Tíminn - 19.09.1982, Qupperneq 18
18
SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982
skák
(skák
TAP KORTSNOJ
FYRIR FIMMTÁN
ÁRA PILTI
■ Hið árlega Lloyds Bank Masters
skákmót í Englandi hefur verið fastur
liður síðustu 6 árin, og þangað komið
margt öflugra skákmanna. í ár voru
Hort, Kortsnoj og Miles helstu skraut-
fjaðrirnar, og Kortsnoj tefldi nú í fyrsta
skipti opinberlega eftir að hafa fengið
fjölskylduna vestur yfir járntjald. Það
var einmitt Kortsnoj sem vakti hvað
mesta athygli á mótinu, eða öllu heldur
slæleg frammistaða hans. Allt gekk þó
vel í byrjun, 3 vinningar í 3 fyrstu
umferðunum, en síðan fór allt í baklás.
Úr síðustu 6 skákunum halaði meistar-
inn aðeins eina vinningsskák á land, og
tapaði fyrir tveim nær óþekktum
táningum, Hawkswarth, Englandi og 15
ára gömlum Indverja, D. Barua að
nafni.
Uppskera Kortsnojs var því heldur
rýr. 5 vinningar í 9 umferða Monradmóti
er magurt þegar kandidat i heims-
meistarakeppninni á í hlut. Reyndar
slapp Kortsnoj fyrir horn í loka-
umferðinni, þegar hann náöi jöfnu á
„tapað tafl“ gegn sænsku stúlkunni Piu
Cramling. Miles og Hort tefldu í
samræmi við sinn stórmeistarastyrk,
fengu 7 vinninga ásamt Gutman ísrael,
Hebden Englandi og Johansen Ástralíu.
1. sætið reiknaðist þó til Miles, þar eð
stigatala hans var hagstæðust.
D. Barua náði 2 áfanga að alþjóðleg-
um meistaratitli, 1. áfangi skilaði sér
einmitt á Lloyds-mótinu 1981, og þá
gerði sveinninn ungi m.a. jafntefli við V.
Smyslov, fyrrverandi heimsmeistara.
Hér bætir hann um betur og lcggur
Kortsnoj.
Hvítur: D.Barua
Svartur: V. Kortsnoj ítalski leikurinn.
1. e4 e5
2. Rf3 Rc6
3. Bc4!
(Gegn Kortsnoj, sérfræðingi í spönsku
tafli er sniðugt að venda sér yfir í ítalska
lcikinn)
3. ... Bc5
4.o-o Rf6
5. d3 d6
6. c3 Bb6
7. Bg5?
3(Nokkuð tvíeggjað framhald, því
svartur gæti náð hættulegri kóngssókn
með h6 og g5 síðar meir, þar eð hann
hefur ekki hrókað sjálfur.)
7. .. h6
8. Bh4 De7
9. Rbád2 g5
10. Bg3 Bg4
11. h3 Bd7
12. Bb3 Rh5
13. Rc4 Rf4
(Hvítum í hag er 13. .. Rxg3 14. Rxbó
Rxfl 15. Rxa8.)
14. d4 o-o-o
15. a4 a6
16. d5 RbS
17. Rxb6+ cxb6
18. Rd2 Hd-g8
19. Rc4 Kc7
20.13 h5
21. Dd2 b5
22. Re3 g4
23. h4 gxf3
24. hxf3 Hxg3
(Þessi skiptamunsfórn lítur vel út, en
hvítur teflir vörnina vel og lætur ekki
sinn hlut.)
25. Hxg3 Dxh4
26. Rfl bxa4
27. Bxa4 Bg4
28. Hel Dg5
29. c4 h4
30. c5!
(Einmitt þegar sókn svarts virðist vera
að slá í gegn, kemur hvítur með óvænta
gagnsókn. Ef nú 30... hxg3 31. Da5+
Kc8 32. exd6 með mátsókn.)
30. .. dxc5
31. d6+ Kb6
32. Hb3+ Ka7
33. Da5 Bc8
34. Re3 c4
35. d7!
(Enn kemur mjög sterkur leikur frá
hvítum.)
35. .. cxb3
36. Dc5+ Ka8
37. dxc8D Hxc8
38. Dxc8 Dg3
39. Kfl h3
40. gxh3 Rd3?
(Svartur teflir til vinnings þó staðan gefi
ekki tilefni til þess. Betra var40. ..Df3+
og taka þráskák.)
41. Ke2!
(Þennan leik tók Kortsnoj alls ekki með
í reikninginn.)
41. .. Rxel
42. Dg4! Dxg4
43. Rxg4 Rc2?
(Nauðsynlcgt var 43. .. Rg2. Leikur
Kortsnojs er byggður á óskhyggju, 44.
Bxb3?? Rd4+ og vinnur.)
44. Kd3 Ral
(Hótunin er 45... b5, en þetta er
jafnframt síðustu fjörbrot svarts.)
45. Be8 Rc6
46. Bxc6 bxc6
47. h4 Rc2
48. h5 Rd4
49. h6 Re6
50. h7 Rf4+
51. Kc3 Rg6
52. Rxe5! Rh8
(Riddarinn er kominn úr heldur óvenju-
legu ferðalagi, frá al til h8.)
53. Rxf7! Rxl7
54. e5 Gefiö.
Jóhann Örn Sigurjónsson D
skrifar um skák
SOGULEG
KEPPNI
Hverju leikur hvítur?
