Tíminn - 28.11.1982, Page 4
4
SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1982
Hjónaskilnaðir hafa tvö-
faldast á tveimur áratugum
■ „Lögskilnuðum hefur fjölgað mik-
ið undanfarna áratugi. Sé miöað við
árin 1961-65 - en 1961 hefst ýtarleg
skýrslugerð um lögskilnaði - hafði tala
lögskilnaða hátt í þrefaldast 1981, en
tvöfaldast miðað við íbúatölu."
Þessar upplýsingar cr að finna i
nýjasta hefti Hagtídinda. Þar kemur
einnig fram að lögskilnaðir hér á landi
voru á síðasta ári 463. Fyrir áratug
voru þeir 306. Á firnm ára tímabili,
1961-65 voru lögskilnaðir samtals 821.
Ef horft er tii síðasta áratugar kcmur
í Ijós að lögskilnaðir hafa færst í vöx
jafnt og þétt. Árið 1972 voru skilnaðir
319, 1973: 334; 1974: 364; 1975: 397;
1976: 383; 1977: 407; 1978: 411; en
1979 fækkaði skilnuðum lítilsháttar og
urðu 394. Síðan varð aftur fjölgun árið
1980 og voru þá skilnaðir 441 og í fyrra
463, eins og fyrr segir.
Viðmæiendum Hclgar-Tímans ber
sdman um að þessi þróun hafi haldið
áfram í ár, sumir telja jafnvel að hún
hafi orðið enn hraðari en fyrr, en um
það liggja engar tölur fyrir enn sem
komið er.
Það er eftirtektarvert að æ algengara
hefur orðið undanfarin ár, að leyfi til
lögskilnaðar sé veitt án þess að •
skilnaður að borði og sæng fari á
undan. Þannig er því t.d. varið um
þriðjung lögskilnaða árin 1976-1981.
Algengast virðist að fólk sem slítur
samvistum hafi búið í hjúskap í 6-9 ár,
cn þar á eftir kemur tíminn 3-5 ár. Af
þeim 463 hjónaböndum er lauk með
lögskilnaði í fyrra var í 316 tilvikum
um að ræða hjón er áttu barn eða börn
saman. Flest hjón áttu eitt barn eða
173, en sjaldgæft er að hjón er leituðu
lögskilnaðar ættu fieiri en tvö böm. í
yfirgnæfandi meirihluta tilvika fékk
múðir forráð bama. Af 513 skilnaðar-
.bömum lcntir 461 hjá móður sinni, 50
hjá föður og 2 annars staðar.
- GM.
Séra Sigurður Haukur Guðjónsson. I höndinni hefurhannóafgreiddar
skilnaðarbeiðnir, og þær eru ekki fáar. - Tímamynd: Róbert.
Baráttan fyrir
þaki yfir höfuðið
aðalástæða fjölg-
unar hjónaskilnaða
— segir séra Sigurður Haukur Guðjónsson
■ „Já, ég hef orðið var við það að
hjúnaskilnuðum hefur fjölgað á undan-
förnum árum og það hröðum skrefum",
sagði séra Sigurður Haukur Guðjónsson
sóknarprestur i Langholtsprestakalli í
samtali við Helgar-Tímann.
„Bein ástæða skilnaða er oft óregla,
lyfjanotkun og drykkjuskapur, en ég
held að þetta tvennt sé þó ekki orsökin
sjálf heldur fylgikvillar. Aðalvandinn
stafar af erfiðleikum fólks að koma sér
þaki yfir höfuðið og sá vandi getur oft
orðið gríðarlegur.“
Séra Sigurður Haukur benti á að nú
orðið gætu tekjur annars aðilans í
hjónabandi alls ekki nægt til að framfæra
heimili. Fólk yrði oft að vinna myrkr-
anna á milli, einkum þegar verið er að
berjast við að koma sér upp húsnæði, og
þá vildu samskiptin verða lítil eða engin.
Fólk kæmi seint heim á kvöldin og
reyndi að sofa úr sér mestu þreytuna, og
af þessi leiddu ýmis konar örðugleikar í
samskiptum og önguleiki eða togstreita
á heimilunum. A endanum flosnaði
heimilið svo upp.
