÓLAFUR STEFÁNSSON: BÚINN AÐ SKRIFA UNDIR TVEGGJA ÁRA SAMNING VIÐ RHEIN-NECKAR LÖWEN
Ætla mér að taka þetta á gleðinni og njóta mín
HANDBOLTI Ísland hafnaði í fjórða
sæti á æfingamóti í Svíþjóð. Það
varð ljóst eftir að liðið tapaði fyrir
Túnis, 35-31, í bronsleiknum.
Strákarnir léku mjög vel lengst-
um og leiddu leikinn en köstuðu
frá sér sigrinum síðasta stundar-
fjórðunginn.
Strákarnir tóku sér nokkrar
mínútur í að hitna og þegar þeir
hrukku í gírinn hreinlega keyrðu
þeir yfir Túnisana.
Ásgeir Örn Hallgrímsson var
gjörsamlega óstöðvandi með fimm
mörk í fyrri hálfleik og að minnsta
kosti fjórar stoðsendingar. Flestar
á Róbert sem skilaði sínum bolt-
um í netið.
Það vantaði meiri skotógn fyrir
utan gegn Egyptum og Ásgeir
svaraði kallinu. Vörnin var síðan
mögnuð og Björgvin Páll stórkost-
legur þar fyrir aftan með ellefu
varin skot í fyrri hálfleik.
Strákarnir náðu mest sex marka
forystu, 14-9, en misstu forskotið í
tvö mörk fyrir hlé er leikar stóðu
15-13.
Ragnar Óskarsson meiddist í
fyrri hálfleik og það riðlaði nokk-
uð leikskipulaginu. Sóknarleikur-
inn ekki eins beittur í síðari hálf-
leik með Loga á miðjunni og
Sigurberg fyrir utan. Hvorugur
náði sér á strik rétt eins og Rúnar
Kárason sem fann sig alls ekki á
þessu móti.
Varnarleikurinn gaf einnig stór-
kostlega eftir í síðari hálfleik.
Strákarnir gerðu sig seka um að
sofna á verðinum, skila sér ekki
nógu hratt til baka og var refsað
með mörgum ódýrum mörkum.
Þeir héldu þó frumkvæðinu allt
þar til tíu mínútur lifðu leiks er
Túnis jafnaði, 20-20. Þá kom smá
kippur, Ísland komst yfir 24-22, en
þá hrundi leikur liðsins algjörlega
á báðum endum.
Túnisar gengu á lagið og hrein-
lega völtuðu yfir íslenska liðið á
lokamínútunum. Niðurstaðan
óþarfa fjögurra marka tap, 31-35, í
leik þar sem Ísland var lengstum
sterkari aðilinn.
„Þetta var mjög kaflaskipt. Við
vorum góðir í fyrri hálfleik en svo
fjaraði undan okkur þegar líða tók
á seinni hálfleikinn. Það kom
hræðilegur kafli þegar við misnot-
uðum þrjú dauðafæri í röð þegar
við hefðum getað náð tveggja
marka forskoti og það var dýrt
þegar upp var staðið,“ segir lands-
liðsþjálfarinn Guðmundur Guð-
mundsson.
Ragnar Óskarsson og Hreiðar
Guðmundsson meiddust báðir í
gær en Aron Pálmarsson og Einar
Hólmgeirsson voru búnir að togna
í nára fyrr á mótinu.
„Við máttum illa við því að
missa Ragga þar sem við erum nú
orðnir mjög þunnskipaðir. Við
eigum eftir að leggjast yfir þetta
og ákveða hvort við þurfum ekki
að kalla inn nýja leikmenn fyrir
æfingarmótið í Danmörku sem
byrjar á föstudag. Mögulega
gætum við kallað til einhverra
leikmanna sem eru að spila með
2012 landsliðinu í Frakklandi en
við sjáum til,“ segir Guðmundur.
- hbg / - óþ
Köstuðu frá sér sigrinum
Ísland tapaði fyrir Túnis, 31-35, í lokaleik sínum á æfingamóti í Svíþjóð. Eftir
fínan leik í 45 mínútur hrundi leikur íslenska liðsins eins og spilaborg.
Vináttulandsleikur:
Ísland-Túnis 31-35 (15-13)
Mörk Íslands (skot): Ásgeir Örn Hallgrímsson 6
(9), Logi Geirsson 6/2 (17/4), Róbert Gunnars-
son 5 (6), Vignir Svavarsson 4 (5), Rúnar Kárason
4 (8), Sigurbergur Sveinsson 2 (4), Sturla Ásgeirs-
son 2 (5), Ingimundur Ingimundarson 1 (1), Þórir
Ólafsson 1 (2).
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 17/2
(50/5) 34%.
ÖFLUGUR Ásgeir Örn Hallgríms-
son átti fínan leik gegn Túnis í
gær og skoraði sex mörk, en þar
af skoraði hann fimm mörk í fyrri
hálfleik.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
FÓTBOLTI Coca-Cola Championship
félagið Derby gerði sér lítið fyrir
og lagði Englandsmeistara
Manchester United 1-0 í fyrri leik
félaganna í undanúrslitum
deildarbikarsins á Pride Park í
Derby í gærkvöld.
Sir Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóri United, hvíldi marga
af lykilmönnum sínum gegn
Derby í gær og Coca-Cola
Championship félagið gekk á
lagið og gaf United ekkert eftir.
Það var því í raun alls ekki
gegn gangi leiksins þegar Kris
Commons kom Derby yfir með
þrumuskoti á 30. mínútu.
United komst lítt áfram eftir
mark Derby og því brá Ferguson
á það ráð að gera tvöfalda
skiptingu á 63. mínútu þar sem
stórstjörnurnar Cristiano
Ronaldo og Wayne Rooney komu
inn á til að fríska upp á leik
gestanna.
Ronaldo komst næst því að
skora fyrir United á 77. mínútu
þegar skot hans beint úr auka-
spyrnu fór rétt fram hjá marki
Derby en niðurstaðan var
óvæntur 1-0 sigur Derby.
Seinni undanúrslitaleikur
félaganna fer fram á Old Trafford
20. janúar. - óþ
Deildarbikarinn á Englandi:
Kris Commons
afgreiddi United
BARÁTTA Englandsmeistarar Man.
United lentu í stökustu vandræðum í
gærkvöld gegn Derby. NORDIC PHOTOS/GETTY