Tíminn - 19.09.1982, Síða 20
Háværar mótmælaraddir ýmissa blaða og samtaka
■ „Allt er í heiminum hverfult,"
segir þar og það á við í Bretlandi þessa
dagana, eftir að hljóðbært varð að
biskupinn af Chester, Michael
Baughen, og sálmabókarnefnd hans
hefur borið upp fáheyrða tillögu: Þeir
vilja breyta textanum við sjálfan þjóð-
söng Breta „God save our gracious
Queen“ og færa hann til nútímalegra
horfs. Sem ekki er að undra hcfur
tillagan mælst misjafnlega fyrir! Menn
þykjast sjá í þessu árás á konungdóm-
inn og ættjörðina.
Sálmabókarnefndin vill strika út úr
þjóðsöngnum gunnreifustu og þjóð-
emissinnuðustu línurnar og setja inn í
staðinn frómar óskir um að Bretar
verði sanndyggðugir, ósjálfselskir og
guðræknir.
Hæstu mótmælaraddirnar koma úr
röðum ýmissa íhaldssamra félaga og
hópa, en ná þó inn í raðir miklu fleiri.
Andmælabréfin dansa á síðum
lesendadálkanna í breskum blöðum.
Áhrifamiklir hópar í bresku
biskupakirkjunni hafa lengi verið
þeirrar skoðunar að rétt væri að snúa
málinu á sálmum sálmabókarinnar til
nútímalegra horfs og í því skyni hefur
nefndin gert miklar og margar tillögur
um breytingar sem útiloka gegna og
góða sálma, sem til þessa hafa verið
sungnir. Þar sem þjóðsöngurinn er
einnig í sálmabókinni hefur hann líka
verið tekinn til skoðunar.
Nefndin hefur setið á rökstólum í
tíu ár, en er nú að Ijúka störfum. Þarf
engan að undra þótt Baughen biskup
hafi tekið rösklega til hendinni, þar
sem hann efndi á sínum tíma til messu
halds með poppsöngvurum og gítar-
spili, eins og dæmi hafa gerst víða um
lönd á síðari árum, þar á meðal á
íslandi.
Andstæðingar þessarar hugmyndar
hafa bent á að varla lyftist brúnin á
Frökkum, ef einhverjir vildu fara að
yrkja upp franska þjóðsönginn,
„Marsilíubraginn“, eins og íslendingar
hafa kallað hann stundum. Er þó texti
franska þjóðsöngsins miklu herskárri
og blóðlyktin af honum stækari en af
þeim breska.
En hvernig mundi svo þjóðsöngur
Breta hljóma ef af breytingunni
verður. Hér er dæmi til samanburðar:
„Send her victorious
Happy and glorious
Long to reign over us
God save the Queen“
Sálmabókarnefndin telur þetta nett-
ast sungið svona:
„Guard us in liberty
■ Hxtta Bretar að biðja Guð að senda drottningu sinni sigurinn?
Bless us with unity,
Save us from tyranny,
God save the Queen;“
Úr næsta erindi vill nefndin fella
burt línumar um féndur þjóðarinnar:
„Frustrate their knavish tricks" (Bregð
fæti fyrir vélráð þeirra) og í staðinn
komi lína sem mætti útleggjast „Forða
oss frá eigingiminni."
Margir hafa hent gaman að þessum
hugmyndum kirkjunnar manna og
leiðari í Daily Telegraph á dögunum
bar einrriitt yfirskriftina: „Knavish
tricks" og einn lesenda sagði í bréfa-
dálknum: „Herra ritstjóri! Bregðum
fæti fyrir vélráð prestastéttarinnar!
Guð blessi drottninguna! Megi hún
verða sigursæl um aldur og ævi.“
(Bresk lesendabréf hafa þann kost að
þau eru oft fyndin - og stutt.)
