Tíminn - 31.08.1982, Blaðsíða 6
ÞRJÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1982
stuttar fréttir
„Allt er þó
betra en at-
vinnuleysid”
Vík í Mýrdal: „Menn eru almennt
nokkuð sáttir við tilveruna,“ svaraði
Símon Gunnarsson í Vík m.a. er
Tíminn spurði hann almennra tíð-
inda þar um slóðir. „Þurrkurinn kom
seint, en spretta var mikil og menn
hafa almennt lokið heyskap og eiga
mikil hey“, sagði Símon.
Spurður um álit manna þar eystra
á því sem efst hefur verið á baugi í
umræðum manna að undanförnu -
efnahagsráðstöfununum - sagði Sí-
mon það sjálfsagt upp og ofan.
Líklega teldu þó flestir vænlegra að
gera eitthvað fremur en ekkert. „Ef
að þetta gengur svona án þess að til
atvinnuleysis komi, þá held ég að
það sé hægt að una þessu, þó menn
séu auðvitað ekkert hressir með að
alltaf skuli farið ofan í vasa
launafólks og skertir þeir samningar
sem gerðir hafa verið. Það er ekkert
skemmtilegt. En allt er þó betra en
atvinnuleysið“, sagði Símon.
Finnbogi
ráðinn í
Eyjafjörðinn
Eyjafjörður: Stjórn Iðnþróunar-
félags Eyjafjarðarbyggða h.f. ákvað
nýlcga á fundi sínum að ráða
Finnboga Jónsson, verkfræðing sem
framkvæmdastjóra félagsins. Er gert
ráð fyrir að hann hefji störf hjá
félaginu í byrjun nóvember n.k.
Umsóknarfrestur uni starf þetta
rann út hinn 30. júní sl. Alls bárust
sex umsóknir, en einn umsækjandi
dró umsókn sína til baka.
í frétt frá félaginu segir að
allmargir hafi sýnt félaginu og
framtíðarstarfsemi þess áhuga og
boðið fram þjónustu sína á sviði
rannsókna og ráðgjafar.
Nýr laxa-
stigi tekinn
í notkun
Austur-Húnavatnssýsla: Nýr laxa-
stigi hefur verið tekinn í notkun í
Ytri-Laxá í A-Hún. Með stiga
þessum opnast um 30 kílómetra
vatnasvæði í tveim ám, Ytri-Laxá og
Norðurá og vonast menn til að með
stiga þessum stóraukist laxveiði í
ánum, cnda telja fiskifræðingar
Veiðimálastofnunar mjög efnileg
uppeldisskilyrði vera á þessu vatna-
svæði.
Laxastiginn er sex metra hár í
djúpu gljúfri. Aðstæður við gerð
hans voru mjög erfiðar, t.d. þurfti að
láta steypu og annað byggingaefni
síga niður að mannvirkinu ofan af
18—20 metra háu bjargi. Unnið var
að sprengingum á síðasta sumri, en
í sumar var stiginn steyptur. Stiginn
er hannaður af Guðmundi Gunnars-
syni verkfræðingi, en verktakar voru
Jóhann Gauti og Garðar Pálsson á
Akureyri og Valur Benediktsson og
Sveinn Björnsson í Reykjavík.
Endanlegur kostnaður við mannvirk-
ið liggur ekki fyrir, en áætlaður
kostnaður var í febrúar s.l. um 500
þúsund krónur.
Árni Jónsson á Sölvabakka, for-
maður veiðifélags Laxársvæðisins
sagði að mcnn vonuðust til að með
þessum framkvæmdum kæmist áin í
tölu bestu veiðiáa hér um slóðir.
Fram að þessu hefði veiðin ekki
verið nema um 150 laxar í bestu
árum. En uppeldisskilyrði væru talin
svo góð að rökstuddar vonir stæðu
til að þessi laxafjöldi margfaldaðist.
Undanfarin ár hefur verið unnið að
ræktun árinnar fyrir ofan fossinn,
með því að sleppa þar sumaröldum
seiðum.
Stiginn var opnaður með athöfn í
gær og var það landbúnaðarráð-
herra, Pálmi Jónsson, sem opnaði
stigann. _ MÓ/SV
Keflvíkingar
vilja nýja
f lugstöd hið
bráðasta
Keflavík: Bæjarráð Keflavíkur sam-
þykkti á síðasta fundi sínum áskorun
á stjórnvöld að láta ekki deilur um
fjármagnsútvegun koma í veg fyrir
að þegar verði hafist handa um
byggingu nýrrar flugstöðvar á Kefla-
víkurflugvelli. Sú flugstöð sem nú er
notuð af illri nauðsyn sé löngu úrelt
og aðbúnaður fyrir farþega og
starfsfólk sé með öllu óviðunandi.
