Tíminn - 11.07.1982, Page 22
22
'&****»* • ái.TitéT.'i'-f’é- •*'*- *'*■ ~ >*«*»»■•»«* * *’*■»'* •*.T4 .'■* * -»■ **■*-*=,#■!■*
SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1982.
nútrminn
Umsjón Friðrik Indriðason og Viðar Karlssonj
Tónleikar Comsat Angels falla niður:
„NEITA ALFARID AÐ
LEIGJA OKKUR HÚSIД
— segir Guðni Rúnar Agnarsson um Félagsstofnun stúdenta en þar
áttu tónleikarnir að vera
■ Ljóst er að ekkert verður af
tónleikum The Comsat Angels sem áttu
að vera i Félagsstofnun Stúdenta nú um
hclgina þar sem forráðamenn F.S. hafa
neitað að leigja húsið undir tónleikana.
„Þeir neita alfarið að leigja okkur
húsið en við höfum munnlega samninga
um að fá húsið, samninga sem voru
margítrekaðir, auk þess sem við höfum
lengi átt samskipti við þetta fólk“ sagði
Guðni Rúnar Agnarsson í samtali við
Nútímann en hann hefur borið hitann
og þungann af undirbúningnum fyrir
komu Comsat.
Ástæðan fyrir þvi að forráðamenn
F.S. neita að leigja húsið mun vera sú
að á siðustu tónleikum sem voru haldnir
þar fyrir rúmri viku urðu mikil ólæti auk
þess sem eitthvað af húsbúnaði var
brotið. Urðu hótelgestir á Garðinum
fyrir miklu ónæði af þessum sökum.
Guðni Rúnar sagði að mikið hefði
verið reynt til að fá annað húsnæði, rætt
hefði verið við eina 20 aðila en enginn
hefði viljað taka tónleikana... „við
áttum ekki 20-30 þús. kr. til að leggja á
borðið" sagði Guðni... “en þá hefðu
allar dyr verið opnar".
Fram kom hjá Guðna að miklum tíma
hefði verið eytt í undirbúning fyrir þessa
tónleika og væri sú vinna öll ónýt nú.
„Það er leiðinlegt að geta ekkert gert,
hljómsveitarinnar vegna, en við buðum
þeim í staðinn að koma hér við í
bakaleiðinni frá Bandarikjunum, þar
sem þeir verða á tónleikaferðalagi,
þannig að hugsanlega verða tónleikar
með þeim að þremur vikum liðnum en
það gætu alveg eins liðið þrjú ár þar til
þeir koma“ sagði Guðni. . FRI
Þrumuvagninn á fullu
Timamynd FRI
Þrumuvagninn, Baraflokkurinn og
Tappi tíkarrass á SATT-tónleikum:
GOÐUR KOKTEILL
■ SATT tónlcikar voru i Klúbbnum
sl miðvikudagskvöld og komu fram
Þrumuvagninn, Baraflokkurinn og
Tappi tíkarrass en segja verður að
þessir tónleikar hafi veríð mjög góður
kokteill. mikil stemmning og ágætur
leikur allra hljómsveitanna.
Barafiokkurinn var að byrja leik
sinn er ég kom i Klúbbinn en
einhverjir erfiðleikar voru með tækin
i byrjun. Það bjargaðist þó, enda
margir góðir mættir á staðinn til að
gefa góð ráð eins og td. Bubbi
Morthens. Baraflokkurinn hóf pró-
grammið með þvi að taka nokkur lög
af nýjustu breiðskifu sinni Li/t en
síðan tilkynnti Ásgeir Jónsson söngv-
arí að sveitin myndi taka „smáblúes"
eins og hann orðaði það. Þetta var eitt
besta atríði kvöldsins þvi maður fékk
svipaða tilfinningu af að hlýða á
þennan blúes eins og maður fær af þvi
að sjá Humphrey Bogart leika i
kvikmynd.
I hléinu á milli Barafiokksins og
Þrumuvagnsins skrapp maður svo upp
á efri hæðina og hlýddi á Tappa
tíkarrass. Sú sveit kom mér verulega
á óvart, bráðhress og fjörugur leikur
einkenndi spilið og skartar sveitin
einni efnilcgustu söngkonu sem ég hef
séð lengi, Björk Guðmundsdóttur, en
hún virkaði á mig eins og miniblanda
af Toyah Wilcox og Joan Jett.
Þrumuvagninn lauk svo tónleikun-
um, en þeir eru besta þungarokksveit
sem við eigum nú. Hörkugóður blús
einkcnndi leik þeirra framan af en svo
var skipt yfir i þungt og hart rokk i stíl
við Detroitrokkið.
SATT virðist vera að hressast eftir
nokkra lægð og vonandi halda þeir
áfram tónleikahaldi i stíl við tónleik-
ana i Klúbbnum á miðvikudagskvöld.