Til þess að gera illt verra stóðu deil-
umar um þetta atriði meðan
Falklandseyjadeilan stóð hvað hæst og
sem nærri má geta mæltist það ekki of
vel fyrir þá dagana að draga vígtenn-
urnar úr hinum „gamla og góða“ þjóð-
söng Breta.
■ Mörgum þykir sem tönginni sé stefnt að enn einni af fáum tönnum Ijónsins breska
með því að þynna út þjóðsönginn með friðarbænum.
Nú vilja þeir yrkja
upp breska þjódsönginn
SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982
erlend hringsjá
■ Þcgar lögreglumenn grófu upp 25
lík á bakka Feather-fljótsins í Sutter
héraði í norður Kaliforníu árið 1971,
leið ekki á löngu þar til Juan Corona
nokkur, sem var verkstjóri á búgarði
í grendinni var ákærðurfyrirglæpina,
en þarna var um að ræða eitt yfirgrips-
mesta fjöldamorðmál í sögu
Bandaríkjánna. Þeir myrtu, sem
flestir voru flækingar og fylliraftar,
höfðu verið drepnir með öxi og sumir
sundursaxaðir. Á eftir höfðu þcir verið
grafnir í grunnum gröfum í plómu og
ferskjubeðum nautgripabús John L.
Súllivan.
Nú, ellefu árum síðar, á
Kaliforníuríki í mestu vandræðum
með að byggja sakfellinguna á hendur
Corona upp, vegna ruglingslegs
vitnisburðar. Réttarhöldin hafa
kostað 5 milljónir dollara og málið
hefur verið tekið upp tvívegis.
Fyrir níu árum ákvað kviðdómur
eftir miklar vangaveltur að sýkna
Corona með sjö atkvæðum gegn fimm.
Er svo að sjá sem það hafi ráðið
úrslitum að vörnin kallaði ekki til nein
vitni, heldur treysti á það að
sækjandinn gat ekki byggt á neinu
nema mjög handahófskenndum
sönnunargögnum: ekki tókst að leiða
neinn fram sem kvaðst hafa séð
Corona drepa einn né neinn eða grafa.
Nafn Corona fannst þó á kvittunum
vegna kjötkaupa sem fundust í gröfum
tveggja hinna myrtu. Slátrarahnífar og
öxi, auk gallabuxna og nærbuxna, sem
ataðár voru í blóði fundust líka á
MORBMALIB
SEMVARÐAÐ
ÆVISTARFI
heimili hans, ásamt lista þar sem á
voru rituð nöfn sjö fórnarlambanna.
Ekki komu bófaflokkarnir á
þessum tólum þó heim við blóðflokka
fórnarlambanna og ekki gat
sækjandinn bent á neitt þaðsem hefði
getað leitt Corona til slíkra verka. Þá
er að geta um öll þau mistök sem áttu
sér stað við tilbúning málsins: Menn
rugluðust í því úr hvaða gröf hvert
líkanna kom og enn láðist mönnum að
taka fingraför af líkunum, svo
dómarinn ræddu um vanhæfni við
undirbúninginn og ófullnægjandi
vinnubrögð. Einn lögfræðingur úr
hópi sækjenda ræddu um „vafa“ á sekt
Corona.
Málinu var áfrýjað og 1978 þótti
réttinum mikill vafi leika á sckt
Corona. Þegarþarvarkomiðviðsögu
höfðu ýmis sönnunargögn horfið út í
veður og vind, - rottur höfðu komist
í fingurgóma af sumum líkanna sem
voru varðveittir, blóðsýni voru orðin
ónýt og fjögur mikilvæg vitni voru
dauð. Eitt var horfið og fannst ekki.
Þetta hefur þó ekki komið í veg fyrir
að rannsókn málsins hefur orðið að
nokkurs konar atvinnugrein.
