Tíminn - 26.08.1982, Qupperneq 1

Tíminn - 26.08.1982, Qupperneq 1
Kosningabaráttan harðnar í Svíþjóð — bls. 8-9 TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTTABLAÐ Fimmtudagur 26. ágúst 1982 192, tbl. - 66. árgangur Erlent yfirlit: Ábyrgir andstæd sngar — bls. 7 Milljóna- andlitid - bls. 10-1 arknapar - bls. 19 Danir vilja Nicole - bls. 2 VINNUVEITENDUR SPA 50% VERDBÓLGU1983 — frá upphafi til loka ársins, í Ijósi nýgerðra efnahassráðstafana ■ Um 65% verðbólga á fyrri helm- ingi næsta árs, um 16 krónu Banda- ríkjadollari um næstu áramót og tæplega 23ja krónu dollari í lok ársins 1983 eru helstu niðurstöður nýrrar spár Vinnuveitendasambandsins um þróun verðlags, gengis og launa tU loka næsta árs. VSÍ spáir því að verðbólgan fari vaxandi á næstu mánuðum en síðan fari hún að hægja á sér síðari hluta næsta árs. Hækkun framfærsluvísitölu telur VSl verða um 65% frá upphafi til loka ársins 1982 en tæp 50% frá upphafi til loka ársins 1983. Hækkun vísitölunnar umliðið ár, þ.e. frá ágúst 1981 til ágúst 1982 segir VSÍ vera 49,1%. Samsvarandi eins árs hækkanir telur VSÍ að muni snaraukast næsta hálfa árið og verða allt upp í 66.4% frá maí 1982 til maí 1983. Eftir það sígi vísitalan aftur niður í 49,1% frá febrúar 1983 til febrúar 1984. f forsendum að þessari spá gengur VSÍ út frá því að tilhögun verðbóta verði óbreytt, umsamdar grunnkaups- hækkanir í janúar og mars n.k., fiskverð hækki eins og laun, við- skiptakjör breytist lítið, vextir verði óbreyttir, svo og skattar og niðurgreiðslur landbúnaðarafurða.HEl ■ „Blessaður vertu, Eggert á eftir að styðja stjórnina aftur. Hann var byrjaður á þessu tali um að fara í stjórnarandstöðu, þegar hann var á mínum aldri.“ (Tímamynd Ari) Meinatæknar og röntgentæknar ganga út um mánaðamót verði ekki samið við þá: ^ „MEIRIHATTAR AfALL” — segir Davíð Gunnarsson, forstöðumaður ríkisspítalanna ■ „Það er auðvitað meiriháttar áfall, ef meinatæknar hætta störfum,“ sagði Davíð Gunnarsson forstöðumaður ríkisspítalanna við Tímann. Meinatæknar og röntgentæknar hafa sagt upp störfum og hætta störfum hjá sjúkrahúsum ríkjs og Reykjavíkur, ásamt nokkrum héraðs- sjúkrahúsum um næstu mánaðamót, mfBHIillwffMfWBii hafi ekki tekist samkomulag þeirra og Fjármálaráðuneytisins fyrr. í dag verður haldinn fundur milli deiluaðila, og sagði Davíð að nokkur ástæða væri til bjartsýni um að samkomulag náist. Guðrún Árnadóttir formaður Meinatæknafélags íslands var ekki eins bjartsýn og taldi horfurnar breytilegar eins og veðrið. Meinatæknar og röntgen- nas tæknar telja að farið hafi verið aftan að þeim við gerð samninga við heilbrigðisstéttirnar. Þegar hjúkr- unarfræðingar sögðu upp störfum sínum fyrr á þessu ári, vildu hinir ekki segja upp, heldur láta reyna á samningaleiðina. Sú aðferð reyndist þeim þó ekki vel, því þeir sátu eftir í samningunum og sáu sitt óvænna að fara troðnar slóðir og segja upp störfum til að fá lagfæringu launamála sinna. Báðar starfsgreinamar, meina- tæknar og röntgentæknar em afar þýðingarmiklar á nútíma sjúkra- húsum, þar sem allar sjúkdóms- greiningar byggjast á rannsóknum, sem þeir framkvæma. SV

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.