Tíminn - 11.07.1982, Blaðsíða 4

Tíminn - 11.07.1982, Blaðsíða 4
4 Ll-iiháTjí ;í ■. u« SUNNUDAGUR 11. JUIi 1982. ■ Við Breitner vomm náttúrulega keppinauUr, en að ððru leyti kom okkur ágxttega saman. Tímamyndir An. ■ „Paul Breitner var eini leikmaðurinn sem Pal Cemai rxddi almennilega við,“ segir Ásgeir. Rabbað við Ásgeir Sigurvinsson: ■ Við Pal Cemai rxddumst ekki við síðustu dagana sem ég var hjá Bayera. ■ Aðeins sautján ára gamall lék Ásgeir Sigurvinsson sinn fyrsta landsleik fyrir ísland. Ári síðar hleypti hann heimdraganum og gerðist atvinnumaður með einu frægasta félagsliði Belgíu, Standard Liege. Þar var hann í ein átta ár, eða þar til hann gerði samning við eitt virtasta félagslið Evrópu, Bayern Miinchen, fyrir rúmu ári. Þótt ekki hafi gengið sem skyldi hjá Bayern, leikur enginn vafi á því að Ásgeir er sá íslendingur sem lengst hefur náð á knattspyrnusviðinu. Hann er meðal fremstu knattspyrnumanna í Evrópu. Eins og flestir vita varð dvöl Ásgeirs hjá Bayem styttri en ætlað var af mörgum. Nú nýlega hefur hann verið seldur til Stuttgart, sem um árabil hefur verið meðal fremstu liða i Bundesligunni þýsku. Ásgeir er nú staddur hér á landi í stuttu fríi. Við fengum hann í viðtal og spurðum fyrst hvort dvölin hjá Bayern hefði valdið vonbrígðum. „Jú. I>að er óhætt að segja það. Ég hefði auðvitað kosið að dæmið hefði gengið upp og ég hefði getað verið áfram hjá félaginu. En það var margt sem olli erfiðleikum. í fyrsta lagi var ég meiddur þegar félagaskiptin frá Stand- ard áttu sér stað. Ég gat ekki tekið þátt í æfingaprógramminu í byrjun og það leiddi til þess að ég byrjaði mun seinna heldur en aðrir leikmenn. Engu að síður komst ég fljótlega í ágætis keppnisform og fékk að spila nokkra leiki. En svo meiddist ég aftur og missti eina tíu daga úr. í liði Bayern Múnchen er valinn maður í hverju rúmi, þannig að þjálfarinn hafði úr nægum mannskap að velja og auk þess hafði hann orðið meistari með þetta lið í tvö ár og því var hann ekkert áfjáður í brcytingar. Þannig að eftir seinni meiðslin fannst mér ég ekkert vera ínní í dæminu hjá honum. Ræddumst ekki við síðustu mánuðina“ Eftir að ég varð þess var, varð ég náttúrulega ekkert hrifinn. Ég sá fram á það að Cemai ætlaði ekkert að nota mig, nema kannski sem einhverja varaskeifu. Ef á heildina er litið þá má kannski segja að vera mín hjá Bayem Múnchen sé tapað ár. Þótt auðvitað búi ég að þeirri reynslu sem ég öðlaðist og hún komið að góðum notum seinna meir. Mér hefur gengið vel alveg frá byrjun, eiginlega gengið allt í haginn. Þess vegna er kannski gott að kynnast hinni hliðinni á atvinnuknattspyrnunni líka. Það þurfa svo margir knattspyrnumann að gera.“ - Hér á íslandi hefúr heyist að Pal Ceraai, þjálfari Bayera, hafi haft hora i siðu þinni af einhverjum ástæðum? „Það var stirt á milli okkar alveg frá byrjun. Ástæðurnar fyrir því em mér engan veginn ljósar. Ég veit ekki til að ég hafi gert nokkuð á hans hlut. Siðustu mánuði mína hjá Bayem ræddumst við varla við. Svo ég var löngu fyrir Iok keppnistimabilsins búinn að gera það upp við mig, að annað hvort færi hann frá félaginu eða ég. Þegar ljóst var að hann yrði áfram var ekkert annað fyrir mig að gera en sætta mig við orðinn hlut og leita á ný mið.“ - Þið hafið aldrei rxtt þessi mál opinskátt? „Nei. Cemai hleypir mönnum ekki svo nálægt sér að hægt sé að ræða hlutina við hann. Hann er maöur sem álítur að allt sem hann segir séu lög sem aldrei verður hnikað. Hann heldur sig alltaf í ákveðinni fjarlægð frá leikmönnum. Það var helst að Breitner ræddi eitthvað við hann og hefði einhver áhrif. - Það hefúr kannski haft neikvæð áhrif á þig? „Við Breitner vomm náttúrulega keppinautar, en hvort hann hefur reynt að ýta mér til hliðar skal ósagt látið. Ég kunni ágætlega við Breitner." Ekki tóm kvöl og pina - Margir halda þvi fram að Breitner hafi óttast þig vegna þess að þið spilið sömu stöðu? „Það kann vel að vera. En það er bara eins og gengur í atvinnumennskunni, menn keppa mjög innbyrðis." - Hvemig er andinn hjá Bayem? „Yfirleitt er hann góður. Þeir héldu síg svolítið sér á parti Breitner og Rummenigge, en að öðm leyti var mikil samheldni meðal leikmanna." - Þú hlýtur að hafa átt einhverja góða daga i Múnchen? „Jú að sjálfsögðu átti ég margar skemmtilegar stundir. Þótt illa gengi var þetta ekki tóm kvöl og pína. Múnchen er mjög skemmtileg og falleg borg. Og svo er líka gaman að vera hjá svona liði, þar sem aðstaðan er sú besta sem boðið er upp á í heiminum. Samanborið við Belgíu er mjög gott að leika knattspymu í Þýskalandi, atvinnumenskan er mikið þróaðri og á mikið hærra plani.“ - Hvað spilaðir þú marga leiki með Bayera? „Ætli ég hafi ekki spilað eina tuttugu leiki, sem flestir vom æfingaleikir. Um tíma gekk mér mjög vel, eða allt þar til að ég meiddist í seinna skiptið. Sá timi var mjög skemmtilegur.“ -Nú ert þú að fara til Stuttgart. Er það skref aftur á bak? „Ég veit nú eiginiega ekki hvað ég á að segja um það. Þótt ekki hafi gengið sérstaklega vel hjá Stuttgart i vetur hefur það verið topplið undanfarin ár. Verið meðal fimm bestu liðanna i Bundesligunni. Og það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt við það að færast á miili toppliða. Það em líka til skýringar á því hvers vegna Stuttgart gekk ekki sem skyldi i vetur. Það var ósamlyndi milli Försters- bræðranna og þjálfarans sem endaði með því að þjálfarinn var rekinn og nýr ráðinn i hans stað. Sá nýi heitir Bent Haus, Þjóðverji, sem Iengi hefúr þjálfað í Bem i Sviss með góðum árangri. Það var eiginlega Haus sem fór fram á það við framkvæmdastjórann að ég yrði keyptur, og þvi reikna ég með að samstarf okkar eigi eftir að vera gott. Einnig á ósamlyndið að vera úr sögunni, svo það ætti ekkert að vera því til

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.