Tíminn - 31.08.1982, Side 12

Tíminn - 31.08.1982, Side 12
12______ Tþróttir ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1982 Enska knattspyrnan: MflHfli' mmm i: Liverpool hóf titil- vöm sfna med sign Það er alltaf mikið um dýrðir í Englandi þegar deildakeppnin í knatt- spymu hefst þar í landi. A laugardaginn byrjaði boltinn að rúlla þar fyrir alvöru og fram fóru 44 leikir í öllum deildunum fjórum. Að vanda beindist athygli manna einna helst að 1. deildinni, en þó stal leikur Newcastle United og QPR senunni, en hann var háður í 2. deildarkeppninni. Þar mætti lið New- castle með fyrirliða enska landsliðsins í broddi fylkingar og Kevin Keegan tókst að tryggja þessu nýja félagi sínu sigur með marki fimmtán mínútum fyrir leikslok. Á Anfield í Liverpool hófu leikmenn Liverpool titilvörn sína og andstæðingar þeirra á laugardaginn voru lið West Bromwich Albion. Ekki þóttu leikmenn Liverpool sýna neinn stórleik, en þeim tókst samt að sigra með tveimur mörkum gegn engu. Fyrra markið skoraði Sammy Lee beint úr aukaspyrnu og síðan bætti Phil Neal öðru marki við úr vítaspyrnu. Bæði mörkin voru skoruð í síðari hálflcik. Lið Manchester United er það lið í Englandi sem flestir hafa trú á að spjari sig í vetur. Ekki var neitt sem benti til annars á laugardaginn er þeir fengu Birmingham í heimsókn. Manchester United sigraði með þremur mörkum gegn engu. Það var Kevin Moran sem opnaði markareikning Mancesterliðsins og Frank Stapelton, besti leikmaður Unit- ed sem átti heiðurinn af fyrirgjöfinni. Á haustin vekja þau lið sem koma upp úr 2. deild yfirleitt athygli. Þau lið sem upp komu núna voru lið Watford, Luton TownogNorwich. Þaraf leikurWatford í fyrsta sinn í sögu félagsins í 1. deild. Fyrir utan að leika góða knattspymu er félagið þekkt fyrir tengsl söngvarans góðkunna Elton John við það. Elton hefur án efa verið ánægður á laugardag- •m urmmm s mfmmsi 'S ■ mwmmm ■ A þessarí við fjörugum mynd eru leikmenn Manchester United í leik gegn Valsmönnum á Laugardalsvelli. En nú þegar deildakeppnin í Englandi er hafin má búast og góðum leikjum hjá Mancesterliðinu. inn, því að lið Watford sigraði Everton örugglega með tveimur mörkum gegn engu. Fyrra markið skoraði Gerry Armstrong í fyrri hálfleik. í þeim síðari skoraði Pat Rice, fyrrverandi Arsenal- leikmaður beint úr aukaspyrnu. Og það var dálítið sérkennilegt, því markvörður Everton varði, en stóð því miður með Ánægja med Keegan ■ Það var gífuríeg stemmning á áhorfendapöllunum á St. James Park í Newcastle á laugardaginn þegar Kevin Keegan lék sinn fyrsta leik með liði Newcastle. 40 inínútum áður en leikurinn hófst byrjaði fólk að kalla á Keegan og segja má, að kaup félagsins á honum séu þægileg tilbreyting fyrir almenning í borg- inni, þar sem þar ríkir landlægt atvinnuleysi og því geta margir gefið sér góðan tíma til að fylgjast með knattspymu og það kunna þeir vel að meta, enda þótt atvinnuleysið sé þeim hvimleitt, eðlilega. irri áhorfendur ■ Töluverð fækkun áhorfenda varð á 1. umferð deildarkeppninnar í Englandi á laugardag, sé miðað við fyrstu umferðina í fyrra. Samtals sáu 260.081 maður leikina í 1. deild, sem er nær 40.000 færra en á sömu umferð síðastliðið haust. Flcstir sáu leik Manchester United og Birmingham á Old Trafford, rúmlega 48,000 en aðeins rúmlega 8000 manns sáu viðureign Notts County og Swansea. Skotland ■ I Skotlandi var um helgina leikið í deildarbikarkeppninni. Helstu úr- slit urðu þau að St. Mirren tapaði fyrir Ayr, Celtic sigraði Dunfermline 7-1, Rangers og Hibemian gerðu markalaust jafntefii og Dundee United sigraði St. Johnstone 3-1. Aberdeen sigraði Dundec með 5 mörkum gegn cngu. í þeirri keppni er liðunum skipt í níu riðla og era það stærstu liðin sem hafa forystu í riðlunum, eins og Celtic, Aberdeen, Rangers og St. Mirren. Robson ræður aðstoðarmann ■ Talið er líklegt að þegar Bobby Robson nýi landsliðsframkvæmda- stjóri þeirra Englendinga tekur formlega við starfi sínu muni hann segja upp tveimur aðal aðstoðar- mönnum sínum þeim Dave Sexton og Terry Venables, þar sem hann telur að störf þau sem þeir hafa sinnt þarfnist eins manns, sem ekki hafi annað á sinni könnu. Er talið að hann hyggist freista þess að fá Don Howe sem starfandi er á Highbury hjá Arsenal til að taka þessi störf að sér. En það er ekki víst að honum takist að freista Howe nógu sterklega til að hann láti freistast. Tveir reknir útaf ■ Ekki blés byrlega fyrir liði Peterboragh sem leikur í 4. deildinni ensku á laugardaginn. Um miðjan síðari' hálfleik var staðan 1-0 fyrir andstæðingum þeirra Stockport á heimavelli þeirra síðaraefndu er tveir af vamarmönnum Peterbor- ough fengu að líta rauða spjaldið hjá dómara leiksins. Þetta vora þeir Neil Firm og Trevor Slack, en það nægði andstæðingum þeirra ekki, því þeim tókst að jafna með marki Benjamin fyrir leikslok. knöttinn fyrir innan marklínuna. Þar með var sigur Watford í öruggri höfn og byrjun þeirra í 1. deild lofar nokkuð góðu. Norwich gekk ekki jafn vel á móti Manchester City, enda þótt þeir léku á heimavelli. Þó léku þeir á köflum ágæta knattspymu, en það er ekki spurt um það, heldur hversu mörg mörk liðin skora. Fyrsta mark leiksins skoraði David Cross og Paul Power bætti við öðru marki og staðan þá 2-0. Fyrir Norwich skoraði John Deehan. Liðið sótti töluvert, en það nægði þeim ekki til að jafna metin og Manchesterliðið snéri heim með bæði stigin í farangri sínum. Ekki virðist Joe Corrigan markvörður Manchester City vera á niðurleið, þar sem hann sýndi mjög góðan leik í markinu á laugardaginn og átti sinn þátt í að tryggja félagi sínu bæði stigin. Luton sem sigraði í 2. deild í vor lék gegn liði Tottenham og var leikið í London á White Hart Lane. Leiknum lauk með jafntefli bæði liðin skoruðu tvö mörk. Tottenhamliðið fékk óskabyrjun, er Gary Mabbutt skoraði í byrjun leiksins og Mike Hazzard bætti við öðru marki og staðan 2-0. En nýliðarnir bættu við tveimur mörkum þeirra Ricky Hill og Brian Stein. ■ Alan Sunderiand, Arsenal. Jafntefli varð hjá Brighton og Ipswich og voru bæði mörkin skoruð í fyrri hálfleik. Fyrst skoraði Eric Gates fyrir Ipswich. En Andy Ritchie jafnaði fýrir Brighton. Margir höfðu álitið fyrir þetta keppnistímabil að lið Arsenal kæmi til með að verða sterkt, en ekki benti neitt til þess á laugardaginn, er liðið tapaði fyrir Stoke. Það var Alan Sunderland sem skoraði fyrir Arsenal, en George Berry og Brendan O’Callaghan skoruðu fyrir Stoke. Sunderland kom á óvart með því að sigra Aston Villa í Birmingham. Mörk Sunderland urðu þrjú og sáu um að skora Colin West, McCoist og Picker- ing. Fyrir Aston Villa skoraði Grodon Cowans og var það fyrsta mark leiksins, en dugði skammt. Southampton tapaði fyrir Coventry, sem saknar nú Kevin Keegan sárt, en hafa þó fengið góða leikmenn í hans stað og má þar fyrst nefoa Peter Shilton markvörð, en hann réð ekki við skot Steve Whitton. Notthingham Forest sótti West Ham heim í London og tók með sér bæði stigin til baka. Colin Walsh skoraði fyrsta markið fyrir Nottinghamliðið, en West Ham jafnaði úr vítaspymu Ray Stewart. Sigurmarkið skoraði svo John Robertsson fyrir Nottingham Forest úr vftaspymu. Loks má geta marklauss jafnteflis Notts County og Swansea. í 2. deildinni gerðu lið Grimsby og Leeds jafntefli. Bæði Iiðin skomðu eitt mark. Ólæti á knattspymuvöllum hafa verið landlægt vandamál meðal enskra og fengu vallargestir í Grimsby að finna fyrir æstum áhangendum Leeds. Er hætt við að það geti bitnað hart á gestaliðinu. Wolves sigraði í sínum fyrsta leik í 2. deildinni og það var lið Blackbum Rovers sem varð að þola að tapa fyrir þeim. Eins og fram hefur komið bjargaði Derek Dougan félaginu frá gjaldþroti á dögunum og það er hreint ekki slæmt fyrir liðið að byrja deilda- keppnina á sigri. Það er gott vegnesti. Fyrr hefur verið greint frá leik New- castle og QPR, en stórt tap Derby gegn Charlton vekur athygli. ■ Úrslit leikja í ensku knattspymunni á laugardag urðu sem hér segir: 1. deild Aston Villa-Sunderland ........1:3 Brighton - Ipswich.............1:1 Coventry-Southampton...........1:0 Liverpool-WBA .................2:0 Man.Utd.-Birmingham............3:0 Norwich-Man.City...............1-2 Notts County-Swansea...........0:0 Stoke-Arsenal..................2:1 Tottenham-Luton ...............2:2 Watford-Everton................2:0 West Ham-Notthingham F.........1-2 Burnley-Bolton.................0:0 Cambridge-Chelsea..............0-1 C.Palace-Barnsley..............1:1 Derby-Carlisle ................0-3 Fulham-Rotherham...............1-1 Grimsby-Leeds..................1-1 Leicester-Charlton.............1-2 Newcastle-QPR..................1-0 Oldham-Shrewsbury..............1-0 Sheff.Wed.-Middl.bro...........3-1 Wolves-Blackburn R.............2-1

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.