Tíminn - 19.09.1982, Síða 27
SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982
^^HUmsjón: Friðrik Indriðason og Eiríkur S. Eiríksson
■ Hljómsveitin Jonee Jonee með Bjöm Borg höfuðbönd og „stjörnu" sólgleraugu, þeir Heimir Barðason, Bergsveinn
Björgúlfsson og Þorvar Hafsteinsson.
Svonatorrek, fyrsta plata Jonee Jonee komin út:
„Einhversstaðar á
nýbylgjusviðinu”
■ Um þessa helgi kemur
út á vegum Grammsins
fyrsta plata hljómsveitar-
innar Jonee Jonee, breið-
skífa með 16 lögum sem
hlotið hefur nafnið Svona-
torrek. Öll lögin eru eftir
þá félaga í Jonee Jonee en
platan var tekin upp í
Grettisgati undir stjórn
Tómasar Tómassonar.
„Tónlist okkar er einhversstaðar á
nýbylgjusviðinu en textar laganna fara
eftir áhugamálum okkar og fjalla um
ýmislegt, sumir eru orðaleikir, aðrir
ádeilur á skólann og kerfið og sumir eru
um ekki neitt en engin sérstök pólitík
eða hugmyndafræði liggur að baki
þeirra" sagði Þorvar Hafsteinsson
söngvari Jonee Jonee í samtali við
Nútímann er við ræddum við hann í
tilefni- afi'útkomu nýju plötunnar.
Með Þorvari í Jonee Jonee eru þeir
Heimir Barðason og Bergsveinn Björg-
úlfsson en hljóðfæraskipun er þannig á
plötunni að Þorvar sér um söng og
saxófónleik, Heimir á bassa og saxófón
og Bergsveinn lemur húðirnar.
Jonee Jonee kom fyrst fram fyrir um
ári síðan og þá í Þjóðleikhúskjallaranum
með hljómsveitinni ÞEY en hefur
síðan leikið víða á höfuðborgarsvæðinu
en aðallega þó á Hótel Borg eins og
margar af ungu rokksveitunum hér-
lendis.
En í hverju eru þeir að pæla nú?
„Það sem fyrst og fremst liggur fyrir
er að kynna nýju plötuna og í því
sambandi stefnum við að því að leika útr
á landi í einhverjum mæli. Þetta er erfitt
og fjárfrekt fyrirtæki en við munum
byrja á því að leika á ísafirði þann 1.
okt. n.k. og bíðum eftir svari frá
Akureyri og Egilsstöðum" sagði Þorvar
og lét þess jafnframt getið að Húsavík
og Sauðárkrókur væru í sigtinu.
Einföld hljóðfæraskipun Jonee Jonee
hefur vakið athygli og þeir verið nokkuð
gagnrýndir fyrir hana. Við forvitnuð-
umst um sjónarmið Þorvars í þessu
sambandi.
„Við fáum það sem við viljum með
þessari hljóðfæraskipun, við höfum
reynt að hafa gítar með, á fyrstu
tónleikum okkar en kannski var ég svo
lélegur gítarleikari... allavega sættum
við okkur ekki við það og komum
sennilega ekki til með að bæta fjórða
manninum við.
Hvað gagnrýnina varðar þá þykir
sumum að það sé of einstrengingslegt og
mikil endurtekning að nota bara bassa
og trommur en mér finnst það svolítið
snúið að gagnrýna okkur á þeim
forsendum því það er svona svipað og
að gagnrýna Van Gogh út frá þeim litum
sem hann notar en ekki hvernig hann
notar þá sem er aðalmálið.
Það er okkar stefna að nota fá
hljóðfæri og gagnrýnin ætti að beinast
að því hvernig við notum þau en ekki
afhverju við notum ekki fleiri"
Nafnið Jonee Jonee...?
„Áður en hljómsveitin varð til var
maður mikið að pæia í að koma saman
bandi og þetta var ein af mörgum
hugmyndum sem maður hafði um nafn
á það. Þegar við fórum svo að æfa varð
þetta nafn ofan á en það er tekið úr Devo
laginu „Come back Jonce". - FRI
„EITTHVAÐ
ER ROTIÐ...”
■ „Eitthvað er rotið í ríki
Dana“...þetta er að vísu ekki gullaldar-
málsþýðingu hinum fleygu orðum
Shakespeare í Hamlet en tilvitnunin
kom mér í hug er ég rak glyrnurnar í
forsíðu á nýjasta tölublaði Stuðblaðsins.
Tilvitnunin á alls ekki við Stuðblaðið
sjálft sem er fróðlegt og hefur að geyma
nokkuð af athyglisverðu efni, heldur á
tilvitnunin við Topp 10 brjóstnælulista
Stuðblaðsins.
Eins og sést af meðfylgjandi mynd
trónar Egó á toppi brjóstnælulistans sem
telja verður eðlilegt þar sem Egó er
óumdeilanlega ein allra vinsælasta rokk-
sveit landsins. í öðru sæti er hinsvegar
nælan „Screw Me“ sem á kjarnyrtu máli
þýðir „ríddu mér“ og á ekkert skylt við
hesta. Hvað vinsældir þessaiar nælu
varðar má eflaust rita um langa og lærða
grein en nærtækasta skýringin er
sennilega sú að unglingar vilja hræra
aðeins upp í „gamla settinu" nema þá
að þeir séu bara svona graðir.
Ljóst er af listanum að „úlpuliðið" er
iðið við brjóstnælukaup, Chenæla er í
fyrsta sæti og ísland úr Nato í áttunda
sæti. Hvað Che varðar má segja að þar
fari klassísk næla þótt það sem hún
standi fyrir sé löngu gleymt og grafið
undir fargi hrárrar nýbylgju og pönks.
Bob Marley er enn ofarlega á listanum
þótt hann sé iátinn og reaggíið löngu
horfið aftur inn í frumskóginn og
hljómsveitin Kizz hefur löngum átt
einhver undarlcg tök í unglingum hér. í
neðstu sætunum tróna svo íslenska
útgáfan af Screw Me og þungarokkarar.
- FRI
27
★ ★★★★★★★★★★★ ★★ ★!
ALLRA
ALLRA
Sunnudag
kl. 20.00
í Háskólabíói
Dávaldurinn sýndi og
sannaði hæfni sína
í gær við mikinn
fögnuð áhorfenda.
Skemmtun fyrir
unglinga og fólk
á öllum aldri.
Miðasala í Háskólabíói
frá kl. 16.00.
!★★★★★★★★★★★★ ★ ★ ★ ★!