Tíminn - 31.08.1982, Blaðsíða 20

Tíminn - 31.08.1982, Blaðsíða 20
Opiö virka daga 9-19. Laugardaga 10-16 HCÞÞAl Skemmuvegi 20 - Kópavogi Simar (91)7 75-51 & 7 80 30 Varahlutir Mikið úrval Sendum um allt land Ábyrgð á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs Gagnkvæmt tryggingaféJag V labnei HÖGGDEYFAR GJvarahlutir Armúla Sími 36510 =7 „ÉG ÞEKKTI MANNINN SEM KVEIKTI A GASLUKTUNUM” — segir Hermanri Björnsson, sem fluttist til Reykjavlkur fyrir réttum 80 árum ■ í góðviðrinu á dögunum fórum við Tímamenn niður í miðbæinn að kanna mannlífið. { Austurstræti var ys og þys, útimarkaðurinn í fullum gangi, og fjöldi manns í sólbaði á einum af síðustu sólardögum sumarsins. í Austurstræti voru tveir eldri menn á tali saman, og við gengum til þeirra og tókum annan þeirra tali, Hermann Björnsson. Við byrjuðum á því að spyrja hann hvort hann kæmi oft niður f Austurstræti. „Jú, ég kem hingað svona annan hvern dag, allavega á sumrin og þegar veðrið er gott. Þá labba ég bara um bæinn og sýni mig og sé aðra, hér hittir maður líka marga kunningja og spjallar við þá“. - Hvað hefur þú lengi búið í Reykjavík? „Ég fluttist hingað fyrir réttum 80 árum, þá fjögurra ára gamall og hef ekki farið héðan síðan. Það voru ekki margar götur þá, og engin rafmagnsljós á götunum, bara gasluktir. Ég þekkti manninn sem kveikti á gasluktunum, hann Sæmund. Hann gekk um bæinn með langan krókstjaka sem hann krækti í hring neðan á Ijósastæðinu og kveikti þannig á luktinni. Ég gæti hvergi hugsað mér betra líf heldur en hérna í Reykjavík, enda hefur aldrei hvarflað að mér að flytja héðan, þótt margt hafi nú breyst frá því ég var ungur.“ - Hvað hefur þú starfað, Hermann? „Ég hef nú starfað á öllum sviðum til sjós og lands, góða mín, bara eftir því hvar atvinnan var. Þegar ég eignaðist krakkana hafði ég búskap hérna. Þá heyjaði ég út í Viðey og hafði beljur til þess að fá mjólk handa þeim.“ - Þú manst kannski eftir kolakrananum, sem var hér á höfninni? „Já, ég man eftir honum, sérstaklega man ég eftir því hvað karlarnir á eyrinni bölvuðu honum þegar hann kom. Þeir voru hræddir um að fá enga vinnu á eyrinni þegar kraninn var kominn. Það var alltaf mikil vinna þegar kolaskipin komu, þá var handmokað í trog sem síðan var hvolt úr ofan í hestvagna, sem fluttu kolin. Þessari vinnu töpuðu karlamir alveg, og eins var með vinnuna við uppskipun á salti.“ - Hvernig líst þér á bæjarlífið í Reykjavík í dag? „Mér líst bara vel á það, það er ágætt til dæmis að koma hér niður í Austurstrætið og spóka sig. Hér á torginu hefur nú margt breyst síðan ég var yngri, turninn hérna til dæmis var á horninu á Hverfisgötu, þar til hann varfluttur, en ekki héma megin á torginu. Annars hefur auðvitað allt breyst, fyrst óx allt hér eftir fyrri heimsstyrjöldina, en svo tók allt kipp eftir þá seinni. Þá spruttu upp hér hús og allt breyttist á örskömmum tíma. Þá var uppgangurinn af hernámsgróðanum, en svo hefur þetta haldið áfram að smábreytast síðan“, sagði Hermann að lokum, og var þar með horfinn í mannfjöldann í Austurstræti. - SVJ. ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1982 fréttir Yarað við fyrstu haustlægðinni ■ „Þetta er bara tillit- semi við smábátaeigendur og eigendur lítilla flugvéla, að láta þá vita af fyrstu haustlægðinni," sagði Bragi Jónsson veðurfræð- ingur, þegar Tíminn spurði hann hvort von væri á aftaka veðri. Spumingin var borin fram vegna þess að í útvarpi í gær voru þessir eigendur lítilla tækja minntir á að ganga vel frá tækjum sínum. Bragi sagði að eftir sumarið væm menn oft væmkærir og þörf væri á að ýta við þeiro, þegar fyrstu haustlægðirnar koma með hvassviðri. Hann bjóst við að á eftir landsynningnum, sem gekk yfir hér í gær, kæmi útsynningar með 6-8 vind- stigum og skúram. í flugtuminum fengum við þær fréttir að menn hefðu bmgðist fljótt og vel við og gengið þannig frá vélum sínum að lítil hætta væri á skemmdum. SV Blaðburðarbörn óskast Hermann Bjömsson (t.h.) á tali við kunningja sinn í Austurstræti. Tímamynd: ELLA Tfmann vantar fólk tll blaðburðar f eftirtalln hverfl: Reykjavík: Óðinsgata Tunguvegur Selvogsgrunn Jórusel Laugarásvegur Wivcnxtu sími: 86300 dropar Gröfumaður með kaf- arapróf? ■ Þessi er úr Víkurblaðinu á Húsavík: „Ríkisútvarpið hefur frætt menn á þvi að á Raufarhöfn hafi grafa ein mikil fallið í sjó fram og liggi nú á um 5 metra dýpi. Heyrst hefur að Raufar- hafnarbúar ætli að nota tæki- færið og dýpka höfnina hjá sér í leiðinni og eru um þessar mundir að leita eftir gröfu- manni með kafarapróf. Skip- veijar á dýpkunarskipinu Drangi munu þó hafa mótmælt þessari ráðagerð harðlega, enda sé fyllsta atvinnuöryggis ekki gætt.“ Stalín er ekkihér ■ Það þykir ekki tíðindum sæta þó menn taki sér sumar- frí, og því síður að þeir fái inni í orlofshúsunum í Munaðar- nesi, meðan á því stendur, ef þeir þá eru opinberir starfs- menn á annað borð. Dropum þótti það því ekki í frásögur færandi þó spumir bæmst af góðum og gegnum útvarpsþul með meira, er dvcldi um hríð í góðu yfirlæti í uppsveitum Borgarijarðar. Hins vegar mun það hafa vakið athygli annarra dvalar- gesta í Munaðamesi, að morg- un hvem tók þulurinn sig til og gckk sem leið lá niður að Varmalandi og aflur til baka. Enn meiri athygli vakti hversu þungt hugsi hann var meðan á göngufcrðunum stóð, ekki síst fyrir það að sumir þóttust heyra hann tauta eitthvað íbygginn fyrir munni sér allan tímann, en gátu ekki greint orða skil. Fóm menn nú að geta hvað honum gæti legið svo þungt á brjósti, en gekk hvorki né rak í að finna skynsamlega skýr- ingu. Þar fór að lokum að forvitninni héldu engin bönd, og einn dvalargesta var sendur út af örkinni til að ganga í humátt á eftir okkar manni. Skyldi hann reyna að nema hvaða vísindi það væm sem sífellt var tönglast á. Að drjúgri stund liðinni kom sá hinn sami sigri hrósandi til félaga sinna, og þóttist nú hafa höndlað sannleikann. Sagðist hann ekki hafa betur heyrt en hinn mæti útvarpsmaður hefði tautað reglulcga fyrír munni / vV/ í sér: Stalín er ekki hér,- og Stah'n er ekki hér. Við látum hins vegar ykkur lesendum eftir að geta hver maðurinn var. Krummi ... sér að Barðstrendingar hafa fengið góðan sýslumann, því í nýjasta tölublaði Vestfirska fréttablaðsins er þess getið að næg atvinna sé á Patreksfirði, og þegar skýringa er leitað í undirfýrirsögn segir: „Stefán Skarphéðinsson skipaður sýslumaður."

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.