Við staðsetningu nýrrar flug-
stöðvar vill bæjarráð að haft verði í
huga að hún verði algerlega aðskilin
herstöðinni, þannig að greiður að-
gangur verði að flugstöðinni.
- HEI.
■ Brúin í Bjamardal, sunnan við Bröttubrekku, er vægast sagt orðin heldur hrörlegt mannvirki. Timburverkið undir
henni eru styrktarstoðir til að halda uppi brúargólfinu í stað steyptu súlanna sem brotnað hafa.
Fimmtíu ára gömul brú í Bjarnardal að
niðurlotum komin:
BRÚIN GJÖR-
SAMLEGA 0NYT
- Ekki stendur til ad lagfæra
hana næstu tólf árin
■ „Það virðist ljóst að þarna á ekkert að gera a.m.k.
næstu 12 árin samkvæmt yfirlitsáætlun þeirri sem lögð
var fyrir Alþingi í fyrravor um hvað framkvæma á í
vegamálum næstu 12 árin. En á þessari leið um
BröttUbrekku eru bæði brýrnar og vegurinn nánast
ónýt, svo þetta er nokkuð stór biti“, sagði Pétur
Ingólfsson, verkfræðingur í brúadeild Vegagerðar
ríkisins.
stefnir í það að enginn vegur verður um
Bröttubrekku.“
Pétur sagði fleiri brýr á þessari leið
mjög slæmar, t.d. yfir Miðdalsgil, þar
sem hægt er að horfa niður um
brúargólfið. Aðeins kvað hann hafa
verið rætt um að leggja nýjan veg yfir
Bröttubrekku, sem yrði kannski valin
sem önnur leið, þannig að horfa þurfi
á þetta allt í samhengi. En sem fyrr segir
eru þessar framkvæmdir ekki fyrirhug-
aðar á næstu 12 ára áætlun Alþingis í
vegamálum. -HEI
Tímamaður sem nýklega átti leið
um Bröttubrekku spurði Pétur hvort
ekki væri fyrirhugað að lagfæra brúna í
Bjarnardal, sem vægast sagt er í
ömurlegu ástandi. En samkvæmt upplýs-
ingum langferðabílstjórá lengir það
leiðina vestur í Dali og Vestfirði um ca.
20 km. að þurfa að fara Heydalinn, eins
og allir þungir bílar verða nú að gera.
„Já, brúin er gjörsamlega ónýt, enda
búið að setja miklar þungatakmarkanir
á hana - 5 tonna öxulþungi - en hún
hrynur þó ekki undan smábílum,“ sagði
Pétur. Hann kvað brúna byggða árið
1930. Steypuefnið var á þeim árum
gjarnan tekið þar sem hendi var næst í
þessu tilviki úr Norðurá. Efnið í bogann
var tekið fyrir Alþingishátíðina. En
síðan gerði mikið flóð í ánni og mölin í
yfirbygginguna sem tekin var eftir flóðið
varð því miklu óhreinni, og sú steypa
mjög léleg, og er nú að grotna í sundur.
Bæði hafa margar súlumar sem bera
uppi gólfið brotnað og gólfið sjálft orðið
morkið og spumgið. Með ámnum hefur
svo timbri verið slegið undir brúna til
styrktar gólfinu.
En telja menn þá ekki slysahættu af
brúnni í þessu ástandi, t.d. að menn
freistist til að fara yfir hana á stómm
bílum til að sytta sér leið?
„Jú. En annars er það með svona brýr,
að þegar boginn sjálfur er nokkuð
sterkur þá held ég að það sé engin hætta
á að brúin hrynji niður allt í einu. En
það geta brotnað fleiri súlur og komið
stór göt, þannig að t.d. stór bíill gæti
skapað meiri hættu fyrir litla bíla er á
eftir kæmu. En það er ljóst að verði
ekkert að gert þama á næstu ámm þá
■ Þegar nær er komið sést enn betur hvemig brúargólfið er að morkna í sundur.
Greinilega má t.d. sjá stóra spmngu í gólfinu á miðri myndinni. Myndir HEI