Lögmenn þeir sem unnið hafa að
nýjustu réttarhöldunum, sem hófust í
mars síðastliðnum, voru enn í skóla,
þegar Corona var fyrst handtekinn
Enn eru til reiðu 1300 hlutir sem
sönnunargögn og 175 vitni og til þess
að lesa úr öllu saman er skari
lögfræðinga á þönum fyrir báða
málsparta. Hefur allt gramsið verið
flutt borg úr borg í norður Kaliforníu,
þar sem sú athygli sem málið hefur
vakið hefur orðið til þess að ekki er
frítt fyrir blaðamönnum og öðrum
áhugamönnum um framgang þess.
Kaliforníuríki hefur þurft að bera
mikinn kostnað vegna þessa, en ríkið
greiðir hótelreikningana fyrir lögmenn
sóknar og varnar og hefur auk þess
kostað margar ferðir lögmannanna til
London, þar sem þeir hafa sótt góð ráð
til sérfræðinga Scotland Yard. Vitni
eru flutt vikulega frá Sutterhéraði til
réttarhaldanna með tveimur litlum
flugvélum í eigu lögreglunnar, sem nú
ganga undir nafninu „Corona
Airlines".
Sumir lögfræðinarnir hafa unnið í
málinu í allt að 11 ár, líkt og Judge
Patton, sem segir: „Þetta eru ekki
málaferli, þetta er ævistarf."
Vörnin þykist nú eygja von
framundan í því að það hafi ekki verið
Corona sem ódæðin framdi, heldur
bróðir hans, Navidad.
Navidad var eigandi
kynvillingaklúbbsins í hérðinu sem
bar nafnið „Guadaljara Café“. Hann
flýði til Mexico árið 1970, eftir að
rétturinn hafði skipað honum að
greiða einum viðskiptavina sinna 250
þúsund dala sekt, en Navidad hafði
sært manninn með hnífi fyrir að hafa
færst undan ástleitni hans.
Einn lögfræðinganna í vörninni
heldur því fram að Navidad hafi verið
geðbilaður af völdum sárasóttar og að
hann hafi sótt heim til Sutter héraðs í
þeim tilgangi að fá þar hefnt fyrir þá
niðurlægingu sem hann varð fyrir, en
hann lék minnimáttar aðilann í
mökum við aðra öfugugga. Margir
hinna myrtu voru með buxurnar á
hælunum í gröfum sínum.
Navidad hefur þverneitað að hafa
verið neitt við málið riðinn, þótt ekki
hafi hann komið heim til þess að bera
vitni við réttarhöldin. Nafn hans hafði
verið höggvið á grafstein fjölskyldu
hans í Guadaljara og mun hann hafa
hugsað sér að láta líta svo út sem hann
SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982
erlend hringsjá
væri dauður, en læknirinn sem gaf út
dánarvottorð mun aldrei hafa óskað
eftir að sjá líkið.
Lögfræðingarnir sem frá því í mars
sl. hafa orðið að þreyja í heitum og
gluggalausum réttarsölunum eru nú að
reyna að gera sér mynd úr þeim
gögnum sem safnast hafa þennan
tíma. Margir geta sér þess til að ekki
muni hafast annað upp úr krafsinu en
kviðdómur sem ekki veit sitt rjúkandi
ráð. Vandi er að spá um hvaða
afleiðingar það hefur fyrir Juan
Corona. Annað hvort verður hann
dreginn fyrir réttinn enn að nýju eða
þá að hann verður látinn laus.
En hvor leiðin sem verður valin, þá
er víst að hann er bugaður maður. Eitt
sinni var hann frísklegur og
sólbrunninn, en nú er litarháttur hans
öskugrár. Þótt hann sé aðeins 49 ára,
þá hefur hann þrívegis fengið
hjartaáfall og hefur misst sjónina á
öðru auganu eftir að á hann var ráðist
með hnífi. Brot úr rakblaði er fast
undir hornhimnu hins augans.
Fjögur fórnalambanna þekktust
aldrei og tíu þeirra hefur enginn vitjað
um. Líkin eru grafin í kirkjugarði
nærri Feather-fljóti og á grafsteininum
stendur: „Hér liggja fjórtán
j arðarbörn, - fjögur þeirra þekkir Guð
einn.“
■ Corona er bugaður maður á sál og
líkama.