Séra Sigurður Haukur kvaðst telja að
það skipulag sem ríkti hér á landi í
húsnæðismálum bæri þunga ábyrgð á
fjölgun hjónaskilnaða. „Hvernigstendur
á því að fólk sem er að reisa sér hús,
sem kostar t.d. eina milljón, verður að
borga tvær milljónir. Hvernig í ó-
sköpunum víkur því við að við líðum
það að svo bráðnauðsynlegur hlutur,
sem það er að koma sér þaki yfir
höfuðið, skuli vera notaður í gróðaskyni.
Það verður að koma til breying á þessum
málum. Við þurfum að ryðja burt þeim
aðilum sem eru að græða á því að fólk
þarí á húsnæði að halda.“
Á borði séra Sigurðar Hauks liggur
fjöldi beiðna um hjónaskilnaði sem eru
enn í gerð, sem kallað er. Að líkindum
inunu þau mál flest enda með hjú-
skaparslitum. „Fæstir sem til okkar
prestanna leita gera það til að ná sáttum.
Fólk leitar oftast til okkar of seint, þegar
í rauninni er búið að ganga frá öllu nema
pappírum og stimplum. Sumir vilja
sannarlega reyna að bjarga hjónaband-
inu en sjá cnga leið til þess.“
„Það er eins og hjónaskilnaðir gangi
í bylgjum, eins og raunar margt annað
í mannlífinu, slys o.þ.h.“, segir séra
Sigurður Haukur. „Það er athyglisvert
að stundum grípa skilnaðir um sig sem
faraldur. Fáirðu skilnað í vinahópi þá
máttu vera viss um að eftir stuttan tíma
færðu fleiri úr sama hópnum. Ég hef
mjög oft orðið var við þetta. Annars er
það einkennandi að skilnaðir fylgja oft
haustinu, nú og líka eru þeir algengir
eftir árshátíðir."
Við spyrj un hvort það sé einkum mjög
ungt fólk sem kýs að binda enda á
hjónaband.
„Nei, svo er ekki“ segir Sigurður
Haukur. „Það virðist fara svolítið eftir
því hve lengi fólk hefur búið saman.
Eftir fimm til sjö ára sambúð fer að
reyna á það hvort hjónin eigi eitthvað
sameiginlegt. Það hefur verið sagt að um
tvítugt velji fólk sér maka eftir auganu
en um þrítugt eftir eyranu. Ég held að
í þessu séu sannindi fólgin. Ef ekki eru
fyrir hendi sameiginleg áhugamál, sam-
eiginleg umræðuefni, þá slökknar fljótt
ástareldurinn. Annars er það á öllum
aldri sem fólk skilur. Ég veit jafnvel
nokkur dæmi þess að fólk slítur samvist-
um eftir þrjátíu ára hjúskap.“ - GM
99Hef misst
trúna á
hjönabandið99
Rætt við unga konu sem skildi við
mann sinn fyrr á þessu ári
Orsakir skilnaða eru eins margvíslegar
og mennirnir eru margir. Samt eru jafnan
með orsakir sem mörgum slitnum hjóna-
böndum eru sameiginlegar og eflaust
munu ýmsir kannast við einhverja örðug-
leika úr eigin lífí í samtali því við unga
konu sem hér fer á eftir, en hún skildi við
mann sinn að borði og sæng á þessu ári.
■ „Þegar við X skildum, fannst mér í
einu orði sagt að þetta væri orðið það
ömurlegt að tilgangslaust væri orðið að
halda því áfram. Segja má að við höfum
verið búin að gera tilraun til þess að
skilja einu sinni áður, fyrir tveimur
árum. Þá flutti ég í tvo mánuði til
foreldra minna og var alveg staðráðin í
því að verða þar eftir og taka ekki saman
við manninn aftur. Samt fór það svo á
endanum og ástæðan var sú að hann var
sjálfur geysilega mikið andvígur þessu
þá og dóttir okkar, sem þá var sex ára
virtist alls ekki ætla að sætta sig við
þetta, þegar ég reyndi að tala utan að
því við hana að við færum ekki heim
aftur. Hún sættir sig betur við það núna,
. finnst mér, - kannske af því að hún hefur
orðið vitni að því að okkur pabba
hennar kemur ekki vel saman. Nei, hann
hefur aldrei ráðist á mig eða slegið mig,
ef þú átt við það. Þó einu sinni, en þá
mislíkaði honum við mig að ég fór á ball
með vinkonu minni og var hjá henni um
nóttina, án þess að láta vita af mér. Þá
varég líka orðin alvegákveðin í aðskilja
við hann. Hann sat heima alla nóttina
og drakk eitthvað. Hann hafði hringt út
um allar trissur að reyna að hafa uppi á
mér og var þess vegna orðinn mjög
æstur.
