Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.01.2009, Qupperneq 25

Fréttablaðið - 15.01.2009, Qupperneq 25
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 Gunnhildur Jónsdóttir starfar sem stuðningsfulltrúi í Öskjuhlíðar- skóla og hefur vakið athygli fyrir fallegan klæðaburð. „Sumir nem- endurnir spá töluvert í klæðaburð- inn og hafa til dæmis orð á því ef ég mæti í buxum eða nýjum skóm,“ segir Gunnhildur brosandi en að eigin sögn er hún mikil kjólakona. „Ég er til dæmis mjög hrifin af blómakjólum og nota oft leggings. Hins vegar er ég líka mikill lopap- eysuaðdáandi og skófíkill.“ Gunnhildur á um hundrað skó- pör, bæði hælaskó og flatbotna. Skórnir sem hún er í á myndinni fengust á skómarkaði. „Hann var í einhverri skemmu og kostuðu þeir einungis um fjögur þúsund krón- ur,“ segir hún. Kápuna fékk hún einnig á kostakjörum. „Hana fékk ég í þeirri mætu búð Whistles sem var eitt sinn í Kringlunni. Ég átti leið framhjá og rak þá augun í káp- una á janúarútsölu og keypti hana og einn kjól,“ segir Gunnhildur og bætir við að hún hreinlega elski kápuna sína. „Hún er svo glæsileg og hlý, en þetta er sparikápa.“ Misjafnt er hvar Gunnhildur kaupir fötin og segir hún að í raun skipti það ekki máli. „Ég kaupi bara það sem mér finnst flott, bæði nýtt og notað. Stundum fer ég í Kolaportið og kaupi fullt af kjólum,“ segir Gunnhildur einlæg og viðurkennir að hún hafi smekk fyrir gamaldags fötum. „Mér þykir alltaf gaman að vera fín en hversdags er ég nú í þægi- legri fötum, enda þýðir ekki annað í vinnunni. Siffonkjólar og hæla- skór henta kannski ekki,“ segir hún kímin. hrefna@frettabladid.is Elskar hvítu kápuna sína Fatastíll Gunnhildar Jónsdóttur er kvenlegur en rósóttir kjólar, vel sniðnar yfirhafnir og smekklegt skó- tau er í uppáhaldi. Hún klæðir sig þó eftir tilefni og segist líka halda upp á íslensku lopapeysuna. TÍSKUVIKAN í Hong Kong stendur nú yfir. Í vikunni mátti meðal annars sjá prjónafatnað kínverska fatahönnuðarins Coney Ko sem valdi saman svarta, hvíta, skærgræna og gráa liti og er útkoman smart og stílhrein. Gunnhildur tekur sig glæsi- lega út í fallegri kápu sem keypt var í Whistles, sem var eitt sinn í Kringlunni. Skóna fékk hún á útsölumarkaði. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ NJÓGA Ásta Arnardóttir • 862 6098 www.this.is/asta • astaarn@mi.is www.lotusjogasetur.is • Borgartúni 20 MORGUN / HÁDEGI / SÍÐDEGI BYRJENDANÁMSKEIÐ HEFST 22. OKT. KUNDALINI HEFST 22. OKT.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.