■ Eftir allar þær hrellingar sem
uppþot, fæðuskortur, lítil iðnaðar-
framleiðsla og fleira hefur valdið
honum, virðist Jaruselski hershöfð-
ingi finna frið og sátt hjá þessum
gæflynda hesti í Siedlce, sem er
hérað um 150 km. austan Varsjár.
Hreint og ferskt sveitaloftið finnst
höfðingja herlaganna að vonum
þægilegra en táragaseimurinn í höf-
uðborginni.
Hann er þama á ferð til þess að
kynna sér ástandið í landbúnaðinum,
en uppskera sumarins mun nú komin
undir þak í Póllandi, þótt vafi leiki
á að hún muni hrökkva til að seðja
þá mörgu svöngu munna sem í land-
inu eru. En þrátt fyrir sveitakyrrðina
mun Jaruselski ekki ganga að því
gruflandi að á gullnum kornökrum,
í heyhlöðum og við stalla nautgrip-
anna á þúsundum bændabýla kraum-
ar óánægjan.
Sveitaarmur „Samstöðu" sem varð
til nokkru eftir að áhrif þjóðvakning-
arinnar höfðu farið um borgir og
bæi iðnaðarhéraða Póllands fyrir
tveimur árum, lætur ekki mikið á
sér kræla þessa dagana. Þegar leið-
toginn Jan Kulaj lýsti því yfir að
hann væri tilbúinn að starfa sam-
kvæmt þeirri línu sem Jaruselski
lagði fyrir, yfirgáfu gamlir fylgismenn
hans hann þegar.
Flokkar vélfræðinga frá hernum
hafa að undanförnu verið á ferð um
sveitirnar til þess að gera við ýmiss
konar landbúnaðartæki. Ekki er þó
sennilegt að þeim heppnist að gera
einnig við þær rifur sem dottnar eru
á bjartsýni almúgans sem reis svo
hátt á uppskerutíma tveggja fyrri
ára, þótt ekki safnaðist þá í hlöður
það magn sem menn vonuðust eftir.
Jarnselski
leitar______
huggunar hjá
Blesa gamla
21
ÖLL ALMENN PRENTUN
LITPRENTUN
TÖLVUEYÐUBLÖÐ
• Hönnun
• Setning
• Filmu- og plötugerð
• Prentun
• Bókband
PRENTSMIDJAN
(^clclc
Ct HF.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI 45000
Hríseyingar,
Hríseyingar
Hríseyingamót verður haldið í átthagasal Hótel
Sögu, laugardaginn 2. október 1982.
Þeir sem hafa hugsað sér að ná í miða verða að
hafa gert það í síðasta lagi fyrir 25. sept. n.k.
Hafið samband sem fyrst við:
Þorstein Þorvaldsson, Laugavegi 80, í síma
10259
Sigurð Brynjólfsson, í síma 86481
Valgerði Magnúsdóttur í síma 66610
Önnu Fjalarsdóttur í sma 85370.
Skrifstofustörf
Skattstjórinn í Reykjavík óskar að ráða starfs-
menn í eftirtalin störf:
Bókhaldseftirlit og skattrannsóknir.
Skattendurskoðun atvinnurekstrarframtala.
Skattendurskoðun almenningsframtala.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf,
þurfa að hafa borist Skattstofunni í Reykjavík fyrir
25. september n.k..
AUKIN LANAKJOR A
■ " ' ■ :■ • 4 - 1» »
Nú geta allir eignast WARTBURG -
Stóra bílinn á lága verðinu,
með sérstökum lánakjörum.
STÓR - HÁR - STERKUR
Þeir sem kaupa einu sinni
íruJrij
kaupa hann aftur og aftur.
TRABAIMT/WARTBURG UMBOÐIÐ
Ingvar Helgason
Sýningarsalurinn v/Rauðagerði,
sími 33560
í
1