Fréttablaðið - 15.01.2009, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 15.01.2009, Blaðsíða 12
12 15. janúar 2009 FIMMTUDAGUR ORÐNAR TVÍTUGAR Í janúar ár hvert er haldinn í Japan dagur þeirra, sem verða sjálfráða á árinu, en það gerist við tvítugsaldur þar í landi. Þessar ungu konur skemmtu sér konunglega í rússíbana í Tókýó í tilefni dagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Ísafirði lagði hald á húðflúrunartæki síð- astliðinn föstudag en eigandi þeirra, sem er 24 ára, hafði húð- flúrað nokkra unglinga undir lög- aldri án samþykkis foreldranna. Þar að auki hafði hann ekki til- skilin leyfi og verður hann tekinn til yfirheyrslu. Lögreglan greindi ekki frá því hversu marga hann hafði húðflúr- að en foreldrar margra þeirra voru slegnir yfir afrakstrinum. Á fréttavef Bæjarins besta á Ísa- firði segir að hann hafi meðal annars húðflúrað hakakross á einn viðskiptavina sinna. Málfríður Sigrúnardóttir, sem rak húðflúrunarstofu á Ísa- firði um nokkurra mánaða skeið í fyrra, segir að sá sem lögregl- an hafi stoppað af hafi húðflúr- að unglinga á aldrinum fjórtán til sextán ára. Húðflúrarinn hafi jafnvel gert það ókeypis. „Ég hætti ekki út af þessu, þetta er nú hálfgert barnakrot hjá honum,“ segir hún. „Það er alveg næg eftirspurnin, það er ekki þess vegna sem ég hætti með stofuna. Svo er ég náttúrlega búin að læra þetta og er með öll leyfi.“ - jse Lögreglan á Ísafirði stöðvar ólöglegan húðflúrara: Foreldrar uggandi STJÓRNMÁL Grétar Jónasson, fram- kvæmdastjóri Félags fasteigna- sala, segir rök Björgvins G. Sig- urðssonar viðskiptaráðherra vegna afnáms skylduaðildar að félaginu ekki halda. Frumvarp viðskiptaráðherra felur meðal annars í sér að fast- eignasölum verður óskylt að vera í Félagi fasteignasala og undirgang- ast siðareglur þess. Ráðherrann segir umboðsmann Alþingis telja vafasamt að skylduaðild standist stjórnarkrá. Grétar Jónasson bendir á að þótt álit umboðsmanns hafi legið skýrt fyrir hafi allir alþingismenn nýlega samþykkt lög um skylduaðild að Félagi löggiltra endurskoðenda. „Þannig heldur það engan veginn að halda því fram að afnema þurfi skylduaðild að Félagi fasteignasala þegar Alþingi hefur þegar tekið skýra afstöðu til álits umboðs- manns. Þá hafa virtir lögmenn og lagaprófessor talið skylduaðild brýna og ekki leika vafa á að hún standist gagnvart stjórnarskrá.“ Að sögn Grétars er ranglega full- yrt í greinargerð með nýja frum- varpinu að allsherjarnefnd hafi árinu 2004 ekki talið lengur þörf fyrir skylduaðild þegar Félag fast- eignasala hefði eflst nægjanlega. „Þetta er alls ekki það sem alls- herjarnefnd sagði.“ Þá segir Grétar að verið sé að fella niður lagaskyldu á Félag fast- eignasala um að tilkynna um brot félagsmanna. „Um 90 prósent af þeim málum sem alvarlegust hafa verið hafa einmitt komið upp eftir ábendingar Félags fasteignasala auk fjölda smærri mála.“ - gar Telur engin rök vera fyrir afnámi skylduaðildar: Segir þingmenn hafna rökum GRÉTAR JÓNASSON Rök halda ekki og rangar fullyrðingar eru í frumvarpi viðskipta- ráðherra segir framkvæmdastjóri Félags fasteignasala. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHEM HEILBRIGÐISMÁL Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hefur sagt niðurskurð í heil- brigðiskerfinu nauðsynlegan vegna efnahagsástandsins. Hann segir ástandið munu breytast þegar kreppunni lýkur. „Það er náttúrlega enginn vafi á því að þegar rofar til hjá okkur, og það gerist fljótt ef við höldum rétt á spilunum, verða örugglega meiri fjármunir til heilbrigðismála en nú.