Mamma og pabbi héldu
upp á X
Ég er nú 26 ára og við vorum búin að
vera gift í sex ár, en höfum búið saman
í sjö ár. Hann er tveimur árum eldri en
ég og við kynntumst þegar við vorum
bæði í skóla, hann í iðnskólanum, en ég
í menntaskóla. Hann lauk auðvitað sínu
námi í húsasmíði fyrir löngu, en ég hætti
aftur á móti í skólanum þegar ég átti
einn bekk éftir. Ég er nú mikið að hugsa
um það að klára menntaskólann, annað
hvort með því að fara í öldungadeild,
eða þá að reyna að lesa utanskóla við
minn gamla skóla, ef ég þá fæ það. Ég
get ekki sest í skólann, því ég þarf að
stunda mína vinnu, en ég vinn hjá
ríkisfyrirtæki. Sem betur fer eru foreldr-
ar mínir mér mjög hjálplegir og geta
hjálpað mér með stelpuna sem við
eigum, því annars yrði þetta mjög erfitt.
Jú, þau sætta sig alveg við að við skulum
hafa skilið. Pabbi var reyndar einnig
giftur áður á sínum fima og mér finnst
að hann skilji mig mjög vel. Mamma má
segja að sætti sig við þetta, því hún hélt
mikið upp á X og pabbi eiginlega líka.
En þau skilja þetta samt, sem betur fer.
Hef ekki sérstakan áhuga
á kvæntum mönnum
Maðurinn minn fyrrverandi segist
vona að við tökum saman aftur, áður en
þetta ár er liðið sem við eigum að hafa
umhugsunarfrest, skilin að borði og
sæng, eins og það er kallað, en ég er
alveg ákveðin í því að þetta sé
endanlegt. Ég þekki annan mann núna,
sem er reyndar jafngamall mér og ég hef
ekkert gert til þess að dylja það. Jú,
honum fellur það mjög illa, segir hann,
- en ég vil að hann skilji að þetta er
endanlegt. Ég hef engin áform í huga
um það að fara að binda mig aftur í bráð.
Til dæmis hef ég kynnst fleiri mönnum
en þessum eina, eftir að ég varð frjáls.
Einn þeirra er kvæntur. Það má kannski
vera að einhverjum finnist það glæpsam-
legt af mér sem sjálf er nýskilin að gera
það, en ég heldi ekki að ég sé neitt að
eyðileggja önnur hjónabönd með því.
Ég held að það sé eitthvað ekki í lagi í
hjónabandi ef fólk fer að vera með
öðrum og að ef það væri ekki ég, hefði
það orðið einhver önnur. Vandræðin
verða að mínu áliti fyrst til innan
hjónabandsins sjálfs. Nei, ég hef alls
ekki áhuga á mönnum af því að þeir eru
kvæntir og líklega mundi ég í flestum
tilfellum sniðganga þá.
Við höfðum góða afkomu framan af,
því maðurinn minn fyrrverandi er mjög
duglegur og þegar við kynntumst, - ég
var þa' 18 ára en hann tvítugur, var
hann þegar byrjaður á okkar fyrstu
íbúð. Hann gat unnið mikið í henni
sjálfur, af því að hann var húsasmiður
og ýmsir kunningjar hans sem voru í
öðrum greinum gátu hjálpað honum,
gegn því að hann ynni fyrirþá í staðinn.
En það varð svo að það varð of mikil
vinna úr þessu og ég er alveg sammála