Fréttablaðið - 15.01.2009, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 15.01.2009, Blaðsíða 38
 15. janúar 2009 FIMMTUDAGUR MARTIN LUTHER KING FÆDD- IST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1929 Í ATLANTA Í GEORGÍU. „Sá sem á ekkert sem hann er tilbúinn að deyja fyrir á heldur ekk- ert til að lifa fyrir.“ King sem var ötull bar- áttumaður fyrir réttind- um svartra í Bandaríkjun- um var ráðinn af dögum 4. apríl 1968 í Memphis í Tennessee. „Mér finnst ég batna sem persóna með hverju árinu sem líður. Maður verður heilsteyptari og þroskaðri og lærir af mistökunum,“ segir Einar Páll Tamimi lögfræðingur, sem er fertugur í dag. Afmælið mun Einar Páll upplifa í kyrr- þey en hann hyggst hins vegar gera sér dagamun með nánustu fjölskyldu og vinum á föstudaginn. „Þá held ég upp á fjörutíu ára og eins dags afmælið mitt,“ segir hann íhugull. „Samkvæmt tölfræði um lífslíkur þá er ég akkúrat hálfnaður á þeirri leið þannig nú er til- efni til að gera sér dagamun.“ Spurður um hvað stendur upp úr verður Einar Páll hugsi. „Þótt þessi 40 ár hafi liðið hratt virðist þetta nokkuð langur tími þegar litið er til þess sem gerst hefur. Að hafa eignast tvö stór- kostleg börn stendur náttúrlega upp úr, þótt auðvitað sé engin ástæða til að útiloka að þau geti orðið fleiri í fram- tíðinni hjá manni á besta aldri,“ segir hann og hlær. „Síðan hefur mér gefist tækifæri til að búa víða í heiminum en fyrir utan Ísland þá hef ég búið í Finn- landi, Bandaríkjunum, Japan og Belgíu, en hef auk þess heimsótt fjölmörg lönd í flestum heimsálfum.“ Ástæður tíðra flutninga hafa að sögn Einars Páls bæði tengst námi og störfum. Þrátt fyrir viðburðaríka ævi hefur Einar Páll ekki verið gefinn fyrir að setja sér aldurstengd markmið. „Ég vil frekar grípa þau tækifæri sem gefast. Ef menn einblína of mikið á markmið sem sett eru löngu áður en þau eiga að nást þá eru þeir kannski að loka augun- um fyrir öðrum og skemmtilegri tæki- færum sem kunna að opnast á leiðinni. Ég hef því frekar viljað vera opinn fyrir því sem lífið hefur upp á að bjóða á hverjum tíma þó svo ég hafi sett mér ýmis markmið til skemmri tíma,“ við- urkennir hann og nefnir nýjasta við- fangsefnið. „Markmið þessa árs er að bæta maraþontímann og hlaupa Lauga- veginn.“ Einar Páll hefur gaman af íþróttum og er að eigin sögn ofstækisfullur knatt- spyrnuaðdáandi. „Á það sérstaklega við þegar kemur að Manchester United og hef ég til dæmis ferðast um höf og lönd til að sjá liðið keppa. Fyrst við vorum að tala um hluti sem standa upp úr þá má ekki sleppa úrslitaleiknum í meist- aradeildinni í Moskvu í fyrra þar sem mitt lið vann Chelsea. Það var ótrú- legt!“ Nýtt áhugamál frá því í haust er formennska í Meistararáðsráði kvenna í fótbolta í Stjörnunni. „Þar höfum við sett markið hátt og ætlum að reyna að gera lið að meisturum innan fárra ára,“ segir hann kappsamur. Einar Páll situr sjaldnast auðum höndum og þessa dagana vinnur hann að doktorsritgerð auk þess að vera sjálf- stætt starfandi lögmaður og stunda- kennari við Háskólann í Reykjavík. „Fram að byrjun október var allt í mjög góðu jafnvægi en síðan breyttist ýmis- legt og doktorsritgerðin hefur mátt sitja á hakanum. En svo skemmtilega vill til að fyrstu kennslustundina mína í HR í tvö ár ber upp á afmælisdaginn minn. Því má segja að ég haldi upp á afmælið með því að kenna alþjóðlega fjármagns- markaði, sem menn velta reyndar fyrir sér hvort að séu til lengur,“ segir hann kíminn og bætir við að umræður verði eflaust mjög líflegar í tímunum í vetur. hrefna@frettabladid.is EINAR PÁLL TAMIMI LÖGFRÆÐINGUR: ER FERTUGUR Í DAG Augun opin fyrir tækifærum Byrgið var íslenskt meðferðarheim- ili sem starfa átti á kristilegum grunni og var ætlað fyrir heimilislausa vímu- efnafíkla, spilafíkla og fólk með ýmiss konar persónuleikaraskanir. Meðferðin átti að hjálpa fólki að öðlast betra líf. Byrgið stóð einnig fyrir forvarnarstarf- semi og ráðgjöf fyrir fíkla. Forstöðumaður Byrgisins var Guð- mundur Jónsson en hann vék tíma- bundið úr starfi í