- FRI
Björk Guðmundsdóttir
limamynd FRI
■ „...miniblanda af Toyah Wilcox og Joan Jett'
söngkona Tappa tíkarrass.
Rokkhátíð
í Reykjavík
■ Rokkhátíð verður haldin hér í
Reykjavik dagana 20.-23. júli, að
báðum dögum meðtöldum og hefst hún
á tónleikum Egó og Grýlnanna í
Austurbæjarbió að kvöldi þess 20. júlí.
Eru það jafnframt einu tónleikarnir
þessa dagana sem ekki er aldurstakmark
inn á.
Næstu kvöld verða svo tónleikar á
Hótel Borg og hljómsveitimar sem
koma fram þessi þrjú kvöld eru ma.
Egó, Bodies, Q4U, Grýlurnar, Purrkur
Pillnikk og Fræbblarnir.
Ekki er endanlega búið að ganga frá
niðurröðun hljómsveita á þessi kvöld en
nánar verður greint frá því hér á
næstunni.
- FRI
Egó verður meðal þeirra sem taka þátt í rokkhátiðinni.
EYELESS
IN GAZA
MEÐ TÓN-
LEIKA HÉR
■ Breska hljómsveitin Eyeless in Gaza
mun væntanlega halda tónleika hérlend-
is í ágústmánuði og var ætlunin að þeir
léku í Félagsstofnun stúdenta.
Eyeless in Gaza er skipuð tveimur
mönnum þeim Martin Bates og Peter
Becker. Þetta eru fjölhæfir náungar t.d.
spilar Becker á bassa, trommur og
hljómborð, stundum á tvö síðast nefndu
hljóðfærin samtimis. Bates sér um
gítarleik og söng en grípur einnig i
hljómborðið.
Tónlist þeirra félaga erljúfarmelóndi-
ur á nýbylgju/nýrómantíkur sviðinu en
þeir hafa gaman af þvi að gera ýmsar
tilraunir með tónlist sína.
Eyeless in Gaza hafa gefið út þrjár
breiðskifur og nokkrar litlar plötur á
Cherry Red merkinu en þekktasta plata
þeirra er Caught in Flux. Nýlega gáfu
þeir út plötu í Noregi Pale Hands og
annar þeirra félaga Bates vinnur nú að
sólóplötu i Belgíu.
- FRI
nýrómantík
H Hljómsveitin BOX hefur sent
frá sér sína fyrstu breiðskífu,
Skuggahliðin, en þeir félagar í BOX
eru á nýrómantíkurbylgjunni og
glettilega góðir sem slíkir. Það helsta
sem skortir á hvað varðar hljóðfæra-
leikinn er fjölbreytni og meiri kraftur
en hinsvegar eru textar þeirra
bráðskemmtilegir og sem frumraun
lofar platan góðu.
Ég get ekki stillt mig um að birta
einn nettan texta af plötunni, en
hann er i laginu „Ferming fyrir
meðalaðsókn“:
„Meðalaðsókn þótti dræm
að undirbúning prestsins
fermingarbamið sat við bæn
um peningagjafir gestsins
Upp, upp min aurasál
í fullorðinna tölu
buddan orðin þung sem stál
hugsjónin til sölu.
Komið er að kvöldi dags
peningarflóðið dvínar
drottinn h'tur til sólarlags
á aurasálir sínar.
Hljómsveitin BOX er skipuð þeim
Baldri Þóri Guðmundssyni (hljóm-
borð, gervipíanó, trommur, kór)
Óskari Þór Nikulássyni (Gítar,
gervigítar, kór) og Sigurði Sævars-
syni (Söngur, gervibassi, trommur,
saxófónn) en Sigurður er jafnframt
atkvæðamestur þeirra félaga í texta-
gerðinni. Platan er tekin upp í
upptökuheimili Geimsteins, hljóð-
blöndun annaðist Þórir Baldursson.
- FRI
P.S. Það má geta þess hér að ég
hafi mun meiri ánægju af því að spila
stóran hluta lagana á 45 snúningum.
sveitaball
■ Hljómsveitin Bismark hefur sent
frá sér breiðskífuna „Ef vill“. Fyrri
hlið plötunnar eru „traust" sveita-
ballalög en á seinni hliðinni koma
greinileg blús - áhrif fram og gætu
strákamir kannski eitthvað gert á
því sviði. Hljómsveitina skipa þeir
Magnús Axel Hansen, (gftar), Jó-
hann Steindórsson (trommur) og
Garðar Harðarson (gítar, bassi,
hljómborð, munnharpa, söngur,
raddir) en Garðar semur jafnframt
öll lög og texta á plötunni fyrir utan
„Anna í Hlíð“.
- FRI