“ Hann svaraði því þó ekki beint hvort það þýði að niðurskurður sem hann hefur boðað og hefur verið mótmælt gangi til baka í betra ástandi. - kóp Heilbrigðisráðherra: Aukið fé þegar kreppu lýkur Átján ljóslausir ökumenn Lögreglan á Selfossi stöðvaði átján ökumenn á þriðjudagskvöldið þar sem ljósabúnaður á bílum þeirra reyndist í ólagi. Ökumönnunum var gefinn frestur til lagfæringa. LÖGREGLUFRÉTTIR MENNING Prjónakonum synjað „Í ljósi aðstæðna“ hefur fræðslunefnd Hafnarfjarðar synjað ósk Jafnréttis- húss Amals Tamimi í Hafnarfirði um styrk vegna prjónanámskeiðs fyrir konur af erlendum uppruna. Innbrot á Selfossi Brotist var inn í kaffihús á Selfossi í fyrrinótt og þaðan stolið 15 þúsund krónum. Þjófarnir komust undan og er þeirra leitað. ATVINNUMÁL Virkjun mannauðs á Reykjanesi hefur formlega starf- semi sína í dag en starfsemin er hugsuð fyrir íbúa á Reykjanesi sem leita nýrra tækifæra í atvinnu eða námi. Virkjun, sem er til húsa í bygg- ingu 740 á Vallarheiði, er ekki síður hugsuð sem samkomustað- ur fólks sem vill breyta því áfalli sem atvinnuleysi er í ný tækifæri á atvinnumarkaði með námi, nám- skeiðum eða mannbætandi tóm- stundum og menningarstarfsemi. Að verkefninu standa meðal ann- arra; sveitarfélög á Reykjanesi, Vinnumálastofnun, verkalýðsfé- lög og fyrirtæki, menntastofnanir eins og Keilir, Fjölbrautaskóli Suð- urnesja og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. Í tilkynningu frá aðstandendum segir að áhersla verði lögð á hlýj- ar móttökur og skipulagða starf- semi þar sem litið verði á erfiða stöðu sem tækifæri. Þá er í Virkj- un vinnuaðstaða fyrir ýmis konar frumkvöðlastarfsemi og aðstoð við stofnun sprotafyrirtækja, aðstaða fyrir námstengd verkefni, fyrir- lestra, kynningar, persónuleg ráð- gjöf og tómstundaverkefni, þátttak- endum að kostnaðarlausu. Í tilkynningunni segir að verk- efnið sé nýmæli til að takast á við atvinnuleysi og megi líta á það sem tækifæri til sjálfseflingar, mennt- unar og að gera einstaklinginn hæf- ari til frekari þátttöku í atvinnulíf- inu þegar ný tækifæri skapast á vinnumarkaði. - ovd Virkjun fyrir íbúa á Reykjanesi sem leita nýrra tækifæra í atvinnu eða námi: Virkja mannauð á Vallarheiði SAMTAKA Framkvæmdastjórn Virkjunar fundar með forystumönnum verkalýðs- félaganna. MYND/DAGNÝ GÍSLADÓTTIR Prentsmiðjan Oddi ehf., Höfðabakka 3-7, 110 Reykjavík sími 515 5000, www.oddi.is Það besta frá convergence & tech·ed 2008 Yfi r 30 fyrirlestrar með hæfasta fólki Microsoft víðsvegar að úr heiminum Heimsfrumfl utningur: Miha Kralj fl ytur fyrirlestur sinn „What the *cloud* is my CIO thinking?“ sem sérsaminn er fyrir Tech· Ed USA (febrúar 2009) Tony Krijnen frumkynnir Windows 7 Dr. Neil Roodyn fjallar um þróun á Windows Live og Windows Azure Ráðstefnan er ekki síst áhugaverð fyrir forritara, tæknimenn og þá sem vilja kynna sér Dynamics viðskiptahugbúnaðar Ráðstefnan er öllum opin – aðgangur er ÓKEYPIS Allar nánari upplýsingar og skráning á microsoft.is Ráðstefna sem sameinar það besta frá Convergence & Tech · Ed 2008 Grand Hótel Reykjavík, 19.–20. janúar, 2009 Convergence & Tech · Ed eru stærstu erlendu ráðstefnur sem Microsoft heldur ár hvert og fjöldi Íslendinga sækir þær að jafnaði Í FYRSTA SINN Á ÍSLANDI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.