desember 2006 eftir sýningu fréttaskýringarþáttarins Komp- áss 17. desember sama ár, en þar var sagt frá rannsókn á málefnum Byrg- isins á vegum þáttarins sem stað- ið hafði yfir í þrjá mánuði. Kom þar í ljós ýmiss konar misferli í tengslum við skjólstæðinga Byrgisins og fjármál meðferðarheimilisins. Byrginu var loks lokað 15. janúar árið 2007 eftir að Ríkisendurskoðun birti niðurstöður úttektar sinnar. Út- tektin leiddi í ljós að bókhald Byrgisins væri í ólagi og að ríkissaksóknara bæri að taka málið til umfjöllunar. Ekki var gerð nægjanleg grein fyrir fjölmörg- um útgjöldum Byrgisins auk þess sem fjármunir þess voru notaðir af starfs- mönnum til einkaneyslu. Sama dag og Byrginu var lokað kærði önnur kona Guðmund Jónsson fyrir kynferðislega misbeitingu. Fleiri kærur komu síðar. ÞETTA GERÐIST: 15. JANÚAR 2007 Byrginu í Grímsnesi lokað BATNAR MEÐ ALDRINUM Einar Páll Tamimi telur sig hafa þroskast og batnað með aldrinum og hlakkar til að takast á við næstu fjörutíu árin. timamot@frettabladid.is Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Lovísa Anna Árnadóttir frá Húnakoti, Þykkvabæ, verður jarðsungin frá Þykkvabæjarkirkju, Þykkvabæ, laugardaginn 17. janúar kl. 13.30. Þeim sem vilja minn- ast hennar er bent á minningarsjóð Þykkvabæjarkirkju. Fyrir hönd aðstandenda, Árni Óskarsson Guðmunda Sigurðardóttir Gísli Garðar Óskarsson Sigrún Ósk Bjarnadóttir Katrín Óskarsdóttir Gunnar Alexandersson Margrét Auður Óskarsdóttir Pétur Kúld Elsku mamma okkar, tengdamamma og amma, Ólöf Erla Kristinsdóttir lést föstudaginn 9. janúar. Útför hennar fer fram frá Neskirkju föstudaginn 16. janúar kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Líknardeild LSH, Kópavogi, s. 543 1159. Laufey Erla Jóhannesdóttir Hannes Sigurðsson Arndís Birna Jóhannesdóttir Guðmundur Þ. Guðmundsson Kristinn Örn Jóhannesson Svanbjörg H. Einarsdóttir Þórhildur Ýr Jóhannesdóttir Pétur Davíðsson og barnabörnin. Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, Björgvin Jósteinsson kennara Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar L-4, Landspítala, Landakoti. Guðrún Steingrímsdóttir Dóra Björgvinsdóttir Ingi Steinn Björgvinsson Vera Buus Nielsen Dagný Björgvinsdóttir Jóhann S. Bogason Bryndís Björgvinsdóttir Brjánn Ingason og barnabörn Amma mín, móðir okkar og tengdamóðir, Sigrún Sigtryggsdóttir áður til heimilis að Byggðavegi 84, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 16. janúar kl. 10.30. Sigrún Einarsdóttir Eggert Pálsson Þórunn Bergþórsdóttir Stefán F. Bergþórsson Anna Sigríður Tebbetts David Tebbetts Hildur Bergþórsdóttir Magnús H. Ólafsson og aðrir aðstandendur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Harald M. Isaksen rafvirkjameistari, Blásölum 13, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju föstudaginn 16. janúar kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartaheill. Ingibjörg Þorgrímsdóttir Guðbjörg Conner Hagerup Isaksen Guðríður Helga Benediktsdóttir Guðríður H. Haraldsdóttir Steinþór Haraldsson Þorgrímur Isaksen Kristín Erla Gústafsdóttir Margrét Haraldsdóttir Ágúst H. Sigurðsson Harald H. Isaksen Kolbrún A. Sigurðardóttir afabörn og langafabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Elín Sæmundsdóttir Borgarholtsbraut 62, Kópavogi, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 10. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Grímur Guðmundsson Jón Elvar Sigríður Markúsdóttir Guðmundur Grímsson Hrafnhildur Proppé Finnur Grímsson Þórunn Hafsteinsdóttir Elín Grímsdóttir Jón Bjarni Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn. Okkar elskulegi eiginmaður, faðir, sonur, bróðir og mágur, Sverrir Heiðar Júlíusson Túngötu 6, Hvanneyri, lést á krabbameinsdeild Landspítalans mánudaginn 12. janúar sl. Útförin fer fram frá Akraneskirkju miðvikudaginn 21. janúar kl. 14.00. Emma Heiðrún Birgisdóttir Álfheiður Sverrisdóttir Birgir Þór Sverrisson Anna Soffía Sverrisdóttir Ragnheiður Júlíusdóttir Pétur Ólafsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.