Fréttablaðið - 15.01.2009, Blaðsíða 42
34 15. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 15. janúar
➜ Tónleikar
20.00 Fimmtudagsforleikur í Hinu
húsinu, Pósthússtræti 3-5. Fram koma
hljómsveitirnar Pontiac Pílatus, Bob og
Swords of Chaos. Aðgangur ókeypis.
16 ára aldurstakmark. Gengið inn í kjall-
arann Austurstrætismegin.
22.00 Bossa nova night Brasilíska
söngkonan Jussanam da Silva verður
með tónleika ásamt Ásgeiri Ásgeirssyni
og Erik Qvick á Café Oliver, við Lauga-
veg 20a.
22.00 Elín Ey og
Pikknikk ásamt
hljómsveit spila
á Rósenberg,
Klapparstíg 25.
➜ Opnanir
17.00 Hrafnkell Sigurðsson opnar
sýninguna Uplift í i8 gallery við Klapp-
arstíg 33.
➜ Fyrirlestrar
20.00 Hönnuðurinn Jurgen Bey flytur
erindi í Listasafni Reykjavíkur við
Tryggvagötu. Ókeypis aðgangur og allir
velkomnir.
➜ Síðustu Forvöð
Yfirborðskennd, sýning Baldurs Geirs
Bragasonar í Kling og Bang gallerí við
Hverfisgötu 42, lýkur á sunnudag. Opið
fim.-sun. kl. 14-18.
➜ Myndlist
Helga Ástvaldsdóttir sýnir verk á Thor-
valdsen Bar við Austurstræti. Opið alla
daga frá kl. 11-01.
Skaftfell Miðstöð myndlistar á Seyð-
isfirði Goddur sýnir verk í sýningarsal
Skaftfells. Á vesturveggnum sýnir
Hjálmar Níelsson. Opið mið.-fim. kl.
13-17 og föst.-sun. kl. 13-20.
Tilbrigði við jökulinn Hrefna Víglunds-
dóttir sýnir verk í Reykjavík Art Gallery
við Skúlagötu 30. Sýningin er opin alla
daga nema mánudaga kl. 14-17.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Kvennagrúppan Trio
Nordica hefur um fimmt-
án ára skeið haldið saman
og spilað margbreytilega
tónlist fyrir landann og
erlenda áheyrendur, tekið
upp hljómplötur og gefið út.
Á sunnudaginn koma þær
fram á tónleikum Kammer-
músíkklúbbsins í Bústaða-
kirkju.
Á efnisskránni hjá þeim stöllum
eru þrjú verk, sitt úr hverri átt-
inni: píanótríó í f-moll eftir Dvor-
ák, tríó eftir Henze og píanótríó
eftir Taneyev. Er um frumflutn-
ing að ræða á tríói Taneyevs hér
á landi, en tríóið er afar krefjandi
og stórbrotið. Trio Nordica skipa
Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari,
Bryndís Halla Gylfadóttir sellól-
eikari og Mona Kontra píanóleik-
ari. Taneyev er ekki kunnur hér
á landi en hann fæddist 1856 og
lést 1915, kominn af tónlistar-
fólki, lærði hjá Tchaikovskí og
var honum handgenginn, kunnur
píanóleikari á sinni tíð og kennari,
setti saman stórt fræðilegt verk
um kontrapunkt og minna um can-
ónuna. Hann var alfræðingur en
leit á tónsmíðar sem stærðfræði-
legt verkefni. Eftir hann liggja
mörg verk af fjölbreytilegu tagi,
þeirra á meðal ópera sem sækir
texta í Oresteiu Eskilosar. Verk
Dvoráks og Henze eru kunnari
hér á landi.