■ Austurlönd nær hafa verið
vettvangur slíkra stríðsviðburða, að
sérhver friðarfrétt frá þessum
heimshluta á skilið að birtast. Jafnvel
þó hún sé ekki alveg ný. Lesendur
hafa vonandi ekkert á móti því, að í
maí fór fram landskeppni Egypta-
land : ísrael!
Allir vita að ísraelsmenn eru
ofjarlar Egypta í skák, en menn voru
sammála um að ísrael - með einni
undantekningu - léti ekki stigahærri
skákmenn en 2400 stiga tefla með.
Átta borð, fjórföld umferð. Og
Egyptar unnu, 17:15. En úrslitin
skiptu minnstu máli í slíkri keppni.
Egypsk skák fer batnandi. E.t.v. er
ástæða til að minna á, að Nasser var
ákafur skákmaður. Sadat iðkaði ekki
okkar tafl, heldur hinar gömlu
arabísku leikreglur.
Synir Nílar unnu sem sagt, en eina
skákin frá keppninni sem ég hef séð,
var ísraelskur sigur.
Hvítur: Birnboim
Svartur: Afifi
Benkö-gambitur.
1. dr Rf6 2. c4c5 3. d5 b5 4. cxbS
a6 5. bxa6 Bxa6 6. Rc3 g6 7. g3 Bg7
8. Bg2 d6 9. Rf3 0 0 10. 0-0 Rb-d7
11. Dc2 Dc7 12. Hdl Hf-b8 13. Hbl
Ha714. h3 Ha-b715. b3 c4? (Svartur
hefur góða stöðu en hvernig skal
nýta sér það? Meðaumkvun sumra
lesenda mun vera með hvítum í
baráttunni gegn þessum þreytandi
gambit.) 16. Rd4 (Eftir þetta stendur
hvítur betur.) 16. ... cxb3 17. axb3
Hc8 18. Rc6 Rb8 19. b4 Re8 20. Bg5
Bxc3 (Liður í áætlun sem vinnur
peðið aftur. En kóngsstaðan verður
of veik.) 21. Dxc3 Rxc6 22. dxc6
Hb-b8 23. Bf3 Bb5 24. Hd-cl Ha8
25. h4! (Svartur gæti varið sig betur
en hann gerir, en staðan er slöpp.)
25. ... Ha6 26. Kg2 e6 27. h5 d5 28.
hxg6 hxg6 29. Hhl e5 30. Dc5!
Gefið. Ástæðan er Hh8+ ásamt
Df8+ og Hhl mát.
í¥iiT|
Aiál 111
1 1
■<0. &> %
*
ti\ P: ■í: A l
MMM... - ■
SKA-
LÍNU-
BRÖGÐ
Bent Larsen,
stórmeistari,
skrífar um skák.
Hvítur leikur og vinnur
■ í stöðunni leynist tilfærsla sem ég
hef séð áður. Því finnst mér auðvelt
að finna lausnina. Hvort sama gildir
um þá lesendur sem aldrei hafa séð
þetta fyrrerég í vafa um. En reyndu.
Tveir óvaldaðir biskupar á langri
skálínu, hlýtur að leiða til margra
glúrinna vendinga. Ég vil minna á
þessa: 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6
4. g3 Bb7 5. Bg2 Bb4+ 6. Bd2
Bxd2+ 7. Dxd2 0-0 8. Rc3 Re4 9.
Dc2 Rxc3 10. Rg5! Dxg5 11. Bxb7
með betri stöðu fyrir hvítan, þó cnn
sé barátta eftir 11. ... Rxe2 Þetta
hefur verið þekkt síðan laust eftir
1920. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4.
g3 Bb7 5. Bg2 Be7 6. 0-0 0-0 7. Rc3
Re4 8. Dc2 Rxc3 9. Rg5?? Rxe2+!
Eftir Dxe2 er máthótunin fyrir bí, og
eftir Khl getur svartur skipt upp
biskupum með skák. Hér gengur því
leikflétta hvíts ekki upp. Stöðumynd-
in kom upp í opna meistaramótinu í
Biel, milli tveggja júgóslava. Svartur
hélt sig vera að leika á hvítan, en það
var nú öðru nær. Nemet: Dzdar,
Drottningarindversk vörn.
1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 2. c4 b6 4. g3
Ba6 5. Rb-d2 Bb7 (Þetta hefur verið
teflt mikið í seinni tíð. Svartur tapar
leik, en hefur lokkað riddarann frá
c3-reitnum.) 6. Bg2 Be7 7. e4!?
(Áhrifarík en ekki alveg örugg
peðsfórn.) 7.... Rxe4 8. Re5 Rc3??
(Mjög slæmt. Það er ljóst að 8. ...
Rd6 strandar á 9. Bxb7 Rxb7 10.
Df3. 8. ... f5 strandar á 9. Dh5+ 8.
... d6 gefur kost á skálínubragðinu
9. Rxe4dxe5 10. Rf6+ Við8.... Bb4
er Dg4 sterkt. Því var 8. ... d5 eini
leikurinn. Hvítur hlýtur auðvitað að
hafa séð Rc3 þegar hann lék 7. e4.)
9. Dh5 g610. Dh3! Svartur gafst upp.
Drottningin valdar biskupinn og
svartur tapar manni. Þetta var
nokkuð auðvelt. Dh5 hlýtur maður
að sjá, og þá finnur maður einnig
Dh3.