Fréttablaðið - 15.01.2009, Side 30

Fréttablaðið - 15.01.2009, Side 30
 15. JANÚAR 2009 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● heilsa og lífsstíll Fræðslukvöld á vegum Ráðgjafa- þjónustu Krabbameinsfélags- ins verður í kvöld þar sem fjallað verður um HPV-veiruna og hnúta í brjóstum. Fyrirlesturinn eru opinn öllum og sérstaklega ungum konum þar sem HPV-veirusmit hefur auk- ist hjá ungum stúlkum á Vestur- löndum, en um 80 prósent kvenna smitast einhvern tímann á ævinni. HPV-veiran smitast við kynmök. Hún getur valdið kynfæravörtum og jafnvel leitt til leghálskrabba- meins en yfirleitt vinnur líkaminn á veirunni sjálfur án þess að konan verði þess vör að hafa sýkst. Aukn- ing á smiti ungra kvenna er rakin til raksturs í kringum kynfæri. Einnig verður fjallað um hvað hnútar í brjóstum eru og hvernig skuli bregðast við ef þeir finnast. Fyrirlesturinn fer fram í Skóg- arhlíð 8 klukkan 20 í kvöld og er aðgangur ókeypis. - rat Fræðsla um HPV-veiruna Einnig verður fjallað um hvernig bregð- ast skuli við ef hnútar finnast í brjóstum. Sjónvarpsþættir þar sem áhorfend- um gefst kostur á að læra að nudda sína nánustu hefja göngu sína á sjónvarpsstöðinni ÍNN þriðjudag- inn 20. janúar. Nuddarinn Gunnar L. Friðriks- son hefur umsjón með þáttunum, sem verða fjórir talsins. Hann hefur á undanförnum árum boðið upp á námskeið í svæða- og vöðva- nuddi sem eru ætluð þeim sem vilja getað nuddað vini og vanda- menn. Upplýsingar um þau er að finna á www.gufubad.net. „Markmiðið með þáttunum er að fólk geti tileinkað sér nokkur undirstöðuatriði og þannig nuddað fjölskyldumeðlimi eða vini,“ segir Gunnar. - ve Nuddkennsla í sjónvarpinu Gunnar Friðriksson hefur umsjón með nýjum þáttum sem eru að hefja göngu sína á sjónvarpsstöðinni ÍNN. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fyrsta Detox-helgarnámskeiðið sem Jónína Ben stendur fyrir á Hótel Reynihlíð við Mývatn í lok þessa mánaðar er að fyllast og búið að áforma annað frá 5. til 8. febrúar. Einnig hafa undirtektir verið góðar við tveggja vikna meðferð sem hefst 29. janúar. Jónína segir yfir 2.000 manns hafa farið á hennar vegum til Pól- lands til að fá heilsubót með Detox- meðferð og árangurinn spyrjist út. Nú hafi hún fengið frábæra að- stöðu í Hótel Reynihlíð við Mývatn með aðgangi að jarðböðunum sem henti meðferðinni vel. Detox-meðferð byggist fyrst og fremst á föstu og sérstöku mat- aræði og vinnur á margs konar krankleika að sögn Jónínu, svo sem gigt, kvíða, offitu, ristilsjúkdóm- um og exemi svo dæmi séu tekin. „Fólk léttist og líðanin breytist til batnaðar og oft losar fólk sig við lyf í framhaldinu,“ segir Jónína. Sjá nánar á www.detox.is. Fyrstu tímar að fyllast Aðgangur að jarðböðunum er innifalinn í námskeiðunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.