Tíminn - 01.12.1982, Side 1
Halldór Kristjánsson skrifar um bækur — bls. 8-9
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Miðvikudagur 1. desember 1982
274. tölublað - 66. árgangur
■ Fru,fní,fra.Fúsa liggur á. Tíraamynd Róbert.
Tíu sérfræðingar
í matargerðarlist gefa uppskrift
að glæsilegum jólamat:
Átta síðna
blaðauki
um
jólamatinn
■ Tíu sérfræðingar í matargerðarlist gefa
lesendum Tímans uppskriftir að glæsilegum
jólamat fvrir aðfangadagskvöld í jólablaði
Tímans, sem íylgir með fimmtudagsblaðinu
- en í því blaði er séstakur átta síðna
blaðauki um jólamatinn.
Þeir, sem veita uppskriftir að jólamatnum,
eru sérfræðingar á þessu sviði, yfirmat-
reiðslumenn veitingahúsa og hússtjómar-
kennarar. Yfirmatreiðslumenimir em Franc-
ois Fons og Sveinbjöm Friðjónsson á Hótel
Sögu, Haraldur Benediktsson á Hótel Loft-
leiðum, Ragnar Lámsson á Esju, og Jóhann
Bragason á Naustinu, en kennaramir em
Áslaug Sigurgrímsdóttir, Jón B. Sveinsson,
Margrét Sigfúsdóttir og Erna Þórarinsdóttir.
Uppskriftir em m.a. að sveppafylltum
lambahrygg, gljáðum hamborgarhrygg,
reyktu svínslæri, rjúpum, steiktu svínslæri,
önd í ferskjusósu, innbökuðum hamborgar-
hrygg, ofnsteiktum kalkún, appelsínuönd og
„jólasteikinni hennar ömmu“, auk margvís-
legra eftirrétta.
Og þá er bara að missa ekki ;.f Tímanum
á fimmtudaginn!
SlMTÆKI ll
BIFREIÐAR
UMÁRAMÓT!
■ Bílasímakerfi verður tekið í notk-
un hér á landi á næstu vikum. Nú eru
starfsmenn Pósts og síma að leggja
síðustu hönd á fyrsta áfanga kerfisins
sem mun gera landsmönnum kleift að
tala í síma úr bílum sínum í helstu
þéttbýlisstöðum landsins og jafnframt
á nokkrum helstu þjóðvegum.
„Þetta verður handvirk þjónusta,
þannig að menn fá sig afgreidda
gegnum okkar langlínuþjónustu,“
sagði Gústav Arnar, yfirverkfræðingur
Pósts og síma í samtali við Tímann.
„Bílarnir munu kalla upp okkar móð-
urstöðvar, sem til að byrja með verða
settar upp á nokkrum stöðum. Síðan
verða bílarnir tengdir inn á símakerfið
þannig að þeir geta fengið það númer
sem þeir óska eftir. Sömuleiðis er hægt
að hringja í móðurstöðvamar og biðja
um að kallað verði í bíl,“ sagði Gústav.
Talið er að símtækin muni kosta
milli 30 og 50 þúsund krónur, en þau
verða að öllum líkindum flutt inn af
einkaaðilum.
gk/Sjó
Prófkjör sjálfsfædismanna:
VARÐ FYRIR
VONBRIGÐUM”
— segir Geir Hallgrímsson sem
hafnadi í 7. sæti
■ „Varðandi mína eigin útkomu, hef
ég auðvitað orðið fyrir vonbrigðum,“
sagði Geir Hallgrímsson formaður
Sjálfstæðisflokksins m.a. í viðtali við
Tímann í gærkveldi, þegar hann var
inntur álits á úrslitum í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, sem
fram fór nú um helgina, en þar lenti
Geir eins og kunnugt er, í sjöunda sæti.
Geir sagði jafnframt: „Ég er ánægð-
ur með þátttökuna í prófkjörinu, og
tel að hún bendi til að styrkur
Sjálfstæðisflokksins sé mikill. Ég óska
mínum meðframbjóðendum sem náðu
mjög góðum árangri allra heilla.“
Geir sagði jafnframt að hann myndi
í ræðu sinni á flokksráðs- og formanna-
fundi Sjálfstæðisflokksins um næstu
helgi gera grein fyrir stöðu mála og
horfum.
-AB
Sjá nánar bls 3,10 og 11