Tíminn - 11.07.1982, Blaðsíða 7

Tíminn - 11.07.1982, Blaðsíða 7
SUNNUDAGUR 11. IÚLÍ 1982. 7 Úrslitaleikur HM 1982 Ítalía - Vestur-Þýskaland: Meiðsli hrjá leik- menn beggja liða ■ Euio Bcarzon, þjálfarí italska iandsliðsins var hér á árum áður cinn af bestu leikmönnunum i hinum frægu liðum Inter Miiano og Torino, en náði aðcins að lcika einn iandsieik. í þessum iandsleik gegn Ungveijum, fékk Bearzot það hlut- verk að g*ta hins fræga Ferenc Puskas. Bearzot réð ekkert við Puskas, sem skoraði annað mark Ungverjanna i 2-0 sigrí þeirra. Eftir þetta fékk Bearzot aldrei aftur tækifaeri á að leika með landsliðinu. í HM 1974 gekk ítölunum mjög illa og var ákveðið að byggja upp nýtt landslið. Árið eftir var Bearzot beðinn um að aðstoða þáverandi landsliðsþjáifara Fulvio Bemardini og nokkrum ámm seinna tók Bearzot alveg við stjórninni. Lið ítala hefur náð frábxram árangri undir stjóm Bearzot, m.a. 4. sxti í HM i Argentinu og 2. sæti i siðustu Evrópukeppni iandsliða, árið 1980. ÞJÁUFARARXIR ■ Hinn 55 ára gamli Jupp Derwall tók við vestur-þýska landsliðinu af hinum fræga Helmut Schön eftir að hafa verið aðstoðarmaður hans i 8 ár. Eftir að Derwall var tekinn við stjórninni tapaði landsliðið ekki leik i tvö og hálft ár eða i 23 leikjum. Landslið Vestur-Þjóðverja hefur borið höfuð og herðar yfír önnur landslið í Evrópu siðustu árin og á Denvall mikinn þátt í þessari velgengni liðsins. í undankeponinni fyrir HM sigmðu Þjóðverjarnir i öllum leikjum sinum og það vom þvi miklar vonir bundnar við frammi- stöðu þeirra i úrslitakeppninni, vonir sem hafa vissulega ræst. Hér áður fyrr var Derwall varnar- maður hjá Fortuna Dusseldorf og vestur-þýska landsliðinu. Eftir að ferli hans inná vellinum lauk, gerðist hann þjálfari fyrst hjá Saarland og siðar bjá landsliðinu. Frá Erik Mogensen, fréttamanni Tímans á Spáni: ■ „Ég reikna með því að úrslitaleik- urinn verði erfiður fyrir leikmenn mina. En það er samt ekki aðalvandamálið. Nokkrir leikmannanna era meiddir og aðrir era með magakveisu. En ég vona, að þetta lagist og við getum mætt ítölum með fullskipað lið, sem fært er að veita þeim öfluga keppni,“ sagði þjálfari Vestur-Þjóðverja, Jupp Derwall, í blaðaviðtali i dag (föstudag). Þjálfari ftala Enzo Bearzot, á við svipuð vandamál að striða og Derwall, nokkrir leikmann hans eiga við meiðsl að stríða og ekki verður ljóst strax hvernig liðsskipan ítalska liðsins verður í úrslitaleiknum. Mi'kil stemmning er nú fyrir úrslita- leikinn á Bernabeu-leikvanginum í Madrid og má segja að ítalirnir upplifi nú eina samfellda „fiestu“, ltalirnir hér láta mikið á sér bera, drekka rauðvin ótæpilega, syngja og dansa. Á ítaliu er gleðskapurinn með ólíkindum, og jafnt ungir sem gamlir hrifast með í glauminn. Þá hefur það frétst að Jóhannes Páll, páfi, hafi fylgst með leik Ítalíu og Póllands, en ekki fer sögum af því með hvoru liðinu hann hafi haldið, (Jóhannes Páll er pólskur að uppruna). f Þýsklandi rikir mikil ánægja með frammistöðu landsliðsins og eru knatt- spyrnuáhugamenn þar nokkuð öruggir um að þeirra lið muni hreppa HM-titil- inn að þessu sinni. Reiknað er með að leikvangurinn í Madrid verði þéttsetinn áhorfendum þegar úrslitaleikurinn fer fram, en þar rúmast um 90 þúsund manns. EM/IngH Isuzu verksmiöjurnar eru heimsfrægar fyrir framleiðslu sína á pick-up bílum og þær njóta alþjóðlegrar viður- kenningar fyrir vinnuvéla- og vörubílagerð. Isuzu pick-up með drifi á öllum hjólum uppfyllir óskir hinna kröfuhörðustu og gerir enn betur. Isuzu pick-up hentar jafn vel sem flutningatæki og ferðabíll. Isuzu pick-up er laglegur, lipur og leggur lýgilega vel á. Isuzu pick-up hefur óhemju burðarþol og 4-hjóla drifið gerir honum alla vegi færa. Isuzu pick-up vönduð vinnubifreið með aksturseiginleika, útlit og þægindi fólksbifreiðar. Komið og kynnið ykkur hvers vegna Isuzu pick-up nýtur heimsfrægðar. VELADEILD Á rmúla3 C 38900 LEIKFÖNG í ÚRVALI LEIKFA NGA VERSL UN HALL VE/GARSTÍG 7 SÍM/26070

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.