Tríóið hefur leikið víðs vegar
og fengið frábæra dóma fyrir
leik sinn. Fram undan er fjöldi
tónleika, meðal annars á Íslandi,
Finnlandi og í Svíþjóð. Tríóið
mun vera með tónleika á Listahá-
tíð í Reykjavík 2009. Trio Nordica
hefur nýlokið upptökum á geisla-
disk gefnum út af INTIM Musik,
með verkum eftir Elfridu Andrée,
en hún var sænskt tónskáld, fædd
1841 og lést 1929. Hún var framar-
lega í sveit framakvenna á sinni tíð
og naut álits í Svíþjóð en hún starf-
aði sem organisti við dómkirkjuna
í Gautaborg. Meðal verka hennar
má nefna óperuna Friðþjófs sögu,
fjórar sinfóníur oog smærri verk
meðal annars fyrir tríó sem þær
stöllur hafa nú hljóðritað.
Tónleikaröð Kammermúsík-
klúbbsins er aðgengileg á vefsíðu
klúbbsins www.kammer.is, en tón-
leikar hans hafa um langt árabil
verið í Bústaðakirkju.
pbb@frettabladid.is
Kvennagrúppa spilar
TÓNLIST Trio Nordica: Bryndís, Mona og Auður.
Tónlistarhátíðin Við Djúpið er orð-
inn árviss viðburður við Djúp. Hún
verður haldin á Ísafirði í 7. sinn
dagana 18. til 23. júní 2009. Viða-
mesta verkefnið á dagskrá hátíðar-
innar í ár er stórt samstarfsverk-
efni með Ísafold kammersveit og
Rás 1 Ríkisútvarpsins.
Verkefnið er samkeppni fyrir ný
tónskáld. Tilhögun er þessi: 3 til 4
tónskáld fá tækifæri til að skrifa
verk sérstaklega fyrir sveitina Ísa-
fold sem verður frumflutt á hátíð-
inni. Tónskáldin fá tækifæri til að
vinna náið með meðlimum Ísafold-
ar með sérstaka áherslu á praktíska
hluti sem varða framsetningu verks-
ins og skrif fyrir einstök hljóðfæri.
Danska tónskáldið Bent Sørensen
er sérstakur gestur hátíðarinnar og
mun leiðbeina þessum upprennandi
tónskáldum enn frekar við vinnu
þeirra. Auk þess mun hann flytja
fyrirlestra um eigin verk og kenna
á námskeiði á dagskrá hátíðarinnar.
Tilgangurinn með þessu skemmti-
lega verkefni er að gefa ungum tón-
skáldum tækifæri til að vinna mjög
náið með hljómsveit, mun nánar en
undir venjulegum kringumstæðum.
Það eru þeim sem standa að verkefn-
inu, tónlistarhátíðinni, kammersveit-
inni og Rás 1 mikil ánægja að bjóða
upp á þessa nýjung hér á landi.
Nokkur praktísk atriði fyrir þátt-
takendur: Þátttakendur skila inn
umsóknum fyrir 15. janúar. Þar
þurfa ákveðin gögn að fylgja sam-
kvæmt reglum keppninnar. Regl-
urnar er að finna á heimasvæði
keppninnar á heimasíðu tónlistarhá-
tíðarinnar: www.viddjupid.is. Hinn
15. febrúar verður tilkynnt hverjir
fá að taka þátt og 1. maí verða verk-
in að vera tilbúin. Dómnefndina
skipa: Daníel Bjarnason, formaður,
Melkorka Ólafsdóttir, flautuleikari,
Jónas Tómasson, tónskáld, og Þur-
íður Jónsdóttir, tónskáld. Heiðurs-
dómari: Bent Sørensen. Þá er bara
að draga fram hugmyndir að kamm-
erverkum úr skúffunum og sækja
um. - pbb
Kammerverk vantar í sumar
Í kvöld hefst í Hafnarhúsinu
við Geirsgötu ný fyrirlestraröð
sem Hönnunarmiðstöð Íslands
á veg og vanda að. Fyrsta fyr-
irlesturinn flytur Jurgen Bey
sem er einn af áhugaverð-
ustu hönnuðum samtímans og
starfar sem gestakennari við
Listaháskóla Íslands. Jurgen
er hollenskur. Hann er einn af
stofnendum hollensku hreyf-
ingarinnar Droog Design (1993)
sem hafði afgerandi áhrif á sér-
stöðu Hollands meðal hönnuða
í dag.
