Tíminn - 26.08.1982, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 26. AGUST 1982
19
og leikhus - Kvikmyndir og leikhús
kvikmyndahornid
Nedanjarð-
arknap-
arnir
■ Hérerætluninadljúkakynningu
á þeim myndum Amerísku kvik-
myndavikunnar sem ekki hefur verið
getið um hér en kvikmyndavikan
hófst að nýju í dag. t>ær myndir sem
ekki hafa verið kynntar eru „Hjarta-
land“, „Tylftirnar", og „Neðan-
jarðarknapamir".
Neðanjarðarknaparnir er inn-
blásin og myndræn lýsing leik-
stjórans Amos Poe á lífi fimm
persóna sem búa á neðrihluta
Manhattaneyju. Söguhetjan er An-
tony Zondo geðklofa saxófónleikari
sem bendlaður er við nokkur morð.
Aðrir sem við sögu koma er nágranni
Zindo, lesbísk vændiskona, leyni-
lögreglumaður sem vinnur að lausn
morðgátu, kona hans sem er eitur-
lyfjaneytandi og kona sem hefur
miðilshæfileika.
Poe dregur upp dökka mynd af
borgarlífi nútímans, persónur hans
þræða grýttar brautir þar sem
örvæntingin ræður ríkjum.
Styrkur myndarinnar felst af-
stæðri túlkun Poe á hræðslu, and-
úð, og ’ sjálfseyðingarhvöt
mannsins og þeirri skoðun hans að
þessi öfl séu helstu hornsteinar
nútímaþjóðfélagsins.
Hjartaland byggir á dagbókum
raunverulegrar landnemakonu sem
bjó í Wyoming upp úr aldamótum.
Hún er gerð af Richard Pearce og
hlaut Gullbjörninn í Berlín 1981.
Árið 1910 flutti Elinore Randall
frá Denver til Wyoming, ásamt
dóttur sinni, en hún hafði ráðið sig á
bóndabæ til Skota nokkurs sem
ráðskona. í hönd fóru erfiðir tímar
fyrir Elinore því nýi húsbóndinn var
allt annað en vingjamlegur til að
byrja með og henni er beinlínis
varpað inn í hinn harða heim
frumbyggjans þar sem karlmaðurinn
hefur öll völd og lífið snýst um
hrossakaup, nautgriparækt og klúra,
brandara.
Vincent Canby kvikmyndagagn-
rýnandi The New York Times gefur
þessari mynd mjög góða dóma og
scgir m.a. í umfjöllun sinni um hana
að hún sé stöðug og raunveruleg
lýsing á fólki því sem hún fjallar um.
Söguhetjurnar líti út og hagi sér eins
og þau séu vel í stakk búin til að
takast á við hið versta í náttúrunni
og geti síðan brosað að því á eftir.
Tylftirnar er gerð af Christine Dall
og Randall Conrad og hlaut hún
fyrstu verðlaun á U.S. Film Festival.
Myndin er áhrifamikil og næm lýsing
á lífi ungrar stúlku sem reynir að
samræmast þjóðfélaginu á nýjan leik
eftir tveggja ára dvöl í fangelsi fyrir
ávísunarfals.
í fangelsinu hefur sögupersónan
einangrast og tilraun hennar til að
hefja nýtt líf er erfið.
- FRI
Friðrik
lndriðason
skrifar
Glímuskjálfti í gaggó
Okkar á milli í hita og
þunga dagsins
Just youand me,kid
Flóttinn frá New York
Síðsumar
Einvígi kóngulóarmannsins
Sólin ein var vitni
Amerískur varúlfur í London
Framísviðsljósið
Hvellurinn
Stjörnugjöf Tímans
* * * * frábær • * * * mjög góö * ★ * góö * * sæmlleg * 0 léleg