Fyrirlesturinn er unninn í
samstarfi Hönnunarmiðstöðv-
ar Íslands, Hönnunar- og arki-
tektúrdeildar LHÍ og Listasafns
Reykjavíkur.
Rætt um
hönnun
ath. kl. 22.45
Endursýning á RUV á Albúm, fyrsta þættinum í
nýrri danskri dramaseríu sem byggir á skáldsögu
eftir Benn Q. Holm sem kom út árið 2002. Albúm
er eins og safn svipmynda úr sögu þriggja fjöl-
skyldna. Það er líkt og flett sé í myndaalbúmi og
staldrað við myndir sem okkur langar að skoða.
Fjölskyldurnar þrjár þekkjast í rauninni ekkert
en þær hafa áhrif á líf hver annarrar á árunum frá
1970 til 2000.
DANÍEL BJARNASON Leiðtogi Ísafoldar er
formaður dómnefndar um kammerverk.
www.leikhusid.is
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Þjóðleikhúsið
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Hart í bak
Jökull Jakobsson
Hrífandi verk sem
snertir okkur öll
EB, FBL
sun. 18/1 uppselt
Klókur ertu,
Einar Áskell
Bernd Ogrodnik
Krúttleg brúðusýning
fyrir yngstu börnin
sun. 18/1
allra síðustu sýningar
Sumarljós
Jón Kalman Stefánsson
leikgerð og leikstjórn Hilmar Jónsson
Hrífandi, einlæg og æsandi sýning
fös. 16/1 uppselt
lau. 17/1 örfá sæti laus
Heiður
Joanna Murray-Smith
Magnað meistaraverk
Frumsýning í
Kassanum 24. janúar
Kardemommu-
bærinn
Frumsýning 21. febrúar
Miðasala í fullum gangi!
„Hvað er svona lagað
kallað á tæknimáli?
Samþjappað rusl? Bagg-
ar. Sorpa framleiðir um
það bil 239 bagga á degi
hverjum. Það er sam-
dráttur úr 350 frá sept-
ember 2008. Er þeim þá
bætt við urðunarhaug-
inn samdægurs? Já, eða
strax næsta dag. Drífum
í þessu. Baggi númer 1.
Þyngd: um það bil 943,5
kíló, jafngildi 1,04 lítið
tonn (bandarískt tonn).
Mál: 101, 3x100, 9x110
sentimetrar. Ég sé að
baggarnir eru reyrðir saman með
tíu vírum. Mælieiningin á milli
tveggja víra er þá 94,35 kíló.“
Fyrsta sýning galleríis i8 á hru-
nárinu er á á rusli, bögguðu rusli.
Hrafnkell Sigurðsson myndlist-
armaður hefur áður gert spegl-
uð myndverk úr fagurlegri áferð
ruslahauga sem kalla á áhorfand-
ann eins og samansafn af
litskrúðugum tómum sæl-
gætisbréfum, og nú notar
hann umbúðir í skúlpt-
úra sem eru baggaður
úrgangur. Lyktin venst
segir myndlistarmaður-
inn í textanum sem vitn-
að er til hér að framan
sem er samtal hans um
verkin á sýningunni sem
hann átti við Shaunu
Laurel Jones: Lyktin
er vond en hún venst.
Þetta skilur þú eftir
þig, lesandi góður.
Hrafnkell hefur á
liðnu ári átt góða spretti víða og
vekur jafnan athygli, hvort sem
hann skreytir símaskrá eða kall-
ar til karla í vinnufötum í þéttan
dans eins og sjá mátti í verki hans
á síðustu listahátíð.
Sýningin í galleríi i8 er opin frá
11-17 þriðjudag til föstudags og
laugardaga 13-17.
Fyrsta sýning i8
HRAFNKELL
SIGURÐSSON
Myndlistarmaður.